Fréttablaðið - 16.05.2007, Page 22
Sendum frítt um land allt!
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
0
62
3
Felgustærðir: 15", 16" og 17"
Úrval jeppadekkja upp í 38"
P
R
E
N
T
S
N
IÐ
HEILDARLAUSNIR
Í DRIFSKÖFTUM
Landsins mesta úrval
af hjöruliðum og
drifskaftsvörum
Jafnvægisstillingar
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
BMW X5 er afar skemmtilegur
bíll. Hann hefur stækkað en
þrátt fyrir það er hann enn
mjög lipur.
Það er ekki oft sem fyrirtæki
hefur svo mikla trú á vöru sinni
að það setur hana í sama flokk og
nýja sinfóníu eftir Mozart. BMW
gerir hins vegar nákvæmlega það
með nýja kynslóð X5 jeppans.
X5 er fullvaxinn jeppi. Hann
hefur meira að segja stækkað
milli kynslóða. Þrátt fyrir það
er hann ótrúlega lipur og í raun
furðulegt hvernig hægt er að láta
svo stóran bíl leika svo vel í hönd-
unum á ökumanni. X5 er þó ekki
léttur í stýri í hefðbundnum skiln-
ingi en eins og fyrir einhverja
töfra lætur hann svo vel að stjórn
að stærðin gleymist fljótt.
BMW hefur löngum verið í
fremstu víglínu er kemur að dís-
ilvélum og þriggja lítra línusex-
an í X5 er engin undantekning.
235 hestöfl og 520 Nm tog segja
alla söguna og það á frekar hljóð-
látan hátt. Til að hafa hemil á
öllu þessu afli hefur BMW troð-
ið öllum mögulegum og ómögu-
legum stöðugleikakerfum í bíl-
inn. Þau gera sitt gagn og eru í
raun nauðsynleg. Ekki ýta á takk-
ann sem slekkur á stöðugleika-
stýringunni. Hann virkar svipað
og stóri rauði takkinn í bíl James
Bond. Þá gerist eitthvað rosa-
lega skemmtilegt en svo spring-
ur eitthvað.
X5 er einkar laglegur á að líta.
Algengt er að fara þá leið með
jeppa að gera þá kraftmikla í út-
liti og útblásna en ekki X5. Hann
er rennilegur og stílhreinn, fág-
aður, hreinn og beinn.
Búið er að hanna mælaborð-
ið upp á nýtt í stíl við hönnun-
arlínu BMW. Útlit farþegarýmis
og mælaborðsins verður að telj-
ast helsti löstur X5. Nettir mæl-
arnir passa illa við ímynd X5 og
eiga mun frekar heima í BMW ás
(enda eru mælarnir nánast eins
þar). Rafræna stýring sjálfskipt-
ingarinnar dró líka úr jeppatil-
finningunni og þrátt fyrir að vera
mjög þægileg passaði hún ein-
faldlega ekki við heildarmynd-
ina.
Það verður að teljast hæpið að
fólk muni enn dást að X5 árgerð
2008 árið 2208 eins og við dáumst
enn að Mozart. En í dag er hann
eitt áhugaverðasta ökutækið sem
hægt er að setjast undir stýrið á.
Væri Mozart uppi á okkar tíma
myndi hann án efa keyra um á
X5 með allar rúður niðri og Don
Giovanni í botni.
Mikill verður meiri
Smurþjónusta
fyrir allar gerðir bíla
Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla
Komdu með bílinn til okkar!
Frábær verð og góð þjónusta!
Alltaf heitt á könnunni!