Fréttablaðið - 16.05.2007, Page 29
[Hlutabréf]
Þýsk-bandaríski bílaframleið-
andinn DaimlerChrysler ákvað á
mánudag að taka boði bandaríska
fjárfestingasjóðsins Cerberus í rétt
rúman 80 prósenta hlut í Chrysler-
arm fyrirtækisins. Kaupverðið
nemur 5,5 milljörðum evra, jafn-
virði 477 milljarða íslenskra króna.
Nokkur ásókn var í hlutinn en
bandaríski milljarðamæringur-
inn Kirk Kerkorian bauð jafnvirði
302 milljarða íslenskra króna í fé-
lagið í apríl auk þess sem viðræð-
ur við kanadíska íhlutaframleið-
andann Magna International voru
komnar langt á veg.
Að sögn forsvarsmanna Daim-
lerChrysler er stefnt að því að
kaupin gangi í gegn á þriðja árs-
fjórðungi en félagið heldur eftir
tæplega 20 prósenta hlut.
Chrysler selt
til Cerberus
Icebank hf. hagnaðist um rétt
tæplega 1,8 milljarða króna eftir
skatta á fyrsta ársfjórðungi 2007.
Samkvæmt innanhússuppgjöri
nam hagnaður á sama tíma árið
áður 473 milljónum króna.
Hagnaður á hlut þrefaldaðist
og nam 2,4 krónum borið saman
við 80 aura í fyrra, samkvæmt til-
kynningu bankans. Á fjórðungn-
um var innleystur hálfs milljarðs
króna hagnaður af sölu á fjórðungi
eignar bankans í Exista.
Þá kemur fram að á ársgrund-
velli nemi arðsemi eigin fjár á
ársfjórðungnum 55,7 prósent-
um í samanburði við 31,7 prósent
á sama tíma í fyrra. Er þetta sagt
ein mesta arðsemi meðal innlendra
og erlendra fjármálafyrirtækja.
Icebank birti í gær ársfjórð-
ungsuppgjör í fyrsta sinn, en birt-
ingin er sögð liður í að búa bank-
ann undir skráningu í kauphöll.
Uppgjörið er unnið samkvæmt al-
þjóðlegum reikningsskilastöðlum
(IFRS).
Icebank hagnast
um 1,8 milljarða
Heildartekjur Icelandair Group á
fyrsta fjórðungi ársins voru 11,9
milljarðar króna og jukust um 24
prósent frá sama tímabili í fyrra
samkvæmt árshlutauppgjöri sem
birt var í gær. Eftir skatt skilar fé-
lagið tapi upp á 1,2 milljarða króna
á fjórðungnum.
Jón Karl Ólafsson, forstjóri
Icelandair Group, segir afkom-
una í samræmi við áætlanir sem
geri ráð fyrir góðum hagnaði á
árinu í heild og betri afkomu en í
fyrra. „Miklar árstíðasveiflur eru
í starfsemi innan félagsins, og af-
koma fyrsta ársfjórðungs er jafn-
an neikvæð,“ segir hann og bend-
ir á að félagið stækki hratt og að
fyrri hluti ársins komi til með
að einkennast af umtalsverðum
fjárfestingum í vexti í áætlunar-
flugi Icelandair og í leiguflugi.
Þá gætir í fjórðungnum nei-
kvæðra gengisáhrifa, en um leið
jákvæðra áhrifa af söluhagnaði í
flugvélaviðskiptum.
EBITDA á fyrsta ársfjórðungi
er neikvæð um 81 milljón króna
og EBIT er neikvæð um 833 millj-
ónir, en það er sagt 26 prósentum
betra en á sama tíma í fyrra. Eign-
ir Icelandair Group nema sam-
kvæmt uppgjörinu 76 milljörðum
króna í lok fyrsta ársfjórðungs og
eiginfjárhlutfall er sagt vera 32
prósent. Handbært fé frá rekstri
er 686 milljónir króna.
Tap eftir skatta 1,2 milljarðar
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
7
-0
3
5
3
ÆSKAN OG HESTURINN
Á morgun, 17. maí, bjóða á annan tug hestamannafélaga börnum
og unglingum að kynna sér hestamennsku og starfsemi félaganna.
Dagskráin er mismunandi eftir félögum en m.a. verða hestasýningar,
opin hesthús, teymt undir börnum, grill og gleði.
Tímasetningar:
Andvari Kópavogi kl. 14.00–16.00
Geysir Hellu kl. 14.00 (Vorhátíð á Gaddstaðaflötum)
Stormur Þingeyri kl. 13.30–16.00
Stormur Bolungarvík kl. 13.30–16.00
Hending Ísafirði kl. 14.00–17.00
Sameiginleg stórsýning Léttis Akureyri, Glæsis Siglufirði, Hrings
Dalvík, Stíganda Skagafirði, Léttfeta Sauðárkróki og Þyts
Hvammstanga í reiðhöllinni á Svaðastöðum, Sauðárkróki, verður
haldin kl. 13.00 og kl. 17.00.
Nánari upplýsingar um einstök félög er að finna á www.lhhestar.is.
Glitnir er aðalstyrktaraðili Landssambands hestamannafélaga.