Fréttablaðið - 16.05.2007, Síða 36

Fréttablaðið - 16.05.2007, Síða 36
Kl. 20.30 Vortónleikar Karlakórs Keflavíkur í félags- heimilinu Stapa. Úrvalslið popp- ara kemur fram með kórnum, þar á meðal Rúnar Júlíusson, Jóhann Helgason, Magnús Þór og Magnús Kjartansson. Stjórnandi kórsins er Guð- laugur Viktorsson. 13 14 15 16 17 18 19 Nú er unnið að því að setja á stofn nýtt rit um íslenska myndlist. Myndlistarritið Sjónauki verð- ur blanda af blaði og bók en við- fangsefnið er allt mögulegt sem tengist myndlist. Aðstandendur Sjónauka, myndlistarmennirn- ir Anna Júlía Friðbjörnsdóttir og Karlotta Blöndal, fengu á dögun- um útgáfustyrk frá Kynningar- miðstöð íslenskrar myndlistar. „Það er mikil vöntun á sérhæfðu riti um myndlist á Íslandi. Svo hefur verið í nokkur ár en í gegn- um tíðina hafa margir reynt að koma slíku riti á laggirnar,“ segir Anna Júlía og bætir við að hug- myndin hafi þegar fengið ágætan hljómgrunn enda séu þær stöll- ur síst þær einu sem séu á þeirri skoðun að meiri myndlistarum- fjöllun vanti í íslenska fjölmiðla. „Við stefnum að því að gefa ritið út tvisvar á ári, og að efnið verði bæði á íslensku og ensku,“ útskýrir Anna Júlía. „Mark- mið Sjónauka er meðal annars að vera vettvangur fyrir gagn- rýna umræðu um myndlist því hún er afar lítil hér á landi – það eru greinar á stangli í íslensk- um blöðum en margar þeirra eru meira í ætt við fréttatilkynn- ingar.“ Hún tekur fram að einn- ig skorti talsvert upp á skrásetn- ingu myndlistarinnar þar sem katalógar fylgi fæstum sýning- um. „Þetta verður vandað og eigulegt heimildarit. Við stefnum að því að vera með listamann í hverju tölublaði sem vinnur verk sem fylgir ritinu. Viðkom- andi hefur frjálsar hendur, verk- ið getur verið plakat, diskur eða jafnvel ljósmyndasería. Í blaðinu verður síðan að finna greinargóð- an texta um listamanninn. Hvert tölublað mun einnig hafa ákveðna yfirskrift eða viðfangsefni.“ Stefnt er að því að fyrsta ritið komi út í september. Nýtt myndlistarrit Margrét Sesselja Otterstedt held- ur burtfararprófstónleika frá Píanóskóla Þorsteins Gauta í Saln- um í Kópavogi í kvöld. Á efnis- skránni hennar eru verk eftir Bach, Beethoven, Katsjatúrían, Chopin og Liszt. Margrét hóf nám í píanóleik árið 1996 hjá Guðrúnu Birnu Hannes- dóttur. Frá hausti 2002 hefur hún stundað nám við Píanóskóla Þor- steins Gauta undir leiðsögn Þor- steins Gauta Sigurðssonar. Margrét hefur komið fram við ýmis tækifæri innan skólans sem utan. Undanfarið hefur hún tekið miklum framförum í píanóleik og túlkar mörg verk af mikilli dýpt þrátt fyrir ungan aldur. Hún hefur einnig kennt við Píanóskóla Þor- steins Gauta að undanförnu. Mar- grét Sesselja mun stunda nám við Háskóla Íslands næsta haust.Tón- leikarnir hefjast kl. 20 og er að- gangur að þeim ókeypis. Píanótónar í Salnum „ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“ GRETTIR Miðasala 568 8000 www.borgarleikhús.is grettir.blog. is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.