Fréttablaðið - 16.05.2007, Side 37
Málþing helgað verkum Péturs
Gunnarssonar rithöfundar verð-
ur haldið í Odda á morgun. Pétur
Gunnarsson hefur skrifað tíu
skáldsögur auk fjölda ritgerða og
smáprósa. Hann hefur aukinheld-
ur fengist við þýðingar og ljóða-
gerð.
Meðal þátttakenda á þinginu
verða Bergljót Kristjánsdótt-
ir sem ræðir um skáldsöguna
Hversdagshöllin, Soffía Auður
Birgisdóttir sem fjallar um rit-
gerðasmiðinn Pétur og Torfi Tul-
inius sem ræðir um höfundarverk
Péturs í heild.
Einnig taka til máls rithöfund-
arnir Sigurður Pálsson og Hauk-
ur Ingvarsson auk þess sem Pétur
sjálfur á lokaorðin á þinginu.
Þingið hefst kl. 10 í fyrramálið
og fer fram í stofu 101 í Odda í Há-
skóla Íslands og stendur til 16.30.
Að þinginu standa Hugvísinda-
stofnun, Bókmenntafræðistofnun
og Edda útgáfa.
Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn á meðan húsrúm leyfir.
Efnt til
Pétursþings
Gerðar hafa verið breytingar á
flokkunarkerfi bandaríska kvik-
myndasambandsins (Motion Pict-
ure Association of America) þar
sem reykingar eru nú lagðar að
jöfnu með klámi og ofbeldi þegar
kvikmyndir eru flokkaðar fyrir
unga áhorfendur. Vefútgáfa New
York Times greinir frá þessu.
Myndir sem upphefja reyk-
ingar eiga því á hættu að lenda í
hópi með grófari ofbeldismynd-
um eða opinskárra efni en hópar
sem berjast gegn tóbaksnotkun
hafa um langa hríð herjað á kvik-
myndaframleiðendur og hvatt þá
til að draga úr lofi sínu í garð reyk-
inga. Sumir hópar hafa jafnvel lagt
fram kröfu um að allar kvikmynd-
ir þar sem reykt er skuli bannað-
ar áhorfendum undir sautján ára
aldri nema viðkomandi sé í fylgd
með fullorðnum. Reykingar í þar-
lendum kvikmyndum hafa minnk-
að að undanförnu en milli áranna
2004-2006 dró úr þeim um 8 pró-
sent en þó er enn reykt í 52 pró-
sentum myndanna.
Nýju reglurnar beinast að allra
handa reykingum, ekki aðeins
reykingum ungmenna eins og áður
var. Við mat á myndefni verður
„listrænt gildi“ reykinganna haft
til hliðsjónar sem og samhengið
enda sé það afstætt hvenær verið
er að upphefja athafnir og hvenær
ekki. Þannig verði hinn keðjureykj-
andi sjónvarpsmaður í kvikmynd-
inni Good Night and Good Luck
ekki klipptur út eða bannaður þar
sem sem slíkar reykingar voru við-
teknar á sögutíma myndarinnar.
Eftirlit með bíóreykingum
Nú eru uppi grunsemdir um að
rithöfundurinn Ian Fleming, sem
vann sér það helst til frægðar
að skrifa bækurnar um hetjuna
James Bond, hafi verið viðrið-
inn nornaveið-
ar á stríðsárun-
um. Skoski vef-
miðillinn STV.
TV greinir frá
því að Fleming
hafi mögulega
átt þátt í því að
koma meint-
um „norna-
njósnara“ bak við lás og slá. Kona
þessi, Helen Duncan, var hand-
tekin í seinni heimsstyrjöldinni
eftir að hún gaf upp of nákvæmar
hernaðarlegar upplýsingar á mið-
ilsfundi.
Fleming er álitinn hafa hjálpað
til við að koma sök á konuna vegna
grunsemda um að hún væri njósn-
ari sem notaði skyggnigáfu sína í
þágu óvinarins. Fleming var við-
riðinn bresku leyniþjónustuna á
þessum tíma.
Fjölskylda Duncan berst enn
fyrir því að ættmóðirin fjölkunn-
uga verði náðuð opinberlega og
fær heimasíða tileinkuð henni
fjölmargar heimsóknir á degi
hverjum.
Nornaveiðar
FIMMTUDAGUR 17. MAI FRÁ 20:00
(MALI)
(IS)
Á NASA VIÐ AUSTURVÖLL
LAUGARDAGUR 19. MAI FRÁ 20:00
(YUG)
“Fjör fyrir brúðkaup
og jarðarfarir”
Í LAUGARDALSHÖLL
MIÐASALA
í verslunum
Skífunnar, BT
Akureyri &
Egilstöðum og
á Midi.is
FIMMTUDAGUR 17. MAI FRÁ 20:00
(MALI)
(IS)
Á NASA VIÐ AUSTURVÖLL
FÖSTUDAGUR 18. MAI FRÁ 20:00
(UK)
(IS)
Á NASA VIÐ AUSTURVÖLL
Sigríður Klingenberg spámiðill
Gæsa- og steggjapartý,
konu- og karlakvöld,
saumaklúbbar og
aðrar almennar uppákomur
Pantanasími og nánari upplýsingar í
síma: 899-0889 - www.klingenberg.is