Fréttablaðið - 16.05.2007, Síða 41
Alls hafa þrjú lög með hinni efni-
legu Wulfgang fengið útvarpsspil-
un. Að mínu mati hafa þau aldrei
gefið neitt til kynna annað en að
sveitin hafi örlítið fram að færa
en lítið meira en það. Annað efni á
plötunni gefur manni heldur ekki
ástæðu til þess að hampa Wulf-
gang á neinn sérstakan hátt.
Lögin á plötunni sveima í klis-
jukenndum graut ófrumlegra
hugmynda sem eru illa framsett-
ar. Í sífellu er verið að reyna að
brjóta upp formið með fjölbreytt-
um kaflaskiptingum sem eru oft
óþolandi tilgangslausar. Og ekki
afsaka þetta með því að segja að
þetta sé einfaldlega þróað og flók-
ið rokk. Hér eru vissulega gerðar
tilraunir til slíks en ekki með til-
skildum árangri. Hlustið einfald-
lega á ófrumlegar gítarpælingar
í byrjun á Arrivals of the Visitors
og síðan At the Drive-in/Metallica
grautinn sem á eftir kemur.
Platan er fjórskipt og er við-
fangsefnið hin eilíft frumlegu
þemu; lífið, dauðinn, ástin og allir
þessir hlutir „sem eru að hrærast í
hausnum á fólki alla daga“, eins og
það var orðað í nýlegu viðtali. Text-
arnir eru líka ákveðið viðfangsefni
útaf fyrir sig í ófrumleika og klisj-
um. „Ashes II ashes and dust II
dust/The only words that you can
trust/Passion II passion and lust II
lust/You and I, we both are crus-
hed … [og bomban!] to dust.“
Mind, söngvari sveitarinnar,
býr reyndar yfir kröftugri og sér-
stæðri rödd en beitir henni stund-
um á vafasaman og pirrandi hátt.
Eins eru gítarleikararnir, Ikarus
og Arrows (ég er ekkert að grínast
með þessi heiti, þeir kalla sig þetta
í alvörunni. Þarna eru líka Bobby
Vegas og David Jones), oft í ágæt-
is hugleiðingum en missa oft sjón-
ar á markmiðinu.
Vandað hefur hins vegar verið
til verksins, platan má eiga það.
Grafísk hönnun umslagsins er til
fyrirmyndar og öll hljóðvinnsla
fyrirtaks. Verst að inntakið þurfi
að sigla um í öldudal rokkklisja,
oft algjörlega stefnulaust og
nær því miður aldrei að rísa yfir
meðalmennskuna.
Klisjukenndur rokkgrautur
Um næstu mánaðamót koma hing-
að til lands þrjár erlendar hljóm-
sveitir á vegum þýska útgáfufyr-
irtækisins Morr Music. Sveitirn-
ar, Isan, Tarwater og The Go Find,
spila á tónleikum ásamt tveimur ís-
lenskum hljómsveitum sem einnig
eru á mála hjá Morr, Benna Hemm
Hemm og Seabear.
Sameiginlegir tónleikar Morr-
sveitanna fara fram í Iðnó þriðju-
daginn 5. júní. Það verða svo Thom-
as Morr, stofnandi Morr Music-út-
gáfunnar og DJ Apfelblut sem snúa
skífum á milli atriða.
Í tengslum við tónleikana hér á
Íslandi verður gefin út plata í um
200 eintökum hérlendis sem inni-
heldur lög með öllum listamönn-
unum sem taka þátt í þeim. Benni
Hemm Hemm á þar tvö lög, lagið
Aldrei sem áður kom út á plötu hans
Kajak, og lagið Skvavars í nýrri út-
gáfu. Hljómsveitin The Go Find á
tvö áður óútgefin lög, Ice Bear og
Pavement-ábreiðuna Perfume V.
Tarwater á einnig tvö ný lög á plöt-
unni og Re-spring My Sing Rever-
se er endurhljóðblöndun Isan á
múm-lagi. Nýjasti meðlimur Morr-
fjölskyldunnar, hinn íslenski Sea-
bear, á tvö lög á plötunni.
Forsala er hafin á tónleikana í
Iðnó í 12 tónum og kostar miðinn
þar 1.700 kr. en mun kosta 2000 kr.
á tónleikastað.
Erlendar sveitir á
Morr-tónleikum
Franski leikarinn og atvinnutrúð-
urinn Julien Cottereau sem fer
með eitt af veigamestu hlutverkun-
um í nýjustu mynd Sólveigar Ans-
pach, Skrapp út, hlaut á dögunum
frönsku leiklistarverðlaunin sem
kennd eru við Molière. Var Cot-
tereau valin vonarstjarna ársins í
flokki karlleikara fyrir stórkostleg-
an trúðseinleik sinn „Imagine–toi“
en í umsögn dómnefndar kom fram
að hann byggi
yfir ótrúleg-
um „sýningar-
hæfileikum“.
Cottereau
„skrapp út“
til Frakklands
til að taka við
verðlaunun-
um en er vænt-
anlegur aftur
til landsins í
vikunni til að
klára tökur á
myndinni.
Skrapp út
À la carte postulín
Nú fæst nýja Alizée-stellið frá Pillivuyt líka á Íslandi
R
V
62
35
Rekstrarvörur
1982–200725ára
Halldór Sigdórsson
Þjónn, aðstoðarverslunarstjóri hjá RV
Óhefðbundin hönnun
Skemmtilegt í framreiðslu
Nýi pillenium-leirinn gefur
postulíninu aukið högg- og hitaþol
Opnar nýjar víddir
í veitingaþjónustu.
HVER ÞARF UPPHÆÐIN AÐ VERA SVO ÞÚ SVÍKIR ÞJÓÐ ÞÍNA...
FRÁ FRAMLEIÐANDA
ATRIX, DIE HARD OG
Stærsta
orrustan
er innri
baráttan
ALDREI HAFA TVEIR KARLMENN DANSAÐ JAFN VEL SAMAN!
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
hraðskreiðir bílar, súpermódel og partý...
þarf ekki eitthvað meira til að sanna að þú sért frábær leikmaður?
HILARY SWANK STÓRSTJÖRNUR ÚR REAL MADRID...
/ KRINGLUNNI / KEFLAVÍK/ ÁLFABAKKA / AKUREYRI
DIGITAL-3D
DIGITAL
SPIDERMAN 3 kl. 8 - 10 B.i. 10
NEXT kl. 8 Leyfð
GOAL 2 kl 8 -10 B.i. 7
BLADES OF GLORY kl 8 - 10 B.i.12
GOAL 2 kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i.7
THE REAPING kl. 8:10 - 10:20 B.i.16
BLADES OF GLORY kl. 6 - 8:10 B.i.12
ROBINSON FJ... M/- ÍSL TAL kl. 6 Leyfð
300. kl. 10:20 B.i.16
BREACH kl. 8 B.i.12
MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 4 Leyfð
ROBINSON FJ... M/- ÍSL TAL kl. 4 Leyfð
WILD HOGS kl. 8 b.i 7
BECAUSE I SAID SO kl. 6 Leyfð
THE REAPING kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.16
SPIDER MAN 3 kl. 3:30 - 6 - 9 - 10:30 B.i.10
SPIDER MAN 3 VIP kl. 6 - 9
BLADES OF GLORY kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12
SHOOTER kl. 10:30 B.i.16 www.SAMbio.is