Fréttablaðið - 16.05.2007, Page 48
SIMPLY CLEVER
Við skorum á þig að koma og skoða nýjasta meðliminn í
Skoda fjölskyldunni, Skoda Roomster. Roomster er snarpur
og skemmtilegur bíll með ótrúlegt notagildi. Hönnunin,
aðgengið og útsýnið gerir aksturinn að hreinni unun.
Roomster er flottur og hagkvæmur bíll fyrir
nútímafjölskylduna
RÚM FYRIR MEIRA!
Verð frá 1.790.000 kr.
Skoda Roomster
Kemur á óvart!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
9
0
6
2
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is
Ekki man ég eftir viðlíka stemn-ingu í höfuðborginni og þegar
grænklædda risessan leið um
stræti og torg með föður sinn
í eftirdragi. Mikið var gaman.
Svona á Listahátíð í Reykjavík að
vera. Hún á nefnilega ekki aðeins
að fara fram í tónleikasölum eða
leikhúsum heldur teygja sig um
götur borgarinnar og sinna börn-
unum ekki síður en þeim full-
orðnu. Áhugi barnanna beindist
að hverjum krók og kima risess-
unnar ef mark er takandi á svolít-
illi umfjöllun sem birtist í Blað-
inu. Þar er sagt frá því að „for-
vitnir smástrákar“ hefðu gerst
„svo dónalegir að kíkja undir
pils hennar svona rétt að athuga
hvort ekki væri allt í „réttum
hlutföllum“.“
á því sem skessur
fela undir pilsum sínum er síður
en svo nýr af nálinni hér á landi.
Í íslenskum þjóðsögum er sagt
frá einmana skessum sem taka
það til bragðs að ræna karlmönn-
um til að fjölga sér. Ein þeirra
hét Loppa og stal hún manni að
nafni Jón. „Hún hafði hann heim
í helli sinn þar sem systir henn-
ar var fyrir ... Hugðu þær að hafa
Jón þennan til fylgilags við sig,
svo þær gætu aukið kyn sitt. Þær
tóku hann oft og mökuðu hann í
eins konar smyrslum og teygðu
hann á milli sín. Líka orguðu þær
í eyru honum til að trylla hann,“
segir í þjóðsagnasafni Sigurðar
Nordal.
meðferðina komst
Jón undan á flótta en lifði bara í
þrjá daga sem frjáls maður. Þá
gaf hjartað sig og er talið að hann
hefði sprungið af mæði. Hann
varð nefnilega svo sílspikaður hjá
systrunum að um margt minnir á
Hans í búri nornarinnar. Í ljósi
alls þess sem borið hefur verið
upp á skessur í gegnum tíðina
veit ég ekki alveg hvort ég óska
þess að mamma risessunnar, og
þá barnsmóðir skapvonda risans,
mæti til leiks á næstu Listahátíð.
Þau feðginin hafa líka alveg gert
sitt gagn.
virðist
heimsókn þeirra hafa þurrkað út
síðustu leifarnar af minningum
borgarbúa um Japanann sem eitt
sinn kom hingað á vegum Listahá-
tíðar og stóð á haus í Austurstræti
á typpinu. Vissulega fór list hans
líka fram úti á götu eins og atriðið
með risessunni en það sem hann
hafði helst fram að færa teygði
sig þó ekki út um allan miðbæ.
Risessa tryllir
borgarbúa