Tíminn - 21.06.1980, Blaðsíða 9

Tíminn - 21.06.1980, Blaðsíða 9
8 IÞROTTIR Laugardagur 21. júní 1980 lilv.'l >i 1H'! GUÐLAUGS ÞORVALDSSONAR Guðlaugur og Kristín verða á fundi að Hvoli Hvolsvelli þriðjudaginn 24. júní kl. 21.00 Fundarstjóri: sr. Hannes Guðmundsson. Ávörp: Albert Jóhannsson Anna Margrét Jafetsdóttir Fannar Jónasson Magnús Finnbogason Matthías Pétursson Sveinn Runólfsson Ljóðalestur: Guðrún Jónsdóttir og Guðný Pálsdóttir Einsöngur: Rut L. Magnússon Pianóleikur: Jónas Ingimundarson. Almennur söngur við undirleik önnu Magnúsdóttur. Húsið opnað kl. 20.30. Jónas Ingimundar- son leikur létt lög á pianó. Studningsmenn. Eigum nokkra International traktora 45-72 Hö til afgreiöslu strax. Kynniö ykkur okkar sérstöku greiöslukjör. Ármúla3 Reykjavik Simi 38900 Bikarmeistarar Fram mæta Val •dregið í 16 liða úrslit bikarkeppninnar i gær •„Anægður með dráttinn” segir Kristinn Atlason leikmaður með Fram 1 gær var dregið i 16-liða úrslit Bikarkeppni KSÍ. Bikarmeist- arar Fram drógust gegn Val og er greinilegt að um stórleik verður að ræða. Drátturinn fór fram á skrifstofu KSI á hádegi i gær og voru það þeir Lúðvik Halldórsson for- maður knattspyrnudeildar Fram og Valsmaðurinn Bergsveinn Alfonsson sem drógu fyrstu tvo miðana úr pottinum fræga. Önnur lið sem drógust voru sem hér segir: Viðir/Vik. Ólafsvik-Þróttur Nes. 0 Kristinn Atlason. íslandsmótið i knattspyrnu 2. deild: Dýrmætur sigur ísfirðinganna Þrir leikir voru háðir í 2. deild Islandsmótsins í knattspyrnu í gærkvöldi. A Akureyri léku Þór og Selfoss og lauk leiknum meö sigri Þórs 4:0 eftir aö staöan I leikhléi hafði veriö 0:0. Mörk Þórs skoruðu Nói Björnsson, Arni Stefánsson (viti) og Óskar Gunnarsson tvö. Hitt Akureyrarliðið I 2. deild KA lék gegn IBI á tsafirði og mátti þola tap 2:3 i skemmtileg- um leik. Fyrir IBI skoruðu Andrés Kristjánsson, Haraldur Leifsson og Kristinn Kristjánsson en fyrir KA skoruðu Elmar Geirsson (vlti) og Oskar Ingi- mundarson. Þá léku Haukar gegn Armanni og sigruöu Haukar með tveimur mörkum gegn einu. Mörk Hauka skoruðu Loftur og annaö mark Hauka var sjálfsmark. Mark Ar- manns skoraöi Þráinn Asmunds- son. Annar linuvöröurinn, Grétar Norðfjörð kom nokkuð viö sögu I leiknum þar sem hann gaf I sam- ráði við dómara leiksins Ólafi Jóhannessyni rautt spjald en I kærunni sem send var aganefnd KSI eftir leikinn stóð að leik- manni númer átta hefði veriö vik- ið af leikvelli. —SK. Björgvin bestur — að 18 holum loknum • á „Johnny Walker” keppninni í golfi Johnny Walker keppnin I g'olfi hófst á Nesvelli kl. 17.30 i gær og léku karlar þá fyrstu 18 holurnar I keppninni. Þegar Timinn haföi samband við Goifskálann á Nesinu seint I gærkvöldi var staöan þannig eftir 18 holur: högg 1. Björgvin Þorsteinsson GA 71 2. Hannes Ey vindsson GR 74 3.-4. Geir Svansson og óskarSæmundsson GR 75 5. Siguröur Hafsteinsson GS 76 Leiðrétting Sú leiðiniega villa slæddist inn á Iþróttasiðuna i gær að sagt var að Linda B. ólafsdóttir hafði oröið önnur I 800 m hlaupinu á Reykjavikurleikunum en hið rétta er aö Linda B. Loftsdóttir varð I öðru sæti. Þeir sem hlut eiga að máli eru beönir velviröingar á þessum mistökum. Þessi frammistaða Björgvins kemur nokkuö á óvart þar sem hann hefur ekki náð aö sýna sitt besta upp á slökastiö. Er þar skemmst að minnast Pierre Robert keppninnar sem haldin var fyrir skömmu en þar lenti hann 1 9. sæti. En þrjú högg eru ekki mikill munur i golfi og er Hk- legt að Hannes Eyvindsson og næstu menn eigi eftir að veita hinum fyrrverandi Islandsmeist- ara I golfi harða keppni i dag en kappamir leggja af stað i siðari 18 holumar kl. 13.00 I dag. Kvennakeppnin hefst kl. 11.00 (laugardagsmorgun) og uns þeirri keppni er lokið æða karl- arnir á brautina og er greinilegt á tölunum eftir fyrri 18 holurnar, að keppnin veröur mjög tvisýn og spennandi I dag og er fólk hvatt til að mæta. Þess má geta, að verðlaun fyrir efsta sætiö er ókeypis ferð á „Walker Cup” sem fram fer i Danmörku seinna i sumar og verða þarmeöal keppenda marg- ir á meðal bestu kylfinga Evrópu. Það ætti þvi að vera ljóst, að til mikils er að vinna. —SK. Þróttur R-UBK IBV-KR Fylkir-KS, Siglufiröi FH-IA KA-Vikingur Grlótta-IBK ,,Ég er bara ánægður með þetta,” sagði Kristinn Atlason hinn sterki miðvörður Fram I samtali við Timann eftir að ljóst var að lið hans myndi mæta Vals- mönnum, en Kristinn var i Fram- liðinu þegar það varð bikarmeist- ari i fyrra. Þá sigraði Fram ein- mitt Val i úrslitaleik. „Það skiptir okkur Framara ákaflega litlu máli hvort við vinnum Valsmennina strax i fyrsta leik eða einhverntima seinna i keppninni. Við stefnum að sigri i Bikarkeppninni i ár eins og I fyrra og ekkért annað kemur til greina,” sagði Kristinn. En hvort Kristinn reynist sann- spár verður timinn að leiða i ljós en vist er að um hörkuleik verður að ræða. Aætlað er að leikirnir fari fram I kringum 2. júli. —SK. Meistara- mót í frjálsum Meistaramót tsiands i frjáls- iþróttum fer fram 3. 4. og 5. júli n.k. Mótið verður haldið á frjálsiþróttavellinum i Laugar- dal og sér frjálsiþróttadeild Ár- manns um mótið eins og undan- farin ár. Lágmörk eru til þátttöku á mótinu og skal þeim hafa verið náð á þessu ári eða 1979. Keppnisgreinar eru eftirfarandi og lágmörk innan sviga: 3. júli karlar. 200 m. (23,5 sek) 800 m. (2.02.0 min) 5000 m (ekkert lágmark) 400 m. grind. (58.5 sek) kúluvarp (14.50 m.) spjótkast (60.00 m.) hástökk (1.90 m.) langstökk (6.50 m.) 4x100 m boðhlaup konur 200 m (26.5 sek) 800 m. (2.22.0 min.) lOOm. grind. (17.0. sek) hástökk (1.55) m.) spjótkast (32.00 m.) kúluvarp (10.00 m.) 4x100 m. boðhlaup. 4. júli: Karlar: 100 m. (11.3 sek) 400 m. (52.0 sek) 1500 m. (4.15.0 min) 110 m. grind. (16.5 sek) stangarstökk (4.00 m.) þri- stökk (13.50 m.) sleggjukast (ekkert lágmark kringlukast (45.00m.) 4x400 m. boðhl. Konur: 100 m. (12.8 sek) 400 m. (60.0 sek) 1500 m. (ekkert lág- mark) langstökk (5.00 m.) kringlukast (32.00 m.) 4x400 m. boðhlaup. 5. júli. Fimmtarþraut karla og 3000 m. hindrunarhlaup. Þátttökutilkynningar ásamt þátttökugjaldi kr. 300. fyrir hverja skráningu og kr. 1000 fyrir hverja boöhlaupssveit ber- ist Jóhanni Jóhannessyni Blönduhlið 12, fyrir 26. júni. Til- kynningar sem berast eftir þann tima verða ekki teknar til greina. (fréttatilkynning) Laugardagur 21. júni 1980 IÞR0TTIR IÞR0TTIR 13 Júlíus Hafstein formaður HSI. Handknattleikssamband Islands hefur ákveðið að stefna Sjónvarpinu vegna vangoldinna gjalda fyrir efni sem sýnt hefur verið í Sjónvarpinu á sfðasta vetri. Á samtölum þeim sem hér fara á eftir er greinilegt að mikið stórmál er í uppsigl- ingu og hefur raunar verið stórmál alllengi. Svo virðist sem mikil kergja sé upp komin á milli HSi annars vegar og Sjón- varpsins hins vegar. Tíminn snéri sér til Júlíusar Hafstein sem er formaður HSi og innti hann frétta af málinu. „Það er komin upp sú staöa aö viö getum ekkert annað gert en stefnt Sjónvarpinu og verður þaö gert I samráði við lögfræöing okkar. Þetta mál er búið aö vera þrautleiöinlegt og þaö er mikiö búið HSI STEFNIR SJÖNVARPINU • vegna vangoldinna greiðslna á útsendu efni að reyna aö komast að samkomu- lagi en þaö hefur ekki tekist. Þeir hjá Sjónvarpinu hafa ekki greitt okkur eina einustu krónu fyrir efni það sem þeir sýndu á s.l. vetri. Þaö iefni sýndu þeir i algjöru heimildar- leysi og þeir voru ekki með neina samninga I höndunum. Þrátt fyrir aö Sjónvarpiö hafi ekki viljaö semja við okkur hafa þeir samið viö aöra aðila innan Iþróttahreyf- ingarinnar og ég get ekki skiliö þaö á annan hátt en að Sjónvarpið sé meö þvi aö draga Iþróttafólk I dilka. Þaö sem við hjá HSI getum ekki sætt okkur viö er I aðalatriðum þaö að Sjónvarpið skuli sýna myndir af landsleikjum i handknattleik án þess að borga krónu fyrir þaö. I öðru lagi finnst okkur þaö ekki rétt, að annar aðilinn skuvlieingöngu ráöa um verð fyrir þessar sýning- ar. Mér finnst þessi framkoma hjá Sjónvarpinu vera rikisvaldinu til vansæmdar. Samband eins og HSI sem I dag stendur höllum fæti má alls ekki við sliku óréttlæti sem hér er haft I frammi. Þar fyrir utan er handknattleikurinn næstum eina knattiþróttin sem við lslendingar getum vænst einhvers árangur af á alþjóöavettvangi. Þetta mál er leiðinlegt svo ekki sé meira sagt. Það er búið að ergja mann mikiö en eins og staöan er i dag er HSI ákveöið I aö stefna Sjón- varpinu enda getum við ekkert annaö gert til aö standa á rétti okkar,” sagði Július Hafstein. Heyrst hefur að HSÍ sé með tóman kassa Hörður Vilhjálmsson fjármála- stjóri hafði þetta að segja:. „Þaö hefur frést að HSI sé með tóman kassa. Við höfum reynt nú undanfarið að vinna að heildar- samkomulagi við ISI um greiðslur fyrir lýsingar og sjónvarpsmyndir af iþróttaviðburöum, (öll sérsam- böndin innan ISI) og er það gifur- lega mikið verk. Þess vegna viljum við ekki á meðan málum er svo háttaö semja viö eitt sérsambandanna sér. Við höfum að visu gert samning við körfuknattleikssambandið en þaö varð að samkomulagi aö um leiö og heildarsamningurinn kæmi I gangiö félli samningurinn við KKI inn i þennan heildarsamning,” sagöi Hörður. Hörður Vilhjálmsson fjármála- stjóri Ctvarps og Sjónvarps. „Sjónvarpið sýndi I fyrra 63 minútur frá landsleikjum i hand- knattleik. Við höfum boöist til að greiöa 1.2 milljónir fyrir þessar 63 minútur. Það er siöan i bigerö að Geröardómur skeri úr um hvort þetta sé réttmæt tala eða ekki. Þá má þaö koma fram hér að þegar samningar stóðu yfir á milli Sjónvarpsins og HSI gat Július Hafstein aldrei lagt fram lista yfir þá landsleiki sem fram áttu að fara um veturinn. Hann kom að máli við Bjarna Felixson iþróttafréttamann Sjónvarpsins og gaf honum ramma aö þeim leikjum sem ákveöið var að færu fram. Þaö kom i ljós siöar að þetta skipulag Júliusar rann meira og minna út I sandinn. Af ofanskráðu er ljóst að menn eru ekki á eitt sáttir. Þess má geta að upphæöin sem HSI fer fram á er hátt á fjórðu milljón og er það ekki svo litill peningur. En fróölegt veröur að fylgjast meö framvindu þessa máls. —SK. ^3» Karl Þórðarson endurnýjaöi samning sinn viö La Louviere fyrir skömmu. KARL Þ. ÁFRAM HJÁ LA L0UVIERE Skagamaðurinn Karl Þórðar- son sem hefur leikið með belg- íska knattspyrnuliðinu La Louv- iere undanfarið er nýbúinn að endurnýja samning sinn við sama félag. Þetta kemur nokkuð á óvart þar sem almennt var búist við að hann færi til einhvers annars félags en ástæðan fyrir því er sögð sú að LaLouviere hafi kraf ist of f jár fyrir Karl og önnur félög ekki séð sér fært að greiða svo mikið fyrir Karl. —SK. Fjórir nýliðar í landsliðinu + í knattspyrnu sem mætir Finnlandi og valið var í gær Knattspyrnumanna- samband Islands boðaði til blaðamannafundar i gær þar sem tilkynnt var val 16 manna landsliðs- hópsins sem leika á gegn Finnum. I hópnum sem er hér birtur eru fjórir nýliðar. Það eru þeir Þorgrimur Þráinsson VaW Bjarni Sigurðsson, IA, óskar Færseth IBK og Magnús Bergs Val. Lands- leikurinn gegn Finnum fer fram á miðvikudag. Þjóðirnar hafa leikið sex landsleiki og hafa Islend- ingar sigrað einu sinni en Finnar fjórum sinnum. Síðast þegar leikið var töpuðu Islendingar 0:1. Landsliðshópurinn er þannig: Bjarni Sigurösson, ÍA Þorsteinn Bjarnason, La Louviere Arnór Guðjohnsen, Lokeren Arni Sveinsson, IA Guöm. Þorbjörnss., Val Janus Guðlaugsson, F. Köln Karl Þórðarson, La Louviere Magnús Bergs, Val Marteinn Geirsson, Fram ólafur Júliusson, IBK Óskar Færseth, IBK Pétur Péturss., Feyenoord Siguröur Halldórss., 1A Teitur Þóröarson, öster Trausti Haraldsson, Fram Þorgrimur Þráinsson, Val Yfirleitt er hægt að deila um val einstakra leikmanna en þaö er skoðun undirritaðs, a'ð'þat) sé engin ástæða til þess aö þessu sinni. Þorsteinn ólafsson getur ekki leikið i islenska markinu þar sem liö hans IFK Gautaborg er að leika sama dag i hinni svo- kölluðu TOTO-keppni. Asgeir Sigurvinsson er meiddur og hefur ekki getað æft að undan- förnu þannig aö ekki kemur hann til greina. Guðmundur Baldursson markvöröur er meiddur og veröur frá keppni i 2-3 vikur. Það er þvi greinilegt að hinn ungi og efnilegi mark- vöröur úr 1A, Bjarni Sigurðsson fær sitt fyrsta tækifæri gegn Finnlandi. Þorsteinn Bjarnason meiddist I vetur og gat lltiö leikið meö liði sinu fyrr en i lok mótsins og hefur æft vel suöur I Keflavik að undanförnu. Nokkur gagnrýni kom fram á fundinum á vali Þorsteins. Vildu menn meina aö betra hefði verið að velja einhvern leikmann úr 1. deildinni islensku eöa jafnvel Arsæl Sveinsson sem leikur eins og kunnugt er I Sviþjóð. „Þorsteinn hefur þó nokkra reynslu og við sem veljum þetta landslið kom- umst að þeirri niöurstöðu aö viö treystum honum best til þess að taka viö markmannsstarfinu ef til meiösla kæmi hjá Bjarna. Við hreinlega treystum ekki markmönnunum hér heima, það er staöreynd málsins”, sagöi Guöni Kjartansson lands- liösþjálfari á fundinum i gær. Guöni var spuröur um sigur- möguleika okkar gegn Finnum. „Það er alveg ljóst aö ef viö náum aö spila heilan leik eins vel og fyrri hálfleikinn gegn Wales þá ættum viö aö hafa þó nokkra sigurmöguleika. En þaö er alltaf sama vandamáliö hjá okkur. Viö höfum engan tima fyrir landsliöiö. Þeir leikmenn sem leika meö erlendum liöum komast ekki til landsins fyrr en nokkrum dögum fyrir hvern landsleik og þaö gefur þvi auga leiö aö erfitt er aö samrýma hópinn. Fyrri hálfleikurinn gegn Wales var góöur hjá okkur. Þó vantaöi þaö hjá sóknarleik- mönnum okkar og þá sér i lagi tengiliöunum aö þeir virtust ragir viö aö sækja inn i vitateig andstæöingsins. Þetta veröur aö Framhald á bls 19 ÞingHSÍ á sunnudag Framhaldsþing Handknatt- leikssambands islands veröur háö aö Hétel Loftleiðum á sunnudaginn, 22. júni n.k. og hefst þaö kl. 14.00. Fyrir þinginu liggja tveir dagskrárliöir þ.e. önnur mál og kosning stjórnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.