Tíminn - 06.07.1980, Qupperneq 7

Tíminn - 06.07.1980, Qupperneq 7
Sunnudagur 6. júll 1980. 7 fgmgim Þórarinn Þórarinsson Búnaðarbankinn mun lengi njóta Tryggva og Hilmars Tryggvi Þórhallsson. Hilmar Stefánsson. Aðdragandinn Margar merkar stofnanir eiga hálfrar aldar afmæli á þessu ári. RikisútvarpiB og Búnaöarbankann ber þar hæst. Afmæli þessi eru góBur vitnis- buröur um þá miklu framfara- stjórn, sem sat þá viö völd, en rétt er jafnframt að geta þess, aö vel áraöi á þessum tima og bjartsýni þvi mikil. Þaö var eitt af upphaflegum baráttumálum Framsóknar- flokksins, aö landbúnaöurinn ætti aö hafa sama aögang aö lánsfé og sjávarútvegur og verzlun, en slikt var þá ekki. Fyrsti sigur flokksins vannst á þessu sviði, þegar hann átti þátt I þvi undir forustu Gests Einars- sonar frá Hæli, aö Magnús Sigurösson varö bankastjóri viö Landsbaknann. Bankinn sinnti bændasamtökunum og bændum mun betur eftir þaö en áöur. En betur mátti þó. Eitt fyrsta verk Tryggva Þórhallssonar eftir aö hann kom á þing 1924 var aö flytja frumvarp um bún- aðarmáladeild viö Landsbakn- ann. Það var ekki samþykkt, en árangur uröu lög um Ræktunar- sjóö Islands, sem samþykkt voru á næsta þingi. Ræktunar- sjóöurinn fékk nokkurt fé til umráöa, m.a. framlag úr rlkis- sjóöi, og gat því veitt nokkur lán til ræktunar, vélakaupa og útihúsabygginga. Jónas Jónsson flutti fljótlega eftir aö hann kom á þing frumvarp til laga um Byggingar- og landnámssjóö, sem. m.a. skyldi veita hag- kvæm lán til bygginga f sveit- um. Þetta frumvarp sætti i fyrstu mjög hatrammri mót- spyrnu og var m.a. sagt, aö slík lánastarfsemi myndi gera bændur aö ölmusulýö. Frum- varp var samþykkt á þingi 1928 eftir aö Framsóknarflokkurinn var kominn til valda meö til- styrk Alþýðuflokksins.t kjölfar þess fylgdu lög um verka- mannabústaöi á næsta þingi. Lögin um bankann Þaö var ljóst, aö þótt lögin um Ræktunarsjóö og Byggingar- og landnámssjóö kæmu aö veru- legu gagni fyrir bændur. Strax eftir aö Tryggvi Þórhallsson varö forsætis- og landbúnaöar- ráöherra, hófst hann handa um aö undirbúa löggjöf um bún- aðarbanka. Tryggvi Þórhallsson fól Böövari Bjarkan lögmanni á Akureyri, aö undirbúa slfka lög- gjöf. Frumvarpiö um Búnaöar- banka Islands var lagt fram f þingbyrjun 1929. 1 greinargerö þess sagði m.a. á þessa leiö: ■ „Þar sem svo stendur á, eins og lýst hefur verið hér aö framan, aö landbúnaöurinn hefur aö allra dómi þörf fyrir sérstaka lánsstofnun, til þess aö annast viöskiptalán og búrekstrarlán til bænda. aö landbændur bera skaröan hlut frá boröi I samkeppninni um þau fasteignalán til langs tima, sem lánastofnanir lands- ins hafa nú á boöstólum, og f þriöja lagi, aö nú þegar eru til tvær lánastofnanir, Ræktunarsjóöur og Byggingar- og landnámssjóöur, sem eingöngu starfa aö sérstakri tegund lánveitinga til landbún- aöar, þá vaknar eölilega sú •spurning, hvort lánsþörf land- búnaöarins muni eigi bezt og hagkvæmast fullnægt meö þvi aö stofna sérstakan banka, er heföi allar tegundir landbún- aöarlána meö höndum, en starf- aöi ekki aö neinu ööru.” Svariö viö þessari spurningu var játandi eins og flutningur frumvarpsins bar merki um. Frumvarpiö fékk góöar undirtektir og var samþykkt samhljóöa i báöum þingdeild- um, aö undanskildu þvi, aö einn maöur greiddi atkvæöi gegn þvi. Hér er ekki tækifæri til aö rekja þróunarsögu Búnaöar- bankansfrá þvi aö hann var litil lánastofnun og þangaö til hann varö annar stærsti banki lands- ins, eins og hann er I dag. Þess ber þó aö minnast, aö margir mætir menn hafa komiö þar viö sögu, en nöfn tveggja skera sig samt úr. Þaö eru nöfn þeirra Tryggva Þórhallssonar og Hilmars Stefánssonar. Tryggvi Þórhallsson Tryggvi Þórhallsson var aðal- stofnandi bankans, eins og ráöa má af þvi, sem er rakiö hér aö framan. Hann tók svo viö stjórn bankans 1932, er hann lét af störfum sem forsætisráðherra, og gegndi þvi til, 1935, er hann féll frá fyrir aldur fram, 46 ára gamall. I afmælisriti Búnaöarbankans segir frá Tryggva á þessa leið: Tryggvi Þórhallsson var fæddur 9. febrúar 1889 I Reykja- vik. Foreldrar hans voru ÞórhallurBjarnarson biskup og kona hans Valgerður Jónsdóttir. Tryggvikvæntist önnu Guörúnu Klemensdóttur og eignuöust þau sjö börn. Tryggvi Þórhalls- son varö stúdent 1908, lauk prófi I forspjallsvisindum frá Kaup- mannahafnarháskóla og guðfræðingur frá Háskóla Islands 1912. Stundaöi hann siöan kennslustörf m.a. I guöfræöideild H.í. og Samvinnuskólanum. Tryggvi var sóknarprestur á Hesti I Borgarfiröi 1913—1917 og ritstjóri Tfmans árin 1917-1927. Næstu árin stóö hann I fylk- ingarbrjósti Islenzkra stjórnmálamanna, var forsætis- ráöherra á árunum 1927—1932 og forseti sameinaös Alþingis 1933. Formaöur Framsóknar- flokksins var hann 1931—1933 og sfðar Bændaflokks frá stofnun hans til dánardægurs. Eftir Tryggva Þórhallsson liggja ýmsar ritsmíöar, einkum á sviöi guöfræöi og kirkjusögu auk margra greina af hinum stjómmálalega vettvangi. Tryggvi Þórhallsson bar mjög hag Islenzku bændastéttarinn- ar fyrir brjósti og átti þátt I margvlslegri löggjöf, er til framfara horföiá þvl sviöi. Meö sanni má kalla hann fööur Bún- aöarbankans, eins og m.a. hefur komiö fram I ritum Jónasar Jónssonar frá Hriflu. Segir hann á einum staö, aö „Hann (þ.e. Tryggvi) stýröi þessari fjárvana lánastofnun I nokkur misseri viö hin erfiðustu skil- yröi”. Tryggvi var bankastjóri Búnaöarbankans á kreppuár- unum 1932 til dauöadags 31. júll 1935. Séra Magnús Þorsteinsson einn úr hópi fyrstu starfsmanna bankans flutti ræöu'á Þingvelli þegar bankinn átti tuttugu og fimm ára afmæli. Um Tryggva Þórhallsson fórust honum svo orö: „Þaö var eins og nýr vorblær og nýtt sólskin kæmi meö hon- um inn I stofnunina. Hann haföi á þeim tlma yfir litlu fjármagni aö ráöa til þess aö bæta úr fjárþörf bændanna, en meö hin- um miklu og góöu persónulegu áhrifum slnum og meö hollum ráöum, sem hann slfellt haföi á reiöum höndum, vakti hann nýjar vonir og nýjan kjark, sem voru áreiöanlega oft meira viröi en nokkurt peningalán. Þaö var ekki óalgengt I banka- stjóratlö hans aö sjá bændurna fara inn til hans meö lútandi höföi og áhyggjusvipinn mál- aöan á andlit þeirra en eftir stuttan tlma koma út frá honum aftur hnarreista meö bros á vör- um. Sama ástúöin og góövildin frá hans hendi kom einnig fram viö okkur starfsmennina, sem gjöröi okkur svo kært og ljúft aö vinna fyrir hann. Ég ætla ekki aö fara aö lýsa þvl, hversu mik- ill harmur var kveöinn aö okk- ur, þegar hann féll frá á bezta aldri.” Hilmar Stefánsson Hilmar Stefánsson tók viö starfi bankastjóra viö Búnaöar- banka Islands I september 1935 og var einn bankastjóri viö bankann til 1961, en þá uröu bankastjórarnir tveir. Hilmar lét af bankastjórastörfum 1962 og haföi þá gegnt þvl hátt á þriöja áratug. Bankanum farn- aöist mjög vel undir stjórn hans.Hann á meiri þátt I vexti bankans en nokkur annar. Um hann segir svo I afmælis- riti Búnaöarbankans: „Hilmar Stefánsson var fædd- ur 10. mál 1891 á Auökúlu I A- Húnavatnssýslu. Foreldrar hans voru séra Stefán M. Jóns- son og fyrri kona hans Þorbjörg Halldórsdóttir. Hilmar kvæntist 1923 Margréti Jónsdóttur, og eignuöust þau hjón tvö börn. Hilmar varö gagnfræöingur frá Akureyri, og áriö 1917 geröist hann starfsmaöur Landsbanka Islands. Gegndi hann ýmsum trúnaðarstörfum I Landsbank- anum, er timar liöu fram, var m.a. forstööumaöur útibús I Vestmannaeyjum og á Selfossi, en áriö 1934 varö hann aðal- féhiröir Landsbankans. Banka- stjóri viBBúnaöarbankann varö Hilmar Stefánsson 1935 og gegndi þeirri stööu til 1962, er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Hann andaöist 17. ágúst 1965. Auk starfa aö bankamálum tók hann þátt I ýmsum nefndar- störfum. Má þar geta örnefna- nefndar og Skálholtsnefndar, en i þeirri slöarnefndu var hann formaöur vann ötullega aö uppbyggingu Skálholtsstaöar. Tryggvi Pétursson útibús- stjóri I Hverageröi var náinn samstarfsmaöur Hilmars I fjöldamörg ár hefur eftirfarandi um hann mælt: „Sú ráöabreytni aö flytja aösetur bankans á samkeppnis- vettvang hinna bankanna tveggja réö úrslitum um vöxt og viögang bankans. Hilmar fyllti starfsliö bankans þeim metnaði sem úl þurfti aö gera bankann vinsælan þjón almennings, og sjálfur var Hilmar kunnur af verkum slnum I Landsbankan- um og naut óskoraös trausts mikils fjölda manna er haft haföi af honum kynni. A sama hátt var þaö skýrt dæmi um hyggindi og framsýni, þegar hafizt var handa um byggingu húss þess, er nú hýsir aöal- stöövar bankans. Búnaöar- bankaheimiliö var ekki stórt, er hann geröist húsbóndi á þvi, og fáir eru nú ofar moldu, er þar voru I upphafi. En heimilisbrag- urinn hefur haldizt furöu lltiö breyttur, þóhjúum hafi stórum fjölgaö. Eins og húsakynni bankans og allur aöbúnaöur bera vott um, hefur ekkert veriö til sparaö aö gera allt sem vist- legast. Viö okkur undirmenn sina var hann ljúfur og bar hag okkar og heill fyrir brjósti af einstökum heilindum. Hilmar Stefánson var einn af forgöngu- mönnum og fyrsti formaður fyrsta starfsmannafélags bankamanna hér á landi. Hann var fyrst og fremst banka- maöur, einn þeirra banka- manna er fyrstir unnu sig upp I bankastjórastööur úr neösta þrepi. Hann var þvl fordæmi nýrrar stéttar á vissan hátt og nýrra möguleika. Hilmar Stefánsson var maöur strangrar vinnu, lagöi nótt viö dag og naut viröingar. Hann var manna fljótastur aö átta sig á vandamálum og skjótur til allra ákvaröana aö skoöun myndaöri.” Almennur við- skiptabanki Þótt Búnaöarbankanum væri I upphafi ætlaö aö vera banki landbúnaöarins, kom fljótt I ljós, aö hann fullnægöi ekki hlutverki slnu nema hann yröi jafnframt almennur viöskipta- banki. Um þetta segir svo I afmælisritinu: „AB sjálfsögöu hefur bankinn reynzt trúr slnum upphaflega tilgangi „aö styöja landbúnað- inn og greiöa fyrir fjármálaviö- skiptum þeirra, er stunda land- búnaöarframleiöslu”, eins og segir I fyrstu lögum um bank- ann. Bankinn haföi þó ekki starfaö lengi, þegar stjórnendur hans fundu aö hann fékk sterkan hljómgrunn I höfuöborginni, og vel fór saman I bankanum viöskipti bænda og borgarbúa. 1 tlmans rás hefur bankinn svo oröiö alhliöa viöskiptabanki hvaö snertir öll inn- og útláns- viöskipti. Hlutverk bankans hefur og færzt út, þvf aö samkvæmt þeim lögum, sem hann starfar nú eftir kemur fram, aö „meginhlutverk bank- ans er aö styrkja landbúnaö og greiöa jafnframt fyrir fjármálaviöskiptum annarra atvinnugreina”. Lánaflokkur- inn liöinn áratug sýnir þetta ljóslega. Bankinn hefur lánaö til landbúnaðar svipaö og Lands- bankinn, til iönaöar állka og Iönaöarbankinn og til verzlun- ar ámóta upphæö og Verzlunar- bankinn. Til sjávarútvegs eru lánaöar verulegar fjárhæöir I öllum útibúum utan Reykjavfk- ur, þar sem á annaö borö er stundaöur sjávarútvegur. Til einstaklinga hefur bankinn lán- aö um 12-13% af útlánum slnum svipaö og meöaltaliö er hjá viöskiptabönkunum.” Eins og áöur segir, er Búnaöarbanki íslands nú annar stærsti viöskiptabanki þjóöarinnar. Um sföustu áramót var hlutdeild hans I heildarinnlánum viöskipta- bankans 23%. Þaö leiðir af vexti Búnaöar- bankans og traustri stööu hans, aö hann hlýtur aö færa út verk- sviö sitt á komandi árum. M.a. er eölilegt, aö bankinn taki upp gjaldeyrisviöskipti og sinni sjávarútveginum meira. I þvl sambandi má minna á, aö viö stofnun hans var talsvert rætt um aö hann yröi jafnt banki landbænda og minni útvegs- bænda vítt um land, en þá var smábátaútvegurinn enn stór hluti útgeröarinnar. Þ.Þ. menn og málefni

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.