Tíminn - 06.07.1980, Síða 13
Sunnudagur 6. júll 1980.
13
Galeiða frá 17. öld.
Þverskurður af galeiðu með fimm áraröðum.
Vanalega voru þrælar látnir
róa galeiöunum allt frá fornu
fari. Mikið var enn um það á 16.
og 17. öld. Galeiðuþrælarnir
voru hlekkjaðir viö þóftuna
tveir og tveir saman og oft
brennimerktir. Margir
sakamenn voru dæmdir á gal-
eiöurnar. Oft mun hafa verið
róið af hörku. Foringi sló takt á
glaumborð þegar róið var,
a.m.k. ef mikiö lá viö, t.d. I
orrustu.
Ef skip sökk i bardaga sukku
hlekkjaðir þrælarnir oft með
þvi. A stærstu galeiðum gátu
verið 200 - 400 þrælar. Tyrkir
notuðu talsvert kristna galeiðu-
þræla, og svo gerðu Márar
einnig. Seinna notuöu einnig
kristnar þjóðir við Miðjarðarhaf
galeiðuþræla.
Arið 1748 var loks galeiöu-
þrælahald bannað. En um langa
hrlð voru þeir I staðinn settir i
stranga vinnu á gömlum
herskipum. Stundum var þeim
visað I fanganýlendur, eða urðu
a.m.k. aö hypja sig úr landi.
Lltum á myndirnar. A
þverskuröarmyndinni sést inn
Xgaleiðu mikla með fimm ára-
rööum, hver röðin yfir annarri.
Svipuö þessu hafa llklega hin
stóru herskip Antonlusar og
Kleópötru veriö á dögum
Rómverja. Þungur hefur róður
verið meö sllkum árum og ekki
furða þó aö galeiöuþrælar ent-
ust sjaldan lengi.
A annarri mynd frá 17. öld
virðist galeiðu róið um hafnar-
mynni fram hjá varðturni eða
vita. Segl bundin við rá.
Þriðja myndin sýnir
galeiðuna „Sacho” frá Mallorca
á 14.—15. öld. Þetta skip haföi 36
manna áhöfn og var búið 14
fallbyssum. Það var ætlað til
varnar Mallorca og
nærliggjandi eyjum. Þarna ber
mikið á hinni háu yfirbyggingu
fram og aftur á skipinu. Vindur
fyllir seglin, fáni við hún.
Mallorca var alllengi sjálf-
stætt konungsrlki, eftir aö Már-
ar misstu þar völd. Sanchó er
nafn konungs á Mallorca.
Seinna náðu Spánverjar völdum
á Mallorca og er hún siðan hluti
Spánar.
1 þættinum 22. júnl er lýst
sænsku skerjagarðsfreigátunni
„Styrbjörn” og rakin saga
hennar, en mynd af skipinu féll
niöur I þættinum og er nú birt
hér, enda merkileg mynd meö
nöfnun á öllum seglabúnaði o.fl.
Skipiö var byggt árið 1789.
Það er rúmir 43 m á lengd,
breidd 10.7 m, áhöfn 310 manns.
Skipiö var búiö 26 fallbyssum.
Hægt var að róa þvl með 40 ár-
um, enda ætlaö til notkunar I
skerjagaröinum.
BENSÍNH) f BOTN
Sumir keyra í rykkjum, spyma af stað, spóla, spæna
og snögghemla. Em í einskonar kvartmíluleik við um-
ferðarljósin. Slíkt hefur óþarfa bensíneyðslu í för með sér.
Viljir þú draga úr bensíneyðslunni og spara þér stórar
fjárhæðir, verður þú að gera þér ljóst að aksturslagið
skiptir miklu máli.
Aktu rólega af stað. Vertu spar á innsogið. Haltu
jöfnum hraða og hæfilegri fjarlægð frá næsta bíl. Gefðu
þér góðan tíma. Það eykur bensíneyðslu mn 20—25% að
aka á 90 km. hraða í stað 70, auk þess sem það er ólöglegt.
Hafðu ekki toppgrind né aðra aukahluti á bifreiðinni að
ástæðulausu. Réttur þrýstingur í dekkjum skiptir líka
máli.
Hafðu bílinn ávallt í toppstandi.
Og reyndu jafnan að velja hentugar akstursleiðir.
SPARAÐU AKSTURINN - ÞÁ SPARARÐU BENSÍN.
ORKUSPARNAÐUR
ÞINN HAGUR
ÞJÓÐARHAGUR
Starfshópur um eldsneytisspamað í bílum:
Orkuspamaðamefnd iðnaðarráðuneytisins
Bílgreinasambandið
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
Olíufélögin
Strætisvagnar Reykjavíkur
Umferöarráð
Priestman 120
Höfum kaupanda að notaðri 12-14 tonna
skurðgröfu.
Þarf að vera i sæmilegu ástandi.
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavík Simi 38900
GRJÓTHLÍFAR
fyrir alla bíla
SÍLSALISTAR
úr krómstáli
61IKKVER
BLIKKVER
SELFOSSI
Skeljabrekka 4 - 200 Kópavogur - Sfmi: 44040. Hrísmýri 2A - 802 Selfoss - Sími: 99-2040.
I