Tíminn - 08.07.1980, Blaðsíða 4
Þribjudagur 8. júli 1980.
í spegli tímans
Olivia Newton-
John og
, af tur gangan ’
Söng- og leikkonan Olivia Newton-John varð
alveg hoppandi vond, þegar hún komst að því, að
farið var að sýna 10 ára gamla mynd, sem hún
hafði leikið í. — Kvikmyndin heitir „Toomorow"
og er alveg hræðilega illa gerð, sagði Olivia við
blaðamenn í viðtali nýlega. Myndin var tekin
sem nokkurs konar kynning á popp-hljómsveit
sem bar sama naf n og myndin, og snýst mest um
það, að hljómsveitin sé í sviðsljósinu, en sögu-
þráður i myndinni er vægast sagt lélegur og
leikurinn eftir því. Myndin hefur verið sýnd í
Austurlöndum og einnig á Spáni og í Þýskalandi.
— Ég myndi stoppa sýningar á henni ef ég gæti,
sagði ieikkonan, en ég verð víst bara að slá þessu
upp í kæruleysi og vonast til að sýningar hætti af
sjálfu sér, því að það getur ekki verið, að fólk
hafi áhuga á að sjá svona lélega mynd, jafnvel
þótt það kannist viðnöfn leikaranna. Mér fi nnst
sem ég sjái afturgöngu, þegar ég sé myndir af
mér úr þessari hörmungarkvikmynd, sagði
Olivia.
Dýrmætur
fingur í
klemmu
— Nú kalla þeir mig „Dark Gable" (hinn þel-
dökka Gable) síðan ég lét mér vaxa yf irskeggið, —
hvað finnst ykkur, — er ég líkur Clark Gable, ha?
sagði heimsmeistarinn við blaðamenn, sem voru
samankomnir við dómshúsið í New Orleans. Þar
átti að fara að dæma í máli Alis, sem hann átti í
vegna mótmæla hans gegn kynþáttamisrétti. Hann
fór meðsigur af hólmi í máiaferlunum. Einn blaða-
maðurinn sagði, að Ali væri vissulega kominn með
fallegt yfirskegg, eins og Clark Gable sálugi, en
aldrei hefði Clark verið svona klaufskur og f Ijótfær
eins og Ali, þegar hann var að f lýta sér út úr bílnum
sínum við dómshúsið, en þá kom hnefaleika-
meistarinn við takka sem stjórnaði bílrúðunum og
rúðan rann upp á hönd kappans og festist f ingur í
falsinu. Ekki urðu samt neinar skemmdir á fingr-
inum og var meistaranum fljótiega bjargað úr
klemmunni.
krossgáta
Lárétt 3347 •
1) Afhending. 6) Forfeður. 7) Röð. 9)
Ármynni. 10) Seinlegt. 11) Umfram. 12)
Korn. 13) Poka. 15) Glugginn.
Lóðrétt
íj Skatt. 2) komast. 3) Tvö að dansa. 4)
Ofug röð. 5) Utani listir. 8) Afhenti. 9)
iweoa við. 13) Eldivið. 14) 51.
Rápning á gátu No. 3346.
Lárétt
1) Kantata. 6) Tak. 7) NV. 9) SA. 10)
Niðdimm. 11) DL. 12) Ás. 13) Auk. 15)
Mælskan.
Lóðrétt
1) Kenndum. 2) NT. 3) Tadeus. 4) Ak. 5)
Adamson. 8) Vil. 9) Smá. 13) Al. 14) KK.
t.Gii's*"'
meö morgunkaff inu
■ Nei, ég kem ekki fram í
eldhús að ná I matinn.minn,
til hvers heldur þú að ég hafi
látið útbúa lúguna, ha?
bridge
Þó samningar virðist standa og falla
með einföldum sviningum reyna góðir
spilarar venjulegast alla aðra möguleika,
hvað litlir sem þeir virðast, áður en þeir
sætta sig við 50 prósentin.
Noröur.
S. G762
H.10543
T. A
L. AD73
Vestur.
S. K943
H. -
T. D9753
L. G942
Austur.
S. D105
H.G87
T. G1084
LK106
Suöur.
S. A8
H. AKD962
T. K62
L. 85
Suöur spilaði 6 hjörtu og AV höfðu
ekkert skipt sér af sögnum. Vestur spilaði
út litlum tigli sem ásinn i borði átti. í
fljótu bragði virtist spilið byggjast á lauf-
svíningunni, þó það væri kannski smá-
möguleiki á aö annar hvor mótherjinn
ætti KDx i spaða. En suöur fann annan og
betri möguleika, sem flestir gætu verið
hreyknir af að finna við borðiö. Hann
spilaöi litlu laufi frá blindum i öörum
slag. Það heföi ekki verið mannlegur spil-
ari, sem ekki hefði hikað með spil austurs.
Suður gat verið með Gx i laufi og verið
þannig að stela sér slag, og þó austur
kæmist aö lokum að þvl aö ekki væri rétt
aö fara upp'með kónginn, var það of seint.
Suöurvar nú oröinn viss um aö austur átti
kónginn. Vestur átti slaginn á níuna og
spilaði meira laufi en suður fór upp með
ásinn og trompaði siöan lauf heim. Þegar
kóngurinn kom var ekki eftir annað en að
taka trompin og leggja upp rest.
- Halló elskan, ég fékk mér
göngutúr I bænum.
-Páll, vaknaðu'. .. barnið
er að kalla á mig....