Tíminn - 03.08.1980, Blaðsíða 9

Tíminn - 03.08.1980, Blaðsíða 9
LJ-iiíiIJ-íiiuiii; Sunnudagur 3. ágúst 1980. Hér er dýr á leið út úr holu sinni. Karldýrið og kvendýrið byggja hvort um sig sfna sérstöku holu. Eggin eru vanalega tvö, hálfur þumlungur að stærð og leðurkennd. lætingu, vegna svo auðsærrar blekkingar. Þeir reyndu tafar- laust að rifa hiö „álimda” nef af loðnum skrokknum. För eftir skæri þeirra má enn sjá á hamnum af fyrsta dýrinu sem sent var og er geymt i Náttúru- sögusfninu f London. En siðar, þegar nákvæm rannsókn leddi I ljós að dýrið var i rauninni til og liktist þar að auki spendýrum meira en öðrum dýrum, þverneituðu menn þó að trúa þvi að slik skepna gæti komið úr eggi. Loks fékkst lausn á málinu og deilur hjöönuðu árið 1884 þegar William Caldwell, 24 ára dýra- fræðingur, sem hlotið hafði styrk frá Cambridge háskóla til náms i Ástraliu, kvað upp úr skurð sinn. Hann setti upp búðir við Burnett fljót i Queensland og fann eftir mánaðarleit breiðnefslæðu, sem nýlega hafði verpt einu eggi og bar annaö enn i eggjaleiðara sinum. Caldwell sendi þegar i stað skeyti um uppgötvun sina, sem simaö var til Breska visinda- félagsins, sem þá var á fundi i Montreai. Þetta fræga fjögurra orða skeyti, sem lesið var yfir hinni lærðu ráðstefnu hljóðaði svo: „Monotremes oviparous ovum meroblastic.” Þessar fréttir, sem fékk hina virðulegu menn til þess að þeir greindu frá þvi að „monotrem- es” (en það orð hafði verið fundið upp til þess að taka yfir breiðnefinn og mauraætutegund eina innan fylkingar spendýra) verpti raunverulega eggjum og að fóstrið myndaðist utan á eggjarauðu i egginu. Þá var það vitað að spendýr gátu komið úr eggi og mikið þrætumál var út- kljáð. Breiðnefurinn, sem eitt sinn var lýst svoaðhann væri I laginu eins og „hitapoki” getur orðið 22ja þumlunga langur og oröið þrjúoghálftpundað þyngd, þ.e. karldýrið, en kvendýrið sem er minna, getur orðið 18 þumlungar og tvö og hálft pund að þyngd. Mestan hluta dags er dýrið á þurru landi og halda kven- og karldýr sig þá hvort i sinni holunni. Dýrið er ekki i vatni nema fáar klukkustundir á sólarhring og þá I rökkri eöa slæmu skyggni. Þegar breiðnefurinn er vakandi, er hann afar athafnasamur og brennir helmingi þyngdar sinnar, — sem hann verður þegar að ná upp aftur með át- inu. David Flaeay, eini maöurinn, ■ sem tekist hefur að ala upp 'breiðnefi, sagði að matarlyst dýranna heföi verið með ólik- indum. Eitt mjög gráöugt dýr reif I sig 1200 ánamaðka og 50 Breiðnefurinn kafar eftir æti. Nefið er likara hundstrýni við- komu en andarnefi, sem það lik- ist þö meir og það notar hann til að finna ætið á botninum. 9 Kaupmenn — Innkaupastjórar Nýtt merki a markaðinum Gullfalleg frönsk leikföng INGVAR HELGASON Vonarlandi v/Sogaveg — Sími 33560 FÓÐUR tslenskt I kjarnfóður \ FÓÐURSÖLT OG BÆTIEFNI Stewartsalt Vifoskal Cocura KÖGGLM) MAGNtUMSALT GÓÐ VÖRN GEGN GRASDOÐA MJOLKURFE LAG REYKJAVIKUR Algrr'Otla laugorgi 1(4 Suni IU2Sog Foðurvo-ualgrriðs'a Sundaholn Simi 8222S Meðeigandi Óskað er eftir meðeiganda i hlutafélag, sem starfar á sviði innflutnings, smásölu og framleiðslu. Hlutaðeigandi þyrfti helst að starfa við reksturinn. Ekki er þörf á neinni sérþekk- ingu. Æskilegur aldur 25-40 ára. Nauðsynlegt framlag úr hendi viðkom- andi aðila þyrfti að vera kr. 15.000.000. Þar sem fyrirtæki þetta er mjög rótgróið i sinni grein er hér um gott tækifæri fyrir réttan aðila. Upplýsingar er greini aldur svo og fyrri störf sendist blaðinu fyrir föstudag 8. ágúst. MERKT H-1751 fljótakrabba á sólarhring, auk nokkurra smáfroska, lirfa og hænueggja. í dýragarðinum I Sidney var eitt sinn hörgull á fóöri fyrir breiðnefi, vegna þurrka, og var þvi komiö á samkeppni meöal skólabarna, sem söfnuðu saman 5000 ána- möðkum. 1 heimkynnum sinum þrifst breiönefurinn helst á lirfum skordýra, fljótakröbbum og fljótarækjum, litlum skeldýrum og ormum. Við leit að þessu notar hann nefið, sem er afar næmt og svipar meir til hunds- trýnis, en andarnefs og er þaö sifellt rakt. Hann kemur með fæöuna upp á vatnsbakkann, þar sem hann tyggur hana með beinhryggjum, sem hann hefur i munninum I stað tanna, en veröi honum vel til fanga, getur hann safnað nokkru I gúl sér, eins og hamstur. A sundi i yfirborðinu notar breiðnefurinn afturlappirnar og halann til þess að stýra sér og stansa, ef þarf, en rær sér áfram með annarri framlöpp- inni I senn. Þegar hann kafar lýkst skinn flipi yfir augu og eyru, svo aö hann er alveg blindur og heyrnarlaus við þær kringumstæður. Vanalega er hann i kafi svo sem hálfa minútu, en getur kafað i fimm minútur, sé hann við ætissöfnun eða við holugröft, en vanalega er einn inngangur i holu hans rétt undir vatnsborðinu ilka. Einn leyndardóma hans er eitraður spori á afturfótum karldýrsins. Þetta kynni að vera vörn gegn hugsanlegum óvinum, en breiðnefurinn á fáa óvini, aðra en vatnarottur og snáka. Kvendýrið hefur aöeins eiturspora á æskudögum sinum. Þvi sýnist liklegt, þar sem eitrið er einkum skeinuhætt um fengitimann, ab karlinn noti það gegn keppinautum sinum, eða þá til þess að kúga kvendýriö til ástafars. Kvendýrið grefur sér sina eigin holu þegar það vill verpa, sem það klæðir innan meö blautu grasi og laufi. Hún lokar sig inni að þvl búnu með þvi að troða torfusnepli I holuopið. Tveimur vikum eftir frjóvgun verpir hún svo eggjunum, sem vanalega eru tvö. Þau eru kringlótt, leðurkennd og hálfur þumlungur aö stærð. Hún leggur þau þá undir kvið sér og klekjast þau út að tiu dögum liðnum. Ungar breiðnefsins, sem eru rétt yfir hálfur þumlungur að stærð, rista á skurn eggsins með kambi á nefinu, en þessi kambur dettur af þeim, skömmu eftir að þeir koma úr egginu. Fyrstu vikuna eru þeir hárlausir og blindir og nærast á þvi aö lepja mjólk móðurinnar, sem hún þrýstir með nefinu úr mjólkurkirtlum sinum niður á hárlausan blett á kviði sér, , ,m jólkurble ttinn. ” Þegar ungarnir eru fjögurra mánaða gamlir, og rétt yfir fet að lengd, taka þeir að ferðast um ásamt móður sinni og læra undirstööuatriöin við veiðar og sund. Móðirin hefur hönd I bagga með þeim i einn eða tvo mánuði til viðbótar, en þá veröa þeir að spjara sig á eigin spýtur. Þeir verða kynþroska tveggja og hálfs árs gamlir og geta orðiö tiu ára, eða meira. Breiönefinum er gefin sérstök gáfa, þegar hann þarf að finna vatn. Furðu lostnir Ástraliu- menn hafa oft séð dýrið á ferð yfir akur, eins og hund, eða á ferli á þjóðvegum, en þá er þaö á leið aö næsta vatni. Svo er aö sjá að þegar byggð breiönefanna tekur aö þéttast viö á eða vatn, flytji hluti ibúanna búferlum I léit að nýj- um heimkynnum. I þeim fáu dýragöröum sem breiðnefur hefur þrifist I Astra- liu, er hann eitt allra vinsælasta dýrið. Skaprlkur, fjörugur og fullur af leik er hinn smávaxni „þverstæöingur”, sem kominn er aftur úr árdögum dýrarikis- ins unaðarrik sjón hverjum þeim sem nýtur þeirrar skemmtunar að virða hann fyrir sér. (AM snaraði úr Wildlife)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.