Tíminn - 27.08.1980, Qupperneq 11
Miðvikudagur 27. ágúst 1980
< * t i ' 1 *
ÍÞRÓTTIR
ÍÞROTTIR
15
Hverjir taka stöður
Ásgeirs og Þorsteins?
— í LANDSLEIKNUM GEGN RÚSSNESKA BIRNINUM?
— Þaö bendir allt til að
við leikum með sama lið
gegn Rússum, sem lék
gegn Svium i Halmstad —
nema hvað Asgeir Sigur-
vinsson og Þorsteinn
ólafsson geta ekki leikið
með, sagði Helgi Daníels-
son, formaður landsliðs-
nefndar í stuttu spjalli við
Tímann, en nú eru 7 dagar
þar til landsliðið glímir við
rússneska björninn á
Laugardalsvellinum.
Helgi sagöi aö landsliöið yröi
tilkynnt fyrir helgina og það færi
siðan i æfingabúðir á sunnudag-
inn. Nú er spurningin hver tekur
sæti þeirra Asgeirs og Þorsteins i
landsliðinu.
Þrir leikmenn koma til meö að
berjast um markvaröarstöðuna
— þeir Bjarni Sigurðsson
(Akranesi), Guðmundur Baidurs-
son (Fram) og Þorsteinn
Bjarnason (Keflavik).
Spurningin er — hver tekur stöðu
Ásgeirs? Skagamennirnir Arni
Sveinsson og Kristján Olgeirsson
koma þar sterklega til greina.
9 leikmenn, sem léku gegn Svi-
um i Halmstad, eru tilbúnir i
slaginn — þaö eru þeir Marteinn
Geirsson, Fram .Sigurður
Halldórsson, Akranesi, Trausti
Haraldsson, Fram, Orn óskars-
son, örgryte, Albert Guðmunds-
son, Val, Janus Guðlaugsson,
Fortuna Köln, Guðmundur Þor-
björnsson, Val, Pétur Ormslev,
Fram og Sigurlás Þorleifsson,
Vestmannaeyjum.
Þeir leikmenn sem eru ofarlega
áblaðiyfirvaramenn.eru: óskar
Færseth, Keflavik, Ottó Guö-
mundsson, KR, Dýri, Guðmunds-
son, Val, Magnús Bergs, Val og
Sigurður Grétarsson, Breiöa-
bliki. Allir þessir leikmenn tóku
þátt I feröinni til Noregs og Svi-
þjóöar, nema Dýri Guðmunds-
son. —SOS
• JANUS GUÐLAUGSSON
• ÖRN ÓSKARSSON
Janus og drn
koma í slaginn
— leika með landsliðinu gegn Rússum
Aðeins tveir „útlendingar” þýska liðinu Fortuna Köln, og landsliðinu i æfingabúðir til
geta leikiö með isienska lands- örn óskarsson, sem leikur með Þingvalla. Þaö er mikill styrkur
liðinu i knattspyrnu gegn Rúss- sænska liöinu örgryte. að fá þá Janus og örn til leiks,
um á Laugardalsvellinum 3. þvi að þeir stóöu sig mjög vel
september. Það eru þeir Janus Þeir félagar koma til landsins gegn Svium I Halmstad.
Guölaugsson, sem leikur með v- um helgina og fara þá með —SOS
STAÐAN
1. DEILD:
Staðan er nú þessi i 1. deildar-
keppninni i knattspyrnu:
Valur......... 15 10 2 4 36:13 22
Fram.......... 15 9 2 4 19:18 20
Akranes ......15 7 4 4 25:16 18
Vlkingur.......15 6 6 3 20:17 18
Breiöablik .... 15 7 1 7 23:19 15
Vestm.ey...... 15 4 5 5 21:25 1 3
KR .......... 15 5 3 7 14:23 13
Kefiavik.......15 3 6 6 14:20 12
FH.............15 4 3 8 19:30 11
Þróttur....... 15 2 4 9 10:20 8
Leikimir sem 1. deildarliðin
eiga eftir aö leika — eru þessir:
VALURr-Akranes (Ú),Keflavik
(Ú) og Vikingur (H).
FRAM :-FH (H), KR (Ú) Og
Breiöablik (H).
AKRAN ES :-Valur ( H ),
Breiöablik (Ú) og Keflavik (H).
VIKINGUR :-Vestm.ey. (Ú),
Þróttur (H) og Valur (Ú).
BREIÐABLIKíKR (H),Akranes
(H) og Fram (Ú).
VESTMANNAEYJAR:-VIkingur
(H), FH (Ú) og KR (H).
KRJ Breiðablik (Ú), Fram (H),
Vestm.ey. (Ú).
KEFLAVIK:— Þróttur (Ú). Val-
ur (H) og Akranes (Ú).
FH:-Fram (Ú), Vestm.ey. (H) og
Þróttur (Ú).
ÞRÓTTUR:-Keflavik (H), Vik-
ingur (Ú) og FH (H).
Þrír leikir
í 1. deild
verða leiknir i kvöld
ÞRIR mjög þýöingarmiklir
leikir verða leiknir I 1. deildar-
keppninni i kvöld.
Framarar leika gegn FH á
Valbjarnarvelli kl. 19, Breiöa-
blik og KR leiða saman hesta
sina I Kópavogi og í Vestmanna-
eyjum leika Eyjamenn gegn
Vflungum á sama tima.
2. deild
— og Þróttur frá Neskaupstað vinnur hvern leikinn á fætur öðrum
STAÐAN er nú þessi I 2. deildar-
keppninni I knattspyrnu:
KA..............14 11 1 2 47:11 23
Þór.............14 9 2 3 29:12 20
Þróttur N....... 14 6 4 4 20:20 16
Haukar.........14 5 4 5 24:28 14
Selfoss....... 14 54 5 22:26 14
Fyikir ........14 4 3 6 20:14 13
tsafjörður.....13 4 5 4 26:28 11
Armann.........14 3 5 6 21:28 11
Völsungur......13 3 3 7 12:20 9
Austri........ 15 1 5 9 16:44 7
Þrjú efstu liðin eiga eftir að
leika þessa leiki I deildinni:
KA: — Selfoss (H), Austri (Ú).
Armann (H) og Völsungur (Ú)f;
ÞÓR: — Þróttur N. (Ú), Hauk-
ar (H), Fylkir (ú) og Isafjörður
(H).
ÞRÓTTUR NES.: — Þór (H),
Selfoss (Ú), Haukar (Ú) og Fylk-
ir (H).
^ MAGNÚS JÓNATANSSON... knattspyrnuþjálfarinn snjalli.
Magnús gerir það
gott með Selfoss
Magnús Jónatansson, fyrrum
þjálfari KR-liðsins, hefur gert
mjög góða hluti hjá Selfossi — en
hann gerðist aðstoðarþjálfari Sel-
fyssinga fyrir stuttu og siöan
hann kom I herbúöir þeirra, hafa
þeir hlotiö 7 stig af 8 mögulegum i
2. deildarkeppninni.
Selfyssingar geröu sér litiö fyr-
ir um helgina og lögöu Akur
eyrarliðið Þór að velli á Sel-
fossi —2:1. Amundi Sigmundsson
skoraði bæði mörk Selfyssinga,
en Hafþór Helgasonskoraði fyrir
Þór.
ÞRÓTTUR... frá Neskaupstaö,
undir stjórn iþróttakappans
kunna Sigurbergs Sigsteinssonar
úr Fram, hefur gert það gott að
undanförnu og eiga Norðfirðingar
nú möguleika á að vinna sér sæti i
1. deildarkeppninni — fyrstir
Austfjarðaliða. Þróttur vann
öruggan sigur (3:0) yfir Völsungi
um helgina og skoruöu þeir Val-
þórÞorgeirsson(2) og NjállEiös-
son mörk liðsins.
Úrslit leikja I 2. deildarkeppn-
inni urðu annars þessi um helg-
ina:
KA-tsafjörður................4:0
Þróttur N.-Völsungur.........3:0
Selfoss-Þór..................2:1
Austri-Fylkir................0:0
Óskar Ingimundarson (2) Og
Gunnar BIöndal(2) skoruöu mörk
KA-liðsins, sem þarf nú aðeins 2
stig til að tryggja sér sæti aftur i
1. deildarkeppninni. Það bendir
allt til að Akureyringar eignist
tvö 1. deildarlið næsta keppnis-
timabil, þar sem Þór á mikla
möguleika á að fylgja KA upp —
Þórsarar veröa þá að leggja Þrótt
að velli á Neskaupstað um
Magnús náði
góðum árangri
með KR-liðið
KR var í toppbaráttu þegar hann var
látinn hætta - nú er KR í fallbaráttu
Eins og kemur fram hér annars staðar á siðunni, þá er Magnús Jóna-
tansson að gera góða hluti hjá Selfoss-liöinu i 2. deildarkeppninni. Það
vakti mikla athygli fyrir stuttu, þegar KR-ingar létu Magnús fara frá
félaginu. KR-ingar hafa aðeins hiotið 3 stig af 10 mögulegum — siðan
Magnús hætti.
Þegar Magnús tók við KR-liðinu 1978 — var KR falliö niöur i 2. deild,
eftir að KR-ingar höfðu verið i mikilli fallbaráttu þrjú ár á undan — frá
1975-1977, en árangur KR-liösins á þessum árum var ekki til aö hrópa
húrra fyrir. Viðskulum lita nánar á þann árangur:
14 3 4 7 13:18 10
16 3 5 8 20:23 11
18 3 4 11 24:34 10
48 9 1326 26 57:75 31
Eins og sést á þessu þá er árangur KR-liösins aðeins 32,2% á þessum
þremur árum — liðið vann aðeins 9 leiki á þessum árum, en tapaði 26
leikjum.
En hver var svo árangur Magnúsar hjá KR?
1978: 18 13 4 1 48:9 30
1979: 18 9 4 5 29:24 22
1980: 10 4 2 4 10:11 10
46 26 10 10 87:44 62
Þetta er mjög góður árangur hjá hinu unga KR-liði. Undir stórn
Magnúsar ná KR-ingar 67,3% nýtingu út úr leikjum sinum. 1978 leikur
KR-liðið i 2. deildog 1979 i 1. deildarkeppninni — þá vinnast 9 leikir, eöa
jafn margir og KR-ingar unnu i deildinni þrjú slöustu árin, sem liðið lék
I deildinni (1975-1977), áður en það féll i 2. deild.
Það er vitað mál aö Magnús náði miklu meira út úr KR-liðinu sl.
keppnistimabil en vonir stóðu til — KR-ingar voru þá aðeins tveimur
stigum frá Islandsmeistaratitlinum. Magnúsi tókst að rlfa KR upp úr
þeim öldudal, sem félagiö var i. Nú þegar Magnús er farinn frá Vestur-
bæjarliðinu, er komin upp sama staðan og á árunum 1975-1977 — félagiö
er i fallhættu! —SOS
1975:
1976:
1977: