Tíminn - 10.09.1980, Síða 1
Miðvikudagur 10. september
1980 201. tölublað 64.árgangur
Eflum
Tímann
Siðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
mmm
Tillögur Steingríms Hermannssonar um Atlantshafsflugiö:
Óbrevtt Aflantshafsflug
með aðstoð rikisstiórnar
JSS -
lagði
I gærmorgun
Steingrimur
Hermannsson sam-
gönguráðherra fram
tillögur sinar i rikis-
stjórn, varðandi aðstoð
stjórnvalda við
Atlantshafsflugið. ,,í
þessum tillögum felast
hugmyndir minar um
aðgerðir viðkomandi
rikisstjórna, til að
reyna að halda Atlants-
hafsfluginu áfram”,
sagði Steingrimur i
viðtali við Timann i
gær.
Aðspurður um, hvort tillög-
urnar miðuðu að þvi, að fluginu
yrði haldið áfram i óbreyttri
mynd, sagði samgönguráðherra
að gefnir væru upp nokkrir
möguleikar i þvi sambandi.
„Tillaga min er i megindráttum
sú, að rikisstjórnin leggi tölu-
vert af mörkum til að stuðla að
þvi, að halda megi umræddu
flugi áfram, a.m.k. i svipuöu
magni og verið hefur”.
Sagði Steingrimur það enn
fremur vera ljóst, að þarna væri
m.a. um að ræða atvinnu fjöl-
mennrar stéttar. Það væri þvi
að sinu mati skylda stjórnvalda
aö gera allt sem i þeirra valdi
stæöi til aö viðkomandi héldu
störfum sinum. ,,Ég bendi á aö
rikissjóður hefur nú verulegar
tekjur af þessu flugi, sem
myndu falla niður, ef þvi yrði
hætt. Mér finnst þvi ekki óeðli-
legt, að eitthvað yrði gert af
hans hálfu til að stuöla að fram-
haldiá þvi”, sagði Steingrimur.
Hraðamet
yfir
Atlantshaf
KL — Skömmu eftir kl. 20 i gærkvöldi lenti á Reykjavikurflugvelli
fiugvél af gerðinni Cessna 210 með kallmerki NOV 29233. Kom hún
frá Goose Bay i Kanada og var sett hraðamet í ferðinni i flokki flug-
véia, sem kailaðar eru „light aircrafts”, flaug leiðina á 8 klukku-
stundum og 18 minútum. Fyrra metið var 8 klukkustundir og 30
minútur. Fiugmaðurinn i ferðinni heitir Field Moray.
KL — 1 gær kl. 17.43 var slökkviliðið hvatt að húsi Vita- og hafna-
málaskrifstofunnar við Seljaveg. Hafði kviknað þar í portinu I
dekkjabunka og logaði glatt. Stóð slökkvistarfið fram undir kl.
19.00 og var notast við froðu við það. Eldur komst i girðingu og
skemmdist hún nokkuð. Nokkrar áhyggjur höfðu menn af gas-
hyikjum i porti Koisýruhleðslunnar, en þau reyndust tóm.
(Timamynd Þormóöur)
Bjarni Bragi Jónsson:
i ■■■■■■ i
!■■■■■!
VERÐB0L6AN
MINNI í ÁR
EN I FYRRA
HEI — //Verðbólgustigið
siglir ekki hærri byr nú en
það gerði á sama tima í
fyrra/ jafnvel heldur
lægri" sagði Bjarni Bragi
Jónsson/ hagfræðingur
m.a. í samtali í gær er
Tíminn leitaði til hans
fróðleiks um verðbólgu og
vaxtamál.
Bjarni sagði verðbólgu-
stigið um þessar mundir
vera svona rúmlega 50%
og svo væri og með heild-
aráætlun ársins. Það væri
heldur ekki f jarri því sem
þeir hjá hagdeild Seðla-
bankans hefðu verið að
skoða miðað við þáð að
ekki verði gert sérstakt
átak i niðurtalningunni.
Verðbólgustigið yfir allt
árið i fyrra sagði hann
hafa verið um 60%/ og þá
hefðu þeir hjá hagdeildinni
gjarnan metið verðbólgu-
stigið allt upp i 57% um
þetta leyti árs.
Ef hins vegar væri borin
saman verðbólga frá ára-
mótum til júlíloka bæði ár-
in, eftir dreifingu fram-
færsluvisitölu, þá hefði
verðbólgan verið 31% í
júlilok i fyrra en um 27,5%
nú i ár.
í „milljarða-
könnun” hjá SÍF
— Sjá bls. 17
Stendur Þjóðleik-
húsið undir
nafni?
— Sjá bls. 5