Tíminn - 10.09.1980, Side 9

Tíminn - 10.09.1980, Side 9
Miðvikudagur 10. september 1980 Níræður: Daníel Eggertsson fv. bóndi að Hvallátrum í Rauðasandshreppi Niræður er i dag Daniel Eggertsson. Hann er fæddur að Hvallátrum við Látrabjarg 10. sept. 1890. Foreldrar hans voru hjónin Halldóra Gisladóttir og Eggert Eggertsson, er bjuggu að Heima- bæ, einni af jörðum Hvallátra. Eggert og Halldóra áttu fjögur börn: Ólöfu, Daniel, önnu og Sig- riði. Auk þess átti Eggert son, Sigurð að nafni, áður en hann kvæntist, er var nokkru eldri en systkini hans. öll voru börn Eggerts alin upp á heimili hans og Halldóru á Hvallátrum. Kært var með þeim systkinum öllum. Börn Eggerts og Halldóru bjuggu öll að Hvallátrum. Hins vegar fluttist Sigurður, sem var skip- stjóri, til Snæfellsness. Daniel fór til náms i Verslunar- skóla Islands og lauk þaðan burt- fararprófi árið 1912. Fyrstu árin eftir að Daniel lauk prófi frá Verslunarskólanum, vann hann við skrifstofustörf i Reykjavik á veturna. Hins vegar vann hann á vorin við sjóróðra með föður sin- um og þeim öðrum, er með hon- um réru. Vann hann einnig með foreldrum sinum að heyskap á sumrin. Mér segir svo hugur um, að löngun Daniels hafi á þessum árum stefnt að þvi að gera verzl- un og viðskipti að sinu ævistarfi, enda hafði hann með námi sinu búið sig undir þau störf og þau verið mjög við hans hæfi. Hitt er mér fullkunnugt um, að enda þótt Daniel hafi alltaf haft mjög fast- mótaðar skoðanir og litið verið fyrir skoðanaskipti, þá tók hann á lifsleiðinni mikið tillit til sinna nánustu skyldmenna. Afstaða til foreldra sinna, að tryggja þeim afkomu á efri árum, mun að verulegu leyti hafa ráðið þvi, að Daniel gerðist bóndi að Hvallátr- um. Honum fórst vel búskapurinn þar. Hann bjó eins og allir þar við litinn landbúskap, enda jarðnæði litið. Hins vegar sótti hann sjóinn af kappi, fyrst á opnum árabát- um, en siðar opnum vélbátum. Aðstaða fyrir stærri báta en „trillur” var ekki möguleg þar vegna hafnleysis. Daniel þekkti vel til allra þátta i störfum Látra- bænda. Hann fór um fermingu að taka þátt i sigi i Látrabjarg. Fugla- og eggjatekja úr bjarginu var mikil tekjubót Látrabænda fram á miöjan þriðja áratug þessarar aldar, en lagðir þá niður i þeirri mynd, sem áður hafði ver- ið, vegna slyss i bjarginu, þegar tveir ungir menn frá Látrum —iY^Húsgögn og ■■r |^innréttinaar Suöuriandsbraut 18 Selur: Eldhúsinnréttingar. Baðherbergisinn- réttingar. Fataskápa og skrif- stofuhúsgögn frá Trésmiðju K.Á. Sel- fossi. Bólstruð húsgögn frá Húsgagnaiðju K.R. Hvolsvelli Innihurðir og skrif- stofustóla frá Tré- smiðju K.S. Vik. Ennfremur innflutt húsgögn frá Dan- mörku, Noregi, Svi- þjóð, Finnlandi, Bretlandi og Þýska- landi. Húsgögn og innréttingar SiiAurlandsbraut 18 Slmi 86-900 hröpuðu, er þeir voru við sig i Látrabjargi og dóu báðir. Daniel hafði verið með færustu mönnum, er þá tóku þátt i bjargsiginu. Daniel reyndist farsæll i bú- skapnum sem og öðrum þeim störfum, er hann lagði gjörva hönd á. Skilyrði til tekjuöfíunar voru erfið á Hvallátrum, þó væri þar mörg matarholan. Landið var litið og þröngt setið, er heimilisfast fólk var þar milli sextiu og sjötiu manns, svo sem lengi var fram eftir ævi Daniels. Sjósókn var erfið, þar sem vikin er fyrir opnu hafi og brimasamt mjög, en aflasælt gat þar oft verið. Látrabjargiö bauð upp á verulega fljótfengnar tekjur, en jafnframt miklar hætt- ur. Samgöngurnar voru sá þáttur i byggðasögu Hvallátra, er ekki var hvað beztur. Patreksfjörður var þeirra eini verzlunarstaöur. A sumrin var farin sjóleiðin til aðdrátta á opnum bátum. Sú leið var löng og mjög áhættusöm. Landleiöin var einnig löng og yfirleitt yfir órudda fjallvegi að fara þar til nú siðustu áratugina, eftir að vegur var ruddur og lagð- ur yfir víkur og hálsa. Þrátt fyrir það að búskaparsaga Hvallátra væri erfiö, hafa þar að verki verið margir manndómsmenn eins og þau hjónin Daniel og Anna, þó ekki verði nafngreindir hér aðrir. Daniel tók að sjálfsögðu þátt i margvislegum störfum sveitunga sinna á sviði félagsmála. Oftast voru þau tengd fjármálasviðinu. Skal nokkurra þeirra getið hér: Endurskoðandi reikninga Spari- sjóðs Rauðasandshrepps var hann um fjóra áratugi. Hrepps- reikning Rauðasandshrepps endurskoðaði hann i nær þrjá áratugi. Formaöur sóknarnefnd- ar Breiðuvikurkirkju var hann einnig i nokkra áratugi. A þeim árum beitti hann sér fyrir bygg- ingu nýrrar kirkju i Breiðuvik. Kirkjubyggingin var honum mik- ið áhugamál. 1 sambandi við kirkjubygginguna minntist hann með sérstöku þakklæti sr. As- mundar Guðmundssonar, er þá var biskup, og sr. ólafs Skúlason- ar dómprófasts, en báðir lögðu þeir honum verulegt lið við fjár- útvegun. Aður en Daniel fluttist frá Hvallátrum, skilaöi hann sóknarnefndarstörfum af sér sem öðrum félagsstörfum. Voru þá kirkjubyggingarlánin uppgreidd að fullu, og nokkur fjárhæð var i sjóði að auki. Á Hvallátrum var og er veöur- athugunarstöð. Daniel annaðist þá starfsemi i um aldarfjórðung. Gjaldkeri slysavarnardeildar og sjúkrasamlags var hann álika langan tima. Ekki mun of sagt, að öll þau störf, sem hann tók aö sér á sviði félagsmála, leysti hann af hendi með samvizkusemi og vandvirkni. Daniel beitti sér mjög fyrir þvi, að talsimi yrði lagður að Hval- látrum. Það varð að veruleika á fjórða áratugnum. Þaö varð þess- ari vestustu byggö landsins ekki siður en öörum mikils viröi. Dani- el minntist Magnúsar Guðmunds- sonar fv. ráðherra með sérstöku þakklæti I sambandi við sima- málið. Daniel var stöðvarstjóri lands- , simastöðvarinnar á Hvallátrum frá upphafi, þar til stöðin var lögð niður og Hvallátur gerð númer frá Patreksfirði. Einn af meiri háttar viðburðum i lifi Daniels var þátttaka hans i björgunarafrekinu við Látra- bjarg. Þar var tólf skipverjum af enska togaranum „Dhoon” bjargað við hinar erfiðustu að- stæður. Björgunin var mikið þrekvirki, sem tók björgunar- mennina þrjá sólarhringa og þrjár klukkustundir. Frásögn af björgunarafreki þessu barst viða um lönd. Daniel Eggertsson kvæntist Onnu Jónsdóttur, ættaðri úr Dýra firði. Anna er rriikil mannkosta- kona, vel gefin og vel menntuð, með burtfararpróf úr Kvenna- skólanum i Reykjavik. Henni far- ast allir hlutir vel úr hendi. Arið 1924 byggðu þau sér timburhús ágætlega vandað. Heimili þeirra að Hvallátrum bar smekkvisi og snyrtimennsku þeirra hjóna fagurt vitni. Þau Anna og Daniel eignuðust ekki afkomendur. Hins vegar ólu þau upp dreng, Guðmund Jón Óskarsson, efnilegan myndar- mann, er reyndist þeim sem góður sonur. Hann var loftskeyta- maður aö námi og starfi. Guð- mundur fórst með togaranum Jóni ólafssyni, en sá togari var skotinn i hafið, er hann var á heimleið frá Bretlandi 1942. Þeim var fráfall Guömundar mikil sorg. Arið 1948 tóku þau kornabarn, Gyðu Guðmundsdóttur frá Breiðuvik, og ólu hana að öllu leyti upp. Gyða er nú búsett i Reykjavik, gift Marias Sveins- syni verzlunarmanni. Eiga þau tvær dætur. Þau Daniel og Anna hafa reynzt Gyðu svo sem væri hún þeirra dóttir. Það sama má um hana segja, hún hefur reynzt þeim sem slik. Þau dveljast nú á heimili hennar og Mariasar. Ég gat þess fyrr i grein þessari, að Daniel hefði gert sér far um að tryggja afkomu foreldra sinna á þeirra efri árum. Samstarfið á milli hans og systra hans og mága var með ágætum að þvi leyti, sem ég kynntist þvi. Það sem mér er þó efst i huga, þegar ég minnist afmæli þessa aldna föðurbróður mins, er tryggðin og vinsemd sú, sem hann sýndi móður minni og okkur börnum hennar og Sigurð- ar bróður hans við fráfall hans á bezta aldri frá sex ungum börn- um, með bréfaskriftum sinum til okkar og annarri umhyggju. Ég naut þeirrar ánægju að dveljast á heimili þeirra Daniels og önnu einn vetur, þá tólf ára gamall. Minnist ég þess vetrar með gleði og þakklæti. Tvö af systkinum minum dvöldust siðar á heimili Daniels og önnu, Margrét systir min þrjá vetur, Þorkell þrjá mán- uði. Þau minnast veru sinnar á Hvallátrum eins og ég meö gleði og þakklæti. Daniel tók ungur þá ákvörðun að reynast styrk stoð sinu nán- asta skylduliði. Niræður getur hann litið yfir sina löngu ævi og sér, að sannarlega hefur honum vel tekizt að styðja að velgengni sinna og þess byggðarlags, sem fæddi hann og fóstraði. Skyldulið- ið hugsar til hans á þessum merkisdegi með hlýju og þakk- læti. Svo mun einnig með sam- ferðamenn hans yfirleitt, svo sem hann minnist þeirra með þakklát- um huga. Daniel hætti búskap á Hval- látrum 1972 og fluttist til Reykja- vikur. Þar hafa þau dvalizt siðan. Daniel og Anna bera bæði aldur- inn vel. Daniel heldur gleði sinni og glettni svo sem verið hefur á lifsleiðhans. Við bróðurbörn hans og makar okkar færum honum innilegar þakkir fyrir ánægjulega frændsemi. Hjartans hamingju- óskir með niræðisafmælið og ævi- kvöldiö. Halldór E. Sigurðsson. PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða LOFTSKEYTAMANN/SÍMRITARA til starfa á ÍSAFIRÐI Nánari upplýsingar verða veittar hjá starfsmannadeild, Reykjavik og um- dæmisstjóra, ísafirði. Hestamannafélagið Geysir Dregið hefur verið i happdrætti félagsins. Vinningsnúmer eru þessi: 1. vinningur: liestur á miða no. 3544 2. vinningur: (Jtvarpsklukka á miða no. 2437 3. vinningur: Minútugrili á miða no. 3105 4. vinningur: (Jtvarp á miða no. 4399 5. vinningur: Myndavél á miða no. 4112 Hafnarfjörður — Blaðburður Timann vantar fólk til blaðburðar á Hval- eyrarholt. Upplýsingar i sima 50981 eða 52887. Hulda. J.R.J. Bifreiðasmiðjan hf. Varmahlíð, Skagafirði. Simi 95-6119. Yfirbyggingar á Toyota 4x4 picup. Við bjóðum upp á 4 gerðir yfirbygginga á þennan bil. Yfirbyggingar og rétt- ingar, klæðningar, sprautun, skreytingar, bilagler. Sérhæfð bifreiöasmiðja i þjóðleiö. .... PStaða skólaritara við Öskjuhlíðarskóla við Reykjanesbraut er laus frá 1. október Umsóknir er greini frá aldri.menntun og fyrri störfum sendist fyrir 18. september. Skólastjóri Kjötiðnaðarmenn Viljum ráða nú þegar kjötiðnaðarmann að kjötvinnslu vorri. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi góða starfsreynslu. Ibúðarhúsnæði fyrir hendi. Nánari upplýsingar gefur kaupfélags- stjóri eða fulltrúi hans. SAUÐÁRKRÓKI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.