Tíminn - 10.09.1980, Page 15

Tíminn - 10.09.1980, Page 15
Miðvikudagur 10. september 1980 19 r f lokks starfið Hádegisfundur S.U.F. miðvikudaginn 10. september að Hótel Heklu. Gestur fundarins: Guðni Ágústs- son form. S.U.F. Allt framsóknarfólk vel- komið. Kópavogur. Aðalfundur Framnes h.f. verður haldinn i fundarsal Full- trúaráðs Framsóknarfélaganna að Hamraborg 5 mánu- daginn 15. sept. n.k. kl. 20.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Tillaga um aukningu hlutafjár. Stjórnin. Norðurland-eystra Skrifstofa kjördæmissambands framsóknar- manna Hafnarstræti 90 Akureyri verður opin frá 1. sept. á virkum dögum milli kl. 14 og 16, simi 21180. Vesturslóð O þeir haft tal af ýmsum væntan- legra nágranna áöur en staðurinn opnaði, og hafa margir þeirra þegar heimsótt hann og litist vel á. Vesturslóð er rekin sem steik- hús, en að auki með fjölbreytt úr- val sjávarrétta. Enn er staðurinn ekki kominn með, vinveitinga- leyfi, en borgarráð hefur þegar lagt blessun sina á umsókn þar um. A Vesturslóð geta 50 manns setiö til borðs, en auk þeirra geta fleiri notið kræsinganna, sem þar eru á boðstólum, þar sem rekin er nokkurs konar heimilisþjónusta i tengslum við veitingahúsiö. Þar geta menn komið og keypt ýmsa smárétti, franskar kartöflur og ýmsar sósur og flutt með sér heim til sin. Matsveinn er Anton Viggósson. Vesturslóö er opin kl. 11-23.30. Mígren O höfuðsjúkdóms) en Gunnar seg- ir m.a.: „011 viðleitni, sem miðar að þvi að bæta aðstöðu og liðan migrensjúklinga er góð og lofs- verð. Menn vita ekki enn orsak- ir þessa sjúkdóms, sem er kvalafullur, langvinnur og krómskur kvilli. Sumir telja hann ganga nokkuö i ættir. Við vitum að hann versnar i streitu, þó að hún sé ekki orsökin, held- ur getur hún leitt kast yfir sjúklinginn. ...Göngudeild væri mikil umbót fyrir þetta fólk. Og svo tel ég aö fræðsla um sjúk- dóminn, að þvi leyti, sem hann er þekktur, ætti að vera mjög veigamikill þáttur f starfsemi svona félags. .. Rétt greining er mjög þýðingarmikil. . . .” Migrensamtökin fara fram á fjárhagsaðstoð, það væri hag- ræöing ekki siöur fyrir þjóðfé- lagið sem okkur. ’ Með von um skjót viðbrögð, mikiðer ihúfi — lif er i húfi. Meö vinsemd og viröingu f.h. stjórnar Migrensamtakanna. Valdimar S. Jónsson varaformaöur Fjárhagsstaöa 0 ur verið dregið i efa að þær væru byggðar á raunhæfum upplýsing- um. „Þetta er nú ekki alveg svona einfalt”, sagði Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða, er Timinn spurði hann hvort rétt væri að eignarf járstaða fyrirtækisins væri færð upp um 22 milljónir dollara með endurmatinu. „Það er niðurstaða þessa eignamats, eða öllu heldur eiginfjárstöðu félagsins eftir þetta mat, að stað- an sé jákvæð um 25,6 milljónir dollara”. „Hver var hún fyrir endurmat- ið”. „Það er rétt að byrjunartalan, reikningslega séö, áöur en kemur til endurmats er liðlega 3 milljón- ir dollara. En þá eru vel flestar eignir félagsins i mjög lágum töl- um i bókhaldi félagsins”, sagði Ragnar Arnalds fjármálaráð- herra,” og ég held að enginn vafi sé á þvi að endurmat á flugvélum sé afar umdeilanlegt”. KL — Sl. sunnudag var opnuð á kaffistofunni Mokka sýning á 24 vatnslitamyndum, sem Úlfur Ragnarsson læknir hefur gert, og er það sölusýning. Þessi sýning er 4. einkasýning málarans og eru allar myndirnar til sölu. Hún stendur yfir næstu 3 vikurnar. Timamynd G*E. Kás — Þessa dagana er Slippfélagið I Reykjavik aö endurbyggja setningsbryggju sfna, sem eyðilagöist hjá þeim i fyrra, við landgang Ægisgarðs. Hér er ekki um bryggju til venjulegrar viðlegu aö ræöa, heldur aðeins niðurrekna stálstaura, em sleða er komið fyrir á, til að stýra skipunum inn I slipp- >nn. Tímamynd: Róbert. Lands fundur Bókavarða félags íslands KL — Dagana 1.-6. september var haldinn 6. landsfundur Bókavarðafélags Islands og bar hann yfirskriftina Bókasafnið er upplýsingamiðstöð, enda fjöll- uðu öll framsöguerindin um og lögöuáherslu á upplýsingaþjón- ustu bókasafna. Framsögu- menn voru Greta Renborg, lekt- or frá sænska bókavarðaháskól- anum, Andras Jablonkay, lektor við Háskóla íslands, Helgi Bernódusson, yfirbóka- vörður i Vestmannaeyjum, og Sigrún K. Hannesdóttir, lektor við Háskóla tslands. Að fram- söguerindum loknum var panel- umræða, sem i tóku þátt Birgir Isleifur Gunnarsson, alþingis- maður, og Guðrún L. Asgeirs- dóttír, sveitarstjórnarmaður, auk framsögumanna. Umræð- únum stjórnaði Guðrún Helga- dóttir, alþingismaður. 1 tengsl- um við landsfundinn voru tvö námskeið fyrir bókaverði, um skipulagningu safnkosts og al- menn tengsl bókasafna. Heimir O c). Um annan búnað svo sem svartoliuketil, rafskautsketil, jöfnunargeyma, dreifikerfi, heimæðar o.fl. hef ég ekki tök á að meta hér, en eitthvað finnst mér vanta af búnaði til að kyndistöð gæti unnið, svo sem oliutanka m/þró, há- spennutengingar o.fl. liðir er geta skipt töluverðum upp- hæðum. Mikið ósamræmi virðist vera á milli verkfræði- stofa um verðlagningu á ofan nefndum hlutum. Hvernig væri það nú að menn færu að snúa sér i að gera al- vöru útreikninga á fyrirbærinu og hættu þessum afturábak- reikningi sem hefur einkennt alla útreikninga fyrir fjar- varmaveitur hingað til? Það er, að menn hafa byrjaö á að ákveða verö til notenda 85-90% af rafhitunartaxta (42) Raf- magnsveitna rikisins, siöan er dæmiö reiknað aftur á bak með mjög misjöfnum árangri, t.d. sem aö framan greinir. Heimir Sveinsson Frá Neskaupstað. Auglýsið 0 / Tímanum r~ r Bestu þakkir færi ég öllum þeim, sem sýndu mér vinarhug með gjöfum, skeyt- um og góðum óskum á áttræðisafmæli minu 11. ágúst s.l. Lifið heil. Þórfinnur Jóhannesson. " 1 + Innilegar þakkir fyrir alla hjálp, auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og jarðarför mannsins mlns, föður okkar, tengdafööur og afa, Snorra E. Gislasonar, Torfastöðum, Grafningi. Guð blessi ykkur. Valgerður Hannesdóttir Elín Snorradóttir, Sveinn Kristinsson, Björg Snorradóttir, Guðmundur H jartarson og barnabörn. Þökkum af alhug vináttu og samúð við andlát og útför Ásrúnar Jónsdóttur frá Hólkoti Börn, tengdabörn og barnabörn. Þökkum öllum þeim fjölmörgu einstakl- ingum og félagasamtökum, sem á marg- vislegan hátt hafa sýnt okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eigin- manns mins, föður okkar, bróður, mágs og tengdasonar Björgvins Sæmundssonar, bæjarstjóra. Sérstakar þakkir færum við Skólahljómsveit Kópavogs og bæjaryfirvöldum Kópavogs fyrir þá virðingu er þau sýndu minningu hans meö þvi aö láta útför hans fara fram á veg- um Kópavogsbæjar. Guö blessi ykkur öll. Ásbjörg Guðgeirsdóttir Hildisif Björgvinsdóttir, Kjartan Björg- vinsson, Guðrún Norðfjörð, Wilhelm Norðfjörð, Guðrún Sigurðardóttir, Guðgeir Jónsson.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.