Tíminn - 30.10.1980, Blaðsíða 16

Tíminn - 30.10.1980, Blaðsíða 16
A NÖTTU OG DEGI ER VAKA A VEGI Gagnkvæmt tryggingafé/ag WSIGNODE •.mvO'^' Sjálfvirkar bindivélar 1 Sjávarafurðadeild fiöK Sambandsins Simi 28200 Fimmtudagur 30. október 1980 Málarar voru í verkfalli í gær: V „Skerðingin nálgast — segir formaður Málarafélagsins HEI — „Þaö liggur alveg á boröinu, aö þaö veröur enginn fyrir slíkri skeröingu I þessum samningum og viö sem vinnum ák v æöis v innun a ”, svaraöi Hjálmar Jónsson, form. Málarafélags Reykjavikur er hann var spuröur, vegna þess aö málarar aflýstu ekki verkfalli i gær hvort svo mætti lita á aö þeir væru öörum óánægöari. Hjálmar sagöi þaö engan samanburö þola viö neinar aör- ar launahækkanir nú, hvaö reiknitala ákvæöisvinnunnar hafi veriö sniögengin. Þetta ætti sér þó lengri sögu, þvi i nánast öllum samningum s.l. 10-15 ár hafi veriö gengiö á þaö lagiö aö láta reiknitöluna alltaf sitja á hakanum. Þegar fyrir þessa samninga hafi veriö komin skeröing um 22% miöaö viö al- gengan viömiöunartaxta. Málarar hafi raunverulega sætt sig viö þetta hingaö til svona næstum þvi þegjandi, þar til aö nú sé þeim ofboöiö og ætli aö láta sverfa til stáls um þaö hvort skera eigi þá niöur viö trog eöa hvort málarar eigi aö njóta sama réttar og aörir. Málarar vildu nú fá rök fyrir þvi af hverju þeir einir séu sniö- gengnir, sagöi Hjálmar. Aliti einhverjir veröskrá þeirra of háa, þá sé þaö bara allt annaö mál. Væri svo þá hlytu þaö aö vera einingarveröin sem á bak viö standa sem ættu aö lækka og yröi þá aö benda á dæmi um þaö og sanna þau. En þegar komi aö kauphækkunum hljóti þeir aö eiga sama rétt og aörir. Þess- vegna hafi málarar sagt sig úr samninganefnd Sambands byggingamanna og haslaö sér völl meö pipulagningamönnum, múrurum og veggfóörurum, sem eru utan sambandsins, þvi meö þeim ættu þeir samleiö hvaö þetta snerti. Hjálmar var þvi spuröur hvaö mikiö vantaöi i viöbót viö hina samþykktu 6% hækkun reikni- tölunnar til þess aö málarar heföu fengiö sömu kauphækkun og almennt geröist i samning- unum, þótt gömlu syndirnar heföu veriö látnar liggja milli hluta. Hann sagðist helst ekki vilja nefna ákveðnar prósentur. En sem dæmi aö ef þeir miöuöu viö lægstu hækkun sem viö kæmi iönaöarmönnum, þá hafi hann hækkaö um 11% meira en ákvæöisvinnan, þ.e. 17%. Væri hinsvegar miðaö viö þann taxta sem þeir fengju borgaö i tima- vinnu i örfáum tilvikum, þá heföi sá taxti hækkaö um 23% i þessum samningum. Sér sýndist þvi aö skeröingin aö meötöldum 22% færi aö nálgast 40% in. Borgarráð gefur úthlutunarhöfum iðnaðar- og verslunarlóða ákveðinn byggingarfrest: Missa níu aðil- ar lóðarétt sinn? Kás — 1 júnímánuöi i sumar samþykkti borgarráö aö tillögu lóöa- nefndar að setja úthlutunarhöfum iönaöar- og verslunarlóöa sem ekki hafa þegar hafist handa viö byggingaframkvæmdir ákveðinn bygg- ingarfrest, en haft hefur vcriö aö oröi aö Reykjavfk sé best setta sveitarfélagiö I landinu meö ónýttar en þó úthlutaöar lóöir af þeirri gcrö. Varöaöi þaö úthlutunar hafa lóöamissir færu þeir ekki af staö inn an tilskilins tíma. Samkvæmt samþykkt borgarráös var úthlutunarhöfum bygginga- hæfra lóöa gert að skila borgarverkfræöingi framkvæmdaáætlun fyrir 1. október s.l., þar sem gerö yröi grein fyrir uppbyggingu viökomandi lóöa. Af 26 aðilum skiluðu 12 fyrrnefndri framkvæmdaáætlun á réttum tima. Auk þess höföu fimm aðrir aöilar fengiö samþykktar teikningar af fyrirhuguöum húsum sinum hjá byggingarnefnd. Eftir voru þá niu aðilar sem enga grein hafa gert fyrir byggingar áformum sinum. Þeir eru: Bifreiöar- og Landbúnaöarvélar, Hellu og Steinsteypan, Kolus, Kristján Siggeirsson, Magnús Ingimundarson, Matkaup, Natan oé Olsen, Skúti og Þórir Jónsson. A næstu dögum mun reyna á þaö i borgarráöi hvort fariö veröur úti þaöaðsvipta þessa lóöarhafa réttisinum vegna athafnaleysis. BSt — Lionsklúbburinn Njöröur, sem um þessar mundir er 20 ára, færöi I gær Blindrafélaginu aö gjöf upptökustjórnborö meö tilheyrandi búnaöi. Tæki þessi eru lokaþátturinn I uppbyggingu hins nýja stúdlós hljóöbókageröarinnar, sem nú hefur veriö tekiö i notkun. A meöfyIgjandi mynd má sjá Gisla Helgason viö upptökustjórnborðiö, en á bak viö hann standa þeir Sveinn Asgeirsson, sem mikið hefur lesiö inn á seguibönd fyrir Blindrafélagiö og Danlel Þórarinsson læknir, formaöur I Lionsklúbbnum Niröi. (Timamynd G.E.). „Óvíst hvað {áignefnd- in þarf maiga daga” — segir Davíð Aðalsteinsson, alþingismaður, um meðferð á Flugleiðafrumvarpinu „Þaö er ómögulegt aö segja fyrir um hvaö þaö mun taka nefndina marga daga aö af- greiöa þetta mál. En viö mun- um hefjast þegar handa og komum saman til fyrsta fundar um máliö strax I fyrramáliö”, sagöi Daviö Aöalsteinsson sjl- þingismaöur i samtali viö Tlm- ann i gærkvöldi en Daviö á sæti I fjárhags- og viöskiptanefnd efri deildar Alþingis sem i gær fékk til meöferöar frumvarp rlkis- stjórnarinnar um aöstoö viö Flugleiöir, aö lokinni fyrstu um- ræöu i efri deild. „Við munum á þessum fundi væntanlega koma okkur saman um hvaöa spurningar viö eigum aö leggja fyrir stjórnendur Flugleiöa og aöra þá sem máliö snertir. Ég get nú ekki tilgreint nákvæmlega hvaöa spurningar ég mun sérstaklega leita svara viö. Þaö er hins vegar ljóst aö atriöi er varöa eignir félagsins, verömæti þeirra og söluhæfni, eru sérstaklega brennandi. Vonir standa reyndar til aö þeir sérfræöingar sem unniö hafa að könnun á eignunum skili áliti á næstu dögum. Þá munum viö aö sjálfsögöu leita upplýsinga um þaö hvort rekstrarvandi Flug- leiöa sé e.t.v. miklu stærri en látiö hefur veriö uppi aö undan- förnu, eins og gefiö hefur veriö i skyn”, sagöi Daviö Aöalsteins- son ennfremur. Daviö minnti á aö Flugleiöa- máliö væri mjög viötækt og þó mikiö væri búiö aö draga fram i dagsljósiö af upplýsingum þá væri enn margt óskýrt i bak- grunni þess. „Ég geri þvi allt eins ráö fyrir aö fjárhags- og viöskiptanefnd veröi aö sætta sig viö aö fá ekki allt fram sem hún gæti óskaö eftir, áöur en hún leggur máliö fyrir þing- deildina aftur, þvi þaö liggur á aö afgreiöa frumvarpiö. Hitt er eins víst aö viö munum ekki af- greiða þaö úr nefndinni eins og værum viö blindir kettlingar”, sagöi Davfö Aöalsteinsson aö lokum. Slökkvilið Reykjavíkur: Slökkviliðsmönnum sagt upp flytji þeir úr borginni Kás — Borgarráð samþykkti á siöasta fundi slnum aö þaö teldi forsendu fyrir þvi aö menn gætu gegnt starfi hjá Slökkviliöi Reykjavikur aö þeir byggju innan eldvarnarsvæöis Reykjavíkur. Tilefni þessarar samþykktar er það að nýlega hefur einn af starfsmönnum slökkviliðsins flutt upp á Kjalarnes. Forsvarsmenn slökkviliðsins telja að þaðan sé of löng vegalengd i bæinn svo starfs- maðurinn komi ekki að fyllileg- um notum i neyðartilfellum, þar sem of langur timi liöi frá útkalli þar til viðkomandi slökkviliðs- maður komist á vakt. Viökomandi starfsmanni hefur nú veriö gefinn frestur til 1. nóvember á næsta ári til aö flytja aftur til borgarinnar, ellegar verður honum sagt upp starfi, fyrir vikið. 1 framhaldi af þessu hefur borgarráð falið borgarlögmanni og slökkviliðsstjóra aö endur- skoða brunamálasamþykkt Reykjavikur. r 1 Fleiri og fleiri fá sér 'IMEX L mest selda úrið

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.