Fréttablaðið - 13.06.2007, Page 4

Fréttablaðið - 13.06.2007, Page 4
MARKAÐURINN 13. JÚNÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR4 F R É T T I R Bandaríski fjárfestingasjóður- inn Atticus þrýsti á stjórnendur breska bankans Barclays að draga yfirtökutilboð sitt í hol- lenska bankann ABN Amro til baka. Atticus kom í hluthafahóp Barclays í síðustu viku eftir kaup á eins prósenta hlut í bank- anum. Segir í opnu bréfi sjóðs- ins til Marcus Agius, stjórnar- formanns Barclays, sem Atticus birti í breska dagblaðinu Financ- ial Times, að hætta sé á að verð- miðinn fyrir ABN Amro verði Barclays dýr. Í bréfinu kom fram að Barclays muni gefa út nýtt hlutafé vegna kaupanna, sem hljóði upp á 65 milljarða evra, jafnvirði 5.600 milljarða íslenskra króna. Það jafngildir 15-földum hagnaði ABN Amro. Atticus segir þetta of stóran bita fyrir Barclays að kyngja þar sem samlegð með bönkunum tveimur sé lítil. Að mati Atticus eru horfur á að sam- legðin sé meiri hjá Royal Bank of Scotland og ABN Amro og því séu líkur á að skoski bankinn og með- bjóðendur hans hækki tilboðið til að tryggja sér bankann. - jab Vilja ekki kaupa ABN Amro Breski bjórfram- leiðandinn Fuller, Smith & Turner, sem rekur um 200 bari og sex hótel í Bret- landi, ætlar að verja sem nemur hálfum milljarði íslenskra króna til að bæta aðstöðu fyrir reyk- ingafólk fyrir utan krár sínar og knæp- ur. Reykingabann tekur gildi 1. júlí næstkomandi í Bretlandi og verður þá öllum reykingamönn- um úthýst af börum landsins. Á meðal áætlana bjórfram- leiðandans er að setja upp skyggni og stórar sólhlíf- ar utan við staði fyrirtækisins í Bret- landi og létta þannig reykingamönnum lífið. Þá er sömu- leiðis horft til þess að halda í við sölu á bjór undir merkjum fyrirtækisins, sem skilaði 22,1 milljónar punda hagnaði á fyrsta ársfjórðungi. Það jafngildir 2,8 milljörðum króna, sem er 23 prósenta aukn- ing á milli ára. - jab Til bjargar reykingafólki Seðlabanki Brasilíu ákvað í síð- ustu viku að lækka stýrivexti um 50 punkta í 12 prósent. Bank- inn hefur lækkað stýrivexti hratt síðastliðin tvö ár með það fyrir augum að blása lífi í einka- neyslu. Hagvöxtur í Brasilíu mældist 3,7 prósent á síðasta ári og er búist við að hann verði 0,3 pró- sentustigum betri á þessu ári. Þá var verðbólga 3,14 prósent í fyrra. Hún liggur nú í námunda við þrjú prósent. Ákvörðunin var í takt við spár greinenda sem þó gagnrýndu seðlabankann fyrir að fara of varlega. Þrýstu þeir á snarpari lækkun stýrivaxta til að auka einkaneyslu. Almenn ánægja var með ákvörðun seðlabankans í vikunni og lýstu samtök iðnaðarins þar í landi yfir því að aðstæður hefðu nú skapast til að auka hagvöxt í landinu. Þau sögðu engu að síður enn innistæðu fyrir frekari lækk- un stýrivaxta vegna hás geng- is brasilíska realsins, gjaldmiðils Brasilíu, gagnvart Bandaríkja- dal. Hefði það komið illa niður á útflutningsfyrirtækjum. - jab Ánægja með stýrivaxtalækkun Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Breska stórmarkaðakeðjan Tesco, sú stærsta í Bretlandi, hefur gert yfirtökutilboð í skosku garð- vörukeðjuna Dobbies Garden Centres. Tilboðið hljóðar upp á 155,6 milljónir punda, rúma 19,7 millj- arða íslenskra króna. Gangi kaupin í gegn verða þetta fyrstu skref stórmarkaðarins utan matvöru- geirans. Markaður með garðvörur hvers konar hefur vaxið mikið í Bretlandi síðustu ár og veltir hann nú um fimm milljörðum punda, jafnvirði 635 millj- örðum króna, á ári hverju. Terry Leahy, forstjóri Tesco, segir fyrirtækið horfa til þess að hagnast vel á kaupunum. Breska dagblaðið Guardian hefur eftir breskum sérfræðingi í smásöluverslun að gangi kaupin á Dobbies í gegn verði þau hlutfallslega smá í sniðum fyrir stórmarkað á borð við Tesco. Jafngildi kaup- verðið tekjum verslanakeðjunnar í tvo daga. Hann telur líklegt að viðskiptin marki fyrstu spor Tesco í frekari fyrirtækjakaupum utan matvörugeirans. Guardin segir bresku umhverfissamtökin Friends of the Earth hins vegar ævareið. Þau segja innkomu Tesco í garðvörugeirann merki um að stórmark- aðurinn ætli sér aukin yfirráð í Bretlandi. Benda þau á að Tesco hafi þegar rúmlega þrjátíu pró- senta markaðshlutdeild á breskum matvörumark- aði og stefni hraðbyri að því að ná ráðandi stöðu í fleiri geirum. Hefur blaðið eftir talsmanni samtak- anna að kaupin muni vafalítið draga úr samkeppni á breskum garðvörumarkaði. Dobbies rekur 21 verslun undir merkjum keðj- unnar víðs vegar um Bretland og selur meðal ann- ars moltukassa, sólpalla og ýmsar aðrar vörur fyrir garðinn. Hluthafar Dobbies eiga þó enn eftir að samþykkja viðskiptin, sem hljóða upp á 1.500 pens á hlut. Skoski auðmaðurinn Sir Tom Hunter jók um miðjan síðasta mánuð við hlut sinn í Dobbies úr rúmum sjö prósentum í 10,6 prósent. Hunter hefur fjárfest talsvert í garðvörugeiranum á undanförnum árum. Hunter er náinn viðskiptafélagi Baugs Group en fjárfestingafélag hans tók þátt í kaupunum á House of Fraser ásamt Baugi, FL Group og fleiri fjárfestum. Þá keypti það með Baugi og fleirum garðvörukeðjuna Wyevale Garden Centres í fyrra fyrir jafnvirði fjörutíu milljarða króna og Blooms of Bressingham var keypt á þessu ári. Breskir fjölmiðlar segja mjög líklegt að Hunter safni saman hópi fjárfesta á næstunni og muni hann í kjölfarið gera gagntilboð í garðvörukeðjuna á móti Tesco. Tesco býður í Dobbies Breski stórmarkaðurinn Tesco ætlar sér stóra hluti með kaupum á garðvörukeðju. Kaupin vekja reiði í Bretlandi. Stuart Rose, forstjóri bresku verslanakeðjunnar Marks & Spencer, ætti að hafa tilefni til að brosa þessa dagana. Rose fékk 7,8 milljónir punda í laun og bónus- greiðslur í fyrra. Þetta jafngildir rúmum 990 milljónum íslenskra króna, sem er 68 prósenta launa- hækkun á milli ára. Um þriðjungur var beinar launagreiðslur í reiðufé. Þær námu 2,6 milljónum punda, jafn- virði 330 milljóna króna. Bónus- greiðslurnar eru hámark þess sem hann getur fengið samkvæmt ráðningarsamningi en þær hljóða upp á fjórföld laun. Rose, sem tók við forstjóra- stólnum árið 2004, er þakkaður góður árangur verslanakeðjunnar, sem tók skrefið upp á við sama ár og skilaði hagnaðaraukningu upp á tæp 29 prósent í fyrra. Þrátt fyrir vænt launaumslag á hann enn eitthvað inni því í ráðn- ingarsamningi hans er kveðið á um að hann fái bónusgreiðslur upp á átta milljónir punda, rétt rúman einn milljarð króna, í reiðu- fé og hlutabréfum aukist hagnað- ur verslunarinnar um tíu prósent að lágmarki á ári. - jab Forstjórinn fékk væna launahækkun

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.