Fréttablaðið - 13.06.2007, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 13.06.2007, Blaðsíða 28
MARKAÐURINN 13. JÚNÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR12 H É Ð A N O G Þ A Ð A N Síminn kynnti þriðju kynslóð í farsímakerfum í verslunum sínum á höfuðborgarsvæðinu á dögunum. Þetta er annað fjar- skiptafyrirtækið af þremur sem kynnir það sem komandi kyn- slóð hefur upp á að bjóða en Nova hafði nokkru áður sýnt gestum sambærilega hluti. Síminn stefn- ir að því að bjóða upp á þjón- ustuna á höfuðborgarsvæðinu í haust og hefja þá uppbyggingu á kerfinu á landsbyggðinni. Gert er ráð fyrir að 60 til 80 prósent landsmanna geti nýtt sér kerfið eftir um tvö og hálft ár en að lág- marki 75 prósent á öllu landinu eftir fimm og hálft ár. Með þessari þriðju kynslóð í farsímaneti opnast talsvert fleiri möguleikar á gagnaflutningum en nú gefast. FARTÖLVAN Að farsímanum ólöstuðum verður möguleikinn á þráðlausri netteng- ingu með fartölvu, óháð staðsetn- ingu, eitt af stærstu skrefunum við innleiðingu þriðju kynslóð- arinnar. Hægt verður að ferðast með fartölvuna um borg og bý og halda stöðugu og hraðvirku net- sambandi innan farsímanetsins. Einu hindranirnar felast í dapurri endingu fartölvurafhlaða og eins ef farið er út fyrir borgarmörk. Ekki liggur fyrir hvenær rafhlöð- urnar batna en einfalt mál er að verða sér úti um rafmagnssnúru fyrir fartölvuna. Netsambandið kemur svo til með að batna þegar nýtt og langdrægara kerfi tekur við af NMT-kerfinu eftir um tvö ár. Þá verður hægt að rápa um netið hvar sem er á hálendinu þar sem venjulegt farsímasamband er alla jafna slæmt í dag. Þriðja kynslóðin býður upp á tvenns konar tengimöguleika með fartölvum. Besta lausnin er gagnakort sem smellt er í korta- rauf tölvunnar. Kort þetta þekk- ist þar sem tæknin hefur rutt sér til rúms, svo sem í Danmörku. Verðmiði er ekki kominn á kort- ið en gert er ráð fyrir að hann verði í kringum 30.000 krónur. Kerfi Símans eins og það er í dag býður einungis upp á 1,7 til 3,0 Mb/s hraða, sem er meira en nóg fyrir meðalnotandann. Það verður uppfært í sumar og mun, þegar þriðja kynslóðin verður opnuð almenningi, bjóða upp á 7,0 Mb/s tengingu, sem er sam- bærilegt við ADSL-tengingu yfir meðallagi. Fræðilegur möguleiki er á að bjóða allt að 14,4 Mb/s í nánustu framtíð. Það er risa- stökk sem verður hins vegar ekki tekið í bráð því þótt tæknin sé fyrir hendi bjóða engin gagna- kort hér á landi upp á slíkan gagnahraða. Hin leiðin er að tengja tölvuna með utanáliggjandi USB-korti. Það verður nokkuð ódýrari leið og hentar ferðalöngum ágætlega. Á móti verður tengingin hæg- virkari en þó þokkaleg. FARSÍMINN Farsímaeigendur munu taka eftir umtalsverðri byltingu þegar þeir verða komnir með farsíma sem styður við þriðju kynslóð í far- símatækni. Símarnir eru enn sem komið er í dýrari kantinum, en þó innan skynsamlegra marka. Mjög líklega munu þeir lækka í verði þegar á líður. Með þessari nýjustu kynslóð í farsímatækni gefast Frónbúum mörg ný tækifæri með auknum gagnaflutningshraða. Hægt verð- ur að halda myndfund í beinni út- sendingu í gegnum símann, taka og senda ljósmyndir í ágætri upplausn og hala niður tónlist og hlusta á í þolanlegum gæðum. Myndfundatæknin, sem virkar fyrir tilstilli lítillar myndavél- ar framan á farsímanum, nýtist sumum eflaust ágætlega, ekki síst heyrnarlausum. Hún þykir hafa komið vel út í þeim löndum þar sem tæknin er til staðar, svo sem í Svíþjóð. Helsti gallinn við myndfunda- tæknina var léleg upplausn hreyfimynda við slæm birtu- skilyrði. Mun betri myndgæði fást með því að fara þangað sem meiri birtu nýtur. Myndavélin aftan á farsímanum er mun betri. Birta skiptir þar sömuleiðis máli en upplausnin á myndavél farsímans sem not- aður var við kynningu á tækn- inni í húsakynnum Símans, Sony Ericsson K810i, með 3,2 mega- díla myndavél, er talsvert betri. Sú myndavél kemur eflaust betur út á myndsímafundum. Að sama skapi má nota vélina til að sýna hvernig umhorfs er í umhverfi farsímanotanda. SJÓNVARPIÐ Móttaka sjónvarpsútsendinga kom ágætlega út þrátt fyrir lít- inn farsímaskjá. Upplausn efnis, sem er pakkað á MPEG-4 formi, er vel viðunandi þegar horft er á fréttamyndir og aðra afþreyingu. Smáatriði skila sér eðlilega ekki á litlum skjá og varla hægt að búast við að útsendingar á stór- myndum á borð við Hringadrótt- inssögu geti notið sín. Maður með fulla sjón ætti vel að geta lesið texta af svo litlum skjá. Upplýs- ingar á textaborðum sem renna yfir skjáinn á BBC og CNBC voru aftur á móti illgreinanlegar. ENGIN VERÐSKRÁ Síminn hefur enn ekki flagg- að verðskrá og mismunandi þjónustupökkum fyrir notkun á tækninni. Sama máli gegnir um fjarskiptafélögin Nova og Vod- afone, sem bæði ætla að bjóða upp á tæknina á næstu misser- um. Gera má ráð fyrir að þeir verði mismunandi, einn pakki fyrir þá sem vilja hala niður miklu magni tónlistar sem krefst mikils gagnamagns, annar fyrir móttöku sjónvarpsútseninga og annar fyrir þá sem vilja nota far- símann að mestum hluta til tals en gætu hugsað sér að nýta öðru hvoru þá möguleika sem þriðja kynslóðin í farsímatækni hefur upp á að bjóða. Margir möguleikar með nýrri kynslóð Þeir sem beðið hafa óþreyjufullir eftir þriðju kynslóðinni í farsímatækni geta andað léttar: Síminn byrjar að veita þjónustuna á höfuðborgarsvæðinu á haustdögum. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson brá sér á kynningu hjá Símanum á dögunum og skoðaði það sem framtíðin hefur upp á að bjóða. SPRON hefur afhent styrki til einstaklinga fyrir 1,8 milljón króna. Sjö hlutu námsstyrki fyrir samtals 1,2 milljónir króna en auk þess voru veittir aðrir styrk- ir samtals að upphæð 625 þúsund krónur, vegna brúðkaupa, stóraf- mæla, fæðinga og ferðalaga. Fimm fengu námsmannastyrki að upphæð tvö hundruð þúsund krónur hver og tveir fengu náms- lokastyrki að upphæð eitt hundr- að þúsund krónur hvor. Styrk- ina hlutu þær Sigríður Kristín Sæmundsdóttir, Jenný Haralds- dóttir, Björg Magnúsdóttir, Rut Gunnarsdóttir, Hildur Arnar- dóttir, Ragnheiður Valdimars- dóttir og Guðný Gréta Guðna- dóttir. Alls bárust sparisjóðnum rúm- lega 180 umsóknir um náms- mannastyrki. „Við úthlutun styrkjanna var tekið mið af námsárangri um- sækjenda, námsvali, framsetn- ingu umsóknar og framtíðará- formum,“ segir í tilkynningu frá SPRON. SPRON veitir styrki *Nafnávöxtun í ISK, EUR, USD og GBP á ársgrundvelli fyrir tímabili› 30/04/07 - 31/05/07. Peningamarka›ssjó›ir eru fjárfestingarsjó›ir skv. lögum nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i. Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings banka hf. Fjárfestingarsjó›ur telst vera áhættusamari fjárfesting en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjó›s er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í ver›bréfasjó›i. Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast í útbo›sl‡singu e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins í útibúum Kaupflings e›a á www.kaupthing.is. P E N I N G A M A R K A ‹ S S J Ó ‹ I R Ávaxta›u betur - í fleirri mynt sem flér hentar 4,6%* ávöxtun í evrum 5,4%* ávöxtun í dollurum 15,3%* ávöxtun í krónum 5,7%* ávöxtun í pundum Kynntu flér kosti Peningamarka›ssjó›a Kaupflings í ISK, EUR, USD og GBP. Sérfræ›ia›sto› vi› fjárfestinga r hringdu í síma 444 7000

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.