Fréttablaðið - 13.06.2007, Síða 28
MARKAÐURINN 13. JÚNÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR12
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Síminn kynnti þriðju kynslóð í
farsímakerfum í verslunum
sínum á höfuðborgarsvæðinu á
dögunum. Þetta er annað fjar-
skiptafyrirtækið af þremur sem
kynnir það sem komandi kyn-
slóð hefur upp á að bjóða en Nova
hafði nokkru áður sýnt gestum
sambærilega hluti. Síminn stefn-
ir að því að bjóða upp á þjón-
ustuna á höfuðborgarsvæðinu í
haust og hefja þá uppbyggingu
á kerfinu á landsbyggðinni. Gert
er ráð fyrir að 60 til 80 prósent
landsmanna geti nýtt sér kerfið
eftir um tvö og hálft ár en að lág-
marki 75 prósent á öllu landinu
eftir fimm og hálft ár.
Með þessari þriðju kynslóð í
farsímaneti opnast talsvert fleiri
möguleikar á gagnaflutningum
en nú gefast.
FARTÖLVAN
Að farsímanum ólöstuðum verður
möguleikinn á þráðlausri netteng-
ingu með fartölvu, óháð staðsetn-
ingu, eitt af stærstu skrefunum
við innleiðingu þriðju kynslóð-
arinnar. Hægt verður að ferðast
með fartölvuna um borg og bý og
halda stöðugu og hraðvirku net-
sambandi innan farsímanetsins.
Einu hindranirnar felast í dapurri
endingu fartölvurafhlaða og eins
ef farið er út fyrir borgarmörk.
Ekki liggur fyrir hvenær rafhlöð-
urnar batna en einfalt mál er að
verða sér úti um rafmagnssnúru
fyrir fartölvuna. Netsambandið
kemur svo til með að batna þegar
nýtt og langdrægara kerfi tekur
við af NMT-kerfinu eftir um tvö
ár. Þá verður hægt að rápa um
netið hvar sem er á hálendinu þar
sem venjulegt farsímasamband
er alla jafna slæmt í dag.
Þriðja kynslóðin býður upp
á tvenns konar tengimöguleika
með fartölvum. Besta lausnin er
gagnakort sem smellt er í korta-
rauf tölvunnar. Kort þetta þekk-
ist þar sem tæknin hefur rutt sér
til rúms, svo sem í Danmörku.
Verðmiði er ekki kominn á kort-
ið en gert er ráð fyrir að hann
verði í kringum 30.000 krónur.
Kerfi Símans eins og það er í
dag býður einungis upp á 1,7 til
3,0 Mb/s hraða, sem er meira en
nóg fyrir meðalnotandann. Það
verður uppfært í sumar og mun,
þegar þriðja kynslóðin verður
opnuð almenningi, bjóða upp á
7,0 Mb/s tengingu, sem er sam-
bærilegt við ADSL-tengingu yfir
meðallagi. Fræðilegur möguleiki
er á að bjóða allt að 14,4 Mb/s
í nánustu framtíð. Það er risa-
stökk sem verður hins vegar ekki
tekið í bráð því þótt tæknin sé
fyrir hendi bjóða engin gagna-
kort hér á landi upp á slíkan
gagnahraða.
Hin leiðin er að tengja tölvuna
með utanáliggjandi USB-korti.
Það verður nokkuð ódýrari leið
og hentar ferðalöngum ágætlega.
Á móti verður tengingin hæg-
virkari en þó þokkaleg.
FARSÍMINN
Farsímaeigendur munu taka eftir
umtalsverðri byltingu þegar þeir
verða komnir með farsíma sem
styður við þriðju kynslóð í far-
símatækni. Símarnir eru enn sem
komið er í dýrari kantinum, en
þó innan skynsamlegra marka.
Mjög líklega munu þeir lækka í
verði þegar á líður.
Með þessari nýjustu kynslóð í
farsímatækni gefast Frónbúum
mörg ný tækifæri með auknum
gagnaflutningshraða. Hægt verð-
ur að halda myndfund í beinni út-
sendingu í gegnum símann, taka
og senda ljósmyndir í ágætri
upplausn og hala niður tónlist
og hlusta á í þolanlegum gæðum.
Myndfundatæknin, sem virkar
fyrir tilstilli lítillar myndavél-
ar framan á farsímanum, nýtist
sumum eflaust ágætlega, ekki
síst heyrnarlausum. Hún þykir
hafa komið vel út í þeim löndum
þar sem tæknin er til staðar, svo
sem í Svíþjóð.
Helsti gallinn við myndfunda-
tæknina var léleg upplausn
hreyfimynda við slæm birtu-
skilyrði. Mun betri myndgæði
fást með því að fara þangað sem
meiri birtu nýtur.
Myndavélin aftan á farsímanum
er mun betri. Birta skiptir þar
sömuleiðis máli en upplausnin
á myndavél farsímans sem not-
aður var við kynningu á tækn-
inni í húsakynnum Símans, Sony
Ericsson K810i, með 3,2 mega-
díla myndavél, er talsvert betri.
Sú myndavél kemur eflaust betur
út á myndsímafundum. Að sama
skapi má nota vélina til að sýna
hvernig umhorfs er í umhverfi
farsímanotanda.
SJÓNVARPIÐ
Móttaka sjónvarpsútsendinga
kom ágætlega út þrátt fyrir lít-
inn farsímaskjá. Upplausn efnis,
sem er pakkað á MPEG-4 formi,
er vel viðunandi þegar horft er á
fréttamyndir og aðra afþreyingu.
Smáatriði skila sér eðlilega ekki
á litlum skjá og varla hægt að
búast við að útsendingar á stór-
myndum á borð við Hringadrótt-
inssögu geti notið sín. Maður með
fulla sjón ætti vel að geta lesið
texta af svo litlum skjá. Upplýs-
ingar á textaborðum sem renna
yfir skjáinn á BBC og CNBC voru
aftur á móti illgreinanlegar.
ENGIN VERÐSKRÁ
Síminn hefur enn ekki flagg-
að verðskrá og mismunandi
þjónustupökkum fyrir notkun á
tækninni. Sama máli gegnir um
fjarskiptafélögin Nova og Vod-
afone, sem bæði ætla að bjóða
upp á tæknina á næstu misser-
um. Gera má ráð fyrir að þeir
verði mismunandi, einn pakki
fyrir þá sem vilja hala niður
miklu magni tónlistar sem krefst
mikils gagnamagns, annar fyrir
móttöku sjónvarpsútseninga og
annar fyrir þá sem vilja nota far-
símann að mestum hluta til tals
en gætu hugsað sér að nýta öðru
hvoru þá möguleika sem þriðja
kynslóðin í farsímatækni hefur
upp á að bjóða.
Margir möguleikar með nýrri kynslóð
Þeir sem beðið hafa óþreyjufullir eftir þriðju kynslóðinni í farsímatækni geta
andað léttar: Síminn byrjar að veita þjónustuna á höfuðborgarsvæðinu á
haustdögum. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson brá sér á kynningu hjá Símanum á
dögunum og skoðaði það sem framtíðin hefur upp á að bjóða.
SPRON hefur afhent styrki til
einstaklinga fyrir 1,8 milljón
króna. Sjö hlutu námsstyrki fyrir
samtals 1,2 milljónir króna en
auk þess voru veittir aðrir styrk-
ir samtals að upphæð 625 þúsund
krónur, vegna brúðkaupa, stóraf-
mæla, fæðinga og ferðalaga.
Fimm fengu námsmannastyrki
að upphæð tvö hundruð þúsund
krónur hver og tveir fengu náms-
lokastyrki að upphæð eitt hundr-
að þúsund krónur hvor. Styrk-
ina hlutu þær Sigríður Kristín
Sæmundsdóttir, Jenný Haralds-
dóttir, Björg Magnúsdóttir, Rut
Gunnarsdóttir, Hildur Arnar-
dóttir, Ragnheiður Valdimars-
dóttir og Guðný Gréta Guðna-
dóttir.
Alls bárust sparisjóðnum rúm-
lega 180 umsóknir um náms-
mannastyrki.
„Við úthlutun styrkjanna var
tekið mið af námsárangri um-
sækjenda, námsvali, framsetn-
ingu umsóknar og framtíðará-
formum,“ segir í tilkynningu frá
SPRON.
SPRON veitir styrki
*Nafnávöxtun í ISK, EUR, USD og GBP á ársgrundvelli fyrir tímabili› 30/04/07 - 31/05/07.
Peningamarka›ssjó›ir eru fjárfestingarsjó›ir skv. lögum nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i.
Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings banka hf. Fjárfestingarsjó›ur telst vera áhættusamari fjárfesting
en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjó›s er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum sem geta
m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í ver›bréfasjó›i. Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast í útbo›sl‡singu
e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins í útibúum Kaupflings e›a á www.kaupthing.is.
P E N I N G A M A R K A ‹ S S J Ó ‹ I R
Ávaxta›u betur
- í fleirri mynt sem flér hentar
4,6%*
ávöxtun í evrum
5,4%*
ávöxtun í dollurum
15,3%*
ávöxtun í krónum
5,7%*
ávöxtun í pundum
Kynntu flér kosti Peningamarka›ssjó›a
Kaupflings í ISK, EUR, USD og GBP.
Sérfræ›ia›sto›
vi› fjárfestinga
r
hringdu í síma
444 7000