Fréttablaðið - 13.06.2007, Blaðsíða 14
13. JÚNÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR6 fréttablaðið verk að vinna
Halla Sigrún Sigurðardóttir lét
saga svalahurð á stofuna og
byggði pall sem stækkar íbúðina
um þriðjung.
„Þetta er nú ekki stór íbúð og snýr í
suður. Mér datt þetta því í hug um leið og
ég keypti íbúðina en það tók mig þrjú ár
að koma þessu í verk,“ segir Halla Sig-
rún Sigurðardóttir, sem lét saga svala-
hurð á stofuna í íbúð sinni í austurhluta
borgarinnar og byggði stærðarinnar
pall. „Það eru stórir garðar við húsin
hér en ótrúlega illa nýttir enda þarf allt-
af að hlaupa hringinn í kringum húsið
til að komast í garðinn,“ segir Halla en
nú getur hún gengið beint út úr stof-
unni á pall sem er álíka stór og stofan
sjálf. „Þetta breytir íbúðinni heilmikið.
Í góðu veðri gengur þú út úr stofunni og
ert kominn í aðra stofu fyrir utan. Ég
var að laumast stundum til að liggja í
sólbaði á grasinu, nú get ég það í skjóli
frá umferðinni,“ segir Halla og brosir.
Hún segir mikið af húsum með svipuðu
sniði vera í götunni. Margir hafi þegar
opnað út en aðrir séu að íhuga það.
Halla segir framkvæmdir hafa gengið
vel. „Ég bý vel að eiga kraftaverka-
pabba sem var búinn að teikna eins og
þrjár tillögur að pallinum og búinn að
reikna út allt efni þannig að þegar við
mættum í Byko lásum við bara upp list-
ann fyrir sölumanninn og það skeikaði
aðeins einni spýtu,“ segir Halla og hlær
en pallasmíðin hófst á miðvikudegi í
apríl. „Pabbi var eins og verkstjóri og
ég eins og handlangari og við unnum á
fullu fram á sunnudag,“ segir Halla og
bætir við að sér hafi þótt gott að byggja
pallinn í apríl því þá gat hún hlakkað til
sumarsins.
Gatið fyrir svalahurðina var svo
sagað eftir að pallurinn var kominn upp.
„Það var ótrúlega lítil aðgerð, svo þurfti
að stytta einn ofn og vera tilbúinn með
hurð og kaupa nýtt gler í gluggann,“
útskýrir Halla. Hún segir kostnaðinn
ekki hafa komið sér á óvart. Áætlunin
hafi staðist að flestu leyti. „Hins vegar
er það þannig þegar maður er kominn
með svona fínan pall að maður þarf að
kaupa sér alls konar dót á hann,“ segir
Halla hlæjandi og tjáir blaðamanni að
sumir vinanna séu með óraunhæfar
hugmyndir um heita potta og annað fín-
erí. „Það verður að bíða seinni tíma og
seinni palla.“
solveig@frettabladid.is
Íbúðin stækkaði um heila stofu
„Snjólfur er hæstánægður með pallinn. Hann liggur hér og sólar sig og rekur ketti nágrannanna í burtu ef þeir koma of nálægt,“ segir Halla
Sigrún, sem kann vel við sig á pallinum eins og kötturinn Snjólfur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Eftir breytingar. Með tilkomu svalahurðarinnar nýtist garðurinn mun
betur.
Fyrir breytingar. Garðurinn nýttist illa þar sem ganga þurfti hringinn í
kringum húsið til að komast í hann.
„Ég bý vel að eiga kraftaverkapabba,“ segir Halla um föður sinn sem
byggði pallinn góða.