Fréttablaðið - 13.06.2007, Side 10
13. JÚNÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR2 fréttablaðið verk að vinna
Í breytingartillögu við aðal-
skipulag Reykjavíkur 2001-2024
er lagt til að mun fleiri íbúðir
verði byggðar í Spönginni og
Hlíðarenda en áður hafði verið
gert ráð fyrir.
Tillagan gerir ráð fyrir að
mögulegt verði að byggja um 300
íbúðir á Hlíðarenda við Vatns-
mýri í stað 170 íbúða áður. Allar
íbúðirnar verða sem fyrr í fjöl-
býlishúsum. Endurskoðuð til-
laga felur einnig í sér að íbúðar-
húsnæði er ekki lengur staðsett
næst fyrirhugaðri stofnbraut
heldur innar á svæðinu, sem
skapar betri hljóðvist í væntan-
legri íbúðarbyggð.
Skilgreindur er nýr þéttingar-
reitur fyrir íbúðarbyggð í austur-
hluta Spangarinnar við Fróðengi,
þar sem gert er ráð fyrir allt að
150 nýjum íbúðum fyrir eldri
borgara. Tillagan gerir einnig
ráð fyrir að miðsvæði í austur-
hluta Spangarinnar stækki til
suðurs að Borgarvegi, inn á svæði
sem áður var opið svæði til sér-
stakra nota. Mörk íbúðarsvæðis,
við Fróðengi og Gullengi, og
stofnanasvæðis Borgarholts-
skóla breytast til samræmis við
raunveruleg lóðamörk í dag.
Tengistígur á mörkum íbúðar-
svæðisins og stofnanasvæðisins
færist til suðurs að lóðamörkun-
um, til samræmis við raunveru-
lega legu stígsins í dag.
Tillögurnar liggja frammi í
upplýsingaskála skipulags- og
byggingarsviðs Reykjavíkur-
borgar að Borgartúni 3, 1. hæð,
virka daga kl. 8.20–16.15, frá
6. júní 2007 til og með 18. júlí
2007.
Ábendingum og athugasemd-
um við tillögurnar skal skila
skriflega eða á netfangið skipu-
lag@rvk.is, til skipulags- og
byggingarsviðs eigi síðar en 18.
júlí 2007. Vinsamlegast notið
uppgefið netfang fyrir innsendar
athugasemdir með tölvupósti.
Sjá www.rvk.is.
Íbúðum fjölgað í
Spöng og Hlíðarenda
Ný tillaga er um að byggðar verði fleiri íbúðir í Spönginni og Hlíðarenda en áður var
gert ráð fyrir.
Fyrirtækið S. Guðjónsson opn-
aði nýverið verslunina Prodomo í
Hlíðarsmára og er þar boðið upp
á fullkomið rafmagnsstýrikerfi
fyrir heimili. Skarphéðinn Smith,
framkvæmdastjóri S. Guðjóns-
sonar, segir nánast engin takmörk
fyrir því hverju hægt sé að stýra í
gegnum kerfin.
Í Prodomo er hægt að fá snerti-
skjái innfellda í veggi heimilisins
og stýra í gegnum þá flestum hlut-
um sem snúa að daglegri notkun
rafbúnaðar. „Það eru í raun voða-
lega lítil takmörk fyrir því sem
hægt er að gera þegar um alvöru
kerfi er að ræða,“ segir Skarp-
héðinn og bætir því við að í raun
séu það yfirleitt fjórir grunnþætt-
ir sem fólk sækist helst eftir í
stýrikerfinu. „Það eru ljósastýr-
ing, hitastýring, gluggatjöld og
öryggiskerfi. Stýrikerfið er mjög
einfalt í notkun þannig að hver
sem er getur lært á það án mik-
illar fyrirhafnar,“ segir Skarp-
héðinn og tekur fram að nauðsyn-
legt sé að setja stærri kerfin upp
meðan húsið er enn á byggingar-
stigi því sérstakar lagnir þurfi
fyrir þau og því flókið að setja þau
upp eftir á. „Í eldri hús er þó hægt
að setja upp fjarstýringu fyrir ljós
og gluggatjöld án þess að fara í
miklar framkvæmdir.“
Skarphéðinn segir að Istabus-
kerfið frá þýska framleiðandanum
GIRA sé mjög vinsælt enda bjóði
það upp á fullkomna hitastýringu
og einnig er hægt að opna og loka
gluggum með kerfinu og skoða
ástand hússins á stórum snerti-
skjá. „Það er hægt að sjá hitastig í
hverju rými hússins, hvort slökkt
eða kveikt sé á ljósum og glugga-
tjöldin dregin fyrir. Þá er einnig
möguleiki að tengja hljóðkerfis-
lausnir við kerfið og tengja hvert
herbergi inn á miðlægan tónlistar-
netþjón svo hver og einn geti valið
sér þá tónlist sem hann vill hlusta
á.“
Skarphéðinn segir slík stjórn-
kerfi mjög vinsæl og að undanfarið
ár hafi orðið algjör sprenging á
þessum markaði.
sigridurh@frettabladid.is
Rafstýrð heimili nútímans
Skarphéðinn Smith er framkvæmdastjóri G. Sigurðssonar. Hann segir að vinsældir rafmagnsstýrikerfa hafi aukist gríðarlega
undanfarið ár enda séu nánast engin takmörk fyrir því hverju hægt sé að stýra í gegnum snertiskjái eins og þann sem er á veggn-
um við hlið Skarphéðins. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR