Fréttablaðið - 13.06.2007, Síða 24
66°NORÐUR
Miðhrauni 11 | 210 Garðabær | Sími 535 6600 | Fax 535 6601 | www.66north.is
- BYGGIR Á REYNSLU
66°Norður hefur framleitt sjó- og regnfatnað frá árinu 1926 og fljótlega
upp úr því hófst framleiðsla vinnufatnaðar fyrir menn og konur í landi. Í dag býður
heildsölusvið 66°Norður heildarlausnir fyrir byggingaraðila, allt frá nærfatnaði
til kuldagalla og má sjá úrval vinnufatnaðarins og fylgihlutanna í þjónustuverslun
okkar í Faxafeni. Einnig eru í boði merkingar á fatnað fyrirtækja.
Vinnufatnaður 66°Norður nýtur tækninýjunga útivistarfatnaðar fyrirtækisins, með
góðri samvinnu fagfólks og hönnuða, bæði í efnisvali og útliti. Útflutningur sjó- og
regnfatnaðar hefur stóraukist enda eru vörurnar prófaðar við bestu (eða verstu,
eftir því hvernig á það er litið) hugsanlegu aðstæður í heimi, á Íslandi.
Fyrir utan eigin framleiðslu hefur heildsölusvið 66°Norður umboð fyrir marga
helstu og virtustu vinnufataframleiðendur í heimi. Má þar nefna m.a: HEVEA,
DUNLOP, SHOWA, JOBMAN, HARVEST, MAMMUT Work Wear, SIOEN, ANSELL,
GLOBUS, MARIGOLD, OS og MTS.