Tíminn - 12.12.1980, Blaðsíða 13

Tíminn - 12.12.1980, Blaðsíða 13
Föstudagur 12. desember 1980. 17 Kirkjan Aðventukvöld Kristskirkju, Landakoti. Næstkomandi sunnudags- kvöld, 14. desember, verður haldið aðventukvöld á vegum Félags kaþólskra leikmanna i Dómkirkju Krists konungs i Landakoti og hefst það kl. 20:30. í upphafi verður efnisskráin kynnt. Þá flytur séra Ágúst K. Eyjólfsson ræðu. Að henni lok- inni leikur Ragnar Björnsson einleik á kirkjuorgelið, Kóral i a-moll eftirCesar Franck. Siðan les Gunnar Eyjölfsson leikari helgisögu eftir Selmu Lagerlöf, Nóttina helgu. Eftir það syngur Skólakór Garöabæjar, stjórn- andiGuöfinna Dóra ólafsdóttir. Þvi næst les Guðrún Asmunds- dóttir leikkona jólaljóð eftir Stefán frá Hvitadal, Jóhannes úr Kötlum og Tryggva Emils- son. Þá leikur Manuela Wiesler einleik á flautu, Allemande i a- moll eftir Jóhann Sebastian Bach. Síðan les Björgvin Magnússon jólaguðspjallið og hlýða kirkjugestir á það stand- andimeð kertaljósihendi. Kerti verða afhent í kirkjunni. Loks syngja allir viðstaddir sam- eiginlega jólasálminn,, Bliða nótt” sem er þýðing Helga Hálf- danarsonar á hinum heims- fræga sálmi Jóseps Mohr, „Stille Nacht”. Allir eru velkomnir á þetta aðventukvöld. Daginn áður, laugardaginn 13. desember, verður bæna- og hugleiðingardagur fyrir kaþólska ihúsi St. Jósefssystra i Garðabæ. Hefst hann með messu kl. 10 og lýkur um 6-leytið siödegis. Dómkirkjan: Á laugardag kl. 10:30 barnasamkoma i Vestur- bæjarskóla við Oldugötu. Séra Hjalti Guðmundsson. Ferða/ög Sunnud. 14.12. kl. 13. Með Leiruvogi, létt ganga á stuttum degi. Farið frá B.S.Í. vestanverðu. Aramótaferð i Herdisarvik, 5 dagar, góð gistiaðstaða. Farar- stj. Styrkár Sveinbjarnarson. Uppl. og farseðlar á skrifst. Lækjarg. 6A. (Jtivist s. 14606 Félagslíf Prentarakonur: Kvenfélagið) Edda heldur jólafund mánudag-i inn 8. des. kl. 8. að Hverfisgötu 21. Jólamatur og böggla-j happdrætti. Fjölmennið. Ýmis/egt Allra siðustu sýningarnar á Smala- stúlkunni. Nú um helgina, nánar tiltekið föstudaginn 12. og sunnudaginn 14. desember, verða allra sein- ustu sýningarnar á Smalastúlk- unni og útlögunum eftir Sigurð Guömundsson og Þorgeir Þor- geirsson. Verkið er i leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur og leikmyndin er eftir Sigurjón Jóhannsson. Með helstu hlut- verkinfara Arni Blandon, Tinna Gunnlaugsdóttir, Arnar Jóns- son, Guðrún Þ. Stephensen, Gunnar Eyjólfsson, Þráinn Karlsson, Helga E. Jónsdóttir, Helgi Skiilason, Rúrik Haralds- son, Þóra Friðriksdóttir og Þór- hallur Sigurðsson. Leikritiö var frumsýnt á þrjá- tiu ára afmæli Þjóðleikhússins s.l. vor og hefur þegar verið sýnt 40 sinnum, en sýningum lýkur nú fyrir jól. Foreldra og vinafélag Kópa- vogshælis heldur sina árlegu jólaskemmt- un i Glæsibæ sunnudaginn 14. des. kl.15. Allir velkomnir. Tilkynningar Hamborgarjólatréð til Reykjavikurhafnar i fimmtánda sinn. Laugardaginn 13. desember n.k. kl. 16:00 verður I fimm- tánda sinn kveikt á jólatrénu, sem Reykjavikurhöfn hefur i ár, svo sem undanfarið, fengið sent frá Hamborg. Tréð er gjöf frá klúbbnum Wikingerrunde, sem er félags- skapur fyrrverandi sjómanna, blaða- og verslunarmanna i Hamborg og nágrenni. Nokkrir af félögum i Wikingerrunde koma hingað til lands af þessu tilefni, til þess að vera við afhendingu jólatrésins. Þeirra á meðal er hafnarstjóri Hamborgarhafnar dr. Mönke- meier, O.Dreyer-Eimbcke ræðismaður Islands i Hamborg svo og þeir tveir menn, sem taldir eru frumkvöðlar hug- myndarinnar um Hamborgar- jólatréð, þeir Weriier Hoenig, fulltrúi Flugleiða I Hamborg og Hans Hermann Schlunz hjá norður-þýska útvarpinu. Tréð verður að venju reist við Hafnarbúðir og verða ljós þess tendruð kl. 16:00 laugardaginn 13. desember. Dr. Mönkemeier, hafnarstjóri i Hamborg, mun afhenda tréðen Gunnar B. Guð- mundsson, hafnarstjóri, veita þvi viðtöku að viðstöddum borgarstjóranum i Reykjavik, sendiherra Þýska Sambands- lýðveldisis á Islandi Raimund Hergt og öðrum gestum. Lúörablásarar munu leika við Hafnarbúðir frá kl. 15:45. Og og Jonathan Bager Philip Jenkins Tónleikar i Reykjavik Njarðvik. Johathan Bager flautuleikari og Philip Jenkins pianóleikari flytja fjölbreytta efnisskrá á tónleikum i Reykjavik og Njarðvik á næstunni. Tónleikarnir i Njarðvik verða i kirkjunni þar sunnudaginn 14. desember kl. 15. Tónleikarnir i Reykjavik fara fram i Norræna húsinu þriðju- daginn 16. desember kl. 20:30. Á efnisskránni eru sónötur eftir Leclair, Poulenc og Prokofiev, einnig Ballaða eftir Frank Martin. Jonathan Bager lauk einleik- araprófi á flautu frá Royal College of Music i London á siðastliðnu ári, hann starfar nú sem kennari i flautuleik við Tónlistarskólann á Akureyri. Þessir tónleikar verða fyrstu sjálfstæðu tónleikar Jonathans i Reykjavik, en þeir Philip fluttu ofangreinda efnisskrá á Akur- eyri siðastliðið vor. Philip Jenkins hefur leikið á fjölmörg- um tónleikum bæði hér á landi og erlendis, leikið með S. 1. og inn á hljómplötur. Hann er nú prófessor i pianóleik við Royal Academy of Music i London. I I I I I I I I I I I I I J Zjr/jr/jT/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Jr/Æ/Æ/*/Æ/*/ÆA Furu & grenipanell. ^ Gólfparkett — Gólfborö — j Furulistar — Loftaplötur — ^ Furuhúsgögn — Loftabitar — ^ Haróviöarklæðningar — *nn' r húshurðir — f "íl Plast og ' 'WÍj J sPónla9ðar 1 /• # spónaplötur. * í < s HARDVIOARVAL HF $ Lóc i -rT’in iljv i-:q. 40 KOPAvCJL.l x Grvinticis Li REVk.jA VIK 0 AT7 C.5 7 /Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/4 Spennum beltin ALLTAF ekki stundum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.