Tíminn - 12.12.1980, Page 16

Tíminn - 12.12.1980, Page 16
Sími: 33700 A NÖTTU OG DEGI ER VAKAÁ VEGI : MSlGrNODE Sjálfvirkar bindivélar Sjávarafurðadeild Sambandsins Simi 28200 Föstudagur 12. des 1980 HMuiMmmHBnBBMmnnm „Vilja ekki segja hvað í lögum okkar er brotiegt” — segir Oliver Steinn, formaður Félags Isl. bókútgefanda, um álit Samkeppnisnefndar BSt — „Málið stendur nákvæm- lega eins og það stóð i gær og fyrradag og daginn fyrir fyrra- dag, og þessi niðurstaða sam- keppnisnefndarinnar er enginn úrskurður i málinu. Ileldur hef- ur ncfndin ákveðið að ræða við okkur um okkar lög og starfs- reglur, en hún hefur engan úr- skurð fellt”, sagði Oliver Steinn formaður Félags isl. bókaútgef- enda, er blaöamaður Timans bað hann að segja álit sitt á blaöaskrifum um niðurstöðu samkeppnisnefndarinnar. „Þetta er bara fyrsta skrcf i málinu, og þar ákveða þeir að ræða við okkur, og kryfja málið til mergjar, en samkvæmt orð- um Unnstcins Beck, sem er i nefndinni, þá ber á engan hátt að skoða þetta sem áfellisúr- skurð.” — Þeir ætla að ræða við okkur i Félagi bókaútgefenda um okk- ar lög og reglur og fara i gegn- um það, sem þeir kunna að telja að brjóti eitthvað i bága við þessar samkeppnisreglur, en ég fæ það hvorki upp hjá verðlags- stjóra né nefndarformanni hvað það er i okkar lógum, sem er brotlegt. Verðlagsstjóri vitnaði til 9. greinar i lögum i Félagi isl. bókaútgefenda, sem fjallar um hvernig við veljum okkur um- boðsmenn hljóðar svo: „Félagiö ræður útsölumenn viðs vegar um landið, eftir þvi sem þurfa þykir og hafa þeir á hendi sölu á bókum félags- manna. Byggjast viðskipti félagsmanna og útsölumanna á samhljóða viðskiptasamningi, sem félagið gerir við hvern ein- stakan þeirra. Útsölumenn skulu ráðnir á félagsfundi og skal þess getið i fundarboðum. Leyfi til bóksölu skal miðaö við ákveðinn staö og skal útsölu- maður með sérstakt leyfi fá sér- stakt leyfi fyrir hvern útsölu- stað, ef fleiri eru en einn.” — Það er ekkert i þessu, sagði Oliver Steinn, sem brýtur i bága við samkeppnisreglur. Að minu mati stangast reglur félags okk- ar ekki á við verðlagslögin, og ég fæ enga skýringu hjá þeim hvað það er i þessari grein, sem stangast á við lögin. Þetta mál heldur svo áfram. Nú er það verðlagsyfirvalda næst, eða samkeppnisnefndar, aö boða til viðræðufundar, eins og þau eru i rauninni búin að samþykkja. Við höfum marg- boðið verðlagsyfirvöldum að ræða við þau, ef það væri eitt- hvað sem þau vildu leita til okk- ar með i sambandi við þetta mál, þá væri allt opið hjá okkur með að veita þeim allar upplýs- ingar. Verðlagsstjóri ákveður svo hvenær viðræður fara fram, svo næsti leikur er ekki i okkar höndum, sagði Oliver Steinn að lokum. Grípur ríkis- stjórnin inn í bankadeiluna? AB — „Það var fjallað um verk- fallsmál bankamanna i dag i rikisstjórninni og ég gaf skýrslu um stöðuna”, sagði Tómas Ama- son viðskiptaráðherra i gær- kvöldi. Tómas sagðist biða fregna af samningafundi bankamanna og kvaöst hann ekkert geta sagt um hugsanlegar aðgerðir fyrr en niðurstöður fundarins lægju fyrir. Þó sagðist Tómas hafa stöðugt vaxandi áhyggjur af máli þessu, þvi áhrif verkfallsins yrðu meiri með degi hverjum. Taldi hann rétt að sjá hvað myndi gerast á sáttafundi bankamanna sem stóö enn þegar Timinn ræddi við Tómas, hins vegar sagði hann að ef ekki næðust samningar fyrir daginn i dag, þe. i nótt þá teldi hann að skoða þyrfti þetta mál allt saman gaumgæíilega, Sagðist Tómas mundu taka mál þetta aftur upp á fundi rikis- stjórnarinnar i dag, ef samkomu- lag hefði ekki náðst. Gylfi Gislason myndlistarmaður f Grjótaþorpi með GRJÓTAÞORPIÐ Friðjón Þórðarson, dómsmálaráðherra: Útvegar Gervasoni landvist í Danmörku? BS- — Eins og áöur hefur komiö fram i fréttum var á 34. þingi ASÍ i nóv. sl. samþykkt ályktun um aö íslensk yfirvöld veittu franska flóttamanninum Patrick Gervasoni land- vist á islandi. I samráði við dómsmálaráð- herra varö aö samkomulagi, að Ragnar Aðalsteinsson, lögmaö- ur Gervasonis fær+til Oanmerk- ur, til þess að afla upplýsinga um það, hvaöa meðferö skjól- stæðingur hans fengi, færi hann til Danmerkur. ASI tók að sér að greiöa ferðakostnað lögmanns- ins. Ragnar segir, að eftir viöræö- ur sinar við danska embættis- menn telji hann ekki ástæðu til aö ætla, að Danir veiti Gerva- soni stöðu svokallaðs B-flótta- manns og skilriki samkvæmt þvi, ef hann kæmi til Danmerk- ur og bæöist hælis sem pólitisk- ur flóttamaður. Þó mætti búast við að slik lausn fengist á málinu i Dan- mörku, en sú ákvörðun yröi pólitisk, þvi að þar kæmu til greina i máiinu góö samskipti þjóðanna og þó einkum einka- viöræður dómsmálaráðherra landanna á dögunum. Ragnar áleitað eftir venjulegum leiðum heföi Gervasoni ekki átt mögu- leika á landvist i Danmörku. Ragnar hefur nú skilað Al- þýöusambandinu og dómsmála- ráöuneytinu greinargerð um viðræður sinar viö danska út- iendingaeftirlitið og dómsmála- ráðuneytiö danska. Skýrsla Ragnars hefur verið rædd á ein- um fundi fulltrúa ASl og dóms- málaráöuneytisins og er málið enn i athugun. BSt — A vegum HELGAFELLS er komin út bókin GRJÓTA- ÞORPIÐ: LITABÓK eftir Gylfa Gislason myndlistarmann. Með útgáfu þessarar bókar er markmiö höfundar að vekja fólk á öllum aldri til umhugsunar um islenskt umhverfi og byggingalist á nýstárlegan hátt. t bókinni eru yfir fimmtiu myndir með auðskiljanlegum og liflegum texta, sem lista- maðurinn hefur samið. 1 tengslum viðútgáfuna verður efnt til sýningar á öllum teikn- ingum bókarinnar á Mokka-kaffi þar sem borgarbúum gefst tæki- færi til þess að skoða myndir listamannsins. Þá verður bókin tilsölua Útimarkaðnum, Lækjar- torgi næstu tværhelgar. Einnig er ætlunin aö efna til verðlaunasam- keppni meðal barna og unglinga. Verður skýrt nánar frá tilhögun hennar siðar. Laugarásbió: Fyrsta kvik- myndahús hér með Dolby FRI — A morgun, laugardag, tekur Laugarásbió til sýninga söngvamyndina XANADU, en um leið og sýningar hefjast á henni tekur kvikmyndahúsið i notkun nýtt hljómkerfi, Dolby, sem er eitt hið fullkomnasta sem hægt er að fá i kvikmyndahús. Laugarásbió hefur áður verið i fararbroddi islenskra kvik- myndahúsa og er skemmst að minnast notkun svonefndra Sensurround-tækja fyrir nokkr- um árum auk þess sem kvik- myndahúsið tók fyrst i notkun hér TODD-AO sýningartæki er það hóf starfsemi sýna fyrir 20 árum. Meðal þess, sem komið hefur verið upp i sýningarsal Laugar- ásbiós, eru 12 hátalarar, sem skiptast þannig, að fjórir eru hvorum megin i salnum og enn fjórir aðbaki áhorfendum, en bak við sýningartjaldið eru þrir nýir hátalarar. Þá er sérstakur for- magnari, sem má kalla hjarta eða sigurverk Dolbytækninnar, og loks þrir lOOw. tvöfaldir magn- arar til að kóróna tóngæöin. dagar til jóla Jólahappdrætti SUF Vinningur dagsins nr. 3248 fimmtudaginn 11. des. nr. 2422 miðvikudaginn 10. des. nr. 2251 þriðjudaginn 9. des. nr. 1145 Fleiri og fleiri fá sér TIMEX mest selda úrið

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.