Fréttablaðið - 05.09.2007, Síða 38
Ný auglýsing Símans var
frumsýnd í fyrradag og
hefur hún þegar vakið
mikið umtal enda er síðasta
kvöldmáltíð Jesú Krists
notuð til að auglýsa þriðju
kynslóð farsíma. Höfundur-
inn segist hafa gert þetta af
heilum hug en Biskupsstofu
þykir þetta ósmekklegt.
„Ég skal viðurkenna það að ég
var nokkuð smeykur enda er
þetta viðkvæmt og eldfimt mál,“
segir grínistinn Jón Gnarr. Á
mánudagskvöldið var frumsýnd
ný auglýsing frá Símanum þar
sem þriðja kynslóð farsíma var
kynnt. Jón skrifaði sjálfur hand-
ritið fyrir auglýsingastofuna
EnnEmm en þar hefur hann
nýverið hafið störf.
Óhætt er að segja að
Jón hafi ráðist á
garðinn þar sem
hann er hæstur
enda umfjöll-
unarefnið síðasta
kvöldmáltíð
Jesú og
lærisveina
hans. „Ég
ræddi við
menn hjá
kaþólsku
kirkjunni,
Þjóðkirkj-
unni og
Fríkirkj-
unni og
kynnti
þessa
hugmynd
fyrir þeim.
Menn tóku
misjafnlega í
hana og bentu
á að þetta
væri
viðkvæmt
efni og að það gæti sært fólk. Ég
vildi láta þá vita af þessu til að
sýna virðingu mína í verki,“
útskýrir Jón sem sjálfur hefur
vakið mikla athygli fyrir að hafa
rætt opinskátt um trú sína. „Allt
með Jesú og kristna kenningu á
að vera velkomið á öllum
vettvangi og frá mínum
bæjardyrum séð er þetta list og
ég tel okkur hafa gert listaverk,“
segir Jón.
Grínistinn fylgdi auglýsing-
unni sjálfur eftir skref fyrir
skref, frá fyrsta tökudegi og þar
til hún var reiðubúin til sýningar.
„Ásetningurinn er góður og þetta
er gert af heilindum, virðingu og
kærleika. Ég ber sjálfur mikinn
kærleika til Jesú og fyrir þess-
um merka atburði og hann skip-
ar mjög stóran sess í mínu lífi,“
segir Jón. „Tónlistarmenn sýna
trú sína í verki með tónverkum,
myndlistarmenn með myndum
sínum og ég sem grínisti sýni trú
mína meðal annars með svona
verkum,“ bætir hann við og
bendir jafnframt á að þessi
auglýsing sé ekki síst gerð til
þess að vekja upp umræður og
fólk til umhugsunar.
Linda Waage, upplýsingafull-
trúi Símans, sagði í samtali við
Fréttablaðið að viðbrögðin við
auglýsingunni hefðu ekki verið
frábrugðin öðrum herferðum
Símans. Halldór Reynisson,
verkefnisstjóri hjá Biskupsstofu,
sagði að þeim fyndist þetta hins
vegar ósmekklegt og að meira
væri í raun ekki um málið að
segja. Undir þetta tók Karl Sig-
urbjörnsson biskup í viðtali á
Mbl.is. Hjörtur Magni Jóhannes-
son, fríkirkjuprestur í Reykja-
vík, var hins vegar á öndverðum
meiði og sagðist alls ekki vera
viðkvæmur fyrir þessari notkun.
„Þetta heldur þessum myndum
bara á lífi,“ sagði Hjörtur en
hann var staddur í Jerúsalem
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum. „Og hér eru menn alls
ekki feimnir við að notast við
þetta táknmál á margvíslegan
hátt.“
FÍT og FÍH ætla að blása til mikillar
tónlistarveislu á veitingastaðnum
Domo í kvöld. Þar ætla reyndir jafnt
sem óreyndir að troða upp og prófa
nýtt efni í „öruggu umhverfi“ eins og
Jakob Frímann Magnússon, einn skipu-
leggjandi kvöldsins, orðar það. „Við
reyndum þetta í fyrra og það tókst
vonum framar en þá var þetta svona
frekar neðanjarðar. Í ár ætlum við hins
vegar að koma upp á yfirborðið og
þetta er mjög góður vettvangur fyrir
nýja tónlistarmenn sem eru kannski að
leita að útgefanda,“ útskýrir Jakob en
til stendur að taka tónleikana upp þótt
enn hafi ekki verið ákveðið hvort ráð-
ist verði í einhverja útgáfu.
Hvert kvöld hefst á því að reynslu-
bolti úr íslensku tónlistarlífi ríður á
vaðið og að þessu sinni er það Magnús
Kjartansson sem ætlar að leyfa áhorf-
endum að heyra bæði gamalt og nýtt
efni. Meðal annarra af reyndari tón-
listarmönnum sem ætla að frumflytja
þarna nýjar lagasmíðar sínar í vetur
má nefna Bubba Morthens og Ragn-
heiði Gröndal.
Jakob segir að svona kvöld séu hins
vegar fyrst og fremst ætluð til að
styðja við grasrótina í íslensku tónlist-
arlífi og er áætlað að halda þennan við-
burð fyrsta miðvikudag í hverjum
mánuði fram að áramótum.
Að sögn Jakobs eru menn síðan
bjartsýnir á að þeim verði framhaldið
þegar nýtt ár er gengið í garð. „Það er
enn opið fyrir tvo að skrá sig í kvöld og
menn geta gert það á ftt@ftt.is,“ segir
Jakob en Tónvís er aðalstyrktaraðili
kvöldanna.
Blásið til veislu á Domo