Fréttablaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 46
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Ég er ábyrgur fyrir þessu öllu saman og öll
börnin sem eru að koma í heiminn eiga eftir
að verða hrokkinhærð og ljós yfirlitum,“
segir Halldór Gylfason, sem leikur Gretti
í uppfærslu Borgarleikhússins. Fimm
leikkonur sýningarinnar; þær Arnbjörg
Hlíf Valsdóttir, Nanna Kristín Magnús-
dóttir, Marta Nordal, Álfrún Helga Örn-
ólfsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardótt-
ir eiga von á barni. Þá eignaðist
leikstjórinn Rúnar Freyr Gíslason
nýverið dótturina Selmu Rún og leikar-
inn Björn Ingi Hilmarsson varð pabbi
fyrir skemmstu. „Þetta er náttúrulega
alveg ótrúlegt en ég verst auðvitað allra
frétta og vil ekkert tjá mig um þetta mál að
svo stöddu,“ segir Halldór og hlær.
Töluverð skörð hafa verið höggvin í leik-
hóp Grettis en á fyrstu sýningu nýs leikárs
voru sjö nýir leikarar í leikritinu. Halldór sjálf-
ur segist hins vegar koma vel undan sumri þrátt
fyrir ófarir síðustu misserin en hann sleit hásin
fyrir tæpu ári og tognaði síðan í baki skömmu
fyrir frumsýningu Grettis. „Nú er ég að fara að
leika í Gosa og við skulum nú bara rétt vona að
það gangi allt saman þrautalaust fyrir sig,“
segir Halldór.
„Nei, því miður þá næst það ekki. En ég ætla
að sjá hana um leið og ég kem heim,“ segir
leikstjórinn Baltasar Kormákur sem getur
ekki verið viðstaddur frumsýningu kvik-
myndarinnar Veðramót sem sonur hans, Balt-
asar Breki, leikur í. Baltasar og kvikmynd-
inni Mýrinni var „óvænt“ boðið á
kvikmyndahátíðina Telluride sem haldin er í
Colorado. Hátíðin þykir mjög eftirsótt en
aðeins tuttugu og fimm myndir eru valdar og
leikstjórum nánast gert skylt að mæta. Þá
hefur jafnframt verið nokkur hefð fyrir því
að þær myndir sem komast þarna að hljóti
greiða leið að Óskarstilnefningu en Baltasar
vildi lítið gera úr slíkri tölfræði. „Ég þarf nú
fyrst að komast í gegnum valið hér heima,“
segir hann í léttum dúr.
Telluride er lítil borg í Colarado-ríki sem
leikstjórinn lýsir eins og gömlum vestrabæ
en þar eiga stórstjörnur á borð við Tom Cruise
sumarhús. Og Mýrin hefur svo sannarlega
mælst vel fyrir hjá gestum hátíðarinnar því
forsvarsmenn hátíðarinnar hafa þurft að
bæta við tveimur sýningum á hana. „Yfir-
maður hátíðarinnar átti ekki von á því að það
yrði íslensk mynd sem yrði sú vinsælasta,“
segir Baltasar hróðugur.
Ferðalagi íslenska leikstjórans er hvergi
nærri lokið því frá suðvesturhorni fylkisins
liggur leiðin til kvikmyndahátíðarinnar í Tor-
onto. Mýrin verður þar eina framlag Íslands.
Toronto er þekkt fyrir að vera mikil söluhátíð
og var Baltasar alveg hæfilega bjartsýnn. Og
til að kóróna þetta allt er tökum lokið á Brúð-
gumanum og býst Baltasar við því að byrja að
klippa hana þegar heim verður komið.
Baltasar missir af frumsýningu sonarins
Ótrúleg frjósemi í Gretti
Fjölmiðlakonan Edda Andrésdótt-
ir sendir frá sér bókina Í öðru
landi í næsta mánuði. Þar segir
hún frá reynslu sinni af því þegar
faðir hennar veiktist af afbrigði
Alzheimers-sjúkdómsins og lést á
innan við ári.
„Ég held að ef fólk skrifar á
annað borð, þá vinnur það svolítið
úr sínum tilfinningum með því að
skrifa. Þessi bók er skrifuð með
hjartanu og tilfinningunum,“
sagði Edda. Faðir hennar, Andrés
Magnússon, verkstjóri í Hvalstöð-
inni í Hvalfirði til margra ára, átti
einnig sinn þátt í því að bókin yrði
að veruleika.
„Pabbi var myndlistarmaður og
mikill bókamaður. Hann var svona
leiðbeinandi minn í gegnum sitt
mikla, góða bókasafn og eiginlega
ábyrgur fyrir því að hafa leitt mig
inn í þann heim. Við deildum allt-
af þessum mikla bókaáhuga,“
sagði Edda. „Hann hafði alltaf
hvatt mig til að skrifa og stóð
mjög að baki mér í því. Ég held að
hann hafi nú kannski ekki átt von
á því að hann yrði viðfangsefnið á
endanum, en það varð nú,“ sagði
hún og hló við.
Faðir Eddu veiktist í mars í
fyrra og lést í nóvember. „Bókin
dregur nafn sitt af því hvernig
hann eins og hvarf smátt og smátt
inn í annað land, en líka af því að
ég var sjálf eins og stödd í öðru
landi á meðan ég fylgdist með
honum. Um leið og ég skynjaði að
tími hans var að fjara út varð mér
hugsað til liðna tímans,“ útskýrði
Edda, sem í bókinni vefur saman
reynslu þessa erfiða árs og minn-
ingabrotum frá liðinni tíð. „Bókin
er eiginlega fjölskyldusaga, um
venjulega fjölskyldu á seinni
hluta síðustu aldar. En ég velti
líka fyrir mér þessum skrítna og
óskiljanlega tíma og ellinni. Ég
dreg til dæmis upp mynd af þeirri
gömlu konu sem ég ætlaði að
verða, áður en ég hugleiddi að
maður gæti elst einhvern veginn
öðru vísi en maður kýs sjálfur,“
sagði hún.
Edda hefur áður skrifað viðtals-
bók við Auði Laxness, Á Gljúfra-
steini, og við séra Auði Eir, Sólin
kemur alltaf upp á ný. „Það var
frábært að vinna með þeim
báðum, en auðvitað er önnur og
ólík reynsla að skrifa bók sem
byggir alfarið á manns eigin
reynslu og lífi,“ sagði Edda. „Faðir
minn hafði mikil áhrif á mig og líf
mitt, og ég hafði þörf fyrir að
skrifa þetta. Það hvatti mig líka
að mamma sagði við mig á einum
tímapunkti að það ætti að skrifa
um þetta, því fólk veit ekki hvað
gerist þegar svona hendir. Það
hjálpaðist eiginlega allt að við að
þessi bók varð til,“ sagði Edda.
Í öðru landi kemur út í október.
JPV gefur út.
„Það er annað hvort Gufan eða
Gullbylgjan. En ef maður er
með litla krakka setur maður
Latabæ á. Reyndar heyrist
ekki mikið í tónlist yfir borinn,
en maður er nú ekki alltaf að
bora.“