Fréttablaðið - 12.09.2007, Síða 11
MARKAÐURINN 11MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2007
S K O Ð U N
Fyrstu launaviðræðurnar á
nýjum vinnustað eru líklega mikil-
vægustu samningaviðræður sem
þú munt nokkurn tíma taka þátt
í. Segjum að tveir 22 ára ein-
staklingar hefji störf á sama stað
– annar samþykkir tilboð upp á
2,5 milljónir í árslaun og hinn
semur um 3 milljónir í árslaun.
Ef báðir fá 3% hækkun á ári þá
verður munurinn á árslaunum
þeirra meira en ein og hálf millj-
ón um sextugt. Ef sá launahærri
leggur mismuninn fyrir á hann
tugi milljóna í sjóðum. Fyrir utan
launamuninn er mun líklegra að
sá sem er launahærri fái stöðu-
hækkun og aukna ábyrgð.
ÞÚ ÞARFT AÐ SEMJA
Fyrsta skrefið í átt að betri ár-
angri í samningaviðræðum er að
fara í samningaviðræður. Þeir
sem ekki samþykkja fyrsta til-
boð og semja um launin sín fá að
öllu jöfnu hærri laun.
VITTU HVAÐ ÞÚ VILT
Launaviðræður fjalla ekki aðeins
um laun, þær fjalla um fram-
tíð þína. Ef þú sækist eftir auk-
inni ábyrgð, þá setur þú þér það
markmið að fá mikilvæg og áber-
andi verkefni fremur en hærri
laun. Ef þú vilt hafa meiri tíma
til að auka persónulega færni
eða til að sinna fjölskyldu eða
áhugamálum þá er það samn-
ingsmarkið að hafa svigrúm til
þess.
FJÖLGAÐU SAMNINGSATRIÐUNUM
Í framhaldi af ítarlegri skoð-
un á því hverju þú sækist eftir
hjá fyrirtækinu og í lífinu næstu
árin getur þú búið til lista yfir
hugsanleg samningsatriði. Laun,
frítími, ábyrgðarsvið, sparnaður,
kaupaukar, líkamsrækt, styrkir
fyrir námskeið … Reyndu að
hafa mörg samningsatriði, því
e.t.v. dettur þú niður á hluti sem
þú verðmetur hærra en atvinnu-
rekandinn – þannig að hann fái
tækifæri til að mæta þörfum
þínum með minni tilkostnaði.
KYNNTU ÞÉR MARKAÐINN
Kynntu þér launakannanir og
skoðaðu launaþróun, launaskrið,
verðbólgu, vísitölur og aðrar
upplýsingar sem hjálpa þér til
að meta hvaða kröfur eru raun-
hæfar og hvaða hlutlægu viðmið
þú getur notað til að rökstyðja
tilboð þitt. Ef þú hefur hlutlæg
viðmið til rökstuðnings fyrir til-
boði þínu styrkir þú stöðu þína
við samningaborðið.
BJARTSÝNI OG ÁHUGI BORGAR SIG
Langfæstir eru drifnir af launum
– verkefnin sem þú hefur þurfa
að vera áhugaverð. Þú þarft að
vilja og gleðjast yfir að starfa á
vinnustaðnum. Samstarfsfélag-
ar eru félagar! Ekki gera lítið
úr starfinu, vinnustaðnum eða
samstarfsfólki. Ef þú ert í röngu
starfi þá leiðréttir þú það ekki í
launaviðtalinu. Auk þess sýna at-
huganir að þeir sem sýna starf-
inu brennandi áhuga og eru já-
kvæðir fá betri niðurstöðu í
samningaviðræðum um kjör.
EKKI PRÚTTA!
Það er munur á að semja og að
prútta. Á prúttmarkaði má senda
tilboð fram og til baka og þrátta
um verðið. Launaviðræður eru
mun viðkvæmari, þar sem þær
fjalla um persónulegt samband
og langtímasamskipti. Þú getur
því ekki sent endalaus móttil-
boð og þráttað um þúsundkalla í
launaviðræðum.
VERTU FRAMÚRSKARANDI
Þú styrkir stöðu þína í kjaravið-
ræðum með því að skila framúr-
skarandi framlagi. Þess vegna
skaltu skara fram úr! Síðan er
lykilatriði að gleðjast yfir ár-
angrinum og sýna ánægjuna í
verki.
Aðalsteinn Leifsson,
lektor og forstöðu-
maður MBA-náms
í Háskólanum í
Reykjavík, þar sem
hann kennir meðal annars
samningatækni.
Mikilvægustu
samninga-
viðræðurnar
S A M N I N G A T Æ K N I
Ég er svo kátur þessa dagana að
ég næ mér varla niður á jörðina.
Fyrir menn eins og mig eru svona
sveiflutímabil eins og svigbrekka
fyrir góðan skíðamann.
Því erfiðari, því meiri ögrun, og
auðvitað veit maður að það kom-
ast ekki allir á leiðarenda án þess
að fella hlið eða detta ef því er að
skipta.
Í gegnum tíðina hefur maður
séð marga detta og suma illa.
Sjálfur stóð ég helvíti tæpt 2002,
en snarræði reddaði mér frá stóru
tjóni. Síðan þá hefur leiðin bara
legið upp á við.
Þessar vikurnar hefur maður
stokkið inn og út hratt og örugg-
lega. Sett sér skýr markmið og
ekki látið berast með straumnum.
Á svona tímabilum verður maður
að hafa skýr tapsölumörk, ann-
ars getur maður farið illa. Þetta
er hins vegar svakalegt stuð ef
maður hefur maga í þetta. Um
allan heim eru líka flottar hengjur
þessa dagana og frábært að vera
með cash þegar toppfyrirtæki
dúndrast niður. Heimurinn er auð-
vitað alltaf fullur af tækifærum
og jójómarkaður eins og nú er og
reyndar dálítið með krónuna yfir-
leitt er fín uppspretta gróða fyrir
menn eins og mig.
Hér heima er náttúrlega helst
að menn horfi í átt að TM. Ég spái
að vinir og vandamenn FL verði
í hópnum sem kaupir af Glitni.
Svo spái ég yfirtöku innan árs.
Hef grun um að það þurfi aðeins
að vinna í reiting-málum áður en
félagið er tekið af markaði. For-
stjórinn er sennilega búinn að
finna skjalið með síðasta starfs-
lokasamningi til að kópera. Ég
hugsa að það sé fínt fyrir FL að
eiga óskráð tryggingafélag í miðju
starfseminnar. Sama módel og Ex-
ista og Milestone.
Annars ætti maður kannski að
fara að fá sér banka og trygg-
ingafélag sjálfur. Það er nefni-
lega eins og að eiga hótel í Austur-
stræti og Bankastræti í Matador.
Þá er engin hætta á að maður fari
beina leið í steininn og fái engar
2.000 krónur þótt maður fari yfir
byrjunarreitinn.
Spákaupmaðurinn á horninu
S P A K A U P M A Ð U R I N N
Í svigi
www.knoll.com Epal ehf. · Skeifan 6 · Simi 568 7733 · epal@epal.is · www.epal.is
Knoll er amerískt fyrirtæki og fram-
leiðir hágæða húsgögn í samvinnu við
fremstu hönnuði heims.
Chadwick stóllinn er hannaður af Don Chadwick fyrir Knoll. Hann sameinar á einstakan hátt falleg form og hámarks-
þægindi. Chadwick er með níðsterku neti sem lagar sig að líkamanum og má með sanni segja að stóllinn setji ný
viðmið í hönnun skrifstofuhúsgagna. Chadwick kostar aðeins 64.600 kr. án arma og 74.800 kr. með örmum.