Fréttablaðið - 12.09.2007, Side 14
MARKAÐURINN
F Ó L K Á F E R L I
12. SEPTEMBER 2007 MIÐVIKUDAGUR14
F Y R S T O G S Í Ð A S T
GUÐMUNDUR DAVÍÐSSON hefur verið
ráðinn forstjóri yfir starfsemi Eimskips
á Íslandi. Norður-Atlantshafssvæði
félagsins verður skipt
í tvennt og er Ísland
orðið að sérstöku sviði
innan samsteypunnar.
Guðmundur hefur
áralanga reynslu af
stjórnun fyrirtækja
ásamt því að hafa setið í stjórnum
margra félaga. Hann starfaði nú síðast
sem framkvæmdastjóri fjárfestingar-
félagsins Grettis. Hann var þar áður
forstöðumaður markaðsmála og vöru-
þróunar á fyrirtækjasviði Landsbankans
á árunum 2003 til 2007. Hann var hjá
SIF frá árinu 2000 til 2003, síðast sem
framkvæmdastjóri vöruþróunar hjá SIF
í Frakklandi. Guðmundur starfaði hjá
Samskipum um 12 ára skeið í ýmsum
stjórnunarstörfum hérlendis og erlendis.
Guðmundur er kvæntur Kristjönu
Ólafsdóttur og á hann þrjá syni.
BRAGI ÞÓR MARINÓSSON hefur
verið ráðinn forstjóri Norður-
Atlantshafssvæðis Eimskips. Hann mun
fást við frekari uppbyggingu á svæðinu
fyrir utan Ísland, einkum í Færeyjum
og Noregi. Bragi Þór Marinósson
hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra
Norður-Atlantshafssvæðis frá árinu
2006. Þar áður var hann framkvæmda-
stjóri alþjóðasviðs Eimskips 2004-2006
og framkvæmdastjóri dótturfélaga
Eimskips í Hollandi og Belgíu 1999-2004
en hafði áður gegnt ýmsum störfum hjá
félaginu. Bragi er kvæntur Erlu Sigrúnu
Sveinsdóttur og eiga þau tvær dætur.
BRENT SUGDEN, forstjóri Versacold,
hefur í kjölfar skipulagsbreytinga verið
ráðinn forstjóri yfir kæli- og frysti-
geymslusviði Eimskips í Ameríku. Bæði
Versacold og Atlas Cold Storage, sem
reka yfir 120 kæli- og frystigeymslur,
tilheyra þessu sviði. Brent Sugden
hefur undanfarin sex ár verið forstjóri
Versacold og áralanga reynslu af rekstri
kæli- og frystigeymslna. Brent hefur
náð miklum árangri í Versacold og hefur
verið farsæll stjórnandi í ört vaxandi
fyrirtæki í hörðu samkeppnisumhverfi.
REYNIR GÍSLASON sem gegnt hefur
bæði stöðu forstjóra Eimskips í Ameríku
frá júlí 2006 svo og forstjóra Atlas frá
nóvember 2006 mun halda áfram sem
forstjóri yfir annarri starfsemi Eimskips í
Ameríku. Sú starfsemi tengist að mestu
leyti skiparekstri félagsins í heimsálf-
unni en nýlega hóf Eimskip strandsigl-
ingar á austurströnd Bandaríkjanna.
m þessar mundir eru þrír mán-
uðir frá því William Fall tók við
forstjórataumunum í Straumi. Þá
sagðist hann ætla að taka sér níu-
tíu daga til að skapa nýja framtíðar-
sýn fyrir bankann undir sinni stjórn. Undan-
farið hafa framkvæmdastjórar og millistjórn-
endur bankans komið að þeirri vinnu. William
kynnti blaðamönnum nýja stefnu bankans til
ársins 2010 á mánudag.
Nú er stefnan ekki aðeins sett á að Straumur
verði leiðandi fjárfestingarbanki á Norður-
löndunum, eins og stefnan hefur verið um
hríð, heldur einnig í Mið- og Austur-Evrópu.
Að þessu verður unnið bæði með því að
styrkja núverandi starfsemi bankans og frek-
ari fyrirtækjakaupum.
HÁLEIT MARKMIÐ
Fjárhagsleg markmið, sem ætlað er að ná
fyrir árið 2010, eru háleit. Stefnt er að því að
heildartekjur fari yfir 1.250 milljónir evra,
um 112 milljarða króna. Það er 160 prósenta
aukning tekna miðað við síðasta ár. Þá hefur
markmið um hlutfall þóknunartekna verið
hækkað úr fimmtíu í 75 prósent af heildar-
tekjum. Stefnt er að því að heildareignir tvö-
faldist á næstu þremur árum og verði fjór-
tán milljarðar evra, arðsemi eigin fjár verði
að jafnaði yfir tuttugu prósentum og eignir í
stýringu tíu milljarðar evra.
FJÖLGUN ERLENDRA HLUTHAFA
Sérstaða Straums á að verða fólgin í því að
bankinn hafi sterka stöðu á öllum skilgreindum
markaðssvæðum. Náið samstarf verði á milli
starfsstöðva bankans. Í máli Williams kom
fram að mörkuðum Norður- og Mið-Evrópu
væri iðulega stjórnað af áhættufælnum og
nokkuð íhaldssömum bankastofnunum. Fjár-
festingarbankar sem teygðu sig jafnt yfir allt
svæðið og þjónustuðu alþjóðlega fjárfesta
og lítil og meðalstór fyrirtæki væru í reynd
ekki til. Þeirri þörf væri Straumur að svara.
Ætlunin væri að bankinn yrði fyrsti kostur í
hugum viðskiptavina bankans, á öllum starfs-
svæðum hans.
Þá er stefnan sett á að meira en fimmtíu pró-
sent þess hlutafjár sem ekki er í eigu tengdra
aðila verði í eigu erlendra fjárfesta. Björgólf-
ur Thor Björgólfsson og tengdir aðilar eiga í
dag tæp fjörutíu prósent hlutafjár í Straumi.
Um tíu til fimmtán prósent af hlutafé sem
ekki er í eigu Björgólfs eða tengdra aðila eru
í dag í eigu erlendra fjárfesta. William sagð-
ist búast við að skráning hlutabréfa bankans
í evrum myndi laða fleiri erlenda fjárfesta að
félaginu. Þá sagðist hann hafa orðið var við
mikinn áhuga erlendra fjárfesta á bankanum
frá því hann tók við.
FLEIRI KONUR Í BANKANN
Ný markmið Straums ná einnig til starfs-
fólks bankans. Öllu starfsfólki bankans verða
boðnir kaupréttarsamningar, sama hvaða
störfum það gegnir. Þá eiga konur að verða
fjörutíu prósent af starfsfólki bankans strax
á næsta ári. Í dag er það hlutfall rúmlega
þrjátíu prósent.
Straumur hefur orðið fyrir nokkurri
gagnrýni vegna ónógrar upplýsingagjafar.
Við þessu verður brugðist með því að gefa
út rekstraráætlanir fyrir árið 2008 og
ársfjórðungslegar áætlanir frá árinu 2009.
Á því sviði skákar Straumur hinum íslensku
bönkunum en enginn þeirra hefur gefið slíkar
áætlanir út hingað til. - hhs
Stór markmið hjá Straumi
Með innri vexti og fyrirtækjakaupum ætla stjórnendur Straums að skapa leiðandi fjárfestingarbanka í Norður- og Mið-
Evrópu fyrir árið 2010. William Fall, forstjóri Straums, kynnti leiðirnar að því marki á blaðamannafundi á mánudag.
Fjármálaeftirlitið (FME) og
Kredittilsynet í Noregi hafa gert
með sér samning um samstarf
vegna starfsemi útibús Kaup-
þings í Noregi.
Í tilkynningu FME kemur fram
að ástæða samningsins sé að
Kaupþing hafi sótt um aðild að
innistæðutryggingasjóði norskra
banka (Bankenes sikringsfond),
en það sé gert til að tryggja
að viðskiptavinir bankans í Nor-
egi njóti sömu innistæðutrygg-
ingar og viðskiptavinir norskra
innlánsstofnana. „Vernd inni-
stæðueigenda er töluvert hærri
í Noregi en á Íslandi. Með aðild
Kaupþings að norska innistæðu-
tryggingasjóðnum felst að sjóður-
inn myndi þá greiða mismuninn
á milli norsku og íslensku inni-
stæðutryggingarinnar ef til þess
kæmi,“ segir í tilkynningunni.
Samstarfssamningur FME og
Kredittilsynet er sagður snúa að
samstarfi eftirlitsaðilanna varð-
andi þessa aðild Kaupþings að
sjóðnum, en forstjórar eftirlits-
stofnananna, Jónas Fr. Jónsson
og Björn Skogstad Aamo, skrif-
uðu undir samninginn í Ósló
síðastliðinn fimmtudag, þar sem
stóð yfir árlegur forstjórafundur
norrænna fjármálaeftirlita.
- óká
Samið um samstarf vegna Kaupþings
Skipt var um stjórnarformann í
Seed Forum á Íslandi auk þess sem
þrír nýir stjórnarmenn komu inn
á aðalfundi félagsins á fimmtudag
í síðustu viku. Seed Forum velur
og þjálfar íslensk nýsköpunar- og
frumkvöðlafyrirtæki til að kynna
sig fyrir fjárfestum hér heima og
erlendis.
Dr. Andri Ottesen, fram-
kvæmdastjóri Klaks nýsköpunar-
og frumkvöðlaseturs, tók við
stjórnarformennsku af Jóni
Helga Egilssyni, sem tók við
stöðu framkvæmdastjóra hjá
Seed Forum International í
Bandaríkjunum í vor. Hinir eru
Eggert Claessen, formaður Sam-
taka viðskiptaengla, Jón Hreins-
son, rekstrarstjóri Nýsköpunar-
miðstöðvar Íslands, og dr. Rögn-
valdur Sæmundsson, dósent við
Háskólann í Reykjavík í nýsköp-
unar- og frumkvöðlafræðum.
Aðrir stjórnarmenn eru dr.
Bjarki Brynjarsson hjá Askar
Capital, Davíð Lúðvíksson, for-
stöðumaður nýsköpunarsviðs
Samtaka iðnaðarins, og Jón Helgi.
Þá er Elsa Einarsdóttir, forstöðu-
maður viðskiptaþjónustu breska
sendiráðsins, áheyrnarfulltrúi.
Nýir í stjórn Seed Forum
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir hefur verið
ráðin til Arev verðbréfa í nýtt starf sem
fjárfestingarstjóri Arev N1.
Fjárfestingar-sjóðurinn
Arev N1 var stofnaður í
apríl á þessu ári og sér-
hæfir sig í fjárfestingum á
íslenskum neytendavöru-
fyrirtækjum. Hrefna er viðskiptafræðingur
frá Háskóla Íslands og hefur að undan-
förnu lagt stund á MS-nám í stjórnun og
stefnumótun við Háskóla Íslands.
F Ó L K Á F E R L I