Tíminn - 30.01.1981, Blaðsíða 4

Tíminn - 30.01.1981, Blaðsíða 4
 4 _ Míwmm "i spegli tímans............... Munkarnir á Meteora A meðan munkarnir héldu sig innan dyra i Klaustri heilagrar þrenningar, varð kvik- myndafólkið að láta sér lynda að dveljast I eftirlikingunni, sem það hafði byggt á næsta kletti (t.v.) Framleiðendur James Bond mynda hafa gert víðreist um heiminn i leit aö hinu sérstæða landslagi, sem einkenn- ir myndirnar og við könnumst við. Er nú svo komið, að þeir eru að verða uppiskroppa með nýja staði. Þóttust þeir þvi hafa himin höndum tekið, þeg- ar þeir fundustaðinn Meteora i Grikk- landi til að taka 12. myndina sina, For Your Eyes Only. Það, sem einkennir Meteora, er mjög klettótt landslag, og uppi á klettunum er að finna 6 forn munka- klaustur. Þau voru byggð á 14. öld og þótti það aðalkostur staðarins, hversu óaðgengilegur hann er öllum utanað- komandi, og til að firra munkana allri veraldlegri freistni, svo sem samneyti við konur, var eina samgönguleiðin stigar og kaðlar. Munkar nútimans standast liklega freistingarnar betur, a.m.k. hafa verið lagðir vegir, sem veita miklum ferðamannastraumi auðveldan aðgang að Meteora. Ferða- mönnunum selja munkarnir fæði og minjagripi. Samt sem áður þykir staðurinnenn minna á forna sögu sina, og það var það andrúmsloft, sem framleiðendur myndarinnar sóttust eftir. Leist þeim sérlega vel á eitt klaustrið, Klaustur heilagrar þrenn- ingar. Sömdu þeir við munkana um að byggja eftirlikingu af klaústrinu til innimyndatöku, en að fá að taka úti- myndir af rétta klaustrinu. Þ.e.a.s. þvi halda þeir fram. En þegar átti að taka til við myndatökurnar, lokuðu munkarnir að sér og lýstu þvi yfir, að kvikmyndafólkið myndi vanhelga staðinn, og þegar leikarinn Roger Moore mætti á staðinn, var aðkoman ekki sérlega aðlaðandi. Munkarnir höfðu hengt á veggi og girðingar nær- föt, rúmfatnað, plastumbúðir, salernispappir og yfirleitt allt sem nöfnum tjáir að nefna! — Okkur tókst samt að ná myndum, þar sem allt þetta drasl sást ekki, segir einn fram- leiðendanna. Nú eru sögusagnir komnar á kreik um það, að munkamir ætli að fara fram á skaðabætur fyrir þau viðskipti, sem þeir hafi misst af á meðan þeir lokuðu siginni i klaustri sinu. En aðrar tungursegja, að ástæðan fyrir hegðun munkanna hafi verið sú, að þeir hafi reiknað með að fá „gjöf” frá framleið- endunum, en hafi, þegar til kom, fund- ist hún of ómerkileg! Ekki er hægt að segja að uppátæki munkanna fegri umhverfið. Og kannski hafa þeir orðið að hirast innan dyra vegna klæðleys- is. Roger Moore lét sér hvergi bregða, þrátt fyrir óvinsamlegar við- tökur munkanna. — Það er ekkert fyrir þig aö gera hér i dag — ennþá. Föstudagur 30. janúar 1981 krossgáta w ■■ <ft 3496. Krossgáta Lárétt 1) Hor. 5) Spik. 7) Bók. 9) Vatn. 11) Fæði. 12) Eins. 13) Berja. 15) Ungviði i þolfalli. 16) Grönn. 18) GljSber. Lóörétt 1) Dulræn. 2) Fylgt eftir. 3) Röö. 4) Svik. 6) Kvartar. 8) Slæm. 10) Hljóðfæri. 14) Tunna. 15) Drykkur. 17) Stafrófsröð. Ráðning á gátu No. 3495 Lárétt 1) Orgels. 5) Æla. 7) Tær. 9) Kór. 11) Ið. 12) Me. 13) Nit. 15) Mók. 16) Api. 18) Hlóö- ir. Lóðrétt 1) Ostinn. 2) Gær. 3) El. 4) Lak. 6) Frek- ar. 8) Æði. 10) Omó. 14) Tal. 15) Miö. 17) Pó. bridge Boðsmót Bridgeíélags Akraness var haldiðum siðustu helgi ogyfirburða sigur vegarar urðu Jón Baldursson og Valur Sigurðsson. Þeir voru rúmum 100 stigum fyrir ofan sveitaríélaga sina, Skúla Einarsson og Þorlák Jónsson, sem voru i öðru sæti. í spilinu hér á eftir sýndi Valur hvernig á að fá toppana i bútaspilunum. Norður. S. D5 H. 10752 T. KG73 L. G32 Vestur. S. G3 H. KDG94 T. 654 L. AK10 Suður. S. A10986 H. A8 T. A8 L. D654 Austur. S. K742 H. 63 T. D1092 L. 987 Valur sátu i NS og sagnir gengu Jón og þannig: Vestur. 1 hjarta 2hjörtu pass Norður. pass pass pass Austur. 1 spaði pass pass. Suður. pass 2spaðar 2spaðar hjá Vaki suður var hörkumeld- ing en vestur gaf honum tækifærið sem þurfti þegar hann spilaði út laufás. Hann skipti i hjartakóng í öðrum slag en þá var það of seint. Valur gaf fyrsta hjartað en tók næst á ásinn. Siðan lagði hann niður spaðaás og spilaði litlum spaða. Þegar spaðagosinn kom hjá vestri, einsog Valur hafði lika vonast eftir, þá var eftirleikur- inn auðveldur. Austur gat ekki spilað vestri inn nema á lauf og Valur gat þvi trompað næsta hjarta, tekið trompin og átt afganginn. 140 gaf toppinn i NS: þau pör sem spiluðu spaðabút töpuðu annað- hvort spilinu eftir hjarta út eða ranga spaðaiferð eða fengu þá aðeins 8 slagi. Nokkur pör reyndu grandbút i NS og eftir hjarta út fengust 6-7 slagir og þá skipti máli hvor hendin átti útspilið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.