Tíminn - 30.01.1981, Blaðsíða 6

Tíminn - 30.01.1981, Blaðsíða 6
Föstudagur 30. janúar 1981 Wimrn Eínstaklega mikilvægt í ræðu þeirri sem sjávarútvegsráðherra Stein- grimur Hermannsson flutti á fundi Evrópuráðsins i vikunni um sjávarútvegsmál gaf hann yfirlit yfir helstu hagsmuni íslendinga og ræddi þau vanda- mál sem þjóðin stendur frammi fyrir vegna fisk- veiða nágrannaþjóðanna á hafsvæðinu umhverfis landið. Að veigamiklu leyti verður það sagt að sjálf landhelgismálin séu að baki eftir harða baráttu ís- lendinga, en fram undan er hins vegar hið mikla verkefni að standa svo að nýtingu auðlinda hafsins að i senn sé gætt hráefnisþarfanna og nauðsyn- legrar verndunar fiskstofnanna til þess að miðin séu tryggð til framtiðarinnar. Liklega er þetta verkefni þess eðlis að það verð- ur aldrei unnið til fullnustu, heldur þarf jafnt og þétt að togast á um það og bregðast við breytileg- um aðstæðum. Við þær aðstæður sem myndast hafa á höfunum er þetta mjög flókið fjölþjóðlegt verkefni, og þess jafnan að vænta að komið geti til harkalegra hagsmunaárekstra þjóða i millum. Reyndar er það ljósasti vottur þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað að i stað frjálsra veiða virð- ist útvegurinn munu þróast jafnt og þétt i átt ein- hvers konar „hjarðbúskapar” þar sem hver þjóð fylgir sinum „hjörðum” i „afréttunum”. Með vax- andi framþróun þeirra fræðigreina sem að þessum málum lúta má búast við þvi að þessi búskapar- einkenni verði æ skýrari, og má vænta þess að si- fellt fyllri og betri upplýsingar verði grundvöllur ákvarðana um aflaskiptingu. i þessu fjölþjóðastarfi verða íslendingar að halda sinu og standa óhikandi á réttindum sinum og hagsmunum. Á þeim sviðum sem við getum haft áhrif á má fullyrða að ekki hefur skort á frumkvæði íslendinga eða harðfylgi, en til álita koma einnig önnur svið útvegsmálanna sem eru miklu örðugari fyrir okkur og gersamlega utan seilingar okkar áhrifa. Þar skiptir mestu um þá miklu styrki sem ná- grannaþjóðirnar veita fiskimönnum sinum. Þess- ar þjóðir eru fyrst og fremst iðnaðarþjóðir og stunda fiskveiðar aðeins aukalega, ef svo má a& orði kveða um þjóðhagslegt gildi atvinnuvegarins. Þessar þjóðir eiga þess þannig kost að láta eitt- hvað renna til sjávarútvegarins frá öðrum at- vinnugreinum. Þannig er vitað að t.d. Vest- ur-Þjóðverjar allt að þvi halda sjávarútvegi gang- andi margviða með opinberri fyrirgreiðslu, og frá Noregi eru þau tiðindi ekki dregin I efa að beinir rikisstyrkir við útgerð fiskiskipa þar jafngilda öll- um launakostnaði i útgerðinni, hvorki meira né minna!!! Vist er að brögðum sem þessum verður ekki við komið hér á landi. Hér er sjávarútvegurinn meginuppspretta verðmætanna, og aðrir atvinnu- vegir hafa þegið stuðning frá honum. Hér er um að ræða einstaklega mikilvægt mál- efni fyrir alla islensku þjóðina og framtið hennar. Við verðum að hefja mjög viðtæka kynningarher- ferð erlendis til þess að skýra sérstöðu íslendinga i þessum málum og gera aðilum erlendis grein fyrir þvi að samstarf og samvinna i atvinnu- og við- skiptamálum sem ekki virðir þessa sérstöðu er ekki eftirsóknarverð i augum okkar. JS Þórarinn Þórarinsson: Erleiít yfirlit Verður miðfylkingin stærsti flokkurinn? Thatcher og Benn gefa henni byr í seglin DAVID STEEL, formaöur Frjálslynda flokksins i Bret- landi, hélt blaðamannafund i brezka þinghúsinu 12. þ.m. Sitt- hvaö bendir til, að þessi fundur muni teljast sögulegur siöar. A þessum fundi skýröi Steel frá þvi, að hann heföi sent 420 þingmönnum, ásamt nokkrum mönnum öðrum, greinargerö, þar sem m.a. eru rakin tiu stefnumál, sem ættu að geta sameinað frjálslynt og umbóta- sinnað fólk, sem hvorki hallast að vinstri armi Verkamanna- flokksins eða hægri armi íhaldsflokksins. Þeir þingmenn, sem Steel sendi þessa greinargerð, eru flestir i Verkamannaflokknum, en einnig allmargir i Ihalds- flokknum, eins og ráöa má af þvi, aö þingmenn eru alls 635. Steel tók fram á blaðamanna- fundinum, aö hann sendi þing- mönnunum þessa greinargerð með hliðsjón af þvi, aö innan tveggja vikna yröi haldinn aukalandsfundur Verkamanna- flokksins, þar sem endanlega yrði gengið frá þvi, hvernig kjöri á formanni flokksins skyldi háttað. Steel taldi allar horfur benda til þess, að á landsfundinum myndi vinstri armur flokksins undir forustu Tony Benn beita hægri arminn ofriki. Margir hægri manna myndu þá að likindum ganga úr flokkn- um eöa mynda sérstök sósial- demókratisk samtök, sem gætu meö einum eða öðrum hætti haft samvinnu við Frjálslynda flokkinn i næstu þingkosning- um. Margir fylgismenn Ihalds- flokksins ættu einnig heima i þessum samtökum. Þessi boðskapur Steels, sem ekki er nýr af hálfu hans, virtist eiga meiri hljómgrunn hjá al- menningi en áður, þvi að nokkru siðar var birt niöurstaða skoðanakönnunar, sem leiddi i ljós, að færu kosningar fram nú, myndu 31% þeirra, sem spurðir voru, kjósa umrædda miðfylk- ingu, 27% Verkamannaflokkinn og 24% Ihaldsflokkinn. ÞAÐ REYNDIST rétt hjá Steel, að vinstri sinnar myndu beita ofriki á aukalandsfundi Verkamannaflokksins, sem var haldinn siðastl. laugardag. Til þessa aukafundar var boð- aö sökum þess, að ákveöiö var á landsfundi flokksins siöastl. haust, að þingflokkurinn einn skyldi ekki lengur kjósa for- David Steel mann flokksins, sem væri jafn- framt forsætisráðherraefni hans eöa forsætisráðherra, heldur skyldu flokksfélög og verkalýðsfélög einnig taka þátt i valinu. Hins vegar náðist ekki þá samkomulag um hiö nýja fyrirkomulag. Þvi var ákveðið að ráða því máli endanlega til lykta á aukalandsfundi. A aukafundinum fóru fram atkvæðagreiðslur um margar hugmyndir. Að lokum stóðu tvær eftir. Onnur var sú, sem var studd, af Michael Foot, formanni flokksins, að formaðurinn skyldi kosinn á sérstökum kjör- fundi, sem væri þannig skipaö- ur, að þingflokkurinn veldi 50% af fulltrúunum, flokkssamtökin 25% og verkalýðssamtökin 25%. Hin tillagan var sú, að verka- lýðssamtökin veldu 40% af full- trúunum, flokkssamtökin 30% og þingflokkurinn 30%. úrslitin urðu þau, að fyrri til- laganfékk 2.865þús.atkvæði, en siðari tillagan 3.375 þús. Hún var þvi samþykkt. Hún var svo borin upp aftur til fullnaðar- samþykkis og fékk 5.252 þús. at- kvæði, en 1.868 þús. voru á móti. Atkvæðagreiðslu er þannig háttað á landsfundum Verka- mannaflokksins, að fulltrúar fara meö jafnmörg atkvæði og Shirley Williams félagsmenn eru i samtökum þeirra. ÞVl var fyrirfram lýst yfir af hægri arminum, að hann myndi ekki sætta sig við þessi úrslit. Með þessu móti væri verkalýðs- samtökunum, sem væru ekki aðeins skipuð fylgismönnum Verkamannaflokksins, heldur einnig kommúnistum og ihalds- mönnum veitt alltof mikil áhrif. Fylgismenn annarra flokka gætu raunverulega fengið að- stöðu til að ráða valinu á for- manni flokksins. Hægri menn brugðust lika hart við. Fjórmenningarnir sem ákveðnast hafa beitt sér gegn vinstri arminum, gengust þegar fyrir stofnun sósialdemókrat- iskrar nefndar, sem er skipuö 9 þingmönnum flokksins til við- bótar. Nefndin skyldi fyrst um sinn starfa innan flokksins. Fjórmenningarnir eru þrir fyrrverandi ráðherrar, eða þau Shirley Williams, David Owen og William Rodgers, auk Roy Jenkins, sem lét nýlega af störf- um sem formaður fram- kvæmdanefndar Efnahags- bandalags Evrópu. Siðan þessi sósialdemókrat- iska nefnd var stofnuð, hafa deilur enn harðnað i flokknum, og virðist ekki annað fyrirsjá- anlegt en að flokkurinn klofni. Þó er ekki talið liklegt, að til flokksstofnunar komi fyrr en eftir sveitarstjórnarkosningar, sem eiga aþ fara fram i mai- mánuði. Fyrirætlunin er, ef það heldur áfram aö fá góðar undirtektir, að stofna sósialdemókratiskan flokk i likingu við slika flokka á Norðurlöndum. Slikur flokkur ætti að geta haft bandalag viö Frjálslynda flokkinn I næstu kosningum. Skoðanakannanir halda áfram að vera þessari hugmynd hagstæðar. Hin nýjasta gefur til kynna, að yrði kosið nú, myndi slik miðfylking fá 43% atkvæða og veröa langstærsti þingflokk- urinn. Sú skoðanakönnun gaf einnig til kynna, að David Steel nýtur mest- fylgis af væntanlegum leiötogum slikra samtaka. Næst kemur Shirley Williams og þá Roy Jenkins. Óánægjan meö Margaret Thatcher og óttinn viö Tony Benn eiga vafalitið mestan þátt i þeirri velgengni, sem væntan- leg miðfylking nýtur um þessar mundir. 6 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdótt- ir. Afgreiðslustjóri: Siguröur Brynjólfsson. —Ritstjórar: Þórar- inn Þórarinsson, Jón Helgason, Jón Sigurðsson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Blaða- menn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghildur Stefáns- dóttir, Friðrik Indriðason, Friða Björnsdóttir (Heimilis-TIm- inn), Heiður Helgadóttir, Jónas Guðmundsson (þingfréttir), Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrimsson (borgarmál), Kristin Leifsdóttir, Ragnar örn Pétursson (iþróttir), Ljósmynd- ir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Agústsson. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þor- bjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. — Ritstjórn, skrif- stofur og auglýsingar: Siðumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387,86392. — VeröIIausa- sölu 4.00. Askriftargjald á mánuði: kr. 70.00. — Prentun: Blaðaprent hf.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.