Tíminn - 07.02.1981, Side 7
Laugardagur 7. febrúar 1981
7
Eysteinn Jónsson:
Á að hætta við
þingræðið?
i liðinni viku var Eysteinn
Jónsson, fyrrum ráðherra,
að þvi spurður i sjónvarpinu,
hvort hann væri þvi hlynntur
aö þingræði yrði afnumið og
upp tekin forsetastjórn, og
hvort hann teldi að slik
breyting stjórnskipunar gæti
leitt til minni rikisumsvifa i
þjóðféiaginu.
Timinn hefur fengið svar
Eysteins til birtingar, og
fylgir það hér.
Þingræði hefur reynst okkur
vel. Rikisstjórnir eru háðar.Al-
þingi. Ráðherrar eru tengdir
Alþingi og oftast þingmenn
jafnframt.
Þingmenn eru kjörnu fulltrú-
arniri stjórnkerfinu og verða að
hafa náið samband við almenn-
ing: atvinnulif, félagslif og
menningarlif.
Þingbundin stjórn er þrátt
fyrir allt likleg til að halda átt-
unum i samræmi við vilja
meirihluta þjóðarinnar þótt út
af geti borið stundum.
Ekki mæli ég með þvi að af-
nema skuli þingræðið.
Þá yrði vafalaust sú leið farin
að kjósa forseta sem skipaði
rikisstjórn án afskipta Alþingis
og yrði þvi i engu háð.
Vald Alþingis myndi minnka.
Vald kjörinna fulltrúa i stjórn-
kerfinu yrði sem sé stórlega
skert.
I stað þingbundinna og i raun
og veru þingvalinna ráðherra
kæmi ný tegund ráðherra, sem
ekki þyrftu að sæta almennum
kosningum, og það leiðir af eðli
málsins að þeir myndu ekki
telja nauðsyn að hafa jafnnáið
samband við almenning og
þingræðisráðherrar.
Þeir myndu heldur ekki telja
nauðsyn bera til að taka jafn-
mikið tillit til kjörinna fulltrúa á
Alþingi og þingræðisráðherrar
gera.
í þess háttar kerfi, þ.e.a.s.
með afnámi þingræðis, tel ég
auðsætt að embættisvaldi, og
eigum við að segja, sérfræð-
ingavaldi — I málum sem eiga
þó að vera pólitisk — mundi
vaxa ásmegin, en dvina áhrif
kjörinna fulltrúa almennings.
Þá álit ég alvarlega hættu á
þvi að tviskinnungur og tog-
streita kæmi upp, til baga, milli
þings og rikisstjórnar ef horfið
yrði frá þingræði. Við erum
mikið togstreitufólk. Þetta er
allt að þvi þjóðariþrótt og sist á
þau ósköp bætandi.
Þá kemur að hinu, hvort rikis-
umsvif muni minnka ef þing-
ræði væri afnumið.
Það er erfitt að setja rikisum-
svif undir einn hatt; svo óliks
eðlis eru þau og ólikur að þeim
hvatinn. Ég nefni aðeins tvennt.
Annars vegar er samhjálp
sem er einn stærsti liðurinn i
rikisumsvifum. Ég óttast að úr
samhjálp drægi við afnám þing-
ræðis.
Á hinn bóginn nefni ég mið-
stýringu margs konar, m.a. i at-
vinnu- og viðskiptalifi, sem er
gildur þáttur. Þar er nú yfirvof-
andi að minu viti ótrúleg og
vaxandi hætta á ofstjórn, sem i
auknum mæli byggist á leyfum
og beinu skömmtunarkerfi sem
nær til einstaklinga, og i þessa
átter þrýstingur úr ýmsum her-
búðum, sem vinna þjóðnýt störf
af mikilli kunnáttu með aðstoð
góðra reiknivéla og likana.
Ég tel hættu á of nákvæmri
miðstýringu vaxa með afnámi
þingræðis og skertum áhrifum
þingmanna, þvi þeir eru lik-
legri en hinir sem aukið vald
myndu fá, til að spyrna gegn
auknum rikisumsvifum af þessu
tagi.
Þingræðið finnst mér liklegra
til að mótast af áhrifum frá al-'
menningi en hitt kerfið. Yfirleitt
vilja menn ekki láta stjórna sér
um of og þar kemur þvi við-
spyrna gegn of mikilli miðstýr-
ingu.
Ég vil búa við þingræðið
áfram, en bæta framkvæmd
þess með ýmsu móti, sem of
langt yrði hér að telja.
Ég nefni þó i simskeytastil:
— Afnám þingrofsréttar,
— Nokkra lengingu þingtima,
til að koma skaplegu lagi á um-
ræður og bæta nefndastarf.
— Setja ákveðinn frest handa
Eysteinn Jónsson.
Alþingi til að mynda stjórn
hverju sinni,
— Auka verulega tengsl þing-
flokka við samtök atvinnulifsins
og við sérfræðistofnanir sem
leggja til i vaxandi mæli þá
þekkingu sem pólitiskar
ákvarðanir kjörinna fulltrúa
verða að byggjast á.
Loks má ég til með að skjóta
þvi hér fram að hvaða fyrir-
komulag sem haft verður á
framkvæmd lýðræðisins, þá fer
ekki vel nema fram sé lögð sú
félagsvinna i myndarlegum
stjórnmálaflokkum sem til þarf
að koma.
Þaö verður ekki smiðuð póli-
tisk eilifðarvél i þingræðisformi
eða með öðru byggingarlagi,
sem malar pólitiskt frelsi og
farsæld án þess að til komi
myndarleg pólitisk félagsvinna
i stjórnmálaflokkum.
Reykj avlkurborg
og íþróttamálefni
Þess hefur orðið vart að ýmsir
úr röðum borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins m.a. sá ágæti
iþróttafrömuður Sveinn Björns-
son, forseti ÍSl, virðirðist þeirr-
ar skoðunar að iþróttamálefni
hafi orðið útundan hjá nú-
verandi meirihluta borgar-
stjórnar Reykjavikur. Jafn-
framt er sagt að við
framsóknarmenn höfum engu
fengið ráðið i þeim efnum innan
meirihlutans, þvi engum dettur
i hug annað en við séum
eindregnir talsmenn og stuðn-
ingsmenn iþrótta, sem vissu-
lega er hverju orði sannara.
Með þessum pistli vil ég
leiðrétta misskilning, sem mér
hefur virst gæta varðandi fjár-
framlög borgarinnar til iþrótta-
málefna:
1. Styrkir borgarinnar á liðun-
um 05-050 og 05-051 hafa i tið
núverandi meirihluta jafnan
verði i samræmi við útreikninga
IBR.
Hér er um að ræða kennslu- og
húsaleigustyrki til iþrótta-
félaganna og styrkir vegna
framkvæmda. Samtals nemur
þessi upphæð i ár 415.4 millj.
gkr. Varla verður það talið
núverandi meirihluta til hnjóðs
að hækka hlut borgarinnar i
húsnæðiskostnaði félaganna úr
50% i 65% svo sem gert var fyrir
tveim árum.
2. Á fjárhagsáætlun borgar-
innar fyrir árið 1981 er áætlað að
verja 936 millj. gkr. til
framkvæmda við iþróttamann-
virki. Sumum finnst þetta e.t.v.
litið. Miðað við framkvæmdafé
borgarinnar er þetta töluvert
mikið.
Hvernig á svo að verja þessu
fé?
Kr. 60 millj. eiga að ganga til
byrjunarframkvæmda við
Skautahöll. Þetta mannvirki
hefur verið hannað og þvi valinn
staður austan við iþróttahöllina
i Laugardal. Það er mér og okk-
ur framsóknarmönnum alveg
sérstakt ánægjuefni að sam-
komulag skuli vera um að hefja
þessa framkvæmd á þessu ári.
Kr. 300 millj. eiga að fara til
byggingar á húsi við Sundlaug-
ina i Laugardal þar sem eiga að
vera böð og búningsklefar.Stærð
þessa húss er 1400 fermetrar.
Þessi bygging var upphaflega
áætluð þegar sundlaugin var
reist. Þáverandi meirihluti
hvarf frá þeirri framkvæmd, og
holaði búningsklefunum niður i
kjallara sundlaugarbyggingar-
innar og eyddi tveggja ára
framlagi borgarinnar til
iþróttamála til þess að reisa
áhorfendastúku við sundlaug-
ina. Hún tekur sig vissulega vel
út á myndum en hefur orðið til
litilla nota svo sem kunnugt er.
Kr. 450 millj. eiga að fara til
að ljúka á þessu ári við bygg-
ingu þjónustumiðstöðvar i
Bláfjöllum. Við þessa
framkvæmd var unnið fyrir um
100 millj. kr. á sl. ári. Hér er um
byggingu að ræða sem allir
skiðaáhugamenn hljóta að
fagna og þeir eru margir. Næsta
stóra verkefnið verður að koma
Bláfjöllunum i vegasamband
suður á bóginn.
Kr. 26 millj. eiga að fara til
ýmissa smærri verkefna i
Bláfjöllum.
Kr. 50 millj. eiga að ganga til
að kaupa hlut ÍBR i Laugardals-
höllinni. Er þar um að ræða 1.
greiðslu af þremur, en IBR er
eigandi að 8% hluta Hallarinn-
ar.
Þetta frjármagn ætlar BR að
nota til að hefja framkvæmdir á
jörð, sem það á austur i
Grimsnesi, en þar er áformað
að risi i framtiðinni iþróttamið-
stöð fyrir Reykvikinga.
Kr. 50 millj. eru áætlaðar tií
lokaframkvæmda við aö koma
upp heitum pottum við Sund-
höllina.
Af þeim 936 millj. gkr., sem
hér hefur verið getið, er ráðgert
að rikið og önnur sveitarfélög
leggi fram 76 milljónir. Nettó-
framlag Reykjavikur verður
þvi 860 milljónir.
3. Varðandi framkvæmdir
borgarinnar á sviði iþróttamála
siðustu tvö árin er rétt að benda
á að mjög miklu fjármagni eða
á þriðja hundruð millj. gkr. hef-
ur verið varið til endurbóta á
Sundhöllinni. Þetta mannvirki,
sem Framsóknarflokkurinn
beitti sér fyrir að reist var á sin-
um tima, var svo illa farið
vegna skorts á viðhaldi að um
annaö var ekki að gera en hefja
endurbætur.
Einnig hefur mikið fjármagn
fariö til lagfæringa á stúku
Laugardalssundlaugarinnar. Sú
framkvæmd var talin nauðsyn-
leg vegna slysahættu.
Báðar þessar framkvæmdir
hafa verið færðar á rekstrar-
kostnað og hefur þvi ekki komið
i reikningum sem nýbyggingafé
til iþróttamála. Þá lenti þaö i
hlut núverandi borgarstjórnar-
meirihluta að borga stóru lyft-
una i Bláfjöllum, sem þar var
reist árið 1973.
Ég vænti þess að þeir sem
lesa þessa grein komist að raun
um að núverandi meirihluti
borgarstjórnar hefur siður en
svo verið tómlátur um iþrótta-
málefni og að við framsóknar-
menn höfum verið vel á verði i
þeim efnum.
Kristján Benediktsson.