Tíminn - 07.02.1981, Qupperneq 20
— ósamið við
vélstjóra verksmiðj
anna, sem hafa
boðað verkfall frá
miðnætti annað
kvöld
AB — Sáttafundur stóð frá kl.13 i
fyrradag til kl.8 i gærmorgun incð
deiluaðilum i rikisverksmiðju-
deilunni. Samkomulag náðist á
milli þeirra sem eru aðildarfélag-
ar ASÍ, og vinnumálanefndar rík-
isins. Hins vegar náðist ekki sam-
komulag við vaktstjúrana, eða
vélstjóra i rikisverksmiðjunum,
en þeir eru fyrir utan ASt. Samn-
ingar strönduðu á margumtalaðri
launaflokkaröðuninni. Vélstjórar
i ríkisverksiniðjunum hafa þvi
boðað verkfall frá miðnætti annað
kvöld.
Launahækkunin sem samið var
um viö starfsfólkið nemur 11.2% á
laun frá 15. nóvember sl., en
samningurinn gildir út árið 1981.
Samkomulag þetta byggist að
miklu leyti á Grundartanga-
samningnum. 1 gær var unnið að
þvi að raöa niður i launaflokka
samkvæmt samningnum.
Ekki er ljóst hvort verkfall vél-
stjóranna veröur til þess að loka
verði verksmiðjunum.
Framtalsfrestur
einstaklinga:
Fram-
lengdur
til 18.
febrúar
JSG — Akveðið hefur verið aö
lengja frest einstaklinga til að
skila skattframtölum sinum til 18.
febrúar. Fresturinn átti að renna
út þ. 10 febrúar. Að sögn Ævars
tsberg, rikisskattstjóra, er þetta
gert vegna meðferðar Alþingis á
breytingum á skattalögum, sem
snerta vaxtafrádrátt og frádrátt-
arbærni áhaldakostnaðar iðnað-
armanna. Engar ákvarðanir hafa
verið teknar um lengingu fram-
talsfrest einstaklinga með at-
vinnurekstur eða félaga.
„Satt best að segja vona ég að
framtalseyöublöðin séu nú komin
til allra sem búa i þéttbýli,” sagði
Ævar Isberg. „Dreifing i sveitum
hefur sjálfsagt gengið misjafn-
lega, en það gerir nú ekki eins
mikiö til, þvi flestir þar hafa
lengri framtalsfrest,” sagði Ævar
aö lokum.
Laugardagur 7. f ebrúar 1981
Ríkisverk-
smiöjufólk-
iðiASÍ
samdi í
Veður raskaði áætlun innanlandsflugs í gær
AM Vrnsar tafir urðu á innan-
landsflugi i gær vegna veðurs og
raskaðist áætlun Ft þvi talsvert,
t.d. varð ekki flogið til'Akureyrar
fyrr en i gærkvöldi, en þá komust
þrjár vélar norður. Sagði Pétur
Maack, vaktstjóri innanlands-
flugs að allt hefði þvi gengið upp
að lokum.
Akureyrarflugvöllur lokaðist
um hádegisbil i gær, en áður hafði
Flugfélagi Norðurlands tekist að
fara með hóp suður tii Reykjavik-
ur og-annan norður aftur. Þá
flaug FN til Isafjarðar siðari
partinn i gær, eftir að létti til aft-
ur.
gærmorgun
Nútíma búskapur þarfnast
HAUER
haugsugu
Guðbjörn Guðjónsson
heildverslun, Kornagarði 5
Simi 85677
Gagnkvæmt
tryggingafélag
Ráðgjafaþjónusta
ítilefni 25 ára afmælis Verzlunarbank-
ans á þessu ári heíur hann sett á laggirnar
nýja þjónustu sem nefnist Hagdeild heimilisins.
Aðalverkefni hennar er ráðgjafaþjónusta.
Þangað geta viðskiptavinir bankans,
einstaklingar sem fjölskyldur, leitað til þess
að fá upplýsingar og ráðgjöf um flestþað sem
varðar peninga- og bankamál.
Upplýsingamappa og
greiðsluáætlun
Auk þessarar persónulegu ráðgjafa-
þjónustu sem veitt erí öllum afgreiðslum
bankans eiga viðskiptavinir nú einnig kost á
að taka heim með sér nýstárlega möppu. Hún
hefur að geyma ýmsar upplýsingar sem til
gagns mega koma, s. s. um sparnað og sparn-
aðarleiðir, útskýringar á reikningsaðíerðum
og skattalegri meðferð sparifjár og vaxta.
Einnig fylgja möppum þessum sér-
hönnuð eyðublöð þar sem fólk færir inn '
greiðsluáætlanir og leiðbeiningar um hvern-
ig best verður að þeim staðið.
Er þetta þín deild?
Viljir þú þiggja góð ráð og sýna fyrir-
hyggju í fjármálum þá er Hagdeild heimilis-
ins þín deild. Kynntu þérþessa nýju þjónustu
Verzlunarbankans - þú ert alltaf velkominn.
mm.
VCRZLUNflR
BANKINN