Tíminn - 22.02.1981, Blaðsíða 6
6
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri:
Steingrimur Gíslason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdótt-
ir. Afgreiðslustjóri: Siguröur Brynjólfsson. —Ritstjórar: Þórar-
inn Þórarinsson, Jón Helgason, Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull-
trúi: Oddur V. ólafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Blaöa-
menn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghildur Stefáns-
dóttir, Friörik Indriöason, Friöa Björnsdóttir (Heimilis-Tfm-
inn), Heiöur Helgadóttir, Jónas Guömundsson (þingfréttir),
Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrimsson (borgarmál),
Kristin Leifsdóttir, Ragnar örn Pétursson (iþróttir), Ljósmynd-
ir: Guöjón Einarsson, Guöjón Róbert Ágústsson. Myndasafn:
Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristfn Þor-
bjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. — Ritstjórn, skrif-
stofur og auglýsingar: Siöumúla 15, Reykjavik. Sfmi: 86300.
Auglýsingasfmi: 18300. Kvöldsimar: 86387,86392. — Veröilausa-’
söiu 4.00. Askriftargjald á mánuöi: kr. 70.00. — Prentun:
Blaöaprent hf.
Rautt epli
Þjóðviljinn og Morgunblaðið hafa enn einu sinni
gengið i fóstbræðralag. Að þessu sinni er það fólgið i
þvi, að eigna Timanum kenningu um menningar-
legt samsæri þessara blaða.
Það er hreint hugarfóstur Þjóðviljans og Morg-
unblaðsins, sem gæti bent til órólegrar samvizku,
að i Timanum hafi verið minnzt á samsæri i sam-
bandi við hin einróma skrif þeirra um skáldverk og
rithöfunda. Þetta hefur verið nefnt miklu virðulegri
nöfnum, eins og t.d. samstaða, samvinna og sam-
spil.
Bæði reyna blöðin að bera það af sér, að um slikt
samspil þeirra hafi verið eða sé að ræða. Margir ár-
gangar af þessum blöðum vitna um hið gagnstæða.
Um alllangt skeið hafa margir ritdómar þeirra og
fleiri bókmenntaskrif borið andlegum skyldleika
óbrigðult vitni.
Vitanlega má leita ýmissa skýringa á þessu
fyrirbrigði. Hér i blaðinu hefur verið bent á, að það
væri rannsóknarefni fyrir glöggan fræðimann að
leita orsakanna.
Matthias Jóhannessen, ritstjóri Morgunblaðsins,
vill ekki kannast við, að hann hafi verið barinn til
ásta. Hann hafi gengið til samstarfsins i Rit-
höfundaíélagi íslands af friðarumhyggju.
Timinn getur vel tekið þá skýringu Matthiasar
Jóhannessen til greina, að hann hafi stjórnazt af
kristilegu hugarfari, fyrirgefið árásirnar á sig og
gengið til samstarfs i Rithöfundafélaginu af friðar-
vilja. Hann er þá ekki fyrsti friðarsinninn, sem
hefur fallið i svipaða gröf.
Jafnframt þvi, sem rétt er að leita fræðilegra
skýringa á umræddu samspili Morgunblaðsins og
Þjóðviljans, er það ekki ómerkilegra rannsóknar-
efni að kanna þau áhrif, sem það kann að hafa haft
á þróun skáldskapar og sagnagerðar á þvi timabili,
sem það hefur haldizt.
Hefur þetta samspil t.d. leitt til þess, að ákveðin
ljóða form hafa verið tekin framyfir önnur af
ungum skáldum? Hefur þetta orðið orsök meiri rót-
tækni en ella? Hefur þetta stuðlað að þvi, að ljóða-
gerð íslendinga hefur risið hærra en áður, eða hefur
þetta haft öfug áhrif?
Fleiri spurningar mætti nefna. En ótvirætt er
það, að umrædd samstaða þessara áhrifamiklu
fjölmiðla hefur haft mikil áhrif.
í Lesbók Morgunblaðsins birtist nýlega ljóð, sem
lýsir viðhorfi verðandi skálds til gagnrýnandans.
Það er eftir Gunnar Sigfússon og er á þessa leið:
Yfir eyðimörkina
þokast úlfaldalest min
klyfjuð orðum
á vinstri hönd
situr gagnrýnandinn
við skrifborð sitt
vegur og metur
klyfjar úlfalda minna
gegnum gleraugu fræðimannsins
og að lokum stenst hann ekki mátið
og fær sér rautt epli.
Aðalgagnrýnendur Þjóðviljans og Morgun-
blaðsins, Árni Bergmann og Jóhann Hjálmarscon,
eiga það sameiginlegt, að ekkert gleður meira auga
þeirra en rautt epli. Þ.Þ.
Sunriiiödgur 22. febrúár 'Í981.
Þórarinn Þórarinsson:
Erlent yfirlit
Shirley er nú miklu
vinsælli en Margaret
Verður kosið milli þeirra í næstu kosningum?
Shirlev Wiliiams aö halda ræðu
ÞAÐ VAKTI mikla athygli i
byrjun mánaðarins, þegar
Shirley Wiliiams tilkynnti, að
hún hefði sagt sig úr miðstjórn
Verkamannaflokksins. Tveim-
ur dögum síðar skýrði hún frá
þvi, að hún myndi segja sig úr
Verkamannaflokknum.
Þessi yfirlýsing Shirley Will-
iams var talin merki þess, að
teningnum hefði verið kastað á
þann veg, að bráðlega verði
stofnaður nýr sósialdemókrat-
iskur flokkur undir forustu Shir-
ley Williams og þriggja annarra
fyrrverandi ráðherra Verka-
mannaflokksins. Klofningurinn
i Verkamannaflokknum væri
þar með endanlegur.
Shirley Williams er langsam-
lega þekktust og vinsælust
þeirra, sem verða helztu leið-
togar hins nýja flokks. Siðustu
árin hefur verið mjög um það
rætt, að hún ætti eftir að verða
formaður Verkamannaflokks-
ins og væntanlegur forsætirráð-
herra. Sennilega hefði hún orðið
sigursælli en Denis Healey i
samkeppninni við Michael Foot
um formennskuna i flokknum.
Shirley Williams gat ekki tek-
ið þátt i þeirri samkeppni. Það
óvænta gerðist i þingkosningun-
um vorið 1979, að hún féll i kjör-
dæmi, þar sem talið var að hún
ætti örugga kosningu. Hún hafði
talið sig svo vissa, að hún sinnti
kosningabaráttunni meira
annars staðar en á heimavig-
stöðvum.
Talið er, að Callaghan hafi
boðið henni að láta einhvern af
þingmönnum flokksins hætta og
tryggja henni þannig kjördæmi.
Hún hefði þá fengið strax sæti i
þinginu. Hún er talin hafa hafn-
að þessu og kosið heldur að
heyja baráttuna utan þings.
Það hefur lika verið vanda-
laust fyrir hana að vera i sviðs-
ljósinu. Fréttamenn hafa snúizt
i kringum hana og flest sem hún
hefur sagt og gert hefur þótt
gott fréttaefni.
Shirley Williams er fimmtug
að aldri. Foreldrar hennar voru
rithöfundar og bjuggu við sæmi-
leg efni. Faðir hennar, Sir
George Catlin, var eldheitur só-
sialisti og fór með dóttur sina
kornunga á fundi sósialista.
Sextán ára gömul gekk hún i
Verkamannaflokkinn og er þvi
búin að vera i honum i 34 ár,
þegar hún gengur úr honum.
Móðir hennar, Vera Brittain,
höfundur „Testament of
Youth”, lagði meiri áherzlu á
frjálsræði kvenna en að þær
væru fullkomnar við heimilis-
störf. Shirley Williams segir, að
matargerð sé ekki uppáhalds
starf hennar.
Árið 1939, þegar heimsstyrj-
öldin hófst voru hún og bróðir
hennar send til ættingja i
Bandarikjunum og voru þau þar
til 1943. Eftir heimkomuna til
Bretlands hóf hún nám við
kvennaskóla en lauk siðar há-
skólaprófi i Oxford.
Að námi loknu, stundaði hún
blaðamennsku um nokkurt
skeið m.a. við Daily Mirror, en
féll hún ekki. Áhugi hennar
beindist mest að stjórnmálum.
Árið 1964 var hún kosin á þing og
átti þar samfleytt sæti til 1979.
Á árunum 1966-1970 gegndi
hún ýmsum aðstoðarráðherra-
störfum. Þegar Harold Wilson
myndaði stjórn að nýju 1974,
skipaði hann Shirley Williams
verðlagsmálaráðherra. Þegar
Callaghan tók við stjórnarfor-
ustunni 1976, fól hann Shirley
Williams embætti menntamála-
ráðherra og gegndi hún þvi til
stjórnarskiptanna vorið 1979.
Hún þótti reynast vel i báðum
þessum erfiðu ráðherraembætt-
um.
EFTIR að Margaret Thatcher
var kosin formaður Ihalds-
flokksins jókst mjög umtal, um,
að Verkamannaflokkurinn ætti
að tefla Shirley Williams fram
sem keppinaut hennar. Þær eru
þó harla ólíkar.
Margaret Thatcher er ströng
og stif og vandar mjög klæða-
burð sinn. Framkoma hennar
einkennist af myndugleika og
hafa gárungar þvi á orði, að hún
sé eina karlmennið i rikisstjórn-
inni
Shirley Williams er hins veg-
ar látlaus og alþýðleg i fram-
göngu og umgengst háa sem
lága sem jafningja. Hún er
hirðulitil i hárgreiðslu og klæða-
burði, enda mun lafði Astor hafa
sagt henni, að hún kæmist ekk-
ert áleiðis i stjórnmálum með
sitt úfna hár. Lafði Astor var
fyrsta konan, sem átti sæti i
brezka þinginu.
Framkoma Shirley Williams
hefur þó ekki spillt vinsældum
hennar.
Shirley Williams telur sig ekki
hægri krata, þótt hún hafi lent i
deilum við vinstri arminn i
Verkamannaflokknum. Hún
segir ekki ætla að taka þátt i
stofnun venulegs miðflokks,
heldur vinstri sinnaðs flokks.
Liklegt þykir, að hún muni ráða
miklu um stefnu nýja flokksins.
Það er ekki sizt i utanrikis-
málum, sem leiðir hennar og
vinstri armsins hafa ekki legið
saman. Hún er eindregið fylgj-
andi Atlantshafsbandalaginu og
aðild að Efnahagsbandalagi
Evrópu.
Shirley Williams var um skeið
gift þekktum félagsfræðingi og
heimspekingi, Bernard Will-
iams, en þau skildu þegar hann
ákvað að giftast annarri konu.
Dóttir þeirra hefur búið hjá
móður sinni.
Um skeið gekk sá orðrómur,
að Shirley Williams hygðist gift-
ast kanadiskum prófessor,
Anthony King. Úr þvi varð þó
ekki og er sagt, að það hafi átt
sinn þátt i þvi, að Shirley Will-
iams er kaþólsk.
Flest bendir nú til, að hún
muni setja svip á brezk stjórn-
mál, a.m.k. næstu misserin.
Shirlev Williams hugsar ráð sitt