Tíminn - 04.03.1981, Blaðsíða 9

Tíminn - 04.03.1981, Blaðsíða 9
8 Miðvikudagur 4. mars, 1981. Ólaíur Eggerts son frá Kvíum látinn Ólafur Eggertsson, fyrrum bóndi og smiður á Kvium i Þverárhlið, andaðist i gær- morgun, 92 ára gamall, i sjúkrahúsinu á Akranesi, þar sem hann lá siðustu f jögur árin. Jónsddttur, sem lifir mann sinn, Ólafur var kvæntur Sigriði og áttu þau þrjá syni. VÉLA-TENGI Allar gerðir Öxull — í — öxul. Öxull — í — flans. Flans — í — flans. Tenqiö aldrei atál — í — stál, hafiö eitthvað mjúkt á milli, ekki skekkju og titring milli tækja. Allar stæröir fastar og frá- tengjanlegar SÖOfllfflatLQgjtUlb" dÁpxrti©©(a(ríi & (Ö;q> Vesturgötu 16, sími 13280. Útboð Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar ósk- ar eftir tilboðum i lagningu 6. áfanga að- veituæðar. 6. áíangi aðveituæöar er rúmlega 10 km langur og liggur milli Hafnarár og bæjar- ins Lækjar i Leirársveit. Útboðsgögn verða af'hent á eftirtöldum stöðum gegn 500 kr. skilatryggingu: í Reykjavik á Verkfræðistofunni Fjarhit- un h.f. Álftamýri 9. Á Akranesi á Verkfræði og teiknistofunni s.f. Heiðarbraut 40. i Borgarnesi á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen Berugötu 12. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar Heiðabraut 40 Akranesi, þriðjudaginn 24. mars kl.11.30. f Eiginmaöur minn Ólafur Eggertsson Kvlum i Þverárhliö lést á sjúkrahúsi Akraness þriöjudaginn 3. mars. Sigriöur Jónsdóttir Bilapartasalan Höföatúni 10, simi 11397. Höfum notaöa varahluti i fiestar geröir bila, t.d. vökvastýri, vatns- kassa, fjaörir, rafgeyma, vélar, felgur o.fl. I Ch. Chevette ’68 Dodge Coronette ’68 Volga ’73 Austin Mini ’75 Morris Marina ’74 Sunbeam ’72 Peugeot 504, 404, 204, ’70, ’74 Volvo Amazon ’66 Willys jeppi ’55 Cortina ’68, ’74 Toyota Mark II ’72 Toyota Corona ’68 VW 1300 ’71 Fiat 127 ’73 Dodge Dart ’72 Austin Gipsy ’66 Citroen Pallaz ’73 Citroen Ami ’72 Hilman Hunter ’71 Trabant ’70 Hornet ’71 Vauxhall Viva ’72 Höfum mikiö úrval af kerru- efnum. Bílapartasalan, Höföatúni 10. Simar 11397 og 26763. Opið kl. 9-7, laugar- daga kl. 10-3. Höfum opið i hádeginu. Bilapartasalan, Höföatúni 10. Miövikudagur 4. mars, 1981. sHaiíii HHm Leikflokkurinn á Hvammstanga sýnir „Delerium Búbónis” Undanfarnar vikur helur Leikflokkurinn á Hvammstanga æft leikritið „Delerium Búbóms’’ eftir Jón Múla og Jónas Árnasyni. Er þetta 12. verkefni leikflokks- ins. Þröstur Guðbjartsson leikstýrir verkinu og er það i annað sinn sem Þröstur staríar meö flokkn- um. Leikmynd geröi hann einnig. Margir velþekktir og vinsælir söngvar eru i leikritinu og hefur Ingibjörg Pálsdóttir æft þá, en Oddur Sigurðsson leikur undir á Pianó. Frumsýning er fyrirhuguð i Félagsheimilinu Hvammstanga föstudaginn 27. n.k. og önnur syn- ing sunnudaginn 1. mars aö Loga- iandi i Borgarfirði. Helgina 7. og 8. mars verður Skagafjörður heimsóttur. Synt verður á Hofsósi laugardaginn 7. mars og i Miðgarði sunnudaginn 8. mars. Jafnframt er fyrirhugað að heimsækja Sunnlendinga og verður sýning i Félagsheimilinu Kópavogisunnudaginn 15.mars. Skagstrendingar verða sóttir heim seinna, en óviða er jafngóða leikhúsgesti að fá, sem þar. Þetta verk ásamt öörum eítir þá velþekktu bræður Jón Múla og Jónas Áranasyni hafa notið mik- illa vinsælda i fyrrum uppfærsl- um um land allt. ballett- stj örnur í Þjóðleik- húsinu Þriðjudaginn 10. mars n.k. er 30manna sovéskur ballettflokk- ur væntanlegurhingað til lands i boði Þjóðleikhússins. I hópnum eru margir af fremstu ein- dönsurum nokkurra stærstu óperu- og ballettleikhúsa Sovét- rikjanna, m.a. Bolsoj-leikhúss- ins I Moskvu, Kiev-óperunnar, Estonia-leikhússins i Tallinn o.fl. Ráðgerðar eru 4 sýningar i Þjóðleikhúsinu, 11., 12., 13. og 15. mars. Sovésku dansararnir koma hingað til lands frá Stokkhólmi, en þeir hafa verið á sýninga- ferðalagi um Danmörku, Noreg og Svi'þjóð undanfarnar vikur og hvarvetna sýnt við mikla að- sókn og hrifningu. I hópnum eru dansarar starf- andi við óperu- og ballettleikhús i fjórum sovétlýðveldum, Rúss- landi, tJkrainu, Grúsiu og Eist- landi. Nokkrir sovésku dansaranna sem nú koma hingað voru einnig i hópi ballettfólksins, sem sýndi i Þjóðleikhúsinu haustið 1972, m.a. Júri Vladimirov, Ljúbov Gersjúnova, Anatoli Berdysjev og Tiit Hárm. Efnisskrá danssýninga sovésku listamannanna verður mjög fjölbreytt og samsett úr atriðum ýmissa kunnra leik- dansa, bæði sigildra og nýrra. Sem dæmi má nefna tvidans úr „Esmeröldu” eftir Pugni (Alla Lagoda og Valeri Milin), adagio úr „Þyrnirósu” Tsjaikovskis (Ljúdmila Smorgatsjeva), atriði úr „Don Quixote” eftir Minkus (Smorgatsjeva og Ser- gei Lúkin), hluti úr 2. þætti „Svanavatnsins” eftir Tsjai- kosvski (Ljúbov Gersjúnova og Anatoli Berdysjev) og þættir úr „Krossfaranum” eftir Adam. Sem fyrr var sagt eru ráð- gerðar 4 ballettsýningar i Þjóð- leikhúsinu, sú fyrsta miðviku- dagskvöldið 11. mars og siðan 12., 13. og 15. mars. Sala að- göngumiða hefst 6. mars n.k. Búlgörsk vika á KL—Dagana 5.-8. mars nk. verð- ur Búlgariuvika i Vikingasal Hótel Loftleiða. Er það i 22. skipt- ið, sem slfk „þjóðarvika” er hald- inþar og i 5. sinn, sem hún er til- einkuð Búlgariu. Að þessu sinni verður sú nýbreytni, að hluti háti’ðarinnar fer fram á Akureyri, en „frumsýning” verður þar mið- vikudaginn 4. mars. Að Búlgariuviku standa, sem fyrr, Ferðaskrifstofa Kjartans Helgasonar, Ferðamálaráð Búl- gariu, Hótel Loftleiðir og Flug- leiðir. Njóta þessar kynningar si- vaxandi vinsælda, enda fjölgar þeim Islendingum stöðugt, sem sækja Búlgara heim. í tilefni þessarar Búlgariuviku er staddur hér á landi hópur þar- lendra listamanna, söngkonan Iskra Malechokova, sem hefur skemmt hér áður á slikri kynn- ingarviku, þriggja manna hljóm- sveit, sjónhverfingamaður, sem nýtur aðstoöar konu sinnar, og 2 danspör. Hópurinn hefur skemmt undanfarinn hálfan mánuð á Hótel Sheraton i Kaupmanna- höfn. Einnig eru með i för 2 kokk- ar, annar þeirra er frá Grand Hotel Varna og matreiddi hér i fyrra búlgarskan mat við góðan orðstfr. Þessi hópur sér um aö skemmta og matreiða fyrir gesti i Víkingasal Hótels Loftleiða að kvöldi áðurgreindra daga. Að búlgörskum sið verður tekið á móti gestum með brauði, sem dýft er isérstaka kryddblöndu, og rauðvinsglasi. A borðum verða ■ - m 1 ■ .jj m v l \;'S „ ,í. ' ", ' Listamennirnir, sem skemmta á BUigariuvikunni. Fyrir miðju er söngkonan Iskra Malechokova, sitt hvorum megin við hana eru hjónin, sem sýna sjónhverfingar, en yst standa dansararnir. (Timamynd GE) Hótel Loftleiðum fjölbreyttir forréttir, en aðalrétt- ur veröur lambakjöt og nautakjöt steikt á teini og eftirréttur búl- garskar pönnukökur, fylltar með hnetum og hunangi. Með þessu verða framreidd ljúffeng búl- görsk vin. Allir matseðlar verða númeraðir og verður dregið úr þeim á hverju kvöldi. Siðasta kvöldið verður svo dregið úr þeim öllum, og er vinningurinn þriggja vikna Búlgariuferð. A þessu ári eru liðin 1300 ár frá stofnun búlgarska rikisins, sem er eitt af elstu rikjum Evrópu. Eru í þvi tilefni áætluð margs konar hátiðarhöld viðs vegar um landið, og reyndar viðar, þvi að verið er aö vinna að stofnun nefndar hér á landi á vegum menntamálaráðherra Ingvars Gislasonar til að vinna aö undir- búningi afmælishátiðarhalda hér á landi. En fundist hafa merki um dvöl manna í Búlgariu allt frá steinöld. Er þvi margt sögulegra minja að finna frá svo langri bú- setu i landinu. En Búlgaria hefur af fleiru að státa. Loftslagið er hreint og gott, og hefur þess verið sérstaklega gætt að hafa hemil á mengun. Landið er eitt af 6 löndum Evrópu, sem búa yfir flestum heilsulindum, og eru þær flestar yfir 37 stiga heitar. Búlgaria er i fremstu röö i Evrópu i byggingu lækningastöðva og flytur út heilsujurtir til yfir 50 landa. A6 sögn Nicolai Arshinkov, full- trúa búlgarska ferðamálaráðsins i Kaupmannahöfn, heimsóttu yfir 5 milljónir feröamanna frá meira en 120 löndum Búlgariu á árinu 1980. Hefur ferðamanna- straumurinnfarið árlega vaxandi og er búist við metsókn i ár vegna hátiðarhaldanna. Þaö tókst! Sjónhverfingamaöurinn Koev er staöinn upp úr krjúp- andi stööu og ekkert glasanna hefur misst jafnvægiö, þó aö þeim sé hlaöiö hverju upp á annaö og undirstaöan sé hnifsegg. Frú Koeva horfir sigri hrósandi á. (TimamyndGE) ÚTBOÐ Hitaveita Eyra óskar eftir tilboðum i framleiðslu greinibrunna fyrir hitaveitu- lagnir. Útboðsgögn verða afhent á Stokkseyri á skrifstofu Stokkseyrarhrepps Hafnargötu 10 og i Reykjavik á Verkfræðistofunni Fjarhitun h.f. Álftamýri 9 frá fimmtudegi 4. mars gegn 200 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Stokkseyr- arhrepps Hafnargötu 10/ Stokkseyri fimmtudaginn 19. mars kl.14.00. ifí Útboð Tilboð óskast i smiöi á þremur dreifistöðvarskýlum úr stáli og timbri fyrir Rafmagnsveitu Reykjavikur. Hvert skýli cr 12 ferm. aö flatarmáli og 32 rúmmetrar að rúm- máli. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofunni Frikirkjuvegi 3 gegn 2000 kr. skilatryggingu. Tilboöin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 2. april n.k. kl.ll f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuv«gi 3 — Sími 25800 Starfsmannafélagið Sókn Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherj- aratkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trúnaðarráðs i Starfsmannafélaginu Sókn fyrir árið 1981. Framboðslistum skal skila i skrifstofu fé- lagsins Freyjugötu 27 eigi siðar en kl.12 á hádegi mánudaginn 9. mars n.k. Hverjum lista skulu fylgja nöfn 100 fullgildra fé- lagsmanna sem meðmælenda. Starfsmannafélagið Sókn. Halló Ung hjón óska eftir að taka á leigu 2 til 3 herbergja ibúð i Reykjavik,þarf ekki að vera laus fyrr en i lok júni. Vinsamlegast sendið inn tilboð merkt ibúð 544 eða hringið i sima 91-31737 á kvöldin. Listasafn íslands Tilboð óskast i að steypa upp byggingu fyrir Listasafn islands á lóðinni nr. 7 við Frikirkjuveg i Reykjavík, og að ganga frá lóð og húsi að utan. Húsið er ein hæð á kjallara og tvær að hluta, alls um 7600 ferm. Uppsteypu húss og frágangi þaks 2. hæðar skal lokið 15. des. 1981, en verkinu að fullu lokið 15. september 1982. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Rvk, gegn 1000.- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtu- daginn 26. mars 1981, kl.11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMl 2B844 POSTHOLF 1441 TELEX 2006

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.