Tíminn - 04.03.1981, Blaðsíða 2

Tíminn - 04.03.1981, Blaðsíða 2
Miðvikudagur 4. mars, 1981. 2 Krístniboðsvfka hefst næsta Hin árlega kristniboðsvika Sambands islenskra kristniboðs- félaga i Reykjavik hefst i húsi KFUM og K við Amtmannsstig sunnudaginn 8. marz næstkom- andi kl.20.30. Verða haldnar sam- komur öll kvöld vikunnar fram á næsta sunnudag, og er öllum heimill aðgangur. Einkunnarorð vikunnar eru: „Komdu með orð frá Kristi”, en það er hending úr söng, sem Lilja S. Kristjánsdöttir orti og sunginn verður á samkomum. Efni kristniboösvikunnar verð- ur fjölbreytt, og annast það bæði ungt fölk og fullorðiö. Fluttir verða kristniboösþættir, t.d. frá Kina og Mið-Ameriku, en fyrst og fremst veröur kynnt starf Islend- inga i Eþiöpiu og Kenýu. Meðal annars sýnir Jöhannes Tómasson blaðamaður myndir, sem hann tók i Vestur-Kanýu fyrir ksömmu, er hann heimsótti is- lensku hjónin, sem starfa þar á vegum Kristniboössambandsins. Þá veíða fluttar hugvekjur á hverri samkomu, og söngur er fjölbreyttur, tveir kórar, ein- söngvarar o.s.frv. auk almenna söngsins. Tekir veröur á móti framlögum fólks til kristniboösins, enda er fjárhagur starfsins algjörlega háöur gjöfum vina og velunnara. Kristniboðsstarfið i Eþiópiu er nokkrum erfiöleikum bundið um þessar myndir vegna neikvæðrar afstöðu yfir valda. t Konsó hafa ráðamenn hindrað eðlilegt starf kristnu safnaðanna, og tveir inn- bornir prestar hafa setið i fang- elsi i margar vikur. Voru þeir teknir fastir, þegar þeir voru að sinna skyldustörfum i söfnuðum sinum. Ein Islenzk hjón starfa nú i Eþiópiu, þau Áslaug Johnsen og Jóhannes Ólafsson, læknir. Þau vinna á stóru sjúkrahúsi um 100 km. frá Konsó. Á þeim slóðum hafa margar kirkjuur verið lok- aðar, en yfirvöld hafa ekki treyst sér til að banna starfið á kristni- boösstöðinni sjálfri. Þar er góð kirkjusókn, einkum kemur ungt fólk á guðsþjónusturnar og sumt langt að. I Kenýu eru aðstæður allt aðr- ar. Þar er mönnum frjálst að vinna að kristniboði. Starfið á Is- lensku kristniboðsstöðinni I Che- parerfa i Vestur-Kenýu gengur mjög vel, og hefur þegar myndast þar kristinn söfnuður. A stöðinni hefur risið ibúðarhús, þar sem Stöðvarstjónnn og emn prestanna í fangelsi KL — Jónas Þórisson kom heim, ásamt fjölskyldu sinni, siðast- iiðiðsumar, eftir að hafa gegnt kristniboðastarfi i samfleytt 7 ár. Mestan hluta timans var hann i Konsó I Eþiópiu. I tilefni væntanlegrar kristni- boðsviku var Jónas spurður, hvaða starf færi fram I kristni- boðsstöðvunum. — A kristniboðsstöð má segja nú orðiö, aö starfið sé eiginlega orðið fjórþætt. Það er náttúru- lega fyrst og fremst kristniboð, safnaðarstarf. Auk þess hefur alltaf fylgt i þessum þróunar- löndum.sjúkrastarf, sjúkrahús, sjúkraskýli og þess háttar heil- brigðisstarfsemi. Siðan er skólastarf margs konar, barna- skólar, jafnvel iðnskólar o.fl. Fjórða starfssviðið er sprottið upp af hjálparstarfi og er nokk- urs konar þróunarhjálp, hjáip til aö hjálpa sér sjálfur. Það er reynt að koma á fót smáiönaði, vinna að vegagerð, vatnsbóla- gerðo.s.frv. Þetta starf er orðið fyrirferðarmikið, sérstaklega i Eþiópiu, en kirkjulega starfið er kannski minna metið en áður var. í þeim þrengingum, sem veriö hafa undanfarin ár, hafa söfn- uðirnir frekar vaxið en hitt. 1 þrengingum fer fólk að gera sér grein fyrir þvi, hvð þaö er að vera kristinn og hvers vegna. Það er eins og það þjappi þvi saman og fái aöra til að fylgja þvi aö málum lika. Stöðvarstjórinn i Konsó og einn prestanna eru i fangelsi núna. Þeir voru fangelsaðir i september i haust, einfaldlega vegna þess að þeir hafa staðið I fararbroddi fyrir þessu starfi. Það má kannski segja, að þeir hafi verið orönir of vinsælir, yf irvöldhafi verið hrædd við þá. En þrátt fyrir ýmsa erfið- leika, gengur starfið ótrúlega vel. Kristniboðar fá að starfa og allir þessir þættir starfsins ganga nokkuð vel, mitt i þessum erfiðleikum. Þaö skiptast á skin og skúrir, og erfiðleikarnir bitna mest á Eþiópunum sjálf- um, frekar en á útlendingunum, sagði Jónas. Síðastí prófasta- fundur herra Sig- urbjörns biskups AB — Nú stendur yfir á Bisk- upsstofu hinn árlegi prófasta- fundur undir stjórn biskupsins yfir tslandi, Herra Sigurbjörns Einarssonar. Fundur þessi er fyrir það merkur, að þetta er siðasti fundur prófastanna sem biskupinn stýrir. Biskup mun siöan stýra sinni siöustu presta- stefnu nú i sumar. Prófastarnir á myndinni eru frá vinstri talið: Séra Bragi Friöriksson, Garða- bæ, séra Ólafur Skúlason, Reykjavik, séra Lárus Guö- mundsson frá Holti önundar- firöi, séra Stefán Snævar, Dal- vik, séra Eirikur J. Eiríksson Þingvöllum, séra Pétur Ing- jaldsson Skagaströnd, biskup- inn Herra Sigurbjörn Einars- son, séra Svafnir Sveinbjarnar- son, Beiðabólstað, séra Jón Ein- arson Saurbæ, Hvalfjarðar- strönd, en hann sækir fundinn i forföllum séra Leós Júliussonar á Borg, séra Sigmar Torfason Skeggjastöðum, Bakkafirði, séra Trausti Pétursson Djúpa- vogi, séra Fjalar Sigurjónsson Kálfafellsstað og séra Gunnar Gislason Glaumbæ, Skagafirði. A myndina vantar séra Sigurð Guðmundsson Grenjaöarstað. Tók við verð- laununum í gær FRI — I gær tók Snorri Hjartar- son viö bókmenntaverölaunum Norðurlandaráðs á þingi ráðsins i Kaupmannahöfn. Verðlaunin nema 75 þús. dkr. Mál og menning mun af þessu tilefni gefa út ljóöasafn Snorra fram að verölaunabókinni en sú bók ber nafniö KVÆÐI 1940-1966 og þann 22. mars n.k. veröur haldin hátið á vegum Máls og menningar og Norræna hússins þar sem fjallað verður um skáld- skap Snorra og lesið úr verkum hans. Aðalfundur Skókaupmannafélagsins: Hvetur félagsmenn tíl innkaupa frá Iðunni IIV— „Okkur þykir sjálfsagt að gera okkar til þess að styðja við bakið á islenskum iðnaði, einkum þar sem þetta er iönaður, sem á við erfiðleika að striða, þrátt fyr- ir að hann framleiði vöru, er fyllilega stenst samanburð við innflutta vöru”, sagði Ebba Hvannberg, verslunarstjóri hjá Hvannbergsbræðrum, i viðtali við Timann, en Ebba er jafníramt formaður félags skókaupmanna, sem i siðustu viku sendi frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: „Aðal- fundur skókaupmannafélagsins, haldinn þann 26. febrúar 1981, samþykkir að mælast til þess að félagsmenn geri sitt til þess að stuðla að áframhaldandi rekstri á skóverksmiðjunni Iðunni á Akur- eyri, með skóinnkaupum frá henni.” Iðunn hefur átt við mikla rekstrarörðugleika að striða und- anfarin ár. ,, Eins og aðrir framleiðendur er Iðunn svolitið afmörkuð á sinu sviöi”, sagði Ebba ennfremur, „en til dæmis i karlmanna og unglingaskófatnaði, svo og sér- staklega i kuldaskófatnaði, er framleiðsla verksmiðjunnar mjög góð. Yfirleitt er gott hráefni i vörunni og hún fyllilega sam- keppnishæf. Þvi þótti okkur ástæða til þess að beina þessari hvatningu til félagsmanna okkar, að þeir beindu innkaupum til Iðunnar eftir kostum.” Skóverksmiðjan Iðunn sýnir framleiðsluvöru sina á Hótel Loftleiðum i Reykjavik og með- fylgjandi ljósmynd tók Róbert þar. Sýnishorn af framleiðslu Iðunnar á sýningu á Hótel Loftleiöum. Timamynd: Róbert.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.