Tíminn - 10.03.1981, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 10. mars 1981
5
IX. helgarskákmótíð
Flestír af bestu skákmeisturam
landsins tefla á Sauðárkróki
dagana 13. — 15. mars n.k.
Um næstu helgi, ia-15. mars,
verður IX. heigarskákmót
Tímaritsins Skákar og Skák-
sambands tslands haldið á
Sauðárkrtíki.
Mikili áhugi er fyrir mtítinu
og gert ráö fyrir mjög mikilli
þátttöku.
Meðal væntanlegra þátttak-
enda má nefna þá Friðrik ólafs-
son, forseta FIDE, Guðmund
Sigurjtínsson stórm., Helga
Óiafsson aiþ'j .m. Jón L. Arna-
son alþj .m., Jtíhann Hjartar-
son, skákmeistara fslands, Ing-
var Ásmundsson, Asgeir Þ.
Arnason, Eivar Guðmundsson,
Benóný Benediktsson o.fl.
Eins og áður veröa þrenn
verðlaun í boöi: 1. veröl. 3000 kr.
2. verðl. 2000 kr. og 3. veröl. 1000
kr. — Unglingar yngri en 14 ára
keppa um vikudvöl á skákskól-
anum aö Kirkjubæjarklaustri.
— Aukaverðlaun, kr. 10.000,
fyrir þann sem bestum árangri
nær i hverjum fimm mótum.
Þannig náði Helgi ólafsson
bestum árangri úr 5 fyrstu mót-
unum og hefur nú einnig góða
möguleika á sigri eftir mótið i
Vfk. Þetta er fjórða mótið i lot-
unni og fást 20 stig fyrir fyrsta
sæti til aukaverðlauna, 15 stig
fyrir 2. sætið, 12 fyrir 3. sætið,
lOfyrir 4. sætið o.s.frv. Ef kepp-
andi verðureinn efstur fær hann
5 aukastig og 10 aukastig fást fái
hann alla 6 vinningana.
Teflt er föstudag kl. 14-18. 1.
umferð, 20-24 2. umferö.
Laugardag kl. 9-13 3. umferð, 15-
19 4. umferð. Sunnudag kl. 8.30-
12.30 5. umf. og siöasta umferð
kl. 14-18. A sunnudagskvöld
verður siðan haldiö heim að lok-
inni matarveislu og verölauna-
afhendingu i boði heimamanna.
__ Augljóst er að nú má búast við
övenju haröri og spennandi
keppni, enda til mikils að vinna.
Sigurvegarar á mótunum fram
að þessu eru 1. helgarskákmtítið
iKeflavik: 1. - 3. Helgi Ólafsson,
Friðrik ólafsson og Margeir
Pétursson 5v. Unglingaverðl.:
Guömundur Gislason, Isaf. 2.
mtítið I Borgarnesi: 1. Guð-
mundur Sigurjtínsson 5 1/2 v.,
2.-3. Helgi óiafsson og Jón L.
Arnason. Unglingaverðl.:
Guðjtín Riinarsson. — Kvenna-
verðl.: Sigurlaug Friöþjófsdtítt-
ir.
3. mtítið á tsafiröi og Boiungar-
vík: 1.-2. Friðrik ólafsson og
Helgi Ólafsson 5 1/2 v. Ungl-
ingaverðl.: Ægir Páll Frið-
bergsson. Kvennaverðl.: Sigur-
laug Friðþjófsdóttir.
4. mtítið á Húsavik: 1. Helgi
Ólafsson 5 l/2v. 2-4. Guöm. Sig-
urjónsson, Elvar Guðmundsson
og Jtíhann Hjartarson. Kvenna-
verðlaun: ólöf Þráinsdóttir.
5. mótiö á Akureyri: 1.-2.
Jóhann Hjartarson og Helgi
Ólafsson 5 1/2 v. 3.-4. Asgeir Þ.
Arnason og Magnús Sölmund-
arson. Unglingaverðlaun:
Jtíhannes Agústsson. Kvenna-
verðlaun: ólöf Þráinsdóttir.
Framhald á bls. 19
r
Norrænt lögfræðingaþing:
Tjáningar-
frelsi og þagn-j
arskylda
opinberra
starfsmanna
meðal umræðuefna
XXIX. norræna lögfræðinga-
• þingið verður haldið i Stokk-
Ihtílmi 19.-21. ágúst n.k. A þing-
inu verða til umræðu mörg
• veigamikil iögfræðileg við-
fangsefni. Má m.a. nefna þessi
efni:
Tjáningarfrelsi og þagnar-
skylda opinberra starfs-
manna,
fjármál hjóna og fólks i óvigöri
sambúð,
réttindi sjúklinga,
lögfræöileg vandamál er varða
vinnustaði,
almannaréttindi, vernd þeirra
og takmarkanir,
réttarvitund og refsiverðleiki,
réttarstaða útlendinga,
ágreiningsefni, sem eigi varða
mikilvæga hagsmuni og
hvernig þau verði leyst með
sem skilvirkustu móti,
lagaábyrgð stjórnarmeðlima i
I.
félögum,
andmæli almennings og lög-
fræðileg vandamál, er þeim
tengjast,
og svo efnið, frelsi, réttaröryggi
og virk stjórnun þjóðfélags og
lögfræðileg vandamál, er af
því spretta.
Meðalfrummælenda eru tveir
islenskir lögfræðingar, Guðrún
Erlendsdtíttir dósent og Hall-
grimur Dalberg, ráðuneytis-
stjóri.
Tilkynningar skulu hafa bor-
ist fyrir 31. mars til Björns
Helgasonar hæstaréttarritara,
sem veitir nánari upplýsingar,
og skulu þátttökutilkynningar
ritaðar á sérstök eyðublöö, sem
fást hjá honum.
Formaður stjórnar Islands-
deildar norrænu lögfræðinga-
þinganna er dr. Armann®
Snævarr hæstaréttardómari.
Sýning á íslenskum teikning-
um á Kjarvalsstöðum í sumar
Öllum starfandi myndlistarmönnum boöin þátttaka
Stjórn Kjarvalsstaða hefur
ákveðið að efna til sýningar á
islenskum teikningum á sumri
komanda. öllum starfandi mynd-
listarmönnum er boðin þátttaka.
Æskilegt er að verkin séu ný, og
hafi ekki verið sýnd opinberlega
áður. Sýningin verður i vestursal
Kjarvalsstaða i júni, júli og ágúst
1981. Sýning sem þessi krefst
mikillar undirbúningsvinnu og
hefur þvi’ skilafrestur til dóm-
nefndar verið ákveöinn 10. april
1981. Æskilegt er að listamenn
sendi dómnefnd ekki færri en 5
verk. Stærð og útfærsla er frjáls.
Með teikningu er i þessu sam-
bandi átt við eintóna mynd, sem
unnin er á pappir með blýanti,
tússi, koli, krit eða annarri sam-
svarandi tækni. Sýnd verk géta
veriö til sölu ef listamenn sam-
þykkja það. Teikningum skal
skila til listaráðunauts Kjarvals-
staða fyrir 10. april næstkomandi,
og skal hver mynd vera merkt á
bakhlið með nafni listamanns,
heimilisfangi og nafni listaverks-
ins.
Dómnefnd skipa Björn Th.
Björnsson, Hörður Agústsson og
Jón Reykdal.
Finnsk saga varð fyrir valinu
Siöastliðið vor efndu samtök
nórrænna móðurmálskennara til
samkeppni um smásögur. sem
áttu að vera við hæfi lesenda á
aldrinum 12-16 ára. Tilefnið var
norræna málaárið og veitti Nor-
ræni menningarsjóðurinn styrk
til samkeppninnar. Tvær sögur
voru valdar frá Danmörku, Nor-
egi, Sviþjóð og Finnlandi, önnur á
finnsku, hin á sænsku, en ein frá
Færeyjum og Islandi. Alls hlutu
þvi 10 sögur verðlaun, 2000 norsk-
ar krónur hver.
Mikil þátttaka varð i sam-
keppninni og bárust alls á 5.
hundrað sögur til dómnefnda i öll-
um löndunum. I islensku dóm-
nefndinni áttu sæti þau Ragna Ól-
afsdóttir kennari, Þórður Helga-
son kennari og Þorsteinn frá
Hamri rithöfundur. Bárust þeim
alls 13 sögur og urðu þau sam-
mála um að besta islenska smá-
sagan væri sagan Morgundögg
eftir Guðjón Sveinsson rithöfund.
sem á undanförnum árum hefur
skrifaö mikið fyrir börn og ungl-
inga.
Þessar tiu sögur voru nú lagðar
fyrir samnorræna dómnefnd und-
irstjórn Gunnel Beckman. Ragna
ólafsdóttir starfaði i nefndinni
fyrir Islands hönd. Taldi nefndin
finnsku söguna Ravsommar eftir
Marjaita Ellila bestu söguna.
Nú eru allar verðlaunasögurn-
ar i prentun og væntanlegar á
markað á næstu vikum. Gefur
norska útgáfufyrirtækið Cappel-
en sögurnar út. Dreifingaraðili á
Islandi veröur Námsgagnastofn-
un. Birtast þær allar á frummál-
ur.um en auk þess finnska sagan,
sú færeyska og islenska, i þýðing-
um. Þess er vænst að siðar verði
allar sögurnar gefnar út á is-
lensku.
Þeir, sem sendu handrit til is-
lensku dómnefndarinnar. geta
vitjað þeirra á skrifstofu Verslun-
arskóla tslands við Grundarstig
næstu daga frá kl.9-17.
Ráðstefna um
„Fer ðaþj ónustu
á íslandi”
Fimmtudaginn þann 12. mars
n.k. mun Félag Isl. feröaskrif-
stofa og Verslunarráö lsiands
gangast fyrir ráðstefnu um
„Feröaþjtínustu á tslandi”.
Verður ráöstefnan haldin i
Kristalsal Htítel Loftleiöa. Hefst
hún kl. 12.15 meö iéttum hádegis-
verði I Vikingasai, þar sem Stein-
grimur Hermannsson, sam-
gönguráöherra mun flytja ávarp.
Tilgangur ráöstefnunnar er að
ræða skilyrði til ferðaþjónustu á
tslandi og möguleika landsins,
sem ferðamannalands. Einnig er
ætlunin aö varpa ljósi á vaxandi
þýðingu ferðaþjónustu, sem at-
vinnugreinar, og ræða hvernig
megi skapa þessari grein eðlileg
vaxtarskilyrði þannig, að mögu-
leikar landsins á þessu sviði fái
notið sin.
A siðasta ári komu rúmlega
65.900 erlendir ferðamenn til
landsins og námu gjaldeyris-
tekjur vegna útgjalda þeirra
innanlands um 110 milljónum
króna (11 milljöröum gkr.,), sem
er um 2% af heildargjaldeyris-
öflun þjóðarinnar. Til saman-
burðar má geta þess, aö útflutn-
ingur ullar- og skinnavara nam
svipaðri fjárhæð. Gjaldeyris-
tekjur af erlendum feröamönnum
i heild eru þó meiri, þar sem hluti
af útgjöldum þeirra flokkast
undir aöra gjaldeyristekjuliði.
Einnig má nefna, að við ferða-
þjónustu og tengdar greinar
starfa um 4.200 manns, þannig að
feröaþjtínusta er oröin mikilvæg
atvinnugrein, sem skiptir þjóöar-
búið miklu.
4200 manns starfa nú viö feröaþjtínustu og skyldar greinar. (Timamvnd: Rtíbert).