Tíminn - 10.03.1981, Síða 6
Erlent yfirlit
Þriðjudagur 10. mars 1981
Rannsóknir á háhita-
svæðum landsins
Fjórir þingmenn Framsóknarflokksins, Guð-
mundur G. Þórarinsson, Guðmundur Bjarnason,
Páll Pétursson og Þórarinn Sigurjónsson, hafa
flutt i Sameinuðu þingi tillögu um rannsóknir á há-
hitasvæðum landsins.
Efni tillögunnar er, að Alþingi feli rikisstjórn-
inni að láta gera heildaráætlun um og framkvæma
rannsóknir á háhitasvæðum landsins, þannig að
virkjunarsiaðir á tveim háhitasvæðum verði á
verkhönnunarstigi að fimm árum liðnum og fimm
háhitasvæðum að tiu árum liðnum. Áætlanagerð
nái til eftirfarandi atriða:
Gerð verði timasett framkvæmdaáætlun um
rannsóknir háhitasvæðanna næstu 5-10 árin ásamt
kostnaðaráætlun.
Rannsóknir beinist fyrst og fremst að þeim há-
hitasvæðum, sem liggja bezt að nýtingu, þ.e.
svæðinu á Reykjanesi og við Hengil, svæðinu i
Þingeyjarsýslum,þ.e. við Námafjall, Kröflu og
Þeistareyki, svo og Torfajökulssvæðinu.
Áætlunin nái til rannsókna er nægja til vals á
álitlegustu virkjunarstöðum og mats á helztu
eiginleikum jarðhitakerfisins svo sem yfirborðs-
mælinga og rannsóknaborana ásamt tilraunabor-
unum til þess að fá fram upplýsingar um gufusam-
setningu svæðisins, aflferla, hola, vinnslueigin-
leika og vinnslugetu svæðisins.
Framkvæmdaáætlun miðist við sem bezta og
hagkvæmasta nýtingu bortækja Jarðborana rikis-
ins, þ.e. sá timi, sem bortækin eru laus frá vinnslu-
borunum, sé sem bezt nýttur til borunar rann-
sókna- og tilraunahola.
í greinargerð fyrir tillögunni segir, að umrædd
áætlunargerð miðist við það megintakmark að ís-
lendingar eigi nokkra álitlegustu virkjunarstaðina
hannaða, þegar tækifæri bjóðast til hagkvæmrar
nýtingar.
Rannsóknir á háhitasvæðum eru timafrekar og
þvi þarf að hefjast handa um þær með góðum
fyrirvara áður en nýting þeirra er hafin.
Sérfræðingar telja að rannsóknartiminn frá þvi
svæðið er fyrst athugað þar til unnt er að segja til
um vinnslueiginleika þess og vinnslugetu sé um 6-8
ár.
Rannsóknir á háhitasvæðum landsins eru enn
stutt á veg komnar. Lághitasvæðin hafa haft for-
gangsrétt. Eigi nýting háhitasvæðanna að verða
möguleg á næstu árum, verður þegar að hefjast
handa um skipulegar rannsóknir.
Sumir telja að virkjun jarðgufu til raforkufram-
leiðslu verði ekki samkeppnisfær við vatnsafl hér
á landi næstu árin. Þess ber hins vegar að gæta að
möguleikar til að nýta háhitasvæðin kunna helzt
að liggja i ýmiss konar efnaiðnaði. Þar ættu að
geta opnazt fjölmörg atvinnutækifæri auk arðvæn-
legrar orkusölu á koijiandi árum.
Rannsóknir á háhitasvæðum geta orðið nokkuð
kostnaðarsamar. Það skiptir þvi miklu að skipu-
lega sé unnið að þeim. Þess vegna leggja
flutningsmenn tillögunnar til, að rannsóknirnar
beinist i fyrstu aðallega að þremur svæðum, eins
og sagt er frá hér á undan.
Þ.Þ.
Þórarinn Þórarinsson:
Hittast Carríngton
lávarður og Arafat?
Efnahagsbandalagið reynir að miðla málum
Carrington lávaröur.
AMERISKA vikuritið News-
week skýrði frá þvi um næstsiö-
ustu helgi, að samkvæmt brezk-
um heimildum kynnu þeir að
hittast siðar á þessu ári utan-
rikisráðherra Bretlands,
Carrington lávarður, og leiðtogi
Frelsishreyfingar Palestinu-
manna, Yasir Arafat.
Ef slikur fundur yröi haldinn,
yrði það af hálfu vestrænna
rikja mesta viðurkenning sem
Frelsishreyfingu Palestinu-
manna hefði hlotnazt. Þetta
myndi nálgast hálfopinbera
viðurkenningu á samtökunum.
Newsweek telur, að þessi
fundur, ef til kemur, verði tæp-
lega haldinn fyrr en siðari hluta
ársins eða a.m.k. eftir 1. júli, en
þá tekur brezki utanrikisráð-
herrann við formennsku i ráö-
herranefnd Efnahagsbandalags
Evrópu, en Efnahagsbandalag-
ið hefur þegar haft nokkurt
frumkvæði i þessum efnum.
Auk þess er nú lögð áherzla á,
að riki Efnahagsbandalagsins
reyni að hafa sem mesta sam-
stöðu á sviði utanrikismála.
Þá mun það vart þykja heppi-
legt aö efna til sliks fundar fyrir
þingkosningarnar i tsrael, en
þær eiga að fara fram 30. jUni.
Carrington lávaröur var i
fylgd með Margaret Thatcher
forsætisráðherra, þegar hUn
heimsótti Reagan forseta ný-
lega. Vist þykir, að þar hafi
verið rætt um deilu tsraels og
Arabarikjannna. Sennilegt þyk-
ir, að Carrington lávarður hafi
þar tdlkað þaö viðhorf rikja
Efnahagsbandalagsins, að þessi
deila verði ekki leyst, nema
Frelsishreyfing Palestinu-
manna fái aöild að viöræðum
um hana.
ÞAÐ styður þennan orðróm,
aö nýlega náöu fjölmiðlar með
einhverjum hætti i skýrslu, sem
talið er, að hafi verið til umfjöll-
unar i innsta hring Efnahags-
bandalagsins og raunar er litið
meira á sem uppkast en endan-
lega tillögu. Þessi skýrsla
fjallar um hugmyndir til lausn-
ar á deilu Israelsmanna og
Araba.
Skýrsla þessi eöa uppkast
skiptist í fjóra aðalkafla.
Fyrsti kaflinn fjallar um
brottflutning alls herliðs Isra-
elsmanna af landsvæðum, sem
þeir hernámu 1967. Brott-
flutningunum skal lokiö á
tveimur árum. Jafnframt skulu
tsraelsmenn yfirgefa svo-
kallaðar landnámsbyggöir
sinar á hernumdu svæðunum.
Yasir Arafat.
Annar kaflinn fjallar um
sjálfsákvörðunarrétt Palestinu-
araba eða þeirra, sem búsettir
eru á hernumdu svæðunum.
Fara skal fram allsherjarat-
kvæðagreiðsla, þar sem valiö
verður milli þriggja aöalkosta:
Sjálfstæös rikis, sambandsrikis
itengslum við Jórdaniu og rikis,
sem er bæði i tengslum við Jór-
daniu og tsrael.
Þriðji kaflinn fjallar um al-
þjóðlega friðargæzlu til að
tryggja öryggi rikja á þessu
svæði. Myndað verði hlutlaust
belti meðfram landamærum
tsraels og annist hermenn frá
Sameinuðu þjóðunum gæzlu
þess.
Fjórði kaflinn fjallar um
Jerúsalem. Málum þar skal
komið i svipað horf og þau voru
1947, en siðan skal samið um
framtiðarskipun á málum
borgarinnar. Þar getur komið
til greina alþjóðleg stjórn eða
skipting borgarinnar milli tsra-
els og hins nýja ríkis Palestinu-
araba. Gæzla helgistaða i borg-
inni skal falin viðkomandi trú-
flokkum.
t skrifum fiölmiðla er yfirleitt
tekið fram, aö hér sé ekki um
lokatillögur aö ræða, en þetta
gefi þó allglöggt til kynna um
hvað sé verið að ræða.
ÝMSIR fréttaskýrendur halda
þvi fram, að tillögur þessar beri
þess merki, eins og reyndar áð-
ur hefur komið fram, að nokkur
ágreiningur sé milli Bandarikj-
anna og Efnahagsbandalags-
rikjanna varðandi afstöðu til
deilumála tsraels og Arabarikj-
anna. Efnahagsbandalagið láti
afstöðusina mótast meira en af-
staða Bandarikjanna af þvi, að
þau vilji eiga vingott viö Araba-
rikin.
Vel má þó vera, að þessi á-
greiningur sé minni en ætla
mætti. Bandarikjastjórn er
meira háð Gyðingum pólitiskt
en Vestur-Evrópurikin, einkum
þó heima fyrir. Það getur þvi
komið henni vel að láta Efna-
hagsbandalagið hafa frum-
kvæði, sem gæti verið henni
pólitiskt erfitt.
Þaö sýnir, að Bandarikin
verða að taka tillit til Araba-
rikjanna i auknum mæli, að hin
nýja stjórn þeirra hefur sam-
þykkt að selja Saudi-Arabiu
herflugvélar, en bæði Israels-
menn og Gyðingar i Bandarikj-
unum eru þvi mjög mótfallnir.
St jórn Saudi-Arabiu mun hafa
látið á sér skilja, að hún úti-
lokaði ekki aö fá svipaðar vélar
frá Rússum, ef Bandaríkja-
menn neituðu þeim um þær.
Það kann þvi að vera, aö
Bandarikjastjórn sé ekkert
mótfallin þvi, að Carrington lá-
varður ræði við Arafat, þótt hún
geti ekki sagt það opinberlega.
En trú á Carrington lávarð er
veruleg, þvi að honum er mest
þökkuð lausn Ródesiumálsins.
mmm.
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri:
Steingrimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdótt-
ir. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. —Ritstjórar: Þórar-
inn Þórarinsson, Jón Helgason, Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull-
trúi: Oddur V. Óiafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Blaða-
rnenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghildur Stefáns-
dóttir, Friðrik Indriðason, Friða Björnsdóttir (HeimiliSTTím-
inn), Heiður Ilelgadóttir, Jónas Guðmundsson (þingfréttir),
Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrimsson (borgarmál),
Kristin Leifsdóttir, Ragnar örn Pétursson (iþróttir), Ljósmynd-
ir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Agústsson. Myndasafn:
Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þor-
bjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. — Ritstjórn, skrif-
stofur og auglýsingar: Siðumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300.
Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387,86392. — Verð i lausa-
sölu 4.00. Áskriftargjald á mánuöi: kr. 70.00. — Prentun:
Blaðaprent hf.