Tíminn - 14.03.1981, Síða 3
Laugardagur 14. mars 1981
3
Verkefni viturra manna
og góðra að leysa málin
Blöndu-samningurinn
— segir Aðalbjörn Benediktsson á Hvammstanga
HEI — ,,Það er verk-
efni viturra manna og
góðgjarnra að leysa
þessi mál, svo allir
aðilar megi við una”,
sagði Aðalbjörn Bene-
diktsson, ráðunautur á
Hvammstanga er hann
var spurður álits á
gangi mála verðandi
Blönduvirkjun.
,,Ég hef starfað all lengi með
bændum og verð, sem betur fer,
oft vitni að metnaði þeirra fyrir
sig, sitt ftílk og jörð sina. Ahuga-
mál þeirra er að skila jörðinni
sinni betri af sér, en þegar við
henni var tekið. Á þessum
metnaði byggist ma. hin geysi-
öra þrtíun i ræktunar- og bygg-
ingamálum, sem orðið hefur i
islenskum landbúnaði”, sagði
Aðalbjörn.
Hann sagðist þvi ekki undr-
andi á þvi, þótt landeigendum
við Blöndu séu óljúfar þær að-
gerðir, að myndað verði uppi-
stöðultín á afréttinni. Slikt
myndi að sjálfsögðu skerða
gæði jarðanna.
„Hinsvegar er úr vöndu að
ráða. Eigi er fundin önnur væn-
legri leið til orkuöflunar, en
virkjun fallvatna, og þvi hætt
við að sama staða komi upp sið-
ar, gagnvart Blöndu. Þótt ekki
verðiaf framkvæmdum nú, yrði
þvi aðeins um seinkum málsins
að ræða. Ynnist þá litið, en tap-
aðist mikið, þvi tíumdeilanlega
yrði virkjunin mikill styrkur
nærliggjandi héruðum og raun-
ar til öryggis fyrir allt landið”.
Varðandi bætur, sagði Aðal-
björn það ekki sitt mál að semja
um. En almenns eðlis sagðist
hann telja að þær eigi að fylgja
jörðunum, en ekki að greiðast út
i eittskipti fyrir öll. Og þótt góð-
ur hugur fylgi uppgræðslumál-
um afréttarinnar, þá sé reynsla
mjög takmörkuð á því sviði.
„Enginn veit um það fyrirfram
hvernig til myndi takast”.
Bókagerðarmenn:
Verkalýðs-
hreyfingin
haldi vöku
sinni
Nýskipáð Trúnaðarmanna-
ráð Félags bókagerðarmanna
mótmælir á 1. fundi sinum 24.
febrúar 1981 harðlega þeirri
kaupránsstefnu sem núver-
andi rikisstjórn hefur tekið
upp með setningu bráðabirgð-
arlaganna nr.87/1980.
Trúnaðarmannaráð FBM
fordæmir að enn einu sinni
skuli rikisvaldið ráðast að
frjálsri samningsgerð með
fyrirskipunum i lagaformi.
Sérstök ástæða var til að
ætla að núverandi rikisstjórn
brygðist ekki við eins og raun
ber vitni eftir allar hástemdu
yfirlýsingarnar, meðan á
samningsgerð stóð, þess efnis
að rikisstjórnin myndi ekki
hafa afskipti af samningum.
Nú höfum við efndirnar.
Trúnaðarmannaráð FBM á-
skilur sér allan rétt til að
bregðast við upptekinni
kjaraskerðingarstefnu rikis-
valdsins á viðeigandi hátt og
hvetur verkalýðshreyfinguna
til að halda vöku sinni.
— Framanskráð mótmæli
voru samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum.
hefur einnig verið rætt um það,
hvort stórt stöðuvatn, sem frysi á
veturna, gæti orsakað kaldari
veðráttu. Likur munu taldar á þvi
að slikt myndi eiga sér stað, sér-
staklega á vorin þegar verst
gegnir, þ.e. að gróðri gæti seinkað
af þessum orsökum.
Frá Blönduósi. (Timmynd: Róbert)
Blöndu-samningnum haldiö áfram á Blönduósi eftir viku:
Að vernda land - að taka land
— Ljóst aö einhverju verður að fórna, en hve miklu er spurningin,
segir Sigurður Sigurðsson einn fulltrúa norðanmanna
HEI— „Þessum fundi er lokið, en
næsti fundur hefur verið ákveðinn
mánudaginn 23. mars n.k. á
Blönduósi, þannig að þessar við-
ræður eru raunverulega ennþá i
gangi og þvi lítið um málið að
segja”, sagði Sigurður Sigurðs-
son, bóndi að Brúnastöðum í Lýt-
ingsstaðahreppi. En hann er einn
þeirra sex fulltrúa norðanmanna
sem verið hafa á samningafund-
um um Blönduvirkjun.
Sigurður sagði að þessi næsta
vika verði notuð til þess, að þeir
fulltrúar norðanmanna ræði við
heimamenn um það sem komið
hafi fram á þessum fundum og
búa sig undir framhaldið.
Spurður um hvað valdi einna
mestum vandkvæðum á að ná
samkomulagi, svaraði Sigurður:
„Sjónarmið heimamanna eru
ákaflega rik i þá átt að vernda
land, eins og framm hefur komið i
fréttum. Hagkvæmni virkjunaar-
innar felst hinsvegar i þvi að taka
land, þannig að menn eru að
reyna að semja um samræmingu
þessara sjónarmiða”. Hann sagði
auðvitað ljóst, að einhverju verði
að fórna en hve miklu, það sé
spurningin.
Ræktun lands i stað þess sem
fórna verður, sagði Siguröur afar
óvissan þátt, og ekki sist hve slik
ræktun yrði varanleg, vegna hæð-
ar yfir sjó. Það gróöurlendi sem
menn misstu væri hinsvegar
varanlegt. Á það sé hægt að
treysta.
Það kom fram, að á fundunum
Fulltrúar stjómar Læknafélagslns funduðu með
nokkrum aðiljum á Selfossi i fyrradag
| Nýir fletir komn-
ir fram í málinu
I
I
I
I
AB — Fulltrúar stjórnar
Læknafélags islands fóru aust-
ur að Selfossi i fyrradag, og
funduðu með nokkrum aðiium
varðandi deiiuna um yfirlæknis-
stöðuna við Sjúkrahús Suður-
lands. Böðvar Bragason, sýslu-
maður Rangárvallasýslu á sæti
I rekstrarstjórninni, og sló
biaðamaður Timmans á þráð-
inn til hans i gær, og spurði hann
tiðinda af fundinum.
„1 gær fóru fram óformlegar
viðræður milli þriggja fulltrúa
Læknafélags Islands og þeirra
meðlima rekstrarstjórnar
Sjúkrahúss Suðurlands, sem
stóðu að þeirri samþykkt á sin-
um tima, að starfssamning yfir-
læknis skyldi endurskoða þá
þegar.
Læknafélagsmenn munu
einnig hafa rætt sérstaklega við
yfirlækninn.
Viðræður þessar fóru fram i
þvi skyni að reyna að finna
lausn á þeim ágreiningi sem
upp er kominn, eftir að yfir-
læknir hafnaði endurskoðun
starfssamnings, og staða hans
hafði verið auglýst laus til um-
sóknar,” sagði Böðvar.
Böðvar Bragason syslumaöur
Rangárvallasýsiu á sæti i
rekstrarstjórn Sjúkrahúss Suö-
urlands.
Böðvar sagði jafnframt:
„Vekja verður athygli á þvi að
yfirlæknirinn telur sig fara að
réttum reglum, þar sem hann
fari aðeins eftir þeirri skoðun
heilbrigðisráðuneytisins að
rekstrarstjórn hafi ekkert með
starfsmannamál að gera fyrr en
eftir að starfsemi hefst á
sjúkrahúsinu.”
Böðvar sagði rekstrarstjórn I
vera á annarri skoðun um það I
atriði, svo sem gerðir meiri- I
hluta þeirrar stjórnar vitnuðu |
um. Sagði hann deilu þessa
standa i raun við heilbrigðis- _
ráðuneytið um starfssvið I
rekstrarstjórnar, og það bæri að I
hafa hugfast þegar mál þetta I
væri skoðað.
„Daginn fyrir fund hafði yfir-
læknirinn sent öllum meðlimum
rekstrarstjórnar sjúkrahússins
bréf, þar sem segja má að fram
komi nýir fletir á máli þessu.
Kom bréf þetta þvi inn i umræð-
ur áðurgreindra aðila. Niður-
staða viðræðna þessara liggur
hins vegar ekki fyrir fyrr en
rekstrarstjórn Sjúkrahúss Suð-
urlands hefur fjallað um bréf
yfirlæknisins,” sagði Böðvar.
Að lokum sagði Böðvar:
„Vonandi tekst að leysa mál
þetta þannig að allir geti þolan-
lega við unað. En itrekað skal
að undirrót þessa vanda, er i-
hlutun heilbrigðisráðuneytisins
i mál sem alfarið er á valdi
rekstrarstjórnar,svosem lög og
reglugerðir mæla fyrir um.”
Litlu flugfélögin
eiga ekki hægt
um vik
AM — „Hér er við marga að sak-
ast og litlu flugfélögin eiga ekki
hægt um vik. Auövitaö er hér
einnig við Flugmálastjórn að sak-
ast, — viö höfum dritað niður
flugvöilum um ailt land, án Ijósa
eða annarrar lágmarksaðstöðu.
Segja má að i þessari siípu sitji
margir og þar á hver sinn hluta af
sökinni,” sagði einn málsmetandi
maður hjá Loftferðaeftirliti, sem
við ræddum við í gær um fullyrð-
ingar fiugstjórans, sem rætt er
við hér i blaðinu I dag. Hann vildi
þtí ekki iáta nafns sins getið, þvi
islenski flugmáiaheimurinn er
þröngur og hér er komið inn á af-
ar viðkvæm mál.
Augljóslega þarf að vera hægt
að taka þessi mál til hreinskilinn-
ar og opinnar umræðu eigi að sið-
ur, þvi nærtækir atburðir gefa
fulla ástæðu til þess. Litlu flug-
félögin, sem verða fyrir tals-
verðri gagnrýni i blaðinu nú, hafa
unnið mikilsvert starf á mörgum
sviðum, — haldiö uppi samgöng-
um milli byggða úti um land i
snjóum og flugmennirnir hafa
lagt sig i' hættu viö erfið sjúkra-
flug.
Hins vegar stendur það óhagg-
aö að þau skilyrði sem flogið er
við viöa hérlendis og flugst jórinn
lýsir best i viðtalinu, geta ekki án
enda veriö feimnismál, sem eng-
um nema sérfræðingum um flug-
mál og fluggörpum, leyfist að
jmpra á f Jí&gjjjj Jjóni.