Tíminn - 14.03.1981, Blaðsíða 13

Tíminn - 14.03.1981, Blaðsíða 13
Laugardagur 14. mars 1981 LSiii'li'li 17 Félagslíf Kvenfélag Neskirkju hefur kaffisölu og skyndihapp- drætti ab lokinni guösþjónustu sunnudaginn 15. mars. um kl. 3 e.h. i Félagsheimili kirkjunnar. Allur ágóði rennur til kaupa á taugagreini fyrir endurhæf- ingarstöð Borgarspitalans. Eflum framfarir fatlaðra. Kvenfélagið Seltjörn heldur fund þriðjudaginn 17. mars kl. 20.30 i Félagsheimil- inu á Seltjarnarnesi. Snyrtisér- fræðingur leiðbeinir um snyrt- ingu. Stjórnin. Dansklúbbur Heiðars Ástvaldssonar. Dansæfing laugardaginn 14. mars kl. 21 að Brautarholti 4. Kökukvöld. Skaftfellingafélagið i Reykjavfk verður með sitt árlega kaffiboð fyrir aldraða skaftfellinga i Hreyfilshúsinu sunnudaginn 15. mars kl. 14:30. Jón Helgason al- þingismaður talar. Ferðalög Ferðafélag tslands heldur myndakvöld að Hótel Heklu, Rauðarárstig 18. miövikudag- inn 18. mars kl. 20:30 stundvis- lega. 1. Sýndar myndir úr gönguferð frá Öfeigsfirði i Hraundal, og frá Hornströndum i Ingólfsfirði. 2. Jón Gunnarsson sýnir mvndir frá ýmsum stöbum. Allir vel- komnir meðan húsrúm leyfir. Ferðafélag islands Dagsferðir 15. mars: 1. kl. 13 — Skarðsmýrarfjall Fararstjóri: Halldór Sigurðs- son. 2. kl. 13 — Skiðaganga á Hellis- heiði Fararstjóri: Hjálmar Guðmundsson. Verð kr. 40.- Farið frá Umferðamiðstöðinni austanmegin. Farmiðar v/bil. Ferðafélag íslands Samtök herstöðvaand- stæðinga á ísafirði senda frá sér eftir- farandi ályktun: „Herstöðvaandstæðingar á Isafirði lýsa yfir áhyggjum vegna stigvaxandi vigbúnaðar stórveldanna i vestri og austri, og þeirrar hættu sem i kjölfarið fylgir fyrir Islendinga vegna herstöðvanna hér á landi og aðildar íslands að hernaðar- bandalagi. Þessa aukna vigbún- aðar hefur ekki einasta gætt Noregi og nálægum Nato-rikj- um, heldur einnig hér á landi, með áformum hersins um að reisa sprengjuheld flugskýli á Keflavikurflugvelli og áætlun um stórfellda aukningu elds- neytisbirgða með byggingu oliugeyma i Helguvik. Ef af þessum hernaðarfram- kvæmdum verður, eykst hern- aðargildi herstöðvarinnar og um leið hættan á þvi að ísland dragist inn i hugsanlega styrjöld stórveldanna, með hörmulegum afleiðingum fyrir land og þjóð. Þá felst i Helgu- vikur-áætluninni lúmskuleg til- raun til að stækka enn her- stöövasvæði Bandarikjamanna i landinu og draga Suðurnesja- menn i vinnu við hernaðar- mannvirki. Herstöðvaandstæðingar á ísafirði draga mjög i efa bless- unarrik áhrif þessara stór- framkvæmda fyrir atvinnulif á Reykjanesskaga en telja stórn- völdum sæmra að hraða at- vinnuuppbyggingu þar syðra og gera atvinnulif á Suðurnesjum óháð herstöðinni og hermangi öllu. Ennfremur er utanrikis- ráðherra gagnrýndur harðlega fyrir upplýsingaleynd i sambandi við byggingu flug- skýlanna og vald það sem hann hyggst taka sér með þvi að ákvarða einn um svo áhættusam ar framkvæmdir sem hér um ræöir. Það má enn teljast furðu- legt að ráðherra skuli samþykkja byggingu sprengju- heldra flugskýla, á sama tima og almannavarnarkerfið i land- inu er nánast ekki til og engin sprengjuheld ibúðarhús á Suðurnesjum. Herstöðvaandstæðingar á Isafirði skora á samherja sina utan þings og innan, að koma i veg fyrir hernaðarframkvæmd- ir þessar og allar tilraunir til að gera tslendinga háðari veru hersins en þegar er orðið. Sér- staklegamótmæla herstöðvaand- stæðingar hugmyndum um að Bandarikjaimenn borgi fyrir að- stöðu sina hér á landi, með þvi að herinn taki að sér ákv. framkvæmdir, s.s. flugvalla- gerð, vegalagningu og flug- stöðvarbyggingu. Slik þátttaka hersins i islensku efnahagslifi myndi óhjákvæmilega hafa afdrifarikar afleiðingar i för með sér fyrir efnahagslegt og pólitiskt sjálfstæði þjóöarinnar. Ennfremur skora herstöðva- andstæðingar á ísafirði á Alþingi og alþingismenn að ná sam- stöðu með öðrum Norðurlanda- þjóðum um tillögu þess efnis að lýsa Norðurlöndin öll kjarn- orkuvopnalaust svæði. Það er skoðun herstöðvaand- stæðinga að eina umtalsverða vörnin gegn styrjaldarhættunni sé að herstöðvar verði lagðar niður hér á landi og Islendingar segi skilið við Atlantshafs- bandalagið.” Kynningarkvöld á Hótel Borg Þjóðræknisfélag íslendinga heldur skemmtifund á Hótel Borg þriðjudaginn 17. mars kl. 20.30. Ferðakynning á Kanada- ferðum sumarið 1981. Happ- drætti, ferðavinningur til Tor- onto,góð skemmtiatriði og allir velkomnir. Stjórnin. Kvenréttindafélag ís- lands gengst fyrir fé- lagsmálanámskeiði. . A landsfundi KRFl, sem hald- inn var 24. okt. s.l. kom fram sú hugmynd að félagið gengist fyrir námskeiði i ræöumennsku og fundarsköpum. En konur þurfa ekki siður en karlar að fá þjálfun i að tjá sig i margmenni og koma skoðunum sinum á framfæri. KRFI hefur nú ákveöið að halda slikt námskeið i þeirri von að það hvet ji fleiri konur til virkari þátttöku i félagsstörfum og al- mennri umræðu um þjóðfélags- mál. Námskeiðið, sem fram fer að Hallveigarstöðum, Túngötu 14, stendur yfir i fjögur kvöld og hefst þriðjudaginn 17. mars kl .20.30 (seinni kvöldin eru 19., 20. og 26. mars). Á námskeiðinu verður aðallega fjallað um ræðumennsku, fund- arsköp og fundarstjórn. Leið- beinandi verður Friða Proppé, blaðamaður. Þátttökugjald er kr.150.- Námskeiðið er opið öllum og eru félagsmenn sérstaklega hvattir til að koma. Upplýsinga og inn- ritun fer fram laugardaginn 14. mars i si'ma 18156 og eftir það i sima 84069. Ef námskeiðið tekst vel er fyrir- hugað að halda framhaldsnám- skeið sibar i vor eða byrjun hausts. Nýr framhaldsflokkur: ,,Líf og saga” 1. þáttur: Flóttinn frá Moskvu 1812. Sunnudaginn 15. mars kl.15.00 hefst 12þáttaframhaldsflokkur, sem nefnist „Lif og saga”, og á hann að fjalla um merka menn, innlenda og erlenda, og samtið þeirra. Fyrsti þátturinn heitir „Flóttinn frá Moskvu 1812”. Carlo M. Pedersen, kunnur danskur leikhúsmaður, hefur búið hann til útvarpsflutnings. Lesarareru: Steindór Hjörleifs- son, Helgi Skúlason og Róbert Arnfinnsson. Stjórnandi upp- töku er Klemenz Jónsson og tæknimaður Bjarni R. Bjarna- son. Þátturinn tekur um 50 min- útur i flutningi. Sálin hans Jóns míns Siðasta sýning sunnudaginn 15. mars kl. 3. Leikbrúðuland, Frikirkjuvegi 11, simi 15937. Vorið 1812héltNapóleon keisari til Rússlands með mikið lið, um hálfa milljón manna, i þeim til- gangi aö steypa sarnum af stóli. „Herinn mikli”, sem svo var kallaöur, komst til Moskvu og settist þar um kyrrt. En Rússar reyndust óþægari ljár i þúfu en búist var við. Þeirkveiktum.a. i foröabúrum þeim, sem frönsku hersveitirnar höfðu ætlað að nýta sér, og þegar þar við bætt- ist harður vetur reyndust þeim allar bjargir bannaðar. „Herinn mikli” sneri heim á leið. Það varð hin mesta hörm- ungaferð f frosti og snjó, enda hefur löngum verið sagt að vet- urinn sé besti bandamaður Rússa. KIRKJUDAGUR Asprcstakalls: Kirkjukaffi verður að Norður- brún 1. n.k. sunnudag 15. mars og hefst kl. 14.00 (2) með hug- vekju sem séra Bergur Guð- jónsson annast. Guðmundur Guðjónsson syngur við undir- leik Sigfúsar Halldórssonar. Einnig mun kirkjukórinn syngja. Veislukaffi til kl. 18.00. Mætið öll og hafið með ykkur gesti og hjálpið með þvi að setja kraft i kirkjubygginguna. Lesendabréf A fyrri tið gekk Fjandinn ljósum logum og brá sér þá i allra kvikinda liki. Fræg er sagan um hann i höggorms- skrokki — á Evutið. A dögum Sæmundar fróða, var hann stundum selur, stundum maðkafluga. En alltaf var sinnið hið sama. Óþreytandi, brögðóttur og slægur, lék hann jafnt og þétt á „mannkynið”. Nú hefur Kölski breytt um vinnubrögð. Nú eru Sjónvarpið og blöðin orðin hans sóknarsvið. I sjónvarpinu sést hann i gerfi slunginna siðlausra glæpa- manna, sem verða mörgum fanti fyrirmynd. 1 blöðum birtist hann mjög oft i mynda- sögum. Einn litill púki, sem sver sig i hans ætt, er Denni dæmalausi. Sá óþekktarormur og pörupiltur hefur i marga ára- tugi verið sýndur alla daga i einu nokkuð merkilegu blaði — ungum sonum framsóknar- manna til mikillar fyrir- myndar! — Ég held að þetta sé hið eina, sem Timinn hefur hugað að uppeldi barna öll þessi ár. Er ekki kominn timi til að senda þennan laumupúka heim til fööurhúsa — og ef hægt er — fá i hans stað fallegan pilt — og fyrirmynd, sem engan afvega- leiðir? 12/31981 Helgi Hannesson I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.