Tíminn - 14.03.1981, Blaðsíða 11
Laugardagur 14. mars 1981
ÍÞRÓTTIR
Fram og KR gerðu jafntefli 17-171 faUbaráttunni
SnyrtiaðstÖðu
vantar ennþá
L-
Það má eiginlega segja
að lánið hafi leikið við
KR-inga í Laugardalshöll
i gærkvöldi er þeir léku
við Fram í aukakeppninni
um fallið.
Leiknum lauk með
jafntefli 17-17 eftir að
Fram hafði hafttvö mörk
yfir í hálfleik 8-6.
Leikurinn i gærkvöldi var
mun betur leikinn heldur en
leikur Hauka og Fram i fyrra-
kvöld. Framarar voru mun á-
kveðnari, hafa örugglega gert
sér grein fyrir þvi að tap i leikn-
um i gærkvöldi væri nánast upp-
kvaðning á dauðadómnum.
Framarar voru mun sterkari i
leiknum og með smá heppni
hefði þeim tekist að sigra, hvort
sem það var nú gamla KR
heppnin eða eitthvað annað, þá
gáfust KR-ingarnir aldrei upp
enda upskáru þeir annað stigið
fyrir vikið.
Framarar voru mest allan
leikinn yfir. Mestur var munur-
inn 9-6 strax i byrjun siðari hálf-
leiks. KR-ingum tókst að jafna
10-10 og eftir þaö skildu aldrei
nema eitt til tvö mörk félögin
að.
Framarar komust i 17-16 en
Konráð jafnaði 17-17, er aöeins 5
min. voru eftir af leiknum, en
mjög sterkur varnarleikur loka-
kaflann hjá báöum félögunum
kom i veg fyrir fleiri mörk, en
varnarleikurinn hafði veriö
aðall beggja liðanna allan leik-
inn. Flest mörk Fram geröi
Hannes Leifsson 5 en þeir Hauk-
ur Ottesen og Konráð skoruöu 6
mörk hvor fyrir KR.
röp-.
I
I
I
I
I
I
I
I
i Ottesen og félögum hans i KR tókst á elleftu stundu að ná i
stigið á móti Fram i gærkvöldi.
Islandsmót ungl-
inga í lyfdngum
verður i anddyri Hallarinnar kl. 15 I dag
Islandsmót unglinga i lyfting-
um verður haldið i anddyri Laug-
ardalshallar i dag og hefst mótið
kl. 15.
17 keppendur eru skráðir til
,keppni og verður þeim skipt i tvo
hópa, alls verður keppt i sjö
þyngdarflokkum.
Margir efnilegir unglingar
keppa á mótinu og margir þeirra
hafa lyft meira en eigin þyngd.
Þjálfaranámskeið
Þjálfaranámskeið fyrir iþrótta-
kennara og nemendur á iþrótta-
braut fjölbrautaskóla verður
haldið i Vörðuskóla á morgun
sunnudag og hefst kl.10.
Leiðbeinandi á þessu námskeiði
verður Einar Bollason.
Meistaramót
í frjálsum
um helgina
keppt verður í
aldursflokki 15-18 ára
Islandsmeistaramót i frjálsi-
þróttum innanhúss fyrir aldurs-
flokkana 15-18 ára (f.’66-'63) fer
fram i Reykjavik dagana 14. og
15. mars n.k.
Athugið að um seinkun á mót-
inu er að ræða frá 28. febr.
Keppnisgreinar verða samkvæmt
reglugerð.
Keppnin fer fram, sem hér seg-
ir:
Laugardag kl.11,00 i Laugar-
dalshöll. Hástökk allir flokkar og
stöng drengja.
Laugardag kl.14,00 i Baldurs-
haga. 50 m. hl., 50 m. grindahlaup
og langstökk allir fiokkar.
Sunnudagur kl.11,00 i IR-hús-
inu. Atrennulausu stökkin allir
flokkar. Kúluvarp drengja fer
fram siðar.
Frantz Kissing
mættur til PBK
Ólafur Ólafsson markakóngur 3.
deildar 79 genginn til liðs við Blikana
V-þýski knattspyrnu-
þjálfarinn Frantz Kissing
sem þjálfar Breiöablik
kom til landsins í fyrra-
dag.
Kissing mætti á fyrstu
æfínguna í gær og að sögn
Jóns Inga Ragnarssonar
list Þjóðverjanum mjög
vel á mannskapinn, en alls
voru um þrjátíu leikmenn
mættir á æfinguna.
Breiðabliksmenn hafa
æft mjög vel undanfarið og
bæta um betur nú, þegar
æft verður á hverjum degi
frá mánudegi til fostu-
dags, síðan verða æfinga-
leikir á laugardögum en
frá fá leikmenn á sunnu-
dögum.
Eins og áður hefur komiö fram i
fréttum þá æfir Gústaf Baldvins-
son með Breiðablik en hann lék
með IBV i fyrra og var ein styrk-
asta stoö þeirra Eyjamanna.
Jón Ingi tjáði Tímanum aö
nærri fullvist væri að Gústaf
myndi ganga til liös við Breiða-
blik, þá sagði Jón ennfremur aö
þeim hefði bæst góður liðsauki nú
nýverið.
Þá gekk i raðir Breiðabliks-
manna ólafur Ólafsson, sem lék
og bjó á Fáskrúðsfirði og sagði
Jón, að hann væri mjög góður
sóknarleikmaður og myndi
styrkja þá vel.
Þvi til staöfestingar sagði Jón,
að Ólafur hefði verið markhæstur
i 3. deildinni árið 1979 en hefði litið
getað leikið i fyrra vegna
meiösla.
F'rantz Kissing þjálfari Breiða-
bliks. Timamvnd: Róbert.
Aðeins á eftir að ganga frá snyrtiaöstööu áður en Valsmenn geta fariö að leika á sfnum eigin knatt-
spyrnuvelli. Tlmamynd: Róbert.
„Það er draumur okkar
hjá knattspyrnudeildinni
að geta leikið á okkar
knattspyrnuvelli við
Hliðarenda núna i svum-
ar" sagði Jón G. Zoéga
formaður knattspyrnu-
deildar Vals i samtali viö
Timann.
„Við erum að vfsu ekki i stakk
búnir til þess aö taka viö áhorf-
endum, okkur vantar snyrtiað-
stöðu ásamt ýmsu fleira”.
Er mikiö mál fyrir ykkur að
koma þvi i iag fyrir keppnistima-
bilið?
„Það er mikiö mál að koma þvi
i lag þegar félagiö fær enga fyrir-
greiðslu hjá riki og borg þaö eru
eingöngu nýju félögin sem fá
fyrirgreiðslu hjá hinu opinbera.
Það verður ekki i miklu magni
sem við leikum á vellinum i
sumar við ætlum að reyna að
leika nokkra leiki en ég er hrædd-
ur um að það verði ekki fyrr en
seinni part sumars.
Félagiö er samt að byrja stór-
framkvæmdir en það er bygging
nýs iþróttahúss, en það eru sömu
erfiðleikarnir við það eins og völl-
inn að þetta er algjörlega hunds-
aö af hinu opinbera.
Þrjú iþróttafélög hafa sótt um
leyfi til þess að byggja iþróttahús
á félagssvæðum sinum en svörin
sem fengist hafa við þvi eru þau
að hægt sé aö byggja eitt iþrótta-
hús inni i Laugardal.
Okkur finnst það ekkert sniöugt
og erum staöráðnir i að koma
okkar eigin iþróttahúsi upp”.
röp-.
KR-ingar heppnir
að ná öðru stiglnu