Tíminn - 14.03.1981, Síða 5
5
Laugardagur 14. mars 1981
Listaonurnar við verk sin, Guðrún Svava (t.v.) og Þorbjörg Höskuldsdóttir. (Tlmamynd: G.E.)
Tvær listakonur sýna að Kjarvalsstöðum
— Manuela Wiesler leikur við opnun sýningarinnar
BSt— Þorbjörg Höskuldsdóttir og
Guðrún Svava Svavarsdóttir
opna myndlistarsýningu að
Kjarvalsstöðum laugardaginn 14.
mars kl. 15. Báðar sýna þær mál-
verk og teikningar.
Sýning Guðrúnar Svövu er tiv-
skipt, annars vegar myndraðir
með oliumálverkum á striga og
teikningum, hins vegar sýnir hún
stök málverk. Guðrún Svava
stundaði nám I Myndlistarskólan-
um i Reykjavik og siðar við
Stroganov-akademiuna i Moskvu.
Þetta er önnur einkasýning Guð-
rúnar Svövu.
Þorbjörg sýnir oliumálverk og
teikningar af ýmsum stærðum
Þorbjörg stundaði nám i Mynd-
listaskólanum i Reykjavik og við
Akademiuna i Kaupmannahöfn.
Hún hefur haldið 2 einkasýningar
og tekið þátt i mörgum sam-
sýningum bæði hér heima og
erlendis.
Við opnun sýningarinnar mun
Manúela Wiesler leika á flautu.
Sýningin verður opin daglega
kl. 14-22 dagana 14. — 22. mars.
Nú stendur yfir:
Sólrisuháttð
á ísafirði
AB — Nú stendur yfir hin árlega
Sólrisuhátið á isafirði, sem
Listafélag Menntaskólans á tsa-
firði gengst fyrir. Stendur hátið-
in i eina viku, eða 8. til 15. mars.
Dagskráin er að venju fjöi-
breytt, og býöur hátiöin bæöi
upp á menningarlega skemmt-
un og kynningu. Hér á eftir
verður greint frá nokkrum
atriðum á Sólrisuhátið.
Fyrst er að geta þess að M.l.
fékk Alþýðuleikhúsið i heim-
sókn, og sýndi það „Pældi’ði” i
gær og i fyrradag.
Eins og getið var um i Timan-
um i gær fór Háskólakórinn
vestur á firði, gagngert til þess
að syngja á Sólrisuhátið og á
fleiri stöðum. Tónleikar kórsins
á Sólrisuhátið eru i dag kl.17 i
Alþýðuhúsinu á ísafirði. Efnis-
skrá tónleikanna einkennist af
islenskum verkum.
Þá fer fram kynning á skóla-
starfsemi M.t. i tengslum við
Sólrisuhátið. Menntaskólahúsið
veröur i dag frá 10.30 til kl.15.00
opnað almenningi og verða þar
kynntir nokkrir þættir úr skóla-
lifinu.
A sama tima verður samfelld
dagskrá á bókasafni skólans,
þar sem nokkrir nemendur
munu ganga i hlutverk kennara
og leitast við að kenna gestum
nokkuð af þvi, sem þeir hafa
verið að læra undanfariö.
Á bókasafni tsafjarðar verður
i dag opnuð grafiksýning Jó-
hönnu Bogadóttur, og er sýning
þessi einnig i tengslum við Sól-
risuhátið. Jóhanna mun sýna
nýjar myndir, allar unnar á sið-
asta og þessu ári. Jóhanna verö-
' ur viðstödd opnun sýningarinn-
ar ef veður leyfir.
Annað kvöld verður kvöld-
skemmtun i Alþýðuhúsinu og
hefst hún kl.21. Hljómsveitin
„Þeyr” mun leika, og 8 manna
söngflokkur frá tsafirði ætlar að
syngja fyrir gesti nokkur lög úr
Meyjarskemmunni eftir Schu-
bert. Þetta verður skemmtun
fyrir alla aldurshópa.
Umsjónarfélag einhverfra barna:
Heldur á morgun köku- og blóma-
basar að HallveigarstÖðum
Opnar basarinn kl. 14.00
■ Umsjónarfélag einhverfra
barna var stofnað árið 1977. Eitt
af aðalmarkmiðum féiagsins
hefur verið stofnun meðferðar-
heiinilis fyrir einhverf (geð-
veik) börn. Þau þurfa flest ævi-
langa meðferð, sem foreldrar
einir geta ekki veitt.
Rikið hefur nú fest kaup á
húseigninni Trönuhólum I og
verður þar starfrækt meðferð-
arheimili fyrir einhverf börn,
fyrsta sinnar tegundar á land-
inu. Umsjónarfélag einhverfra
barna er að hluta til ábyrgt fyrir
lokaframkvæmdum við heimil-
ið. Félagið aflar fjár með ýmsu
móti i þessu skyni og meðal
annars fengið viðurkenningu
skattyfirvalda á skattfrelsi
framlaga til heimilsjóðs félags-
ins.
Giróreikningur félagsins er
nr. 41480-8.
Margir hafa stutt félagið með
framlögum, bæði einstaklingar
og hópar, nú siðast hefur Kven-
félagið Hringurinn heitið riku-
legum stuðningi viö félagið. Fé-
lagskonur hafa alltaf haft það á
stefnuskrá sinni að hlú að veik-
um börnum, eins og Barna-
spitali Hringsins og Geðdeild
Barnaspítala Hringsins bera
vott um.
Sunnudaginn 15. mars heldur
Umsjónarfélag einhverfra
barna köku- og blómabasar. A-
góðinn rennur til meðferðar-
heimilisins. Basarinn hefst
kl.14.00 að Hallveigarstöðum
við Túngötu. Þeir sem leggja
leið sina þangað á sunnudaginn
munu vafalaust freistast af
gómsætum kökum og efnilegum
pottablómum.
Tónleikar
Dagnýjar
Björgvinsdóttur
Sunnudaginn 15. mars, kl. 3 síð-
degis verða burtfararprófstón-
leikar i sal Tóniistarskólans i
Reykjavík. Dagný Björgvins-
dóttir tekur burtfararpróf i pianó-
leik frá skólanum og verða verk
cftirtaiinna höfunda á efnis-
skránni:
J.S. Bach, Schubert,
Chopin og Sjostakovitsj. Dagný er
nemandi Margrétar Eiriksdóttur
og mun hún einnig ljúka pianó-
kennaraprófi frá Tónlistarskói-
anum i vor. öllum er heimiil að-
gangur meðan húsrúm leyfir.
BARNABOKA-
DAGAR
Guðni Kolbeinsson
kynnir börnunum
bækurnar um Herramennina i dag
kl. 3 i Baðstofu Bókhlöðunnar.
Bókhlöðunnar
Laugavegi 39
Þúsundir
barnabóka á
mjög góðu verði
<t>
4>
i