Tíminn - 16.05.1981, Blaðsíða 4
WFj Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
ígi
• Frá Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
18 ára gömul stúlka með barn á 1. ári ósk-
ar eftir að fá að búa hjá fjölskyldu.
Nánari upplýsingar i sima 25500 milli kl.ll
og 12. (Ólina)
Kennara vantar
Lausar eru skólastjóra- og kennarastaða
við grunnskóla Reykdæla Litlu-Laugum S-
Þing.
Nýtt 140 ferm. einbýlishús á staðnum.
Stöðurnar henta vel fyrir hjón með kenn-
araréttindi.
Upplýsingar i sima 96-43137.
Skólanefndin
Jörð til sölu
Jörðin Bergstaðir i Bólstaðarhliðarhreppi
i Austur-Húnavatnssýslu er til sölu og laus
til ábúðar á næstu fardögum.
Nýlegt ibúðarhús er á jörðinni og f jós fyrir
30 kýr.
Veiðiréttur i Svartá.
Nánari upplýsingar gefur eigandi Gestur
Pálsson.
Simi um Blönduós.
■
Þjóðræknisfélag
íslendinga
i Reykjavik heldur aðalfund sinn þriðju-
daginn 19. mai kl.20.30 að Hótel Esju 2.
hæð.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
3. Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor
ræðir um Guttorm J. Guttormsson skáld
og kynni sin af honum.
Svava Sæmundsson les úr ljóðum skálds-
ins.
Stjórnin.
Tilboð óskast
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar sem
skemmst hafa i umferðaróhöppum:
árg.
International Cargostar 1978
Oldsmobile Delta 1980
Oldsmobile Cutlas 1979
Daihatsu Runnabout 1980
Toyota Corolla 1977
Land Rover 1972
Lada 1500 1976
Bifreiðarnar verða til sýnis að Skemmu-
vegi 26, Kópavogi, mánudaginn 18. mai
1981 kl.12-17.
Tilboðunum sé skiiað til Samvinnutrygg-
inga Bifreiðadeild, fyrir kl.17, þriðjudag-
inn 19. mai 1981.
SAMVINNUTRYGGING4R
Ánnúla 3 - Reykjavik - Simi 38500
Bandarískir veiðimenn horfa ekki í aurana þegar
íslenski laxinn er annars vegar: ^
BORGA 24 MISUND
Á VIKU í GRÍMSÁ
■ Laxveiðimenn greiöa nú allt
að þrjú þúsund og fimm hundruö
krónur fyrir veiðidaginn f islensk-
um laxveiöiám. t Grímsá greiða
bandariskir viðskiptavinir þrjú
þúsund og þrjú hundruð dollara
fyrir vikuna I ánni, eöa 23.700
krónur, og er þá innifaliö fæði,
leiösögn og annað sem tii veið-
anna þarf. Ein laxveiðiá á land-
inu, Laxá á Ásum, hefur undan-
farin ár veriö mun dýrseldari en
Grimsá, en ekki tókst i gær að
afla upplýsinga um verð veiði-
daga i henni nú.
t viðtali við Timann sagði Þor-
steinn Þorsteinsson, formaður
Landssambands Veiðifélaga, að
þrátt fyrir þessi verð, hefði verð-
lag á laxveiðiám ekki fylgt fylli-
lega eftir þróun annars verðlags i
landinu undanfarin ár. Sagðist
hann þvi ekki sjá að það stæðist,
sem haldið hefur veriö fram að
sókn erlendra veiðimanna i is-
lenskar ár hefði sprengt upp verð
á þeim. Raunar hefðisala erlend-
is heldur dregist saman, frá þvi
sem mest var, og þvi væri hlutur
islenskra veiðiáhugamanna öllu
betri i dag en hann var.
Þorsteinn tók það fram, að
vissulega vildu þeir sem ættu
þessi hlunnindi i ánum, reyna að
fá sem hæst verð fyrir þau. Hann
bentiþó á, að þótt aðilar á banda-
riskum markaði greiddu 3.300
dollara fyrir veiðileyfi, kæmu
ekki nema 2.805 dollarar af þvi i
hlut bænda.
Samsvarar það um tvö þúsund
og átta hundruð krónum fyrir
hverja stör.g á dag, en til saman-
buröar má geta þess, að dýrasta
áin sem Stangaveiðifélag
Reykjavikur hefur á sinum snær-
um, Norðurá, kostar á dýrasta
tima átján hundruð krónur á dag
og er þá aðeins veiðileyfið innifal-
ið.
— HV
Stúdentar frá
Samvinnu-
skólanum:
Aldrei
fleiri
■ Framhaldsdeild Samvinnuskól-
ans var slitið 13. mai og útskrifuð-
ust 24 stúdentar að þessu sinni,
sem er stærsti hópur stúdenta er
útskrifast hefur frá deildinni til
þessa.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi
hlaut Tómas örn Kristinsson, frá
Reyðarfirði, 8,46, næsthæst var
Agústa E. Ingþórsdóttir úr
Reykjavik með 8,28 og þriðji
hæstur varð Helgi Hermannsson
austan úr Hvolhreppi i Rangár-
vallasýslu með einkunina 8,00
Meöaleinkunn stúdenta varð 7,22
sem er þá^rétt við að vera 1. eink-
unn.
Skólastjórinn Haukur Ingi-
bergsson, hélt skólaslitaræðu þar
sem hann rakti starf skólans s.l.
vetur. Jafnframt lýsti hann þvi
yfir að þetta væri siðasta ár sitt
sem skólastjóra við Samvinnu-
skólann. Gissur Pétursson flutti
ávarp af hálfu nýstúdenta.
— HEI
■ Þrjú á toppnum. Dúxinn, Tómas örn Kristinsson, til vinstri á mynd-
inni, og Helgi Hermannsson óska Agústu E. Ingþórsdóttur til ham-
‘nS3u- Timamynd Ella.
■ Hinmfrlði hópur nýstúdenta Samvinnuskólansþetta voriö. Haukur Ingibergsson, skólastjóri.er lengst
til vinstri en Svavar Lárusson, yfirkennari lengst til hægri.