Tíminn - 16.05.1981, Síða 15

Tíminn - 16.05.1981, Síða 15
Laugardagur 16. maí 1981 15 flokksstarfið Bingó að Hótel Heklu Rauðarárstig 18, sunnudaginn 17. mai n.k. kl. 15. Húsið opnað kl. 14. FUF í Reykjavik. Akranes Fulltrúaráð framsóknarfélag- anna á Akranesi efnir til fulltrúa- ráðsfundar mánudaginn 18. mai kl. 20.45 i Framsóknarhúsinu við Sunnubraut. Umræðuefni: Skipu- lagsmál Akraness til aldamóta, Erindi flytja: Magnús Ólafsson arkitekt og Ingibjörg Pálmadóttir frá skipulagsnefnd. Mætið vel og stundvislega Stjórnin Vinarferð. Enn eru nokkur sæti laus i ferðina til Vinarborgar 16-28. mai. Beint flug. — Lágt verð. Upplýsingar i sima 24480. Fulltrúaráðið FUF Hafnarfirði Aðalfundur ungra framsóknar- manna verður haldinn mánudag- inn 18. mai kl. 20.30 að Hverfis- götu 25, Hafnarfirði. Venjuleg aðalfundarstörf. Félagar fjölmennið Framsóknarfélag Garðabæjar og Bessa- staðahrepps Fundur með Jóhanni Einvarðs- syni kl. 17.30 i Goðatúni 2 þriðju- daginn 19. mai. Fjölmennið. Stjórnin j Frá Strætisvögnum l" Reykjavíkur Óskum að ráða starfsmann til starfa á hjólbarðaverkstæði SVR á Kirkjusandi. Upplýsingar gefur Jan Jensen yfirverk- stjóri i sima 82533 mánudaginn 18. mai kl. 13—14 eða á staðnum. BOapartasalan Höfðatúni 10, sími 11397. Höfum notaöa varahluti f flestar gerðir bfla, t.d. vökvastýri, vatns- kassa. fjaðrir. rafgeyma, vélar, felgur o.fl. I Ch. Chevette ’68 Dodge Coronette ’68 Volga ”73 Austin Mini ’75 Morris Marina '74 Sunbeam ’72 Peugeot 504, 404, 204, ’70, ’74 Volvo Amazon ’66 Willys jeppi ’55 Cortina ’68, ’74 Toyota Mark II ’72 Toyota Corona ’68 VW 1300 ’71 Fiat 127 ’73 Dodge Dart ’72 Austin Gipsy ’66 Citroen Pallaz ’73 Citroen Ami '72 Hilman Hunter ’71 Trabant ’70 Hornet ’71 Vauxhall Viva ’72 'Höfum mikiö úrval af kerru- efnum. Bilapartasalan, Höfðatúni 10. Slmar 11397 og 11740 Opið kl. 9-7, laugar- daga kl. 10-3. Höfum ópiö i hádeginu. Bflapartasalan, Höfðatúni 10. Ijóri Smurolían sem diogið geturúr bensíneyðslu bíla um S-7% Meiri smurhæfni, mínna slit, minnaeldsneyti. OORANDA Olís kynnir nýja smurolíu: Visco Coranda með LHC.* Visco Coranda tekur fram gæða- flokki (gæðastandard) API - SF sem vandlátir vélaframleiðendur gera nú kröfur um. Visco Coranda er fjölþykktarolía 10W/30. Ný framleiðsluaðferð Visco Coranda gerir mögulegt að nota þynnri olíu en fyrr. Slíkt eykur smurhæfni og minnkar mótstöðu í vél. Þannig minnkar bensíneyðslan verulega. Visco Coranda er mjög hitaþolin og heldur eiginleikum sínum við hinar erfiðustu aðstæður. Reynið Visco Coranda frá Olís. * LHC (Lavera Hydrocracker Compon- ent) er grunnolía sem BP hefur, eftir ára- langar rannsóknir, tekist að vinna úr hreinni jarðolíu. Visco BB OLÍUVERZLUIM ÍSLAIMDS HF. Skáksveitin úr Digranesskóia sem sigraði á skákmóti skól- anna i Kópavogi árið 1981. Krummi, sandhverfan og Branda Bedford A vorin koma út skóiabiöð i mörgum skólum landsins. Krakkarnir vinna þessi blöð með aðstoð kennara og oft liggur mikil vinna i slikum blöðum, ef um vönduð blöð er að ræða að efni og gerð. I dag verður hér á siðunni sýnishorn úr skólablaöi Digranesskóla i Kópavogi. 1 því er mikið og gott efni og eru sýnishornin tekin úr af handahófi. Krummi _ Þegar ég átti heima á As- braut og var úti að leika mér með vinum minum, þá gerðist dálitiö óvenjulegur atburður. Einn litlu strákanna lagöi af staðheim til sin. En eftir smá- stund kom hann aftur dauöskelkaður. Við spurðum hann hvers vegna hann væri svo hræddur. Þá sagði hann okkur, að það væri hrafn fyrir dyrunum og að hann kæmist ekki inn. Við fórum og athuguðum málið og fundum hrafninn við dyrnar. Seinna kom I ljós aö þetta var taminn hrafn úr Sædýra- safninu. Maöur kom siöar frá Sæ- dýrasafninu og sótti krumma. Auðunn Már Guömundsson, 11. deild 10 ára Sandhverfu- saga l'Einu einni var risastór sandhverfa. „Ó, það er svo leiðinlegt hér i sandhverfu- borg”, sagöi hún. „Alltaf það sama i útvarpinu”. Og viti menn, hún hélt af stað til islands. Allt i einu sá hún skelfilega sjón. Við henni blasti hákarl. ó, hvað hann var ljótur. Hvort hann var ekki ljótur. Hann var með opinn kjaftinn. Hann var tilbú- inn að gleypa hana f einum bita. Hvað átti hún nú til bragðs að taka? En af þvi aö hún var nú af sandhverfuætt- inni gæti hún kannski látið sig hverfa? Hún lagöist þétt á botninn. Hákarlinn fór i fýlu og synti burt. Sandhverfan leit i kringum sig ósköp varlega. „Off, úff, ja hérna. Jæja, ég get þá haldið áfram”. Hún synti nú og synti og gæðist oft upp á yfirboröið. En þegar hér var komið fann hún góðan svefnstað og sofnaði þar. Hana dreymdi að hún væri i sjóðandi heitum potti. Þegar hún vaknaöi var hún i munninum á hval. En hann var svo vitlaus aö loka ekki munninum. Hún synti þvi út um opiö og sú var nú snör i snúningum. Og þegar hvalur- inn ætlaði að fara að gá að henni lagðist hún niður i sand- inn. Það var heppilegt að vera sandhverfa. Nú sá hún gat, sem hún ætlaði aö synda út um. En þar skjátlaðist henni. Hræðilegt. Þetta var net og hún flæktíst í netinu og var dregin upp á yfirborðið. Einn maðurinn tók sandhverfuna og lét hana i poka og sagði: „Ég ætla aö eiga hana”. Þegar hann kom heim var hún höfö I kvöldmatinn og allir átu hana með bestu lyst. Þiö megin geta þrisvar, hver veiddi hana. Þið haldið kannski að það hafi verið afi minn. Nei. Þið haldið kannski að þaö hafi veriö maðurinn, sem átti bátinn. Nei, nei, ekki aldeilis. Það var hann pabbi minn. Ingibjörg Guðlaugsdóttir 7árá — 4.deild Branda Bedford BÞótt kisa min sé tveggja og hálfs árs gömul er hún alltaf jafnskemmtileg. Til dæmis á Þorláksmessu, þegar viö vorum að skreyta jólatréð, var hún i svaka stuði og stakk af með margar kúlur og faldi undir húsgögnunum. Branda hefur mikinn áhuga á simanum. Þegar hann hringir hleypur hún þangaö og reynir að færa skifuna og ýta á takkann. Hún hefur lika mik- inn áhuga á rennandi vatni, þótt hún vilji ekki detta ofan i það. Hún situr oft á baðkers- brúninni og starir hugfangin á dropana falla. Þegar mamma er aö þvo í þvottavélinni ham- ast hún með framlappirnar á glerinu framan á vélinni. Hún heldur kannski að hún sé að hjálpa til við þvottinn. Hún kemur til mln, þegar ég fer aö sofa og kúrir sig undir sæng hjá mér, svo að rétt sést i höfuðiö á henni. En af hverju heitir hún Branda Bedford, kynni ein- hver að spyrja? Jú, þegar hún var litil, var hún svo breiöleit að pabbi sagði: „Hún likist mest Bedford vörubil”. Þannig festist nafnið. Sigurður örn Eiriksson 12. deild. Ég skrifa Ég skrifa meö gulu svo það sjáist illa þvi ég er svo feiminn. Bókin min er bara fin meö blýanti ég skrifa Ihana aðaliega upp á grin og örlitið af þægð og vana. Arnfinnur Danielsson, 15 d. 11. ára Umsjón: Anna Kristín Brynjúlfsdóttir rithöfundur

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.