Tíminn - 23.05.1981, Page 20

Tíminn - 23.05.1981, Page 20
20 Sunnudagur 24. mai 1981 Deilurnar í skáksambandinu: QUM HVAÐ ER DEILT? Q var formaður nefndarinnar tók hann á móti nokkrum sendinefnd- um frá Sovétrikjunum og sjálfur hefur hann þó nokkrum sinnum fariö austur. Eru móttökur Sovét- manna, þegar hann er á ferðinni, mjög rómaðar... Ég spurði dr. Ingimar um samskipti hans við Sovétrikin. „Þetta er auðvitað ekki annað en svivirðilegur áróð- ur. Það er erfitt aö verja sig gegn sliku. Ég get þó nefnt að ég hef farið sjaldnar til Sovétrikjanna en til að mynda Ellert B. Schram!” Hver svo sem þessi samskipti eru þá hefur það orð- spor sem fer af Ingimar sem stuðningsmanni stefnu Sovétrikj- anna i alþjóðamálum orðið hon- um mikill fjötur um fót. „Ég vil ekki Moskvu-kommúnista i em- bætti forséta Skáksambands Is- lands,” sagði maður sem bætti siðan við: „Friðrik Ólafsson er nú að kljást við Sovétmenn vegna Korchnoi-málsins og það veikir stöðu hans mjög mikið ef forseti Skáksambandsins er hallur undir Sovétrikin, svo vægilega sé að orði komist.” Andstæðingar Ingi- mars hafa og dregið doktors-rit- gerð hans frammi dagsljósið en hún f jallar um iþróttir á Islandi á fyrra helmingi tuttugustu aldar frá marxisku sjónarhorni. „Rit- gerðin er mjög niðrandi fyrir ís- land og tslendinga” segir maður sem annars er fremur hliðhollur dr. Ingimar, en doktorsvörnin fór fram i Leipzig i Austur-Þýska- landi. Mjög voru skiptar skoðanir um það meðal þeirra sem ég ræddi við hvort pólitik dr. Ingimars skipti i raun og veru máli i sam- bandi við störf hans fyrir skák- hreyfinguna. Flestir voru ekki á þvi en þó er ljóst að stór hópur manna er honum fyrst og fremst andsnúinn vegna þess. Telja þeir fyrri deilur Ingimars og Einars S. Einarssonar harla léttvægar mið- að við það. Raunar skildist mér, af viðtölumvið stuðningsmenndr. Ingimars, að þeir teldu andstæð- inga hans aðallega i tveimur hóp- um. Annars vegar væru þeir sem af hreint og beint persónulegum ástæöum hötuðust við hann og hins vegar þeir sem teldu mest um vert að fria skákhreyfinguna við hina kommúnisku imynd sem fylgdi honum. Bar mönnum ekki saman um það hvor hópurinn væri að notfæra sér hinn. En þar sem frá var horfið: skiptir póli- tikin máli? Nokkrir sem ég talaði við voru á þvi. Nefndu þeir meðal annars að Þráinn Guðmundsson hefði hætt af þeim ástæðum fyrst og fremst. Hann vildi þó ekki fall- ast á þaö þegar ég ræddi við hann. „Ég var orðinn leiöur á þeim deil- um sem stóöu um forsetaembætti Skáksambands Norðurlanda. Það var þess vegna sem ég hætti. Auðvitað er alltaf einhver pólitik i svona samtökum en hún var ekk- ert aðalatriði.” Þá hafa menn bent á aö eftir að Ingimar tók við forsetaembætti I Skáksambandi Islands hafi öll samskipti við Sov- étrikin batnað stórlega. Meðal annars hafi öllum ungu alþjóða- meisturunum: Helga Olafssyni, ■ Haraldur Blöndal. Margeir Péturssyni og Jóni L. Árnasyni, verið boðið á skákmót þar austur frá, þótt sá fyrstnjefndi hafi ekki getað þekkst boðið. Einn stjórnarmanna i Skáksamband- inu tók þvi þó fjarri að þessi tengsl hefðu batnað óeðlilega mikiö. „Rússar hafa enn ekki sent okkur Karpov og þeir hafa ekki veitt okkur neinar ivilnanir varðandi stórmeistarana sina.” Loks hafa stuðningsmenn Ingi- mars bent á að i stjórn með hon- um eru menn úr fleiri flokkum en Alþýðubandalaginu. Þeirra á meðal er varaforsetinn Þorsteinn Þorsteinsson sem er Sjálfstæðis- maður. Kcmur nú Victor Korchnoi til sögunnar. Hann kom sem kunn- ugt er hingaö til lands um páska i boöi Taflfélags Reykjavikur og var það i tilefni stórafmælis fé- lagsins. Hefur heimsóknin verið mjög dregin inni deilurnar um forsetaembættið hjá Skáksam- bandinu og þá i þá veru að við- brögð dr. Ingimars sýni ljóslega að hann sé mjög á bandi Sovét- rikjanna i mannréttindamáli þvi sem Korchnoi á i við fyrrum landa sinum. Hafi stjórnin ekki sýnt neinn áhuga á að komast i samband við Korchnoi fyrr en menn hafi farið að undrast opin- berlega áhugaleysi Skáksam- bandsins. Ingimar og menn hans túlka þetta allt öðruvisi. Þeir segja að ekkert samband hafi verið haft við þá áöur en Korch- noi kom og þeim hafi á ýmsan hátt verið gert erfitt fyrir með að ná tali af honum. Þessu er svo aftur neitað i herbúðum andstæð- inganna, Skáksambandinu hafi verið skrifað bréf um komu Korchnois tveimur mánuðum áð- ur en von var á honum og þvi hægðarleikur fyrir það að gera eitthvað i málinu. Hvað um það: Korchnoi kom og það er til marks um heiftýðgi deilnanna innan skákhreyfingarinnar að heim- sóknin hefur verið notuð af báð- um aðilum til að sýna fram á slæmsku hinna. Einar S. Einars- son, Högni Torfason og áðrir sem voru i móttökunefndinni hafa haldið þvi fram, leynt og ljóst, að Ingimar hafi sýnt þessum öðrum sterkasta skákmanni heims þvi- likan dónaskap að við slikt verði ekki unað: Ingimarsmenn halda þvi á hinn bóginn fram að ef heimsóknin hafi ekki beinlinis verið skipulögð til að koma þeim illa, þá hafi boðsmönnum alla vega ekki verið mjög annt um að stjórn S1 næði sambandi við Korchnoi i boði sem haldið var i Höfða fyrir skákmeistarann og hann og Þorsteinn Þorsteinsson rituðu nöfn sin undir lista til stuðnings málstað Korchnois. „Ingimar fór dá}itið klaufalega aö i þessu máli,” sagði einn heim- ildarmaður, „en það var alla vega viðkunnalegt að fá nöfn hans og Þorsteins á listann.” Dálitið undarlegur angi úr þessu máli hefur siðustu daga skotiö upp kollinum: Þjóöviljinn flutti fréttir um það að þeir sem buðu Korch- noi hefðu alveg eins viljaö kastað ■ Matthias Johannessen. rýrð á Friðrik Ólafsson með heimsókninni. Ekki er gott að átta sig á þessum fréttum, Einar S. Einarsson hefur þvertekið fyrir þetta i blaðaviðtölum og talið þetta ekki svaravert en er Dag- blaðið náði sambandi við Korch- noi dró skákmeistarinn þessar fregnir ekki beinlinis til baka en sagði að þær væru komnar úr her- búðum Karpovs, til að veikja að- stöðu sina. Þjóðviljinn hefur svarað þvi til að heimildir blaðs- ins séu allt aðrar, nefnilega frá keppanda á skákmóti i Vest- ur-Þýskalandi þar sem Korchnoi tefldi nýlega og á að hafa látið þessi orð falla þar. Það er að visu enginn hægðarleikur að átta sig á þvi hvernig heimsókn Korchnois hafi gert Friðrik erfitt fyrir en sumir heimildarmanna minna hafa tekið fram að svonefnd „fjórmenningaklika” — en i henni vilja þeir telja Einar S., Högna, Guðfinn og Hólmstein — sé svo andsnúin Friðrik Ólafssyni að þeim sé sist á móti skapi að hann verði fyrir óþægindum. Spili þar inni bæði atburöir i Buenos Aires 1978 þegar Friðrik hafnaði Einari i embætti gjaldkera FIDE og hitt að vinsældir Friðriks hafi verið þessum mönnum þyrnir i augum. Hvaö hæft er i sliku skal enginn dómur á lagður enda neita aðrir þvi að nokkur slik „fjór- menningaklika” sé i rauninni til. Hitt er svo ljóst að stjórn Skák- sambands Islands visaði frá, og til hinna einstöku skákfélaga, er- indi frá Skáksambandi Norður- landa um að það lýsti yfirstuðn- ingi við baráttu Korchnois. ^Lðalfundur Skáksambandsins er einsog áður sagði eftir rúma viku. Þar á að fella dr. Ingimar Jónsson fyrst og fremst og ef til vill einhverja úr stjórn hans. Ég tel mig hafa öruggar heimildir fyrir þvi að falli Ingimar muni öll stjórnin segja af sér. Þeir eru hins vegar til — og eru ekki endi- lega neinir elskuvinir Ingimars — sem halda þvi fram að bröltið i andstæðingum Ingimars verði mjög sennilega til þess að hann haldi velli. „Skákmenn hlæja að þessu,” segir einn skákmaður. Andstæðingar dr. Ingimars hafa leitað að manni til þess að fella hann og sem stendur er liklegast að Pétur Eiriksson, forstjóri Ala- foss, fari i framboð. Allir, eða al- tent flestir, sem ég talaði við um þetta mál báru Pétri mjög vel söguna og töldu skákhreyfingunni mikiðaf gagn af starfskröftum hans. Hann lýsti þvi yfir hér i Timanum fyrir nokkrum dögum að hann væri „pólitiskt viðrini” og þaö telja bæði hann sjálfur og aðrir ótvirætt til kosta. Hann hef- ur ekki komið nálægt skákhreyf- ingunni i hátt á annan áratug en var um tfma formaður Taflfélags Reykjavikur við ágætan orðstir. Hann mun heldur ekki hafa hug á að bjóða sig fram nema það verði til aö lægja öldurnar innan Skák- sambandsins og einmitt það vakir fyrir flestum þeim sem leggja að honum að fara i framboð. Guð- finnur Kjartansson, sem mun ■ ölafur H. ólafsson. vera meðal helstu stuðnings- manna hans, lýsti þvi til dæmis yfir i Dagblaðinu að menn leituðu að nýjum mönnum sem ekki hefðu átt aðild aðhinum lang- vinnu deilum innan Skáksam- bandsins og væri þvi hlutlausir. Flestir virðast telja að hann sé i sjálfu sér rétti maðurinn til að lægja áðurnefndar öldur en hins vegar eru ýmsir þeirrar skoðunar að Pétur gjaldi kappsfullra vina sinna sem vinni gegn Ingimar meira af kappi en forsjá. „Ég verð aðsegja að ég vorkenni Pétri ef þetta eru vinir hans, þeir sem hafa staðið fyrir pólitiskum smöl- unum i skákfélögin uppá siðkast- ið,” sagði einn viðmælandi minn. Sú smalamennska hefur mjög verið i sviðsljósinu uppá siðkastið en svo virðist sem einhverjir menn hafi skrifað inni Taflfélag Seltjarnarness og Taflfélag Reykjavikur fjölda nýrra félaga i þeim tilgangi að þau félög fái sið- an fleiri fulltrúa á aðalfundinn. Þar er um að ræða menn sem tengjast fyrst og fremst tveim- ur stjórnmálaflokkum i landinu: Sjálfstæðisflokknum og Fram- sóknarflokknum. Það sem alvarlegast þykir — þvi allir viðurkenna að smalanir hafi ætið tiðkast i einhverjum mæli — er að ekki var haft sam- ráð við viðkomandi menn áður en þeir voru skrifaðir inni félögin. Matthias Jóhannessen, ritstjóri Morgunblaðsins, hefur til dæmis þrætt fyrir að hafa hugmynd um að hann væri allt i einu kominn i skákfélag og svipaðar yfirlýsing- ar hafa komið frá fieirum. Einn þeirra sem skrifaður var inni Taflfélag Reykjavikur — Sjálf- stæðismaður — hafði þetta um málið að segja: „Ég hafði ekki hugmynd um þetta en hins vegar var hringt i mig siöar og leitað hófanna hvort ég vildi ekki taka þátt i þvi að fella dr. Ingimar. Ég hafnaði þvi mér fannst ekki þetta koma mér við og ég veit ekki bet- ur en Ingimar hafi unnið ágætt starf hjá skákhreyfingunni.” Þessi maður vildi ekki upplýsa hver það hefði verið sem skráði hann inni félagið, kvaðst mundu eiga það við hann sjálfan. I Helg- arpóstinum i gær er þvi hins veg- ar varpað fram að Haraldur Blöndal hafi átt þarna nokkurn hlut að máli en Haraldur er i skákfélaginu Mjölni. Óneitanlegt erað nafn Haraldar kom oft upp i samræðum við hina og þessa menn en aftur á móti lögðu menn rika áherslu á að Halldór Blöndal alþingismaður sem einnig hefur verið orðaöur viö máliö, eigi eng- an þátt i þvi. „Halldór hefur aldrei unnið skákhreyfingunni nema gott eitt,” sagöi einn heim- ildarmaður sem telja má i flokki Ingimarsmanna. Annað mál i tengslum við þetta snertir full- trúa Taflfélags Reykjavikur á fundi Skáksambandsins. Sagt er að Guðfinnur Kjartansson hafi gert það að skilyröi þegar hann tók að sér að stýra félaginu sið- astliðið haust, að hann fengi að ráða öllum fulltrúum TR á aðalf- fundinn, aö undanskildum stjórn- armönnum þeim sem sjálfkrafa eiga rétt til setu á fundinum. Nú fyrir skömmu undirrituðu nokkr- ir félagar i TR bréf þar sem þess var krafist að greidd yrðu at- kvæði um það hverjir færu á aðal- fundinn. Meðal kunnra skák- manna sem skrifuðu undir bréfiö voru Sævar Bjarnason, Jóhann Hjartarson og Asgeir Þór Arna- son. Þetta bréf var tekið fyrir á fundi hjá TR og var samþykkt eftir mikil átök. Verða siðan greidd atkvæði á fundi næstkom- andi mánudag en samkvæmt heimildum minum mun Pétur Eiriksson ætla sér að ákveða framboð eftir þann fund. að sem einna mest áberandi er i sambandi við þetta mál er hversu mikil heift er i mönnum. Sumir þeir sem annars hafa ekk- ert á móti dr. Ingimar Jónssyni eru þeirra skoðunar að varla ná- ist almennilegur friður um hann i forsetastól, þvi sé nauðsynlegt aö finna annan mann. Aðrir stuðn- ingsmenn hans halda fast við það að hann hafi unnið gott starf hjá skákhreyfingunni og þvi sé ekki ástæða til að vinna gegn honum. 1 ritstjórnargrein i nýútkomnu ein- taki timaritsins Skákar segir rit- stjórinn, Jóhann Þórir Jónsson, sem gætt hefur hlutleysis i þessu máli, meðal annars: „A siðasta aðalfundi urðu mikil átök og af- drifarik. Næsti aðalfundur stefnir i sama blóðbaðið. Hætt er við að svo muni verða um framtið ef ekki linnir þessum byltingum. Rökin til þess eru þau, að þeir sem felldir eru hverju sinni eru vissulega ekki sérlega þakklátir fyrir það. Þá ekki sist ef þeir telja sig rangindum beitta. Þeir biða þvi næsta fundar og safna liði. Þessi nýja iþrótt, el svo má að orði komast, i skákhreyfingunni er mjög óheillavænleg fyrir skák- listina sem slika. Henni verður að koma fyrir og það strax. Aldrei má það verða að persónulegur metnaður manna gangi svo langt að eyðileggja þann mikla og góða hug sem til skáklistarinnar stend- ur. Fyrir dyrum er aðalfundur S.I. Augljóst er að átök verða um for- seta- og stjórnarkjör. Þau eru óviðunandi, en þvi miður óhjá- kvæmileg virðist vera eins og málum er háttað. Hver verður i framboði gegn Ingimari Jónssyni er kannski ekki endanlega ráðið, en ljóst er að Pétur Eiriksson, forstjóri Ala- foss, hefur gefið kost á sér til em- bættisins. Pétur var hér á árum áður mik- ill afkastamaður til góðra verka fyrir skákhreyfinguna, en hefur um nokkurt skeið látið Alafoss njóta krafta sinni eingöngu. Ekki er ég i vafa um ágæti hans, en harma að framboð hans skuli bera að með þessum hætti. Á liðnu ári hefur Ingimar og stjórn hans starfað vel og þvi raunalegt að til þessara átaka þurfi aö koma.” i ■ Jóhann Þórir Jónsson.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.