Tíminn - 23.05.1981, Síða 27

Tíminn - 23.05.1981, Síða 27
MIKILS VÆNST AF ANY TROUBLE Rokkað á fullu um hvítasunnuna Nú lyftist væntanlega brúnin á islenskum aðdáendum ný-bylgjunnar. Hingaö i fásinnið kemur á næstunni popphljómsveitin frá sjálfu heimsveldi poppsins: Any Trouble flokkurinn frá drauga- borginni Stoke, sem annars er þekktust fyrir knattspyrnu. Hljómsveitina skipa fjórir ungir og bráðefnilegir tónlistar- menn, Clive Gregson, Phil Bar- nes, Chris Parks, Marty Hughes en auk þeirra verður slaggígju- leikarinn Nick Coler með Í för- inni. t fyrra var strákunum slegið upp á forsiðu músikblaðsins Melody Maker og sagt að þeir væru skemmtilegasta rokk- hljómsveitin siðan „The Pret- enders” lögðu upp laupana. Þrátt fyrir aö þeir teljist til nýbygljuhljómsveita eru strákarnir svona mátulega gamaldags, þeir byrjuðu sem bilskúrshljómsveit i menntó, hlusta helst á Bitlana og Dylan i bland við vandaða þjóðlagatón- list. Nýverið kom fyrsta breið- skifan Any Trouble út, vitaskuld hjá Stiff forlaginu i London. Platan hlaut afbragðsgóðar viðtökur, þrátt fyrir að ekki ylli hún miídu rúmruski á vin- sældalistum. Það stendur þó allt til bóta, þvi annarar plötu hljómsveitarinnar er beðið i ofvæni. Hljómplötuútgáfan Steinar sem á veg og vanda að komu hljómsveitarinnar er ein- mitt i dafnandi sambandi viö Stiffplötur. Any Trouble er væntanleg til landsins 4. júni. Þeir munu spila viða i Reykjavik og nágrenni, en stóra stundin er þegar þeir troða upp á svokölluðum „Hvitasunnurokktónleikum” i Laugardalshöll 6. júni. Þeim til trausts og halds leika einnig á hljómleikunum Start, Tauga- deildin og Baraflokkurinn frá Akureyri — allt efnilegar islenskar hljómsvetir. Aðstandendur hljómleikanna kváðu vona að þeir færu hið besta fram, yrðu „verulega góðir rokktónleikar”, enda eru trakteringarnar ekki slorlegar, tvær efnilegustu hljómsveitir landsins auk þeirrar reyndustu i bland við eina af björtustu vonum Breta. Miðaverði er stillt i hóf. Hver miði kostar aðeins 75. krónur. Forsala hefst i hljómplötudeild- um Fálkans og Karnabæjar mánudaginn 24. mai. Og þá er bara að vona að Any Trouble leggi landið aö fótum sér. Allir boðnir á BAR-inn — sagt frá Brian Alexander Robertson, tónlistarmanni segja að hann væri ósköp venju- legur maöur. Blátt áfram, gamansamur, jákvæöur, sér- vitur skoti. A sinu stutta lifshlaupi hefur hann kynnst ýmislegu og væri ekki fyrir hvern sem er að koma út úr þvi með bros á vör. Alinn upp I Glasgow. Snemma vaknaði tónlistar- áhuginn, en þar sem foreldrar voru ekkert of vel stödd fékk hann ekki að útvega sér hljóö- færi til að leika á I hljómsveitum eins og draumur hans var. I stað þess var hann sendur i tónlistar- skóla og hann er meö E-gráöu i pianóleik. Þar sem hann fékk ekki að taka þátt i hljómsveitum þá byrjaði hann aö raula meö sjálfum sér heima hjá sér og ekki leið á löngu þar til hann var farinn aö semja sin lög sjálfur. B.A. Robertson leggur á það áherslu að hann er fyrst og fremst lagasmiöur.sem fyrir einhverja tilviljun hefur orðið frægur fyrir flutning á eigin lög- um. Þvi fyrst til að byrja meö þá samdi hann fyrir aöra og gerir reyndar enn. Það aö hann flutti sin eigin lög sjálfur var aldrei neitt nema nauösynlegur hliðar þáttur þess aö semja þau. Sinn fyrsta samning geröi hann við bandariskt fyrirtæki sem gaf J>ara út eina plötu með hon- um (I Memphis) og fór svo á hausinn. Upp úr þessu hóf hann samstarf við Herbie Flowers (nú I Sky). B.A. Robertson kveður þaö hafa verið honum mjög mikilvægt þvi Herbie hafi i raun kennt honum það sem hann kunni nú. Þeir tveir unnu saman að verkefnum B.A.R. og upp úr þvi fóru hljólin að snúast honum I hag. Restina þekkja allir. Nýja plata hans „Bully For You” er dæmigerö fyrir B.A.R. 011 eru lögin melódisk, textar hnyttnir og flutningur ágætur. Lögin eru flest, ef ekki öll, hugsuö þannig aö hægt sé að gefa þau út á litilli plötu. Best eru lögin „Saint Seans”, „Maggie” (sem er reyndar samið fyrir breska sjónvarps- seriu) og „Only One”. Hér er á ferðinni heilbrigður ungur ártisti meö jákvæða lifs- skoðun sem skln I gegnum tónlist hans. Hann kemur manni I gott skap. Hann á eflaust eftir að njóta vinsælda hér á landi i sumar. Gott veður og gott skap fara honum vel. M.G. — Það fór vist framhjá fá- um þegar skoski tónlistar- maðurinn B.A. Robertson heimsótti okkur i siðustu viku. Hingað kom hann i boði Karna- bæjar sem hélt upp á fimmtán ára afmæli sitt. 1 leiðinni kynnti B.A. Robertson sér aðstöðuna til hljómleikahalds hér, þvl hann hefur mjög mikinn áhuga á þvi að koma hér seinna á árinu og halda hér tónleika. B.A. Robertson er geðugur skoskur hæfileikamaður sem tekur þá hluti sem hann er að gera alvarlega, en meö bros á vör. Llfstill hans er látlaus og hann reykir hvorki né drekkur. Af stjörnu að vera myndi ég „Killing Joke” er enginn brandari —Þegar flugvélin lenti stigu tveir ungir menn út, sérkenni- lega klæddir og farangurinn voru tvær veiöistangir. Þeir þekktu engan hér á landi. Voru komnir hingað i veiöiskap og upplifelsi frá heimalandi sinu Bretlandi. Eftir að heföbundnir tungumálaerfiðleikar höfðu veriö yfirstignir hófust sam- skipti þeirra viö innfædda. Ein- hvern tima hrökk út úr ein- hverjum „Hvaö geriö þiö eigin- lega piltar?” Þeir kváðust vera I hljómsveit. „Og hvaö heitir hún?” Killing Joke”, og viti menn, hér voru komnir meölim- ir fremstu nýbylgjuhljómsveit- ar Breta. Áður en nokkur gat sagt „Killing Joke” var búið aö boða til blaðamannafundar og þar með var friið búið. Þeir heita Jaz og Geordie (nota ekki eftirnöfn) og eru helmingur kvartetts sem gerir þaö gott i Bretlandi og viðar þessa daga. Eftir velheppnaða hljómleika- ferð ákvaö hljómsveitin að taka sér fri. Youth (bassaleikarinn) fór til Bahamas (skynsamlegt), hinn Paul (trommari) fór til Parisar (skiljanlegt), en Jaz og Geordie komu til Islands (Islands?) Það var einmitt ein af þeim spurningum sem kom fram á blaðamannafundinum „Hvers vegna Island?". „Viö erum hingað komnir til aö veiða og til aö slappa af”. Aö ööru leyti neituðu þeir aö gefa upp ástæðuna fyrir higaðkomunni. Glottu bara lymskulega og kváöust vera á „mystery tour”. En hvaö er „Killing Joke”? Viö þvi fæst ekkert einhlitt svar. Þetta eru fjórif strákar sem lifa eftir ákveðinni lifsskoð un og reyna aö miöla öðrum af reynslu sinni og þvi sem þeir upplifa. Við Itrekuöum spurn- ingu^um það hvað „Killing Joke” væri. fékkst bara eitt svar. „Killing Joke”. Hljóm- sveitin hefur þegar starfaö saman I átján mánuöi og náð verulegri fótfestu 1 heimalandi sinu og viöa annars staöar. Hún hefur sent frá sér nokkrar litlar plötur og eina stóra. Tónlist þeirra er sérstök. Hún er þung trommu og bassa tónlist, takt- föst og inn I hana er vafið gitar og hljómborököflum. Textar eru handahófskenndir og ekki not- aöir til aö tjá neitt annaö en hljóðiö sem oröin mynda. Text- arnir eru sem sagt hluti af tón- listinni á annan hátt en við eig- um aö venjast. Hljómsveitin er mjög ákveðin meö það aö það sem hún er aö gera er að segja hinn bannvæna brandara „Kill- ing Joke”. Með þvi eiga þeir viö skoðun sina á lifinu og þvi þjóð- félagi sem þeir lifa i. Tónlistin er miöill, til aö tjá þau áhrif sem þeir veröa fyrir úr umhverfinu, þjóðfélaginu. Þeir taka hlutverk sitt alvarlega og hafa á prjónun- um önnur viöfangsefni en tón- listarflutning til aö tjá sig. A blaöamannafundinum lýstu þeir yfir ánægju sinni meö tsland á allan hátt og voru mjög áhugasamir um að koma hingaö I hljómleikaferö meö haustinu. Við skulum vona aö af þvi verði þvi hér er á ferðinni hljómsveit sem hefur eitthvaö aö segja og vel er þess viröi að hlusta á.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.