Fréttablaðið - 30.01.2008, Blaðsíða 15
H A U S
MARKAÐURINN 15MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2008
F Y R S T O G Í Ð A S T
„Ég á mér eitt mjög stórt hobbí
sem er golf, líkt og um það bil 30
þúsund aðrir sem þá íþrótt stunda
hér á landi. Og svo hef ég gaman
af tónlist og hef reynt að sinna
hvoru tveggja síðustu árin,“ segir
Þórður Hilmarsson, forstöðumað-
ur Fjárfestingarstofu Íslands, en
hann er félagi í golfklúbbnum
Keili og syngur í Selkórnum á Sel-
tjarnarnesi. „Og þó bý ég í Hafn-
arfirði,“ segir hann og hlær.
„Hér áður fyrr stundaði ég líka
hestamennsku, en það var allt of
bindandi. Ég gafst því upp á því
þegar ég var búinn að moka skít
í hesthúsinu í heilt ár. Þá seldi ég
bara,“ játar Þórður og kveðst hafa
verið með eina sex hesta og hest-
húsalengju á svæði Hestamanna-
félagsins Fáks.
„Golfið er hins vegar fíkn á háu
stigi er mér sagt. Alla jafna förum
við hjónin einu sinni til tvisvar
á ári í stuttar ferðir, viku eða tíu
daga, og þá gjarnan til Spánar,
bæði vor og haust. Og svo reyn-
um við að stunda þetta um helg-
ar og kannski einu sinni til tvisv-
ar í viku yfir sumartímann.“ Þórð-
ur bætir um leið við að algjör
forsenda golfiðkunarinnar sé að
þau hjónin stundi hana bæði. „Við
byrjuðum á sama tíma, vorum þó
raunar komin nálægt fimmtugu
þegar við byrjuðum,“ segir hann,
en synir þeirra hjóna stunduðu
báðir golfið af krafti og komu for-
eldrum sínum á bragðið. „Þetta
er áttunda árið sem við stundum
þetta og er ofboðslega gaman. Það
má vel stunda þetta sér til ánægju
þótt framfarirnar verði svo sem
hægari þegar fram líða stundir.“
Í þeirri tíð sem gengið hefur yfir
landið síðustu daga segir Þórð-
ur hins vegar lítið hægt að stunda
golfið. „Þá verður maður bara að
fara í ræktina. Annars er hægt að
spila þetta svona sjö til átta mán-
uði á ári. Vertíðin byrjar gjarnan
í byrjun apríl. En svo er náttúr-
lega öll aðstaða orðin þannig núna
að hægt er að stunda þetta nán-
ast allt árið. Í Keili, þar sem ég
er, er til dæmis toppaðstaða við að
æfa sveifluna, púttin og allt þetta.
Enda eru þarna tugir manna um
hverja einustu helgi að æfa.“
Þórður segist hins vegar stunda
sönginn án konunnar. „En ég hef
raunar lítið getað stundað hann
undanfarið vegna tíðra ferða til
útlanda. En á því ætla ég að taka
aftur í febrúar,“ segir hann og
vílar ekki fyrir sér að renna úr
Hafnarfirðinum yfir á Seltjarnar-
nes á kóræfingar, þótt um langan
veg sé að fara.
Skipti út hrossunum fyrir golfið
Þórður H. Hilmarsson, forstöðumaður Fjárfestingarstofu Íslands, hefur síðustu
ár stundað golf af kappi, allt frá því hann gafst upp á puðinu við að halda
hross. Forsendu golfiðkunarinnar segir hann vera að hafa konuna með.
SVEIFLAN Í SKAFLINUM Þórður H.
Hilmarsson hóf fyrir um átta árum að stunda
golf með konu sinni og hefur bakterían ekki
sleppt af þeim hjónum takinu síðan. Hann lét
sig ekki muna um að bregða á leik fyrir ljós-
myndara þrátt fyrir fannfergi og taka æfinga-
sveiflu í garðinum heima. MARKAÐURINN/VALLI
F R Í S T U N D I N