Tíminn - 30.06.1981, Blaðsíða 2

Tíminn - 30.06.1981, Blaðsíða 2
Þriðjudagur 30. júní 1981. í spegli tímans ÞAR FÉLL EPLIÐ LANGT EIKINNI I Þessi unga stúlka sem viðsjáum hérá myndinni með hestunum kemur eitthvað kunnuglcga fyrir sjónir. Það er ekki óeðli- legt, þar sem hún er engin önnur en Elizabeth Fran- ces Todd kölluð Liza dótt- ir Elizabethar Taylor og Mike Todd. Hún þykir minna mikið á mömmu sina svo mjög aö fnargir velta þvi fyrir sér, hvernig geti staðið á þvi aö kvikmyndaframleið- endur hafa ekki komiö auga á hana, þegar þeir hafa verið að leita að arf- taka Elizabethar Taylor. En staðreyndin er sú að Liza sjálf hefur af ráön- um hug haldiö sig viös fjarri þeim sviðsljósum, sem móðir hennar hefur baðað sig I allt frá 12 ára aldri, er hún lék sitt fyrsta hlutverk i kvik- mynd sem bar nafnið „National Velvet” og fjallaði um verölauna- gæðing. Liza hefur sjálf mikinn áhuga á hestum og hefur umgengist þá mikið, en siðustu >rin hefur hún einbe'U sér að listnámi i frægum skólum og hefur nú lokið háskólaprófi i þeirri grein. Hún hefur sýnt góða hæfileika sem myndhöggvari en engu aö siður segir hún það hafa komiö sér á óvart, þegar hún var fengin til að gera ódauðlegan með högg- mynd einn frægasta gæðing Kandarikjanna fyrr og siöar, Northern Dancer. Hún lagöi sig mjög fram við verkið, lagöi sig i lima við að kynnast hestinum og fylgjast með háttum hans. Arangurinn er nú kominn I Ijós og hefur hestsmynd- in hennar Lizu hlotiö ein- róma lof þeirra, sem séö hafa. ■ Liza Taylor meö hestsmyndina sina. 1 baksýn sjáum viö „fyrirsætuna”. Eig- endur Northern Dancer segja Lizu hafa tekist frábærlega vel að ná séreinkennum hestsins, en hann er slikur dýrgripur, aö folöld undan honum seljast á eina milljón dollara. Alfie >ggur bless- un sfna yfir þau ■ Það stóð ekki á giraff- anum AAfie, þegar honum gafstfc—ifcraað taka þátt i brúðkaupsfagnaöi vinar sins. Þaö má ekki mis- viröa þaö viö hann, aö hann neyddist til að lita niöur á brúöhjónin. Jean Drimmer og John Iaderoso, sem er „fóstri” Alfies i dýragaröinum i Bronx, New York. Vigslan fór fram i garöin- irm. Aumingja asninn! ■ Ferðamannatiminn er litla asnanum, honum Nikulási heldur en ekki erfiður. Nikulás á heima á einni af hinum minni grisku eyjum i Eyjahaf- inu, þar sem litiö er um samgöngutæki. Svo þegar koma skip eða bátar með ferðamenn sem vilja sjá sig um á eyjunni þá má Nikuiás litli þramma klukkutimum saman með stóra og feita túrista á bakinu — og meira að segja láta sumir sig hafa þaö, að dangla i hann með priki sem þeim er fengið i hendur til að hotta á hann með ef hann er latur i hitanum. Enn kemst Mar- garet Trudeau í f réttirnar ■ Margaret Trudeau, fyrrum forsætisráðherra- frú Kanada, hefur lagt sig inikið fram við að hneyksla fólk siðustu ár- in. Það þótti þvi ekki verra en hvað annað, sem hún hefur tekið sér fyrir hendur, þegar hún loks svipti hulunni af þvi hver karlmaöurinn i lifi henn- ar um þessar mundir er. Hann heitir James John- son.er hátt á fertugsaldri, fráskilinn og rekur hús- gagnaverslun i Ottawa. Reyndar hefur þetta ástarsamband verið á vitorði siðprúðra ibúa Ottawa i marga mánuði. En svo virðist sem Margaret hafi verið orðin leið á þvi ófréttnæma lifi sem hún hcfur lifað að undanförnu og þvi gripið til þess ráðs að upplýsa heiminn nú um að hún búi meö James Johnson. Það er vonandi, hans vegna. Ein af mýmörgum að- ferðum Margaretar Trudeau til að vekja á sér athygli var að taka þátt i kökukastskeppni. Fyrir bragðið komst hún i heimspressuna og til þess var jú leikurinn gerður! að hún valdi honum ekki svipuðum vandræðum og fyrrum eiginmanni sin- um, en uppátæki hennar á siðustu 4 árum, eða siöan hún yfirgaf Trudeau og 3 syni þeirra, hafa verið með ólikindum og gert aðstandendum hennar lif- ið leitt. Fangavörðurinn úthýsti fanganum B 27 ára gamall sakamaður að nafni Hans Biemeier i Karlsruhé i V- Þýskalandi lenti nýlega i fáheyrðum erfiðleikum, — hann fékk ekki að kom- ast inn i fangelsið sitt, þar sem hann átti að sitja af sér 16 mánaöa dóm. Honum var úthýst! Það hófst með þvi, að strax og dómur hafði ver- ið kveðinn upp yfir Hans Biemeier i dómshúsinu i Karlsruhe, þurfti hann á læknishjálp að halda og var sjúkur nokkra daga. Siöan fór hann sjálfur til fangelsisins, þar sem hann bjóst við að sin væri vænst, en hann hafði ekki á sér nafnskirteini, eða önnur sönnunargögn um hver hann væri, svo hon- um var vfsaö frá fangels- inu, þar sem hann gat ekki sannað að hann væri sakamaðurinn Hans Biemeier. Hann fór dauf- ur i dálkinn á næstu lög- reglustöð og bað um aö- stoð. Lögreglan gekk úr skugga um að hann væri sá sem hann sagðist vera, og ætti með réttu að vera i fangelsi staðarins. Lög- reglumaður hringdi siðan i fangelsisstjórann og nú var tekið á móti Hans og hann beðinn afsökunar á fyrri móttökum. Talsmaður fangelsis- stjórnar sagði að þessi at- buröur hefði orðið vegna þess, að sifellt kæmu ein- hverjir, sem hreinlega vildu bara fá húsaskjól og mat. Þeir reyndu að plata sig inn i fangelsið eins og einn sólarhring meðan verið væri að kynna sér mál þeirra. „Við rekum ekki neitt hótel hér fyrir umrenn- inga,” lauk hann máli sinu, er hann útskýrði máliö fyrir blaðamönn- um. Iðrunarfullur ® Starfsfólkið i kjörbúð i Manchester i Englandi gapti af undrun, þegar það fylgdist meö konu, sem þegar hafði borgað fyrir innkaupin sin, vera að skila öllum vörunum afturá rétta staði i hillun- um. Þegar verslunar- stjórinn bað um skýringu á þessu framferði, gaf konan þaö svar, að tveim búðarþjófur mánuðum áður hefði maöur hennar komið inn i þessa sömu verslun og borið út með sér vörur að virði 3,57 sterlingspund, án þess að greiða fyrir. Siðan hefði hann þjáðst af samviskubiti og nú væri hún komin til að bæta fyrir misgeröir hans. Siðan baðst hún afsökun- ar fyrir hönd manns sins. ■■■■■■■■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.