Tíminn - 30.06.1981, Blaðsíða 5

Tíminn - 30.06.1981, Blaðsíða 5
Þriöjudagur 30. júní 1981. „E :in 01 ’NA ST ALI E IÐII N 1 FYR- II R1 FÍKI NIEI FNI IIN N III L ANDIÐ — segir Fridjón Guðröðarson, sýslumadur á Höfn ■ „Smyrill er hrein plága og ég tel hann eitt mesta vandamál sem hingaö hefur borist siöan spánska veikin og svarti dauöi herjuöu hér”,sagöi Friöjón Guörööarson, sýslumaöur á Höfn, f samtali viö Timann, en sýslunefnd hefur ný- lega samþykkt áskorun á viö- komandi stjórnvöld aö heröa eftirlit meö ferjunni og farþegum hennar, svo komiö veröi I veg fyrir innflutning ólögmæts varn- ings og útflutning náttúrugripa, þar sem rökstuddur grunur sé um hvort tveggja. Friðjón sagði allt eftirlit þarna algert kák. Um 200 bilar fari þarna frá borði og annar eins fjöldi um borðá 2-3 klukkutimum. Þetta renni i gegn eins og fé úr rétt og aðeins séu teknar örfáar stikkprufur. „Það er opinbert leyndarmál, að þetta er ein opnasta leiðin fyrir fikniefni inn i landið. Enda ævin- lega eitthvað slikt fundist þegar leitað hafi verið að marki. Samt sé ekki haft fyrir þvi að nota hunda til leitar, nema kannski svona einu sinni á sumri”, sagði Friðjón. Á hinn bóginn væri verið að stripa landið suð-austanvert af náttúruminjum. Ástandið væri orðið þannig, að steinasafnarar finni nánast ekkert lengur. Lög- reglan á Höfn hafi margsinnis lent i þvi að hafa afskipti af út- lendingum er lent hafi i um- ferðaróhöppum. Þeir bilar væru yfirleitt stútfullir af grjóti, ýmiss- konar plöntum og jafnvel eggj- um. „Þetta er rányrkja og hrein at- vinnumennska”, sagði Friðjón. Fólkið selji þessa hluti erlendis með góðum hagnaði. Þá kæmi þetta lið lika með fulla bila af varningi, matvörum sem margar væri ólöglegt að flytja inn i landið, jafnvel gæludýr og siðan byssurog veiðistengur. Þær gætu verið stórhættulegt fyrirbrigði og spursmál um smit. Friðjón sagði það ráðuneytis- ins að hafa forystu i þessu máli. Yfirstjórn tollamála, löggæslu- mála og útlendingaeftirlits verði eitthvað að gera. Hann tók hins- vegar fram, að ekki væri við Seyðfirðinga að sakast. Þeir hafi að ýmsu leyti staðið sig vel m.a. byggt góða aðstöðu sem nýta mætti til miklu meira eftirlits. En eitt litið sýslumannsembætti geti ekki ráðið við þetta. Hins vegar mætti kippa þessu i lag með smá skipulagsbreytingu. Láta þá sem ætla úr landi mæta nokkrum klukkutimum fyrr og fara þá gegn um tollskoðun, þar sem bilarnir yrðu siðan geymdir i girðingu.Hinir yrðu siðan að nota nokkra klukkutima til að fara i gegn um tékk. Þetta ætti þó ekki að þurfa að seinka skipinu neitt að ráði. —HEI 10. Helgar- skákmótið: Friðrik og Jón unnu ■ Friðrik Ólafsson og Jón L. Arnason urðu efstir og jafnir á 10. helgarskákmótinu sem haldið var i Grímsey og lauk á sunnudag. Þeir fengu báöir 5 v. af 6 mögu- legum og þvi 2500 kr. hvor í verð- laun. Þeir Helgi Ólafsson, Guðmund- ur Sigurjónsson, Guðmundur Plmason og Gunnar Gunnarsson skiptu með sér þriöju verðlaun- unum en þeir fengu allir 4,5 v. Af kvenmönnunum varð Ólöf Þráinsdóttir efst með 3 v. Aukavinning 10.000 kr. hlaut Helgi Ólafsson fyrir bestan ár- angur í siðustu 5 helgarskákmót- um. FRI Rússarn- ir koma ■ Þegar flugvél Landhelgisgæsl- unnar var f eftirlitsflugi NA af Langanesi utan 200 milna, komu menn auga á mikinn flota fiski- skipa A-Evrópuþjóða, og tókst að telja 119 skip. Talning var erfið, en giskað er á að alls séu þarna um 200 skip, frá þvi um 400 lestir og upp I stór verksmiðjuskip. — AM Vísindasjóður: Úthlutad 93 styrkjum ■ Stjórnir Visindasjóðs hafa nú úthlutað 93 styrkjum fyrir árið 1981. Veittir voru 74 raunvisinda- styrkir, en 46 hugvisindastyrkir. Þó fjöldi styrkjanna sé þannig á- h’ka mikill fyrir báðar deildir sjóðsins, þá nema raunvisinda- styrkir mun hærri upphæöum, eða samtals 2,1 milljóna króna, heldur en hugvisindastyrkir sem aöeins nema samtals um 1 mill- jón króna. Sé styrkjunum skipt niöur á einstakar fræðigreinar, þá eru 16 þeirra til verkefna i sagnfræði, en 14 til verkefna i erfða-, dýra-, grasa-, líféðlis- og vistfræði. At- hygli vekur að aðeins 1 styrkur er til verkefnis i hagfræði, og .1 til verkefnis í verkfræði. Sá hæsti af einstökum styrkj- um, er að upphæð 150 þúsund krónurog rennur hann til Verk- fræðistofnunar Háskóla íslands. Slasaðist þegar togvír slitnaði ■ Véladeild Sambandsins hefur tekið aö sér umboð fyrir Star-Line fyrirtækið í Florida en þaö sér- hæfir sig í innréttingum og yfir- byggingum sjúkrabila. Fyrsti bíllinn, sem er af Chevrolet gerð, er nú kominn til landsins en hann fer til RKI deild- ar Skagafjarðar. Sjúkrabifreið þessi er sú full- komnasta sem hingað tii hefur verið flutt til landsins en öll tæki i hana eru valin af kaupendum i samráöi viö framleiðendur með tilliti til langra og erfiöra sjúkra- flutninga. Völ er á ýmsum búnaði frá Star-Line en verð á Chevrolet Chevy Van AStar-Line er um 200.000 kr. kominn á götuna án tdla og söluskatts. Maður slasaðist um borð i togaranum Klakki VE-103 nokkru eftir há- degið á sunnudag. Vildi slysið þannig til að vir um borð i skipinu slitn- aði og slóst i manninn. Hafði hann miklar inn- vortis kvalir. Hannes Hafstein, fram- kvæmdastjóri SVFl, sagði að þyrla með eldsneytisvél frá varnarliðinu hefði veriö fengin til þess að vera viðbúin, ef á hefði þurft að halda, en þar sem skipiö áttiaðeins eftir um tveggja tima siglingu til Patreksfjarðar, varð ekki af þvf aö maðurinn yrði tek- inn upp i þyrluna. Kom skipið til Patreksfjarðar kl.17 og var mað- urinn fluttur i sjúkraflugvél sem beið á vellinum vegna annars sjúklings, til Reykjavik. —AM skattskráin: ■ Skattar lögmanna verða undir skattasmásjánni i dag. Valdir hafa verið út af handa- hófi fimm lögmenn: Benedikt Blöndal, Einar Viðar, Guðjón Steingrímsson, Gylfi Thorlacius og örn Clausen. i þessum fimm manna Iög- Skattar lögmanna athugaðir: Benedikt Blöndal Gylfi Thorlacius Órn Clausen Benedikt Blöndal ber af manna-hópi bér Benedikt Blöndal eins og gull af eiri, hvað skatta og áætlaðar tekjur snert- ir. Hann græðir tæpar 10 millj. gkr. Iskatta, og hefur haft rúm- ar 16 millj. gkr. I tekjur, miðað við álagt útsvar. Næstur honum kemur Einar Viðar, sem greiðir tæpar 6 millj. gkr. i skatta, en hefur haft rúm- ar 11 m ilij. gkr. i tekjur. I þriðja sæti er Gylfi Thorlacius sem greitt hefur tæpar 5 millj. gkr i skatta, og liklega haft rúmar 10,5 millj. gkr. i tekjur. Allt í gömlum krónum: Nafn: tekjusk. eignask. útsvar samtals áætl. tekj. Benedikt Blöndal 7.595.200 0 1.926.000 9.925.998 16.212.121 Einar Viöar 3.697.584 44.831 1.307.000 5.805.619 11.001.683 Gylfi Thorlacius 1.860.428 366.642 1.263.000 4.845.588 10.631.313 Guðjón Steingrimsson 2.240.293 142.022 1.098.000 4.253.776 9.242.424 örn Clausen 1.095.850 233.103 618.000 2.495.545 5.202.020 ATH.: Skattar ársins 1980, vegna tekna ársins 1979. Næstur er Guðjón Steingrims- son, en lang neðstur er Orn Clausen. Hann greiðir helmingi minni skatta en þeir lögmenn sem næst honum korna, og virð- ist að sama skapi hafa haft helmingi minni tekjur en þeir sem næst honum koma. En litum á töfluna. Eins og fyrri daginn skal það tekið fram að hér er um skatta ársins 1980 að ræða, vegna tekna ársins 1979. Á þvi ári voru meðaltekjur kvæntra karlmanna um 6 millj. gkr. Frá árslokum ársins 1979 ertaliðaðlaunhafi að meðaltali hækkað um 60-70%. Kás.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.