Tíminn - 21.07.1981, Síða 9

Tíminn - 21.07.1981, Síða 9
Þriðjudagur 21. júli 1981 9 //Mín skoðun er sú að biðja útvarpsráð að fyllast ekki af neinum trega þó stytta þurfi bæði hljóðvarps- og sjónvarps- dagskrá og ég myndi hiklaust leggja til að svo væri gert þó að engin f járhagsvandræði væru." hugsun á blað. Skyldi ekki ein- hver annállinn hafa orðið óskráður hefði þetta glumið i her- bergjum þeirra sem þá rituðu? Og skyldi það ekki jafnvel hafa getað orðið Skarðsbók? Veit ég vel að viðhorfin eru allt önnur nú en gæti samt ekki skeð að þetta menningartæki, afnotað, hefði enn þessu likar afleiðingar? Auðgripið til ginningar- innar Nú er fast sott á það að fá af- numinn einkarétt rikisins á út- varpsflutningi. Ætla menn með frjálsu útvarpi, eða hvað þeir vilja kalla það, að veita hlust- endum miklu betri þjónustu, svo ég noti þelta margþvælda orð? Það er nú svo að þjónusta er ekki lengi veitt með frjálsu framtaki nema þénusta fylgi. Og til að afla þénustunnar er margt reynt og ekki ævinlega þjóðhollt. Og i þessu efni er auðgripið til ginn- ingarinnar, að senda út það sem kittlar og æsir, og er þvi keypt. Hinn háttvirti neytandi, sem samkvæmt nýjustu kenningum á helst að stjórna öllu sem sagt er og gert, þyrfti að læra að gjalda varhug við ginningunni áður en honum er trúandi til að velja og hafna svo mannheill sé að. Auð- vitað segja fylgjendur þessa einkaútvarps að hér sé ekki um neitt ótakmarkað frelsi að ræða, þvi allt sé háð lögum og reglum. Ójá, en það hefir nú oft reynst erf- itt að hafa refsivönd réttlætisins alltaf á lofti og ljóstra honum á réttan stað þegar allt er flækt og þvælt fram og aftur. Misferlin verða þá að koma i ljós áður en farið er að refsa og i þessu tiiviki hafa þau þá gert sitt. Otvarpsráð er ekki undir lagt þá freistingu að senda út ginn- ingarefni eða hlaupa eftir hégóm- legum óskum. Hann Eiður Guðnason græðir sjálfur ekki tú- skildings virði þó honum auðnist aðsánka svo miklum fjármunum i rekstur útvarpsins að hann geti látið það glymja svo að segja allan sólarhringinn i samkeppni við það sem þegar er fram komið og koma kann. Hann stendur þvi hreinn og ómengaður með sina skoðun. En ég er sannfærður um að það er ekki það sem er æski- legast. Ég heyrði einu sinni tvo menn ræða um siðgæði og siðleysi og réttíætti annar siðleysið mjög fimlega. Ekki er égþó viss um að hann hafi meint það sem hann sagði. Nokkuð var það að hann hætti snögglega deilunní og sagði: ,,Er ekki best að hafa það eins og maöurinn sagði, ef maður getur ekki komið i veg fyrir sið- leysið er langbest að samþýðasl þvi?” Langt er i frá, að ég haldi að hann hafi meint þetta heldur. En er það ekki að samþýðast ósómanum að láta útvarpið damla allan sólarhringinn af þvi að ofmargir neytendur eru esp- aðir til að krefjast þess? Ég er lika ósköp smeykur um að þessir kröfuhafar allir saman séu ekki fullkomlega heilbrigðir hlust- endur og óhorfendur, heldur eins- konar ofmettaðir fúlsunnar geml- ingar sem vilja fá eitthvað nýtt i jötuna og þvi litil von til þess að þeir fóðrist nokkurntima vel. Fróðlegur umræðu- þáttur Ég heyröi rylega og sá I sjón- varpi umræöuþátt um þetta efni. Hann var mér gróflega fróðlegur. Ég hafði raunar heyrt meðmæl- endur einkaútvarps hlakka yfir þvi aö útvarpið — sjónvarp fengi samkeppni þó einkaréttur væri ekki afnuminn, en það var viðs fjarri að ég heföi gert mér grein fyrir að þetta væri svona langt á veg komið sem þar var upplýst i samtali við mann sem virtist starfandi eða jafnvel frumkvöðull að þessari nýjung. Þessi maður greindi svo frá að notendur myndu vera um 30 þús. Sjálfsagt kostar þetta allmikla fjárhæð og býst ég við að eitthvað heyrðist i stjórnarandstæðingum a.m.k. ef rikisstjórnin tæki slika upphæð i ska tta. Talað var við einn neytandann sýnilega barnamann og sagði hann að mest væru það barna- myndirsem sýndar væru. Jú, þvi ekki að stinga þar á sem þynnst er fyrir. Mér er sem ég heyri blessuð börnin hrópa: þvi sést ekki i’ þessu sjónvarpi eins og heimahjá Lilla? Það er svo aga- lega gaman að þvi. Biðjið einhvern annan en mig aö hlúa að því að þeir sem vinna aðútbreiðslu þessarar nýju tækni eða keppa að frjálsu út- varpi — eða hvaö á að kalla það—séu boðberar sannrar menningar, eða starfsmenn hennar. Heldur fengist ég til að gangast inn á það að starfsemi þeirra væri tengd höfðingjanum sem Jón Vidalin segir að gangi um eins og grenjandi ljón, leit- andi að þeim sem hann fær upp- svelgda. Hófstilling besta leiðin Nú býst ég við að sagt sé að ef spornað er við öllu nýju og það tekst verði útkoman sú að þjóðin sitji alltaf á sömu sinuþúfunni og horfi upp í sama moldarbarðið og ekki er það glæsilegt. Skyldi þá vera aífarasælla að brjótast um I feni eðlisgræðgi og lifsfrekju þó mögulegt sé að imynda sér að sýn gefi til meiri hæða en moldar- barðsins. Þetta eru heldur ekki einu valkostimir. Þriðja leiðin er tilog henni verður best lýst með oröinu hófstilling. Ég held að það væri ekki úr vegi fyrir islensku þjóðina að svipast dálitið ákveðið eftir þeirri leiö. Og það get ég sagt útvarpsráði og dagskrár- gerðarfólki tilhróss að mér finnst að það í sameiningu hafi sýnt mjög þokkalega viðleitni i þá átt i sambandi við sitt yfirráðasvæði. Ali't ég þvi stórum meir til meins en bóta að moka inn á þetta svið vafasömum nýmælum sem fram- kvæmd eru utan við yfirstjórn þessara aðila. Auövitaö trúi ég þvi að þessa starfsemi mætti stórbæta með meira fjármagni og lifandis ósköp væri gaman og gagnlegt ef það tækist verulega vel. En þið sem þessu stjórnið, hikiö ekkert við aö stytta dag- skrána til þess. Kristján Jónsson, Snorrastöðum. þó, að við moldina varð að losna. Kom upp sú snjalla hugmynd, að setja þessa mold utan vegar við Ægisiðu, en þar höfðu menn, sem byggðu i Skjólunum og við Ægislðu og fleiri götur, sett mold úr sinum grunnum, fyrir þrem áratugum eöa svo. Þá varð fyrra moldarfélagið til. Menningarmenn, heildsalar, fólk i trimmgöllum og regnfötum, fór á stúfana og i einum grænum var stofnað sérstakt moldarfélag. Ég veit ekki hversu vlðfemt fé- lagssvæðið var, en þó var okkur á Sólvallagötunni boðin þátttaka i þessu merka félagi fyrir 25 krónur, og það af sjálfum aðalrit- stjóra þessa blaös, sem nú vill ekkert við sina mold kannast. Allt i einu var þetta svæði nefni- lega orðið liffræðilega heilagt, þótt lifrikið sé nú varla merki- legra en það, að álitamál er hvort þar er meira af njóla en á al- þjóðaflugvellinum i Rómaborg, en ekki hefur fundist enn það eit- ur, er á honum hefur getað unnið. Yfirvöld höfðu 1 sakleysi sinu ætlað að gjöra þarna skemmti- garð, en runnu auðvitað á rass- inn, þvi ekkert óttast stjórnmála- menn vist meira en moldina og undirskriftir, og þá sérstaklega nafnnúmer, ef þau fylgja. Og endirinn varð sá, að þeir á Eiðsgrandanum halda áfram að ausa Atlantshafinu á liggjand- anum og krafsa i moldarfjallið, sem sifellt hækkar og við moldar- félaginu á Ægisiðunni verður ekki hróflað, þvi seinast þegar þar var raskað jörð kom upp buddulaus beinagrind af lúnum karlmanni, annað ekki. Utanbæjarmenn stofna moldarfélag Ég var ekki almennilega búinn að átta mig á þvi, hvers vegna mér hafði verið boðið i fina moldarfélagið við Ægisiðu fyrir 25 krónur, maöur sem á enga mold, þegar enn eitt moldarfé- lagið var stofnað, og nú voru það ekki þessir á njólavöllum. Nú voru komnir af stað nokkrir utan- bæjarmenn, sem orðiö höfðu æfir út af þvi að fáeinum hjólbörum af mold hafði veriö ekið úr túnbleðli viö Bernhöftstorfuna. Þar voru I forsvari Tómas Guö- mundsson, skáld frá Efri Brú I Grimsnesi, sem haföi þó allan Grafninginn fyrir augunum, meðan hann var að fá skáldaaugu i æsku. Ragnar Jónsson I Smára, frá Mundakoti á Eyrarbakka. Arni Bergmann ritstjóri sunnan með sjó og svo auövitað Matthias Johannessen, sem alltaf er hafður meö á moldarvixlum menningar- innar. Þó nú væri. Konan sem bað mig að skrifa, spurði hvort ég væri á móti grasi? Og ég verð að játa að ég var ekki viss, en öldungis óviðbúinn. Hélt reyndar fyrst að nú ætti að fjölga taflmönnunum eins og borgar- fulltrúunum, þannig að ég bað nú um frest. Og ég á nú eftir að sjá eftir þvi, vegna þess að tiu þúsund manns gengu i moldarfélag utan- bæjarmannanna. Sigurður A. Magnússon, maöur ofan úr Mos- fellssveit, sem hefur þó eitt mesta jarðrask af manna völdum fyrir framan sig flutti fjallræðu og kallaöi fyrir sig borgarstjórann i Reykjavik og afhenti honum tiu þúsund manns, nafnnúmer og allt, sem heiti hefur, og þar með hefur moldarfélag r.o. 2 unnið sigur, sem ekki veröur taiinn minni en hjá beinafélaginu við Ægisiðu. Reykjavik er undarleg borg. Lengi vel hélt ég aö leiðakerfi Strætisvagna Reykjavikur væri þó torskildasta gáta þessarar borgar. Nú er ég ekki lengur viss. Moldarfélögin eru að slá þetta allt saman út. Og maður spyr, er þetta að verða þannig að menn utan af landi, ráði þvi alfarið hvað gert er við mold i Reykja- vik. fjölmiðlun Gagnrýni og góð blaðamennska ■ Ýmsir hafa komið að máli við mig vegna þessara vikulegu pistla um fjölmiðlun, sem birst hafa á þessum vettvangi. Ekki er annað að heyra, en sá stakkur, sem þeim hefur verið sniðinn, falli lesendum almennt þokkalega i geð, og sú upplýs- inganiiðlun um fjölmiðlun, sem ég hef hér reynt að stunda hafi borið einhvern árangur. Þó hafa nokkrir spurt, hvers vegna ég fari ekki út i beina gagnrýni á þá dagbundnu fjölmiðla, sem starfandi eru i landinu, og segi álit mitt á einstökum dagskrár- þáttum útvarps og sjónvarps. Upplýsing. Þvi er til að svara, að út- varps- og sjónvarpstimi hefur til skamms tima verið eina umfjöllun um fjölmiðlun hér- lendis, sem birtst hefur. Ég er ekki að amast við útvarps- og sjónvarpsrýni, er eins og ég hef áður getið um i þessum pistlum, tel ég þörf umræðu og upplýsingar um fleiri þætti fjölmiðlunar i landinu. A vissan hátt lit ég á þessa þætti sem eins konar fræðslu- efni, enda tel ég, að fjölmiðl- arnir hafi ekki sinnt fræðslu um fjölmiðlun nægilega vel. Flestum öðrum þáltum þjóð- lifsins hafa verið gerð betri skil en þessum áhrifamikla þætti. En nóg um það að sinni. En úr þvi að ég er farinn að helga lesendum þessara dálka pistilinn i dag, er ekki úr vegi að ég reyni i stuttu máli að svara spurningu, sem einn þeirra beindi tilmin i nýliðinni viku, þegar fjölmiðlunarskrif min hér i Timann bar á góma. Spurningin var: Hvað telur þú góða blaðamennsku og hvern- ig á góður blaðamaður að vera? Svar við slikri spurningu hlýtur að grundvallast á per- sónulegu mati þess, sem henni svarar. Um það, hvað er góð blaðamennska, eru ekki til neinar algildar formúlur, en ég skal reyna að svara þessu i samræmi við mina eigin sann- færingu._ Óhlutdrægní. Góð blaða- eða frétta- mennska felst að minu mati i þvi að miðla upplýsingum um það sem er að gerast nær og fjær með þvi móti, að fyllstu óhlutdrægni sé gætt. Jafn- framt sé lögð áhersla á að leita svara við öllum spurn- ingum, sem búast má við að vakni hjá þeim, sem lesa eða hlusta á það efni, sem blaða- maðurinn eða fréttamaðurinn sendir frá sér. Prófsteinn á það hvort blaöamaður er óhlutdrægur getur til dæmis verið, hvort honum lekst að skrifa sanna frétt um pólitisk átök i ákveðnum flokki eða flokkum án þess að persónuleg afstaða hans sjálfs til málsins eða pólitiskar skoðanir hans skini nokkurs staðar i gegn. Yfirleitt eru að minnsta kosti tvær hliðar á hverju máli, slundum fleiri. Af þeim ■;ökum er mikilvægt að blaða- maðurinn afli sér upplysinga um málið frá eins mörgum sjónarhornum og mögulegt er, en skoði það ekki aöeins frá einni hlið, sem kannski liggur beinast við. Heiðarleiki. Með þessu móti getur blaða- maðurinn best þjónað lesend- um að hlustendum sinum. Hann á ekki sjálfur að taka af- stöðu til málsins, heldur að gera áðurnefndum skjólstæð- ingum sinum það kleift. Upplýsingar blaðamannsins eiga að vera sá grunnur, sem lesendur blaðsins eiga að geta byggt á, þegar þeir móta sér skoðun á viðkomandi máli. Mikið er i húfi að sá grunnur sé traustur, og heiðarlega gerður. Blaðamaður, sem vill ástunda góða blaðamennsku, verður að vera fullkomlega heiðarlegur bæði gagnvart þeim aðilum, sem láta honum i té upplýsingar og gagnvart þeim, sem taka við þessum upplýsingum frá hans hendi, hvort sem það er i formi ritaðs máls á prenti eða talaðs orðs á öldum ljósvakans. Þetta á að sjálfsögðu jafnt við um allt efni, sem blaðamaðurinn vinnur, fréttir, greinar, frá- sagnir og viðtöl. Rýmið leyfir ekki að itarleg- ar sé farið út i þetta að sinni, en ég mun i næsta pistli, á þriðjudaginn kemur, fjalla nánar um góða blaðamennsku og þær kröfur, sem ég tel að þurfi að gera til blaðamanna á islenskum fjölmiðlum. —ÓR Olafur Ragnarsson skrifar ■ Hvert verður svarið, þegar maður erspurður: „HvaO telur þú góða blaöamennsku og hvernig á góöur blaöamaöur aö vera?”

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.