Tíminn - 21.07.1981, Síða 10
lo
Til sölu
Vélbundin taða, 1000 hestar.
Upplýsingar i sima 96-24624 milli kl. 20 og
21 næstu kvöld.
Stytkur til háskólanáms i Japan
Japönsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa tslendingi til
háskólanáms i Japan námsárið 1982 - 83 en til greina kem-
ur að styrktimabil verði framlengt til 1984. Ætlast er til að
styrkþegi hafa lokið háskólaprófi eða sé kominn nokkuð
áleiðis i háskólanámi. Þar sem kennsla við japanska há-
skóla fer fram á japönsku er til þess ætlast að styrkþegi
leggi stund á japanska tungu um a.m.k. sex mánaða skeið.
Umsækjendur skulu ekki vera eldri en 35 ára. Styrkfjár-
hæðin er 161.500 yen á mánuði og styrkþegi er undanþeg-
inn skólagjöldum. Auk þess fær styrkþegi 25.000 yen við
upphaf styrktimabilsins og allt að 43.000 yen til kaupa á
námsgögnum. Þá er og veittur ferðastyrkur.
Umsóknir um styrk þennan, ásamt staðfestum afritum
prófskirteina, meðmælum og heilbrigðisvottorði, skulu
sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavik, fyrir 15. ágúst n.k. — Sérstök umsóknareyðu-
blöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
15. júli 1981.
Úrtaka fyrir
Evrópumót
'81
fer fram i tengslum við opið iþróttamót á
Mánagrund i Keflavik 8.-9. ágúst n.k.
Mótið hefst laugardaginn 8. ágúst kl. 9,
keppt verður i: tölti, 4-gangtegundir, 5-
gangtegundir, hlýðnikeppni. Skráning fer
Tram hjá Einari Þorsteinssyni i sima 92-
2269. Siðasti skráningardagur er 28. júli.
Jafnframt fara fram kappreiðar á Mána-
grund9. ágúst. Skráning i sima 92-2711 og
92-7519. Siðasti skráningardagur er 5.
ágúst. i ,H
Rannsóknastyrkir EMBO i sameindalíf-
fræði
Sameindaliffræðisamtök Evrópu (European Molecular
Biology Organization, EMBO), hafa i hyggju að styrkja
visindamenn sem starfa i Evrópu og tsrael. Styrkirnir eru
veittir bæði til skamms tima (1 til 12 vikna) og lengri dval-
ar, og er þeim ætlað að efla rannsóknasamvinnu og verk-
lega framhaldsmenntun i sameindaliffræði.
Skammtimastyrkjum er ætlað að kosta dvöl manna á er-
lendum rannsóknastofum við tilraunasamvinnu, einkum
þegar þörf verður fyrir slikt samstarf með litlum fyrir
vara. Langdvalarstyrkir eru veittir til allt að eins árs i
senn, en umsóknir um endurnýjun styrks til eins árs i við-
bót eru venjulega teknar til greina, og i örfáum tilvikum
er styrkur veittur þrjú ár i röð. Umsækjendur um lang-
dvalarstyrki verða að hafa lokið doktorsprófi Umsóknir
um styrki til dvalar utan Evrópu og tsraels koma til álita,
en þær njóta minni forgangs. I báðum tilvikum eru auk
dvalarstyrkja greidd fargjöld styrkþega milli landa, svo
og fjölskyldna dvalarstyrkþega.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást hjá Dr. J.
Tooze, Executive Secretary, European Molecular Biology
Organization, 69 Heidelberg 1, Postfach 1022.40, Vestur-
Þýskalandi.
Umsóknir um skammtimastyrki má senda hvenær sem
er, og er ákvörðun um úthlutun tekin fljótlega eftir mót-
töku umsókna. Langdvalarstyrkjum er úthlutað tvisvar á
ári. Fyrri úthlutun fer fram 13. aprilog verða umsóknir að
hafa borist fyrir 15. febrúar, en siðari úthlutun fer fram 23.
október, og verða umsóknir að hafa borist fyrir 15. ágúst.
Menntamólaráðuneytiö
15. júli 1981.
Lausar stöður
Umsóknarfrestur um tvær lausar kenn-
arastöður við Fjölbrautaskólann á Akra-
nesi, sem auglýstar voru i Lögbirtinga-
blaði nr. 46/1981, er hér með framlengdur
til 5. ágúst n.k. Um er að ræða stöðu kenn-
ara i heilbrigðisgreinum (1/2 staða) og
stöðu kennara i viðskiptagreinum.
! Umsóknareyðublöð fást i menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykja-
vik, og hjá skólameistara.
Menntamálaráðuneytiö
| 16. júli 1981.
'
i
f.
erlend fréttafrásögn
Þriðjudagur 21. iúli 1981
JOAN KENNEDY A
SVIÐI A ÍTALÍU
■ Það ríkti ekki mikil hrifning i
Regio-leikhúsinu i Torino við
frumsýningu á leik, sem bar
nafnið „Myndin af Lincoln”, en
tónlistin við verkið er eftir Aaron
Copland. Sýningin var 26. júni
siðastl. og það var ekki fullt hús.
Þetta var i fvrsta sinn sem Joan
Kennedy kom fram á leiksviði.
Hún mæltifram texta með hljóm-
sveitarundirleik. Hlutverk
hennar byrjaði á þessa leið:
„Samlandar! Við getum ekki
flúið frá sögunni...”
Miður vinsamlegur gagnrýn-
andi sagði daginn eftirf blaði sinu
að þetta hefði likst kosningasam-
komu í Bandarikjunum, en ekki
listviðburði.
Það hefur verið skrifað mikið
um einkalíf JoansKennedy, og þó
einkum og sér i lagi „seinna lff
hennar”,eins og blaðamenn hafa
nefntævi hennarsfðan hún fór frá
manni sfnum.
t ttalíuferSnni virtist svo sem
Kennedy-áhrifin fylgdu henni
enn, þrátt fyrirallt talið um sjálf-
stæði og frelsi. Stjórnandi sýning-
arinnar „Myndin af Lincoln”,
Michel Sassoa, er mikill vinur
Kennedyfjölskyldunnar, og það
var hann, sem hafði boðið Joan
þetta hlutverk. Aður en hún kom
til Torfno hafði Ted Kennedy
sjálfur hringt til leikhússtjórans
til þess að ganga frá því, að nægir
lifverðir og öryggismenn væru sf-
fellt i' fylgd með konunni hans
fyrrverandi. Einnig hafði Ted
samband við Gianni Agnelli for-
stjóra Fiat-verksmiðjanna, og
hann bauðst til að lána nokkra
vopnaða li'fverði til öryggisgæslu
fyrir Joan.en Gianni hefur heilan
her af lífvörðum. Mannræningjar
hafa vaðið svo uppi í ttalíu á sfð-
ustutímum.að forstjórar stórfyr-
irtækja, stjórnmálamenn og auð-
jöfrar eru f sífelldri hættu.
Þegar blaðamenn fengu viðtal
við Joan Kennedy fyrir sýning-
una, stóð stjórnandinn, Michel
Sassoa, við hlið hennar, vernd-
andi hana eins og stóribróðir, og
svaraði oft fyrir hana, en annars
svaraði hUn flestum spurningum,
bláttáfram og rólega, en fór svo-
iitið í kring um þær, sem henni
þóttu vera of persónulegar eða
óþægilegar.
Joan var spurð hvort það hefði
ekki verið merkur áfangi í lífi
hennar, að taka einleikarapróf i
píanóleik. Þvi' svaraði hún glað-
lega, að það hefði verið stór stund
og sérstaklega vegna þess, að öll
fjölskyldan hefði verið saman
kominn til að taka þátti hátiðinni
með sér, maðurinn,börnin, frænd-
ur, frænkur jog vinir. I sam-
bandi við börnin, þá sagði Joan,
að það hefði verið mesta ham-
ingja li'fs síns, að eignast börnin,
og gleðin yfir börnunum ykist
með árunum heldur en hitt.
NU minntist hUn ekkert á hinar
ströngu kröfur Kennedy-fjöl-
skyldunnar til allra, sem tilheyra
henni, en það hafði — að sögn Jo-
an sjálfrar — háð henni árum
saman, aðhenni fannst hUn aldrei
geta staðið sig eins og bUist var
við af henni. Kennedyf jölskyldan
var alltaf tilbUin að taka þátt i
hvers konar opinberum athöfn-
um, taka á móti gestum með eng-
um fyrirvara, taka þátt í öllum
mögulegum iþróttum, þar sem
fjölskyldumeðlimimir áttu auð-
vitað helst að vera fremstir i öllu.
Þetta átti illa við Joan, sem er
hæglát, gefin fyrir listir, einkum
tónlist og ekki mikil iþróttakona.
NU var hUn spurð á Italiu um
hvernigþað heföi verið f yrir hana
að taka þátt f kosningabaráttu
manns si'ns á sl. ári, þrátt fyrir
yfirvofandi skilnaðarmál þeirra.
Joan sagði: „Þaö getur verið
mjög spennandi að vera kona
stjórnmálamanns, og það var
mikil upplifun fyrir mig að ferð-
ast um landið og kynnast banda-
riskum almenningi. Ég hefði ekki
viljað missa af þvi”.
Kvenfrelsiskona f blaðamanna-
hópnum vildi fá að vita, hvernig
hUn hefði farið að því að „verða
óháð^ og frjáls”, og öðlast
persdnulegt sjálfstæði.
Við emm ekki skilin, sagði Jo-
an, en við erum aðskilin að borði
og sæng og bUum ekki saman eins
og er, hvað sem verður i framtið-
inni. Mér hefði ekki tekist að
ljUka skólanum hefði maðurinn
minn ekki haft fullan skilning á
þvi' hvað tónlistin hefur mikið
gildi fyrir mig. Hann studdi mig,
bæði f járhagslega og með góðum
ráðum. Þetta var reyndar ekki
beint svar við spurningunni, en
var látið duga.
Þeim, sem voru það ágengir að
spyrja Joan um hvort hún hefði
sigrast á áfengisvandamáli sínu,
svaraði hUn þvíeinu til, að sér liði
vel, og hUn hefði ekki við nein
vandamál að striða. Hún ætti að-
eins góðar minningar um lifið, og
vonandi enn betri ár framundan.
1 forsal Regio-leikhUssins f
Tori'noergólfskreyting og er stórt,
svart naut aðalmyndin i skreyt-
ingunni, en nautið er merki borg-
arinnar. Það er gömul hefð i
þessu leikhUsi, að sá sem kemur
þar fram i' fyrsta sinn á að stfga á
kynfæri tuddans, þvi að það færi
þeim gott gengi i leikhUsinu.
Daginn áður en Joan Kennedy'
átti að koma fram,fór stjórnand-
inn með hana að sýna henni hUsið.
Hann tók f hönd hennar, og sýndi
svo hvar hUn atti að stiga. Þing-
mannsfrUin roðnaði, brosti feim-
nislega og fékkst ekki til að stiga
á nautið. Að vísu segist hUn vera
frjálsleg og byrjuð nýtt og frjáls-
legra líf en sem jxngmannsfrU i
Bandarfkjunum, en svo rækilega
hafði festst f henni hvað væri
sæmandi fyrir fina frú að gera og
hvaðekki, að Joan fékk sig ekki
til þess að stíga á tuddann, —
enda heppnaðist þessi fyrsta sýn-
ing hennar ekki vel, og Joan
Kennedy fékk ekki hól fyrir leik-
listartilraun sina. Lfklega heldur
hún sig meira við tónlistina i
framtíðinni, þvi að þar hefur hUn
þegar sýnt að hUn er gjaldgeng á
við marga aðra tónlistarmenn.
(ÞýttBSt)
■ //Myndin af Lincoln" var frumsýnd i Torinó. Fyrir
sýninguna stillti Joan Kennedy sér upp fyrir Ijós-
myndarana hin hressilegasta. Allt um kring voru
öryggisverðir, sem Ted -fyrrv. eiginmaður hennar- hafði
séð um að vernduðu hana í italíuferðinni.